Morgunblaðið - 02.10.1998, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 02.10.1998, Qupperneq 37
36 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. UMRÆÐUR UM STEFNURÆÐU UMRÆÐURNAR á Alþingi í gærkvöldi um stefnu- ræðu Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, sem flutt var við setningu þingsins í gær, einkenndust af því, að þetta er síðasta þing fyrir kosningar. Töluverðrar spennu gætir nú þegar á milli talsmanna Sjálfstæðis- flokksins og hins væntanlega kosningabandalags þriggja vinstri flokka og athygli vakti hversu harðskeyttur Hall- dór Asgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, var í garð talsmanna samfylking- arinnar, eins og þeir kalla sig sjálfir. Hins vegar var erf- iðara að sjá hvar skerast muni í odda á milli vinstra bandalagsins og hins nýja vinstri flokks, sem Steingrím- ur J. Sigfússon, Ögmundur Jónasson og Hjörleifur Gutt- ormsson hyggjast stofna. Skýringin á því er sjálfsagt sú, að málefnaskrá vinstra bandalagsins, sem kynnt var fyr- ir skömmu, mótaðist meira af vinstri stefnu en miðjupólitík og kom það mönnum almennt á óvart, eins og raunar var haft orð á í umræðunum í gærkvöldi. Efnislega var það hins vegar kafli í stefnuræðu Davíðs Oddssonar, sem hlýtur að vekja mesta athygli í þeim um- ræðum, sem fram fóru á Alþingi síðdegis í gær og í gærkvöldi, þótt einungis einn alþingismaður virtist koma auga á það. í ræðu sinni fjallaði forsætisráðherra m.a. um sjávarútvegsmálin og sagði: „Það er því með nokkrum ólíkindum, þegar stjórn- málaflokkar eða framboðsbræðingar segjast vilja kasta fiskveiðistjórnunarkerfi okkar í heild sinni fyrir róða, án þess að geta bent á, hvað eigi að koma í staðinn. Þeir sem sýna slíkt ábyrgðarleysi ætla sér bersýnilega ekki í bráð að leita eftir því að mega hafa forystu fyrir þjóðinni. Á hinn bóginn er ljóst, að ýmsir þættir er varða sjávarútvegsmál hljóta að lúta endurskoðun og lagfær- ingum. Þjóðin þarf að eiga betri aðgang að upplýsingum um undirstöðuatvinnugrein sína en verið hefur. Þá er mjög þýðingarmikið, að nú er að störfum auðlindanefnd, sem allir flokkar eiga aðild að. Þessi þverpólitíski vett- vangur er kjörinn til að skoða æsingalaust og án fordóma þætti, sem lúta að nýtingu auðlinda og afrakstri af þeim. Það er lykilatriði, að þjóðin upplifi hagkvæma auðlinda- nýtingu í landinu sem þjóðarheill. Bein og formleg bönd þar á milli verða að vera traust. Má í því sambandi horfa til nýfenginnar reynslu af því, hvernig íslendingar tóku breytingum á eignafyrirkomulagi Landsbanka íslands. Þúsundir landsmanna flykktust til að eignast hlut í þeim rekstri. Mjög margir taka nú þegar þátt í útgerð víðs vegar um landið, svo ekki sé talað um ef eignatengsl í gegnum verðbréfa-, hlutabréfa- og lífeyrissjóði eru tekin með í reikning [...] Hins vegar ætti að skoða vandlega, hvort hið opinbera geti í samvinnu við forráðamenn í út- vegi beitt sér fyrir aðgerðum sem leiða mundu til þess að enn fleiri íslendingar, jafnvel stærsti hluti þjóðarinnar, tækju beinan þátt í útgerð. Með því yrði skýrara að hér er um þjóðargrein að ræða, sem öllum nýtist. Verði hinn mikli gróði í þessari grein, sem sumir spá og sumir virð- ast óttast, þá mundi hann fljóta hratt út í þjóðfélagið og tortryggni yrði minni en ella.