Morgunblaðið - 02.10.1998, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
UMRÆÐUR UM
STEFNURÆÐU
UMRÆÐURNAR á Alþingi í gærkvöldi um stefnu-
ræðu Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, sem flutt
var við setningu þingsins í gær, einkenndust af því, að
þetta er síðasta þing fyrir kosningar. Töluverðrar
spennu gætir nú þegar á milli talsmanna Sjálfstæðis-
flokksins og hins væntanlega kosningabandalags þriggja
vinstri flokka og athygli vakti hversu harðskeyttur Hall-
dór Asgrímsson, utanríkisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, var í garð talsmanna samfylking-
arinnar, eins og þeir kalla sig sjálfir. Hins vegar var erf-
iðara að sjá hvar skerast muni í odda á milli vinstra
bandalagsins og hins nýja vinstri flokks, sem Steingrím-
ur J. Sigfússon, Ögmundur Jónasson og Hjörleifur Gutt-
ormsson hyggjast stofna. Skýringin á því er sjálfsagt sú,
að málefnaskrá vinstra bandalagsins, sem kynnt var fyr-
ir skömmu, mótaðist meira af vinstri stefnu en
miðjupólitík og kom það mönnum almennt á óvart, eins
og raunar var haft orð á í umræðunum í gærkvöldi.
Efnislega var það hins vegar kafli í stefnuræðu Davíðs
Oddssonar, sem hlýtur að vekja mesta athygli í þeim um-
ræðum, sem fram fóru á Alþingi síðdegis í gær og í
gærkvöldi, þótt einungis einn alþingismaður virtist koma
auga á það. í ræðu sinni fjallaði forsætisráðherra m.a.
um sjávarútvegsmálin og sagði:
„Það er því með nokkrum ólíkindum, þegar stjórn-
málaflokkar eða framboðsbræðingar segjast vilja kasta
fiskveiðistjórnunarkerfi okkar í heild sinni fyrir róða, án
þess að geta bent á, hvað eigi að koma í staðinn. Þeir sem
sýna slíkt ábyrgðarleysi ætla sér bersýnilega ekki í bráð
að leita eftir því að mega hafa forystu fyrir þjóðinni.
Á hinn bóginn er ljóst, að ýmsir þættir er varða
sjávarútvegsmál hljóta að lúta endurskoðun og lagfær-
ingum. Þjóðin þarf að eiga betri aðgang að upplýsingum
um undirstöðuatvinnugrein sína en verið hefur. Þá er
mjög þýðingarmikið, að nú er að störfum auðlindanefnd,
sem allir flokkar eiga aðild að. Þessi þverpólitíski vett-
vangur er kjörinn til að skoða æsingalaust og án fordóma
þætti, sem lúta að nýtingu auðlinda og afrakstri af þeim.
Það er lykilatriði, að þjóðin upplifi hagkvæma auðlinda-
nýtingu í landinu sem þjóðarheill. Bein og formleg bönd
þar á milli verða að vera traust. Má í því sambandi horfa
til nýfenginnar reynslu af því, hvernig íslendingar tóku
breytingum á eignafyrirkomulagi Landsbanka íslands.
Þúsundir landsmanna flykktust til að eignast hlut í þeim
rekstri. Mjög margir taka nú þegar þátt í útgerð víðs
vegar um landið, svo ekki sé talað um ef eignatengsl í
gegnum verðbréfa-, hlutabréfa- og lífeyrissjóði eru tekin
með í reikning [...] Hins vegar ætti að skoða vandlega,
hvort hið opinbera geti í samvinnu við forráðamenn í út-
vegi beitt sér fyrir aðgerðum sem leiða mundu til þess að
enn fleiri íslendingar, jafnvel stærsti hluti þjóðarinnar,
tækju beinan þátt í útgerð. Með því yrði skýrara að hér
er um þjóðargrein að ræða, sem öllum nýtist. Verði hinn
mikli gróði í þessari grein, sem sumir spá og sumir virð-
ast óttast, þá mundi hann fljóta hratt út í þjóðfélagið og
tortryggni yrði minni en ella.“
Guðný Guðbjörnsdóttir, þingmaður Kvennalista og ein
þeirra, sem skipa forystusveit hins nýja vinstra banda-
lags, sem er í burðarliðnum, veitti þessum ummælum
sérstaka eftirtekt, taldi þau athyglisverð og að full
ástæða væri til að þróa þessa hugmynd áfram.
