Morgunblaðið - 02.10.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998 31
Menntamálaráðherra segir ríkið leggja góðan skerf
af mörkum til Kvikmyndasjóðs Islands
Framlagið hækkar um
10 m.kr. milli ára
REKSTRARÚTGJÖLD ríkissjóðs
vegna Kvikmyndasjóðs Islands eru
áætluð 146,4 milljónir króna, að því
er fram kemur í fjárlögum 1999.
Er þetta 10 milljóna króna
raunaukning frá fjárlögum 1998.
Hækkunin er ætluð til að efla
styrkveitingar Kvikmyndasjóðs.
Áætlað er að af útgjöldum sjóðsins
fari um 100 m.kr. í styrkveitingar,
9 m.kr. verði varið til að greiða
framlög í erlenda kvikmyndasjóði
og 10 m.kr. fari til kynningar á ís-
lenskum kvikmyndum erlendis.
í skýrslu sem Viðskiptafræði-
stofnun Háskóla Islands vann fyrir
Aflvaka hf., og greint var frá í blað-
inu í gær, kemur fram að íslenskar
kvikmyndir og þættir um Island í
sjónvarpi erlendis skiluðu rikis-
sjóði um hálfum milljarði króna í
skatttekjur á síðasta ári umfram
fjárframlög til Kvikmyndasjóðs
það ár. Munar þar mestu um þau
áhrif sem íslenskt efni, sem sýnt er
erlendis, hefur á straum ferða-
manna til íslands. Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra segir þessi
tíðindi ekki koma sér á óvart.
„Þetta staðfestir það sem menn
vissu að auðvitað kunna kvikmynd-
ir og sjónvarpsþættir að hafa áhrif
á það að menn heimsæki Island en
það em líka margir aðrir þættir
sem valda því að menn sækja okk-
ur heim. Sú starfsemi er ekki endi-
lega ríkisstyrkt ef það er hug-
myndin að nota þessar tölur sem
rökstuðning fyrir því að hækka rík-
isstyrk til kvikmyndagerðar? Hvað
með allt hitt sem ekki nýtur ríkis-
styrkja og laðar fólk til landsins?
Má þar til dæmis nefna Björku
Guðmundsdóttur.“
Menntamálaráðherra segir af og
frá að íslenska ríkið leggi ekki góð-
an skerf til kvikmyndagerðar. „Eg
hef líka heyrt ávæning af því að við
Snæfellinga-
kórinn í
Reykjavík
20 ára
Á ÞESSU ári heldur Snæfellinga-
kórinn í Reykjavík upp á 20 ára
starfsafmæli. Áf því tilefni heldur
kórinn m.a. tvenna tónleika á Snæ-
fellsnesi laugardaginn 3. október.
Fyrri tónleikarnir verða í Ólafsvík-
urkirkju kl. 14. Með kórnum syngja
Kirkjukórar Ólafsvíkur- og
Ingjaldshólskirkju. Seinni tónleik-
arnir verða í Stykkishólmskirkju kl.
18, með kór kirkjunnar.
Snæfellingakórinn í Reykjavík
var stofnaður í marsmánuði árið
1978. Fyrsti stjórnandi kórsins var
Jón Isleifsson organisti. Undanfarin
ár hefur kórinn starfað undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar.
Ljóðatónleikar
í Hveragerðis-
kirkju
TÓNLISTARFÉLAG Hveragerðis
heldur ljóðatónleika í Hveragerðis-
kirkju laugardaginn 3. október kl.
16. Yfirskrift tónleikanna er „Frá
íslandi til Aserbaídsjan". Einsöngv-
ari á tónleikunum er Sigi'ún Val-
gerður Gestsdóttir og píanóleikari
er Sigursveinn Magnússon.
Á tónleikunum getur m.a. að
heyra sönglög eftir Hjálmar H.