“ Guðný Guðbjörnsdóttir, þingmaður Kvennalista og ein þeirra, sem skipa forystusveit hins nýja vinstra banda- lags, sem er í burðarliðnum, veitti þessum ummælum sérstaka eftirtekt, taldi þau athyglisverð og að full ástæða væri til að þróa þessa hugmynd áfram. Sú hugmynd, sem Davíð Oddsson setur fram í þessum kafla stefnuræðunnar, að gera stærstan hluta þjóðarinn- ar að beinum þátttakendum í útgerð og þá væntanlega í því formi, að um svo víðtæka og almenna hlutabréfaeign væri að ræða í útgerðarfyrirtækjum, opnar nýjar víddir í þeim umræðum, sem staðið hafa allan þennan áratug um stefnuna í sjávarútvegsmálum. Þess vegna er ástæða til að fjallað verði frekar um hana og kannað til hvers slíkar umræður leiða. Það er rétt, sem fram kom í ræðu Margrétar Frí- mannsdóttur, eins helzta leiðtoga vinstra bandalagsins, að nauðsynlegt er að sátt verði um þetta stóra mál í þjóðfélaginu. Með þessari ræðu forsætisráðherra hefur hugsanlega verið stigið athyglisvert skref í þá átt. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998 37, Kaupmáttur Islendinga hefur fjórum sinnum hraðar en samanburðarlöndum Hen-a forseti. I dag hefst síðasta þing þessa kjörtíma- bils. Það er ekki ofsögum sagt að það hafí verið viðburðaríkt, enda hafa fjölmörg stór mál fengið afgi’eiðslu. Erfitt er að finna mörg önnur kjörtímabil í sögu lýðveldisins þar sem jafnmiklum árangri hefur verið náð og hagur borgaranna hefur breyst jafnmikið til batnaðar og á þessu. Kemur hér margt til. Þegar horft er til baka til upphafs kjörtímabilsins og skoðað er, hverjar voru væntingar manna í kosning- unum, sem fóru á undan, hvaða baráttu- mál stjórnmálaflokkarnir settu á oddinn, þá sést árangurinn í skýru ljósi. Menn höfðu haft þungar áhyggjur af því, að kaupmáttarhrunið sem hófst 1988 væri óbreytanlegur veruleiki, tjón sem þjóðin fengi seint bætt. Kaupmáttarhrunið sjálft hafði að vísu verið stöðvað og við vorum farin að fikra okkur í rétta átt. En fæstir sáu fyrir að stökkið fram á við yrði svo stórt og ávinningurinn jafn mikill. Kaup- máttaraukning ráðstöfunartekna á mann hefur orðið milli 17 og 18 prósent á árun- um 1996 til 1998. Á sama tíma hefur hún orðið aðeins rúmlega fjögur og hálft pró- sent í löndunum sem við berum okkur saman við. Það þykir þó ekki slakt í þeim löndum. Kaupmáttur Islendinga hefur þannig vaxið nærri fjórum sinnum hraðar en í samanburðarlöndunum. Slíkur ái’ang- ur var óþekktur á Islandi. Þrátt fyrir mikl- ar launahækkanir er hagur atvinnuveg- anna góður, þegar á heildina er litið. Góð afkoma þjóðarbúsins skilar sér þannig bæði til heimila og fyrirtækja. Og fyrir þessar sömu kosningar höfðu menn miklar áhyggjur af atvinnuleysinu, það var rauði þráðurinn í öllum ræðum frambjóðenda. Atvinnuleysið hefur minnkað jafnt og þétt á þessu kjörtímabili og er nú með því minnsta sem þekkist um víða veröld. Það er mikið gleðiefni. Við höfðum líka veralegar áhyggjur af lánstrausti þjóðarinnar út á við, vegna vaxandi skuldasöfnunar hins opinbera og þess óróleika, sem verið hafði í efnahags- málum, ekki síst á níunda áratugnum. Hér hefur viðsnúningurinn kannski orðið mest- ur. Á þessu ári og hinu næsta eru Islend- ingar að greiða