Sú hugmynd, sem Davíð Oddsson setur fram í þessum
kafla stefnuræðunnar, að gera stærstan hluta þjóðarinn-
ar að beinum þátttakendum í útgerð og þá væntanlega í
því formi, að um svo víðtæka og almenna hlutabréfaeign
væri að ræða í útgerðarfyrirtækjum, opnar nýjar víddir í
þeim umræðum, sem staðið hafa allan þennan áratug um
stefnuna í sjávarútvegsmálum. Þess vegna er ástæða til
að fjallað verði frekar um hana og kannað til hvers slíkar
umræður leiða.
Það er rétt, sem fram kom í ræðu Margrétar Frí-
mannsdóttur, eins helzta leiðtoga vinstra bandalagsins,
að nauðsynlegt er að sátt verði um þetta stóra mál í
þjóðfélaginu. Með þessari ræðu forsætisráðherra hefur
hugsanlega verið stigið athyglisvert skref í þá átt.
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998 37,
Kaupmáttur Islendinga hefur
fjórum sinnum hraðar en
samanburðarlöndum
Hen-a forseti.
I dag hefst síðasta þing þessa kjörtíma-
bils. Það er ekki ofsögum sagt að það hafí
verið viðburðaríkt, enda hafa fjölmörg stór
mál fengið afgi’eiðslu. Erfitt er að finna
mörg önnur kjörtímabil í sögu lýðveldisins
þar sem jafnmiklum árangri hefur verið
náð og hagur borgaranna hefur breyst
jafnmikið til batnaðar og á þessu. Kemur
hér margt til. Þegar horft er til baka til
upphafs kjörtímabilsins og skoðað er,
hverjar voru væntingar manna í kosning-
unum, sem fóru á undan, hvaða baráttu-
mál stjórnmálaflokkarnir settu á oddinn,
þá sést árangurinn í skýru ljósi. Menn
höfðu haft þungar áhyggjur af því, að
kaupmáttarhrunið sem hófst 1988 væri
óbreytanlegur veruleiki, tjón sem þjóðin
fengi seint bætt. Kaupmáttarhrunið sjálft
hafði að vísu verið stöðvað og við vorum
farin að fikra okkur í rétta átt. En fæstir
sáu fyrir að stökkið fram á við yrði svo
stórt og ávinningurinn jafn mikill. Kaup-
máttaraukning ráðstöfunartekna á mann
hefur orðið milli 17 og 18 prósent á árun-
um 1996 til 1998. Á sama tíma hefur hún
orðið aðeins rúmlega fjögur og hálft pró-
sent í löndunum sem við berum okkur
saman við. Það þykir þó ekki slakt í þeim
löndum. Kaupmáttur Islendinga hefur
þannig vaxið nærri fjórum sinnum hraðar
en í samanburðarlöndunum. Slíkur ái’ang-
ur var óþekktur á Islandi. Þrátt fyrir mikl-
ar launahækkanir er hagur atvinnuveg-
anna góður, þegar á heildina er litið. Góð
afkoma þjóðarbúsins skilar sér þannig
bæði til heimila og fyrirtækja. Og fyrir
þessar sömu kosningar höfðu menn miklar
áhyggjur af atvinnuleysinu, það var rauði
þráðurinn í öllum ræðum frambjóðenda.
Atvinnuleysið hefur minnkað jafnt og þétt
á þessu kjörtímabili og er nú með því
minnsta sem þekkist um víða veröld. Það
er mikið gleðiefni.
Við höfðum líka veralegar áhyggjur af
lánstrausti þjóðarinnar út á við, vegna
vaxandi skuldasöfnunar hins opinbera og
þess óróleika, sem verið hafði í efnahags-
málum, ekki síst á níunda áratugnum. Hér
hefur viðsnúningurinn kannski orðið mest-
ur. Á þessu ári og hinu næsta eru Islend-
ingar að greiða niður skuldir ríkisins um
30 þúsund milljónir króna. Þetta eru gríð-
arlegar fjárhæðir sem hafa strax áhrif, því
vaxtabyrðin fer nú minnkandi frá ári til
árs. Þeir fjármunir, sem við þurfum að
setja til hliðar, til að greiða útlendingum
vexti af lánum okkar, fara nú ört lækk-
andi. Og við upphaf kjörtímabilsins höfðu
margir frambjóðendur áhyggjur af því, að
Island yrði undir í samkeppni við önnur
ríki. Urðu ýmsir til að fullyrða, að þar sem
ísland hafnaði því að gerast aðili að Evr-
ópusambandinu mundi landið dragast
hratt aftur úr. Reyndin varð ekki sú. Ekki
aldeilis. Samkvæmt þeim mælistikum, sem
taldar eru öruggastar og alþjóðlegar
stofnanir beita, hefur Island skipað sér í
fimmta sæti þeirra þjóða,
sem mestrar velferðar
njóta í heiminum öllum.