Ragnarsson, Áma Thorsteinsson,
stöndum ekki við skyldur okkar
gagnvart erlendum sjóðum sem við
eigum aðild að og Islendingar fá
styrki úr. Þetta er algjör misskiln-
ingur. Nú nýlega veitti Eurimage-
sjóðurinn, sem við eigum aðild að,
til dæmis tveimur íslenskum kvik-
myndum mjög háa styrki. Við ger-
um nákvæmlega eins og okkur er
fyrir lagt og Island, sem fámennt
ríki, á ekki og þarf ekki að borga
háar fjárhæðir í þessa sjóði sam-
kvæmt þeim alþjóðareglum sem
gilda. Að sjálfsögðu ber að standa
við þá samninga sem eru í gildi.“
Að hyggju Björns skiptir höfuð-
máli í þessu efni að menn komi sér
saman um hvað sanngjarnt sé að
ríkið styðji duglega við bakið á
kvikmyndagerð í landinu, hvað af
því eigi að vera á menningarlegum
forsendum og hvað vegna atvinnu-
sjónarmiða. „Menn, og þar á ég við
alla aðila sem að málinu koma,
verða að átta sig á því hvað sé við-
unandi, annars vegar með hliðsjón
af þróun og eflingu kvikmynda-
gerðar, sem við höfum öll áhuga á,
og hins vegar hver hlutur skatt-
greiðenda eigi að vera í því að
standa undir þessari atvinnustarf-
semi. Eins og við vitum hefur al-
mennt séð dregið úr slíkum styrk-
veitingum til atvinnulífsins. Það
era líka mismunandi sjónarmið um
það, annars vegar í Bandaríkjun-
um og hins vegar í Evrópu, hvort
það sé yfirleitt æskilegt að ríkið sé
með puttana í stuðningi við kvik-
myndir. Þar sem ríkisstyrkir eru
lægstir vegnar kvikmyndum best.“
Samanburður álitamál
Björn segir álitamál að bera
framlag ríkisins til Kvikmynda-
sjóðs saman við rekstur Sinfóníu-
hljómsveitar Islands og Þjóðleik-
hússins, eins og gert er í skýrsl-
SIGURSVEINN Magnússon og
Sigrún Valgerður Gestsdóttir.
Tryggva Baldvinsson, Jón Þórar-
insson, Jórunni Viðar, Carl Nielsen,
Ingunni Bjarnadóttur, Sigvalda
Kaldalóns, Giacomo Puccini og
Luciano Berio.
Tónleikarnir eru framlag flytj-
enda til styrktar flygilssjóði.
Fyrirlestur og
námskeið hiá
MHÍ
ÍVAR Brynjólfsson ljósmyndari
fer með stutt ágrip af ljósmynda-
sögu í fyrirlestri sem hann heldur í
Málstofu, fyrirlestrasal MHÍ, í
Laugarnesi mánudaginn 5. október
kl. 12.30.
Jun Kawaguchi heldur fyrirlest-
ur í Barmahlíð, fyrirlestrasal MHI
í Skipholti 1, miðvikudaginn 7.
október kl. 12.30, og fjallar um eig-
in verk og sýningar. Hann sýnir
verk sín um þessar mundir í Ás-
mundarsal við Freyjugötu.
Námskeið
Sigurborg Stefánsdóttir mynd-
listarmaður heldur námskeið í
bókagerð í húsnæði MHÍ í Laugar-
nesi og hefst námskeiðið þriðju-
unni. „Þar hefur hið opinbera tekið
að sér að reka menningarfyrirtæki
en enginn er að tala um að það taki
að sér að reka kvikmyndahús eða
að starfrækt verði hér á landi opin-
bert kvikmyndafyrirtæki. Hins
vegar er eitt öflugasta ríkisfyrir-
tækið, sem nú er við lýði, Ríkisút-
varpið og ég hef lagt áherslu á að
það hagaði framleiðslu sinni með
þeim hætti að það ýtti undir inn-
lenda kvikmynda- og þáttagerð.
Ríkisútvarpið hefur líka verið sá
skóli sem flestir okkar kvikmynda-
gerðarmenn hafa gengið í, auk
þess að standa að samningum um
samstarfsverkefni á sviði kvik-
myndagerðar við aðrar þjóðir.
Þetta era úrræði sem menn ættu
að velta fyrir sér.“
Island og Hollywood
í skýrslunni kemur einnig fram
að æskilegt sé að fella niður skil-
yrði Kvikmyndasjóðs um íslenskt
tal enda dragi það augljóslega úr
mögulegri alþjóðlegri dreifingu ís-
lenskra kvikmynda. Þetta mál seg-
ir menntamálaráðherra einnig
æskilegt að ræða. „I mínum huga
snýst málið ekki um það að Kvik-
myndasjóður Islands stuðli að því
að íslenskir kvikmyndagerðar-
menn njóti sín á erlendum vett-
vangi. Það eru ekki bara Banda-
ríkjamenn sem slá í gegn í
Hollywood, heldur allra þjóða
menn, vegna þess hvernig þar er
að málum staðið. Ef Islendingar
fara þangað og ná að slá í gegn yrði
það vissulega ánægjulegt en það er
ekki á verksviði Kvikmyndasjóðs
að tryggja það.“
En lítur Björn á þessa tillögu
sem aðför að íslenskri tungu og
menningu? „Það kom mér vissu-
lega á óvart að sjá þetta í áliti Við-
skiptafræðistofnunar.“
daginn 5. október. Kenndar verða
m.a. ýmsar ólíkar aðferðir við ein-
falt bókband byggðar á japönskum
hefðum.
Baltasar Samper myndlistar-
maður heldur námskeið um fresku-
gerð í Laugarnesi og hefst nám-
skeiðið þriðjudaginn 6. október.