niður skuldir ríkisins um 30 þúsund milljónir króna. Þetta eru gríð- arlegar fjárhæðir sem hafa strax áhrif, því vaxtabyrðin fer nú minnkandi frá ári til árs. Þeir fjármunir, sem við þurfum að setja til hliðar, til að greiða útlendingum vexti af lánum okkar, fara nú ört lækk- andi. Og við upphaf kjörtímabilsins höfðu margir frambjóðendur áhyggjur af því, að Island yrði undir í samkeppni við önnur ríki. Urðu ýmsir til að fullyrða, að þar sem ísland hafnaði því að gerast aðili að Evr- ópusambandinu mundi landið dragast hratt aftur úr. Reyndin varð ekki sú. Ekki aldeilis. Samkvæmt þeim mælistikum, sem taldar eru öruggastar og alþjóðlegar stofnanir beita, hefur Island skipað sér í fimmta sæti þeirra þjóða, sem mestrar velferðar njóta í heiminum öllum. Og lánstraust þjóðarinn- ar vex ár frá ári, að mati þeirra stofnana sem fremstar standa í þeim fræðum. Slíkir dómar eru ekki eingöngu til þess fallnir að gleðja metnaðarfulla þjóð, heldur eru þeir hreinn ávinningur fyrir hana í beinhörðum peningum. Vaxta- byrði okkar lækkar vegna þess að við njót- um vaxandi trausts. Við upphaf kjörtímabilsins héldu margir að það kynni að hamla framförum að við væram iliilega bundin á klafa gamallar verkaskiptingar í íslensku atvinnulífi. Fjárfestingar höfðu staðið í stað og marg- víslegar tilraunir til að bæta úr höfðu ekki dugað. Hæstvirtur iðnaðar- og viðskipta- ráðherra og þeir aðrir sem þar hafa tekið til hendi á kjörtímabilinu geta glaðst yfir góðum árangri það sem af er og enn hafa menn mörg járn í þessum eldi. Og nýjar útflutningsgreinar hafa nýtt sér þau hag- stæðu skilyrði sem frjálsari efnahags- stefna hefur skapað. Nú er svo komið að útflutningstekjur af hugbúnaði eru að nálgast 2000 milljónir króna á ári. En slík- ur útflutningur var óþekktur fyrir fáeinum árum. Þetta er heldur betur búbót fyrir ís- lenskt samfélag. Auðvitað fagna flestir þessari jákvæðu þróun, en stjórnarand- staðan kýs að hafa það svo, að allur þessi árangur hljóti eingöngu að vera ytri að- stæðum að þakka. Hinir erlendu lánshæf- iseinkunnagjafar eru ekki sömu skoðunar. I þeirra umsögnum, sem og annarra al- þjóðlegra stofnana, kemur þvert á móti fram, að það er einmitt stefna stjórnvalda, sem haft hefur úrslitaáhrif: Breytingar á löggjöf í frjálsræðisátt, stöðugleiki á vinnumarkaði, skynsamlegir kjai'asamn- vaxið 1 ingar, breytt skattastefna og minni bein afskipti af atvinnulífinu hafa ráðið úrslit- um um þessa góðu vegferð. Á hinn bóginn er rétt að gera sér grein fyrir, að þótt við getum gert ráð fyrir að Islendingar muni áfram njóta velmegunar, aukins hagvaxtar og bætts kaupmáttar, þá er óhjákvæmilegt að setja fyrirvara við slíka spá. Við erum vissulega á réttri leið, en við vitum að þvi miður eip til þeir aðilar í þjóðfélaginu, sem vilja beygja út af þeirri braut. Þeir, sem taka snögglega beygju, þegar þeir era staddh- á beinu brautinni, fara út af og kollkeyra sig og þá aðra sem glepjast á að vera með í för. Við höfum ný- lega séð uppskrift að slíkri kollsteypu. Hún var tilkynnt sem forskrift að efna- hagsstefnu nýs flokkabræðings til fjög- urra ára. Þeir aðilar, sem kynntu þá stefnu sína svo, hafa af skiljanlegum ástæðum verið á harðahlaupum á undan sjálfum sér og stefnu