Og lánstraust þjóðarinn-
ar vex ár frá ári, að mati
þeirra stofnana sem
fremstar standa í þeim
fræðum. Slíkir dómar eru ekki eingöngu
til þess fallnir að gleðja metnaðarfulla
þjóð, heldur eru þeir hreinn ávinningur
fyrir hana í beinhörðum peningum. Vaxta-
byrði okkar lækkar vegna þess að við njót-
um vaxandi trausts.
Við upphaf kjörtímabilsins héldu margir
að það kynni að hamla framförum að við
væram iliilega bundin á klafa gamallar
verkaskiptingar í íslensku atvinnulífi.
Fjárfestingar höfðu staðið í stað og marg-
víslegar tilraunir til að bæta úr höfðu ekki
dugað. Hæstvirtur iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra og þeir aðrir sem þar hafa tekið
til hendi á kjörtímabilinu geta glaðst yfir
góðum árangri það sem af er og enn hafa
menn mörg járn í þessum eldi. Og nýjar
útflutningsgreinar hafa nýtt sér þau hag-
stæðu skilyrði sem frjálsari efnahags-
stefna hefur skapað. Nú er svo komið að
útflutningstekjur af hugbúnaði eru að
nálgast 2000 milljónir króna á ári. En slík-
ur útflutningur var óþekktur fyrir fáeinum
árum. Þetta er heldur betur búbót fyrir ís-
lenskt samfélag. Auðvitað fagna flestir
þessari jákvæðu þróun, en stjórnarand-
staðan kýs að hafa það svo, að allur þessi
árangur hljóti eingöngu að vera ytri að-
stæðum að þakka. Hinir erlendu lánshæf-
iseinkunnagjafar eru ekki sömu skoðunar.
I þeirra umsögnum, sem og annarra al-
þjóðlegra stofnana, kemur þvert á móti
fram, að það er einmitt stefna stjórnvalda,
sem haft hefur úrslitaáhrif: Breytingar á
löggjöf í frjálsræðisátt, stöðugleiki á
vinnumarkaði, skynsamlegir kjai'asamn-
vaxið
1
ingar, breytt skattastefna og minni bein
afskipti af atvinnulífinu hafa ráðið úrslit-
um um þessa góðu vegferð.
Á hinn bóginn er rétt að gera sér grein
fyrir, að þótt við getum gert ráð fyrir að
Islendingar muni áfram njóta velmegunar,
aukins hagvaxtar og bætts kaupmáttar, þá
er óhjákvæmilegt að setja fyrirvara við
slíka spá. Við erum vissulega á réttri leið,
en við vitum að þvi miður eip til þeir aðilar
í þjóðfélaginu, sem vilja beygja út af þeirri
braut. Þeir, sem taka snögglega beygju,
þegar þeir era staddh- á beinu brautinni,
fara út af og kollkeyra sig og þá aðra sem
glepjast á að vera með í för. Við höfum ný-
lega séð uppskrift að slíkri kollsteypu.
Hún var tilkynnt sem forskrift að efna-
hagsstefnu nýs flokkabræðings til fjög-
urra ára. Þeir aðilar, sem kynntu þá
stefnu sína svo, hafa af skiljanlegum
ástæðum verið á harðahlaupum á undan
sjálfum sér og stefnu sinni síðustu daga,
og vilja sumir ekki lengur við afkvæmið
kannast. Þessa sögu þekkjum við. Það
breytir engu, þótt sumir hafi kosið á gam-
aldags hátt að hafa uppi stóryrði um þá
sem vöktu athygli á, hvílík ómynd allur sá
málatilbúnaður var. Eftir situr vissan um
það, að þessir aðilar, sem hafa sýnt á spilin
sín, eru albúnir til þess að beina þjóðinni í
hið gamla far, og þar með setja efnahags-
legan ávinning hennar í uppnám. Ef svona
færi fram myndi mat alþjóðlegra stofnana
á getu okkar í samkeppni falla hratt.
Lánshæfi landsins mundi þegar minnka og
vaxtakjörin vei’sna. Oróleikinn innanlands
yrði þó enn erfiðari viðureignar. Um þetta
útspil þarf ekki að hafa fleiri orð.