Þetta námskeið krefst undh-stöðu-
þekkingar í myndlist.
Jón Axel Égilsson kvikmynda-
gerðarmaður heldur námskeið um
teiknimyndagerð í Skipholti 1 og
hefst námskeiðið laugardaginn 10.
október. Farið verður m.a. yfir
grundvallaratriði í klassíski-i
teiknimyndagerð og hún tengd við
tölvutækni í gerð teiknimynda.
Eva G. Sigurð-
ardóttir sýnir í
Galleríi Horninu
EVA G. Sigurðardóttir opnar mál-
verkasýningu í Galleríi Horninu,
Hafnarstræti 15, á morgun, laugar-
dag kl. 16. Verkin eru unnin á þessu
og síðasta ári og eru unnin með olíu
og blandaðri tækni á striga og kros-
svið. Viðfangsefni verka hennar era
tilveran og margræðni hugmynda.
Eva stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands og École
des Beaux arts de Lyon í Frakk-
landi. Hún hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum
hér heima og erlendis. Þetta er
hennar sjötta einkasýning.
Sýning stendur til miðvikudags-
ins 21. október og er opin alla daga
nema mánudaga kl. 14-18, þó er
innangengt um veitingahúsið á öðr-
um tíma.
Sögur af systrunum
Snuðru og Tuðru
BARNALEIKRITIÐ
Snuðra og Tuðra
verður frumsýnt í
Möguleikhúsinu við
Illemm á morgun,
laugardag. Snuðru og
Tuðru, sem eru litlar
systur, kemur oftast
nær ósköp vel saman
en stundum fer allt í
hund og kött. Þær
gera líka stundum
heljarinnar axarsköft
þó að allt sé það í
góðri trú. Til dæmis
einn daginn þegar
þær eru einar heima
og í heimsókn kemur
maður sem er að
safna fötum handa fá-
tæku börnunum í Afr-
íku. Af einskærri góð-
semi gefa þær liverja
einustu spjör fjöl-
skyldunnar í söfnun-
ina.
Leikritið er gert
eftir hinum kunnu
sögumIðunnar
Steinsdóttur um syst-
urnar Snuðru og
Tuðru. Það er aðal-
lega byggt á fjórum
þeirra; Snuðra og Tuðra verða
vinir, Snuðra og Tuðra missa af
matnum, Snuðra og Tuðra laga
til í skápum og Snuðra og Tuðra
og fjóshaugurinn. Leikstjóri og
höfundur leikmyndar er Bjarni
Ingvarsson, höfundur Ieikgerðar
og söngtcxta er Pétur Eggerz,
Katrín Þorvaldsdóttir sér um
búninga og brúðugerð og tónlist
er eftir Vilhjálm Guðjónsson.
Snuðru og Tuðru leika þær Drífa
Arnþórsdóttir og Linda Ásgeirs-
dóttir og þær bregða sér einnig í
önnur hlutverk, auk þess sem
Morgunblaðið/Golli
LINDA Ásgeirsdóttir og Drífa Arnþórsdóttir
í hlutverkum Snuðru og Tuðru.
brúður koma við sögu inn á milli.
Að sögn leikstjórans, Bjarna
Ingvarssonar, er leikritið hugsað
fyrir áhorfendur á aldrinum
tveggja til sjö ára. Systurnar
lenda í hinum ýmsu ævintýrum
og einn daginn fara þær upp í
sveit. „Þar sjá þær ýmislegt sem
er þeim býsna framandi, ekki síst
þegar þær fara að skoða fjósið,
sem þeim finnst mjög merkilegt.
Þær fara að ólmast við fjóshaug-
inn og það endar auðvitað með
því að önnur þeirra fer á kaf í
hauginn,“ segir Bjarni.
ESTEE LAUDER
Nú sérðu línur og hrukkur
minnka um allt að 50%
Það sem þú getur búist við að sjá
Með því að nota Diminish á kvöldin muntu sjá jákvæðar breytingar á
nokkrum vikum. Línur og djúpar hrukkur minnka. Ljómi og ferskleiki
húðarinnar sem þú hélst að væri horfinn kemur aftur.
Diminish inniheldur Retinol, hreinasta form af A-vítamíni og er eitt
áhrifamesta efni sem dregur úr öldrunareinkennum.
Þér mun líka það sem þú ekki sérð.
Kaupauki: DayWear 15 ml fylgir öllum Diminish - kremum.
Sérfræðingar frá Estée Lauder verða í þessum verslunum
í dag og á morgun, laugardag
UvttttO
H Y G E A
jnyrtivðruverdlun
Laugavegi, sími 511 4533
(SNYRTIVÖRUVEftSLUKIN
GLÆS®Æ
sími 5685170