sinni síðustu daga, og vilja sumir ekki lengur við afkvæmið kannast. Þessa sögu þekkjum við. Það breytir engu, þótt sumir hafi kosið á gam- aldags hátt að hafa uppi stóryrði um þá sem vöktu athygli á, hvílík ómynd allur sá málatilbúnaður var. Eftir situr vissan um það, að þessir aðilar, sem hafa sýnt á spilin sín, eru albúnir til þess að beina þjóðinni í hið gamla far, og þar með setja efnahags- legan ávinning hennar í uppnám. Ef svona færi fram myndi mat alþjóðlegra stofnana á getu okkar í samkeppni falla hratt. Lánshæfi landsins mundi þegar minnka og vaxtakjörin vei’sna. Oróleikinn innanlands yrði þó enn erfiðari viðureignar. Um þetta útspil þarf ekki að hafa fleiri orð. Svo sem venja stendur til hafa háttvirtir þingmenn fengið í hendur lista yfir laga- framvörp sem koma munu til kasta Al- þingis. Sá listi sýnir að háttvirtra þing- manna bíður mikið starf. Þótt kosninga- vetur fari í hönd og það hafi áhrif á vinnu- brögð er óhætt að gera ráð fyrir að um flest mál verði þokkalegur friður og þau fái málefnalega meðferð. Hæstvirtur fjár- málaráðherra hefur lagt fram fjárlaga- frumvarp sitt. Þar er byggt á að ríkissjóð- ur verði rekinn halla- laus. Utgjöldum verður haldið í skefjum og vax- andi tekjur era notaðar til að greiða niður skuld- ir ríkisins, ekki síst hin- ar erlendu skuldir. Eg er ekki í vafa um að sú stefna er í fullu samræmi við þjóðarviljann. En þrátt fyrir aðhald, sem óhjákvæmilegt er að sýna við núverandi aðstæður, er gert ráð fyrir hæn-i framlögum en áður til mikilvægra málaflokka, svo sem menntamála, heil- brigðismála og félagsrnála. Á öllum þess- um sviðum erum við Islendingar sem bet- ur fer í fremstu röð og það er ófrávíkjan- legur ásetningur ríkisstjórnarinnar að halda þeim stöðu. Atvinnuleysið hefur minnkað jafnt og örugglega á kjörtímabilinu. Það sparar ríkinu mikið fé og fleiri störf skapa ríkinu og sveitarfélögum auknar tekjur. Ríkis- stjórnin ákvað að lækka skatta í áföngum, bæði á fyrirtækjum og einstaklingum. Tveir áfangar skattalækkana hafa þegar átt sér stað og síðasta skrefið verður stig- ið nú í janúarbyrjun, þegar skattar lækka enn, um leið og laun hækka í samræmi við samninga. Við trúðum því staðfast- lega að þessar breytingar mundu auka áræði fólks og fyrirtækja, og ríkið stæði því ekki verr, þegar þau áhrif kæmu að fullu fram. Það hefur gengið eftir. Okkar skattkerfi er þannig uppbyggt, að þegar tekjurnar aukast hjá einstaklingunum, þá nýtur ríkið góðs af því og fær heldur meira í sinn hlut en tekjuaukningin ein gæfi tilefni til. Þegar tekjur einstaklinga dragast á hinn bóginn saman, þá tekur skattkerfið með mildari hætti en annars staðar gerist á þeim breytingum. Skatta- lækkunarstefna ríkisstjórnarinnar er að skila miklum árangri og er auðvitað miklu heppilegra að ganga fram með þessum hætti en að auka tekjur ríkissjóðs með beinum skattahækkunum. Þær draga úr þrótti einstaklinga og fyrirtækja, og búa til vítahring aukinna skatta og minnk- andi tekna. Hugmyndum, sem settar hafa verið fram og draga úr skilvirkni stað- greiðslukerfis skatta, er algjörlega hafnað af hálfu ríkisstjórnarinn- ar. Við höfum heyi’t yfir- lýsingar forystumanna stjórnarandstæðinga, um að þeir vilji hækka fjármagnstekjuskatt