Svo sem venja stendur til hafa háttvirtir
þingmenn fengið í hendur lista yfir laga-
framvörp sem koma munu til kasta Al-
þingis. Sá listi sýnir að háttvirtra þing-
manna bíður mikið starf. Þótt kosninga-
vetur fari í hönd og það hafi áhrif á vinnu-
brögð er óhætt að gera ráð fyrir að um
flest mál verði þokkalegur friður og þau
fái málefnalega meðferð. Hæstvirtur fjár-
málaráðherra hefur lagt fram fjárlaga-
frumvarp sitt. Þar er byggt á að ríkissjóð-
ur verði rekinn halla-
laus. Utgjöldum verður
haldið í skefjum og vax-
andi tekjur era notaðar
til að greiða niður skuld-
ir ríkisins, ekki síst hin-
ar erlendu skuldir. Eg
er ekki í vafa um að sú stefna er í fullu
samræmi við þjóðarviljann. En þrátt fyrir
aðhald, sem óhjákvæmilegt er að sýna við
núverandi aðstæður, er gert ráð fyrir
hæn-i framlögum en áður til mikilvægra
málaflokka, svo sem menntamála, heil-
brigðismála og félagsrnála. Á öllum þess-
um sviðum erum við Islendingar sem bet-
ur fer í fremstu röð og það er ófrávíkjan-
legur ásetningur ríkisstjórnarinnar að
halda þeim stöðu.
Atvinnuleysið hefur minnkað jafnt og
örugglega á kjörtímabilinu. Það sparar
ríkinu mikið fé og fleiri störf skapa ríkinu
og sveitarfélögum auknar tekjur. Ríkis-
stjórnin ákvað að lækka skatta í áföngum,
bæði á fyrirtækjum og einstaklingum.
Tveir áfangar skattalækkana hafa þegar
átt sér stað og síðasta skrefið verður stig-
ið nú í janúarbyrjun, þegar skattar lækka
enn, um leið og laun hækka í samræmi
við samninga. Við trúðum því staðfast-
lega að þessar breytingar mundu auka
áræði fólks og fyrirtækja, og ríkið stæði
því ekki verr, þegar þau áhrif kæmu að
fullu fram. Það hefur gengið eftir. Okkar
skattkerfi er þannig uppbyggt, að þegar
tekjurnar aukast hjá einstaklingunum, þá
nýtur ríkið góðs af því og fær heldur
meira í sinn hlut en tekjuaukningin ein
gæfi tilefni til. Þegar tekjur einstaklinga
dragast á hinn bóginn saman, þá tekur
skattkerfið með mildari hætti en annars
staðar gerist á þeim breytingum. Skatta-
lækkunarstefna ríkisstjórnarinnar er að
skila miklum árangri og er auðvitað
miklu heppilegra að ganga fram með
þessum hætti en að auka tekjur ríkissjóðs
með beinum skattahækkunum. Þær draga
úr þrótti einstaklinga og fyrirtækja, og
búa til vítahring aukinna skatta og minnk-
andi tekna. Hugmyndum, sem settar hafa
verið fram og draga úr skilvirkni stað-
greiðslukerfis skatta,
er algjörlega hafnað af
hálfu ríkisstjórnarinn-
ar.
Við höfum heyi’t yfir-
lýsingar forystumanna
stjórnarandstæðinga,
um að þeir vilji hækka
fjármagnstekjuskatt í
allt að 40%. Hér era
menn enn að leika sér
með gáleysislegar hug-
myndir. Ef þessar hug-
myndir formanns Al-
þýðuflokks gengju eftir
yrðu þær rothögg á
spamaðinn í landinu og
myndu kalla á mikla
vaxtahækkun. Ekki
þarf að lýsa þeim erfið-
leikum fyrir íslenska
framleiðslustarfsemi,
sem slíku myndi fylgja.
Utflutningur og þar
með tekjur þjóðarinnar
myndu dragast hratt
saman. Þessar hug-
myndir eru dæmi um þá
skammsýni, og aftur-
hvarf til fortíðar, sem
mjög bar á í þeim tillög-
um sem frægar urðu á
dögunum.
Áður var vikið að
aukningu fjárfestinga á
Islandi. Uppbygging á
borð við þá, sem orðið
hefur í líftækni og
erfðarannsóknum, er
afar mikilvæg. Á þeim
vettvangi gefst nú
hundruðum vel mennt-
aðra Islendinga færi á
að glíma við vel launuð
og áhugaverð störf. Vís-
indaleg þekking fær út-
rás í íslensku atvinnulífi
allri þjóðinni til heilla. I
þessu ævintýri felast
nýir möguleikar á stór-
bættu heilbrigðiskerfi, um leið og skotið er
fleiri stoðum undir íslensk iífskjör. Þær
breytingar, sem orðið hafa í efnahagslegu
umhverfi, gera það að verkum að minni
hætta er á, að þensla í kjölfar uppgangs í
atvinnulífi leiði til kollsteypu eins og stund-
um gerðist við áþekkar aðstæður.
Nú er beitt almennri hagstjórn í landinu
og leitast við að tryggja að sömu leikreglur
eigi hvarvetna við. Sértækar aðgerðir
heyra sögunni til. Árangurinn blasir við.
Atvinnulíf okkar er að verða sífellt marg-
brotnara og jafnframt hæfara til að bregð-
ast við síbreytilegum aðstæðum. Stjórnar-
farið er nú hlutlausara gagnvart einstök-
um atvinnugreinum en áður. Nú má
treysta því að samfella ríki í viðbrögðum
hins opinbera, og að það refsi ekki fyrir
áhættu og framkvæði.
Enn þarf þó þjóðin að reiða sig á að okk-
ur takist hönduglega að sækja sjóinn,
vinna fisk og selja til útlanda. Það er ekki
um það deilt, að núverandi skipan fiskveiða
stuðlar að mikilli verðmætasköpun. Víðast
hvar annars staðar í heiminum er sjávarát-
vegur hins vegar þungur baggi. Vék hæst-
virtur utanríkisráðherra skilmerkilega að
þessum þáttum í ræðu sinni á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna nú fyrir
skemmstu. Það er því með nokkrum ólík-
indum þegar stjómmálaflokkar eða fram-
boðsbræðingar segjast vilja kasta fisk-
veiðistjórnunarkerfi okkar í heild sinni fyr-
ir róða, án þess að geta bent á, hvað koma
eigi í staðinn. Þeir, sem sýna slíkt ábyrgð-
Stefnuræða Davíðs
Oddssonar forsætis-
ráðherra á Alþingi
í gær
arleysi, ætla sér bersýnilega ekki í bráð að
leita eftir því að mega hafa forystu fyrir
þjóðinni.
Á hinn bóginn er ljóst að ýmsir þættir er
varða sjávarútvegsmál hljóta að lúta end-
urskoðun og lagfæringum. Þjóðin þarf að
eiga betri aðgang að upplýsingum um und-
irstöðuatvinnugrein sína en verið hefur. Þá
er mjög þýðingarmikið að nú er að störfum
svokölluð auðlindanefnd, sem allir flokkar
eiga aðild að. Þessi þverpólitíski vettvang-
ur er kjörinn til að skoða æsingalaust og
án fordóma þætti sem lúta að nýtingu auð-
linda og afrakstri af þeim.
Það er lykilatriði að þjóðin upplifi hag-
kvæma auðlindanýtingu í landinu sem
þjóðarheill. Bein og formleg bönd þar á
milli verða að vera traust. Má í því sam-
Vaxtabyrði okkar lækkar
Skattar lækka
bandi horfa til nýfenginnar reynslu af því
hvernig íslendingar tóku breytingum á
eignarfyrirkomulagi Landsbanka Islands.
Þúsundir landsmanna flykktust til að eign-
ast hlut í þeim rekstri. Mjög margir taka
nú þegar þátt í útgerð víðs vegar um land-
ið, svo ekki sé talað um ef eignatengsl í
gegnum verðbréfa-, hlutabréfa- og lífeyr-
issjóði eru tekin með í reikning. Að auki
njóta landsmenn hagkvæmrar nýtingar á
sjávarfangi í gegnum niðurgreiðslu skulda
útvegs við opinbera aðila, blómlega sam-
búð hans við aðrar greinar, vaxandi skatt-
greiðslur frá fyrirtækjum á þessu sviði og
dreifikerfi opins hagkerfis á þeim verð-
mætum sem í greininni skapast. Það er
sem sagt einfaldlega engin tilviljun að Is-
lendingar njóta ríflegs kaupmáttarbata á
sama tíma og sjávarút-
vegurinn er í sókn. Hins
vegar ætti að skoða
vandlega hvort hið op-
inbera geti í samvinnu
við forráðamenn í út-
vegi beitt sér fyrir að-
gerðum sem leiða
myndu til þess að enn
fleiri íslendingar, jafn-
vel stærsti hluti þjóðar-
innar, tækju beinan
þátt í útgerð. Með því
yrði skýrara að hér er
um þjóðargrein að
ræða, sem öllum nýtist.
Verði hinn mikli gróði í
þessari grein sem sumir
spá og sumir virðast
óttast, þá myndi hann
fljóta hratt út í þjóðfé-
lagið og tortryggni yi’ði
minni en ella.
Það skiptir íbúa
hinna dreifðu byggða
öllu að undirstöðuat-
vinnuvegur þeirra sé
þróttmikill, njóti ekki
lakari kjara en aðrar
greinar og búi við al-
mennt traust lands-
manna. Stefnumótun í
byggðamálum, sem
stjórn Byggðastofnunar
undirbjó og kynnt var á
Alþingi sl. vor, verður
flutt og afgreidd á
þessu þingi. Ekki er
vafi á, að hún á að geta
veitt góða viðspyrnu í
byggðamálum, verði vel
á eftir fylgt, og vonandi
snúið vörn í sókn.
Langtímaáætlun í vega-
gerð, sem nú er í fyrsta
sinn unnið eftir, verður
einnig mikilvægt tæki í
þeirri baráttu. Hagur
bænda, sem verið hefur
þröngur, fer nú nokkuð
batnandi og er það mikið fagnaðarefni.
Hafa bændur sýnt mikið þolgæði við erfið-
ar aðstæður og eru samningar þeirra við
ríkisvaldið nú smám saman að skila þeim
og neytendum betri hag. Gróska í ferða-
þjónustu, sem er mikil um þessar mundir,
ýtir undir væntingar manna. Þarna felast
miklir möguleikar, sem búa þarf í haginn
fyrir og mun ekki síst landsbyggðin fá
mikinn styi’k af þessum vaxtarbroddi ís-
lensks atvinnulífs.
Herra forseti.
ísland býr enn við ríka sérstöðu, þótt
það sé nú í nánari snertingu við alþjóðlegt
umhverfi en áður. Þá sérstöðu landsins á
að viðurkenna og nýta. I mjög athyglis-
verðri ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna sagði hæstvirtur utanríkisráð-
herra: „Það er órökrétt og ósanngjarnt að
neita löndum um réttinn til að nýta hreina
og endurnýjanlega orku til iðnaðar og
leyfa á sama tíma að iðnaður, sem notast
við mengandi jarðefnaeldsneyti, sé settur
á fót annars staðar."
ísland er og verður í fremstu röð á sviði
umhverfismála. Það þýðir á hinn bóginn
ekki að forystumönnum þjóðarinnar beri
ekki að sjá til þess, að íslendingar búi við
sanngjörn skilyrði, þegar ákveðnum þátt-
um umhverfismálanna er markaður rammi
með alþjóðlegum samþykktum. Islensk
stjórnvöld væru að bregðast hlutverki sínu
með ámælisverðiim hætti, ef þau gættu
ekki hagsmuna Islendinga að þessu leyti,
eins og hæstvirtur utanríkisráðherra og
hæstvirtur umhverfisráðherra hafa af ein-
urð gert fyrir okkar hönd.
Á alþjóðlegi’i ráðstefnu í Japan á síðasta
ári um aðgerðir til að draga úr losun svo-
nefndra gi’óðurhúsalofttegunda var sam-
þykkt Kyoto-bókunin, sem svo er kölluð.
Þar er gert ráð fyrir að á Islandi geti losun
slíkra lofttegunda að hámarki verið tíu
prósentum meiri á árunum 2008 til 2012 en
hún var árið 1990. Þetta torveldar okkur
að nýta íslenska orku með þeim hætti sem
vonir höfðu staðið til. Engin þjóð myndi í
alþjóðasamningi fórna baráttulaust mögu-
leikum sínum til að bæta lífskjör sín með
nýtingu auðlinda sinna.
Iðnríkin, sem gengist hafa undir að
minnka losun gróðurhúsalofttegunda um
fáein prósent, eiga fæst í erfiðleikum með
að ná þvi markmiði. Það gera sum þeirra
með því að leggja af mjög mengandi starf-
semi, sem þegar er orðjn óhagkvæm og úr-
elt. Slíka kosti eiga Islendingar ekki. Á
hinn bóginn gjöldum við þess að hafa að
mestu lokið hitaveituvæðingu landsins fyr-
ir árið 1990, en Kyoto-bókunin er miðuð
við það ártal. Hefði hitaveituátakinu ekki
verið lokið fyrir þennan tíma ættu Islend-
ingar þar innistæðu og ættu auðveldara
með að fallast á niðurstöðu fundarins í
Kyoto.
Unnið er að því að afla sjónarmiðum Is-
lands fylgis á alþjóðavettvangi. Það skaðar
hins vegar hagsmuni landsins út á við, ef
þessi viðleitni er gerð tortryggileg heima
fyi’ir. Almennt er viðurkennt að hrein og
endurnýjanleg orka er forsenda stóriðju á
íslandi. Með þeirri nýtingu er einmitt
dregið úr mengun í heiminum. Gagnvart
okkur gengur því Kyoto-bókunin þvert á
sín eigin markmið.
Herra forseti.
í opinbem heimsókn til Grænlands sl.
sumar gafst kærkomið tækifæri til að
rækta tengslin við gi-annþjóðina í vestri.
Grænlenska landstjórnin er mjög áhuga-
söm um að efla samskipti og samstarf á
milli þjóðanna. Gefin var út sameiginleg
yfirlýsing forsætisráðherra Islands og for-
manns landstjórnar Grænlendinga um
aukna samvinnu á ýms-
um sviðum, svo sem í
heilbrigðis-, menningar-,
viðskipta- og í sjávarút-
vegsmálum. Varðandi hið
síðasttalda er byggt á ít-
arlegum samstarfssamn-
ingi, sem sjávarútvegsráðherrar landanna
undirrituðu í júlí í sumar.
Akveðið var að eiga samstarf um að
minnast þess, að árið 2000 munu löndin
fagna því að þúsund ár era liðin frá því er
Leifur heppni Eiríksson fann Ameríku.
Leitast verður við að vekja athygli um-
heimsins á sameiginlegum arfi þjóðanna
og nýta hið sögulega tilefni til að styi’kja
samvinnu íslenskra og grænlenskra aðila í
ferðaþjónustu.
Islendingar, Færeyingar og Grænlend-
ingar vilja auka samstarf sín á milli. Til að
undirstrika þann vilja hefur verið ákveðið
að taka upp reglubundna samráðsfundi
forsætisráðherra Islands, lögmanns
Færeyja og formanns grænlensku land-
stjórnarinnar. Þjóðirnar þrjár hafa ríka
samkennd og sameiginlega hagsmuni og
þurfa að eiga náið samráð um alþjóðlega
þróun og samninga sem snerta málefni
hafsins og sameiginlega fiskistofna.
ísland tekur við formennsku í norrænu
ráðherranefndinni um næstu áramót. Nor-
ræn samvinna er Islendingum afar mikil-
væg, enda einn af hornsteinum utanríkis-
stefnunnar. Það er gleðiefni hve vel hefur
tekist að laga norrænt samstarf að aðild
Svíþjóðar og Finnlands að Evrópusam-
bandinu og gerbreyttum aðstæðum í álf-
unni. Norræn samvinna er orðin fjöl-
breyttari og efnismeiri en áður og um leið
enn mikilvægari vettvangur fyrir Island til
að tryggja hagsmuni sína í Evrópu. I for-
mennskutíð Islands verður leitast við að
styrkja þessa þróun og efla umræðu og
samráð milli Norðurlandanna um alþjóða-
og öryggismál.
Atlantshafsbandalagið verður fimmtíu
ára á næsta ári. Áfangans verður minnst í
apríl næstkomandi á leiðtogafundi banda-
lagsins í Washington. Á afmælisárinu
hefst nýi’ kafii í sögu bandalagsins, en þá
fá inngöngu þrjú ríki, sem áður vora í Var- -
sjárbandalaginu sáluga. Það er til marks
um styrk og velgengni NATO, að flestöll
Evrópuríki utan þess sækjast eftir því að
komast þar inn fyrir dyr. Kúvending for-
ystumanna Alþýðuflokksins í afstöðu til
sameiginlegra öryggishagsmuna vest-
rænna ríkja hefur valdið áhyggjum og
vakið spurningar um tráverðugleika og
stefnufestu.
Herra forseti.
Á síðastliðnum vetri var kynnt ný skóla-
stefna fýrir grann- og framhaldsskóla
landsins. Um hana náðist víðtæk sátt í
samfélaginu. Ritun nýrra aðalnámskráa_
fyrir þessi skólastig er á lokastigi en þær
munu taka gildi frá og með næsta hausti. I
fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir allt
að 260 milljónum króna í sérstök verkefni
til að tryggja að nýju skólastefnunni sé
fylgt myndarlega eftir. Kennaramenntun
verður efld, gert verður átak í endur-
menntun kennara og farið í aðgerðir til að
bæta námsráðgjöf. Fé verður varið til
gi’einingar á sérþörfum nemenda og sér-
stök áhersla lögð á upplýsingatækni innan
skólakerfisins. Þær þúsundir milljóna
ki’óna, sem nú þegar renna til skóla lands-
ins, munu nýtast enn betur en áður, þegar
skólamir hafa skýrari markmið í dagleg-
um störfum sínum. Framkvæmd nýiTar
skólastefnu er forsenda þess að íslenskir
skólar geti í framtíðinni veitt nemendunrt
menntun sem stenst samanburð við hið
besta sem þekkist.
í fjárlagaframvarpinu er gert ráð fyrir
fjárveitingum til umfangsmikils átaks á
sviði upplýsingatækni og_ umhverfismála á
vegum Rannsóknarráðs Islands. Framlag-
ið tekur mið af áætlun til nokkurra ára
sem Rannsóknarráðið hefur lagt fram að
ósk menntamálaráðherra en samtals er
áætlað að veita 580 milljónir króna til
verkefnisins á næstu árum.
Á vegum félagsmálaráðuneytisins hefur
á kjörtímabilinu verið unnið að uppstokk-
un á fjölmörgum málaflokkum sem undir
það falla. Eru vandfundin önnur ár þar
sem jafnmiklar breytingar hafa orðið á
einu málasviði. Nægir að nefna í því sam-
bandi nýjar heildstæðar reglur um sam-
skipti á vinnumarkaði og gjörbreytingar í
húsnæðismálum sem leysa munu úr marg-
víslegum vanda þar. Á þessu kjörtímabili
hefur sveitarfélögum fækkað og viðfangs-
efni þeirra og ábyrgð vaxið í sama skyni.
Áfram verður haldið á þeirri braut.
Hér á landi er jafnrétti kynjanna með
því besta sem þekkist meðal þjóða heims.
Það dregur þó ekki úr rfldsstjórninni að
leitast við að bæta stöðuna, því enn hallar
á konur á ýmsum sviðum
samfélagsins og á karla
á öðrum sviðum þess. *
Stefnt er að því að leggja
fyrir yfirstandandi þing
framvarp til nýrra jafn-
réttislaga þar sem gætir
nýrrar sýnar í þessum mikilvæga mála-
flokki.
Á sviði dóms- og lögreglumála hefur
orðið byltingarkennd breyting á undan-
förnum árum og hefur skilvirkni dóms-
kerfisins og réttaröryggi borgaranna auk-
ist stórlega. Áfram verður haldið á þeirri
braut. Þá er upplífgandi og eykur okkur
styrk að heyra hvað alþjóðleg samtök, sem
berjast gegn spillingu í opinbeiTÍ stjórn-
sýslu, hafa að segja um Island. Samkvæmt
niðurstöðum alþjóðlegrar könnunar sem
samtökin létu gera er Island eitW
óspilltasta land í heimi og fær einkunnina
9,3 af 10 mögulegum. Við getum öll verið
stolt af.
Herra forseti, góðir áheyrendur.
Nokkurs ótta hefur gætt í heiminum
vegna óvissu um efnahagsþróun í Asíu og
Suður-Ameríku, og vandamála sem Rúss-
land hefur búið við undanfarin ár og ekki
sér fyrir endann á. Þessir atburðir ýta
undir varfærni af okkar hálfu. Sagan
kennir okkur, að efnahagskreppa er iðu-
lega að verulegu leyti mannanna verk.
Brugðist er rangt við og afturkippur í ytri
aðstæðum er magnaður upp með mannleg-
um mistökum. Þess vegna verða menn nú
að fara með gát og tefla ekki í tvísýnu hin-
um mikla ávinningi sem við höfum þegar
náð og eigum enn í vændum, ef vel verður
á haldið. Ef við stöndum staðfastlega við
stefnuna, sem svo miklu hefur skilað,
bendir flest til þess að góðærið megi fram-
lengja ölium til heilla. Að því skulum við
stefna. Ég þakka þeim sem hlýddu. i
Kúvending Alþýðu-
flokks í öryggismál-
um veldur áhyggjum
Davíð Oddsson
Byltingarkennd
breyting í dóms- og
lögreglumálum