í allt að 40%. Hér era menn enn að leika sér með gáleysislegar hug- myndir. Ef þessar hug- myndir formanns Al- þýðuflokks gengju eftir yrðu þær rothögg á spamaðinn í landinu og myndu kalla á mikla vaxtahækkun. Ekki þarf að lýsa þeim erfið- leikum fyrir íslenska framleiðslustarfsemi, sem slíku myndi fylgja. Utflutningur og þar með tekjur þjóðarinnar myndu dragast hratt saman. Þessar hug- myndir eru dæmi um þá skammsýni, og aftur- hvarf til fortíðar, sem mjög bar á í þeim tillög- um sem frægar urðu á dögunum. Áður var vikið að aukningu fjárfestinga á Islandi. Uppbygging á borð við þá, sem orðið hefur í líftækni og erfðarannsóknum, er afar mikilvæg. Á þeim vettvangi gefst nú hundruðum vel mennt- aðra Islendinga færi á að glíma við vel launuð og áhugaverð störf. Vís- indaleg þekking fær út- rás í íslensku atvinnulífi allri þjóðinni til heilla. I þessu ævintýri felast nýir möguleikar á stór- bættu heilbrigðiskerfi, um leið og skotið er fleiri stoðum undir íslensk iífskjör. Þær breytingar, sem orðið hafa í efnahagslegu umhverfi, gera það að verkum að minni hætta er á, að þensla í kjölfar uppgangs í atvinnulífi leiði til kollsteypu eins og stund- um gerðist við áþekkar aðstæður. Nú er beitt almennri hagstjórn í landinu og leitast við að tryggja að sömu leikreglur eigi hvarvetna við. Sértækar aðgerðir heyra sögunni til. Árangurinn blasir við. Atvinnulíf okkar er að verða sífellt marg- brotnara og jafnframt hæfara til að bregð- ast við síbreytilegum aðstæðum. Stjórnar- farið er nú hlutlausara gagnvart einstök- um atvinnugreinum en áður. Nú má treysta því að samfella ríki í viðbrögðum hins opinbera, og að það refsi ekki fyrir áhættu og framkvæði. Enn þarf þó þjóðin að reiða sig á að okk- ur takist hönduglega að sækja sjóinn, vinna fisk og selja til útlanda. Það er ekki um það deilt, að núverandi skipan fiskveiða stuðlar að mikilli verðmætasköpun. Víðast hvar annars staðar í heiminum er sjávarát- vegur hins vegar þungur baggi. Vék hæst- virtur utanríkisráðherra skilmerkilega að þessum þáttum í ræðu sinni á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna nú fyrir skemmstu. Það er því með nokkrum ólík- indum þegar stjómmálaflokkar eða fram- boðsbræðingar segjast vilja kasta fisk- veiðistjórnunarkerfi okkar í heild sinni fyr- ir róða, án þess að geta bent á, hvað koma eigi í staðinn. Þeir, sem sýna slíkt ábyrgð- Stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra á Alþingi í gær arleysi, ætla sér bersýnilega ekki í bráð að leita eftir því að mega hafa forystu fyrir þjóðinni. Á hinn bóginn er ljóst að ýmsir þættir er varða sjávarútvegsmál hljóta að lúta end- urskoðun og lagfæringum. Þjóðin þarf að eiga betri aðgang að upplýsingum um und- irstöðuatvinnugrein sína en verið hefur. Þá er mjög þýðingarmikið að nú er að störfum svokölluð auðlindanefnd, sem allir flokkar eiga aðild að. Þessi þverpólitíski vettvang- ur er kjörinn til að skoða æsingalaust og án fordóma þætti sem lúta að nýtingu auð- linda og afrakstri af þeim. Það er lykilatriði að þjóðin upplifi hag- kvæma auðlindanýtingu í landinu sem þjóðarheill. Bein og formleg bönd þar á milli verða að vera traust. Má í því sam- Vaxtabyrði okkar lækkar Skattar lækka bandi horfa til nýfenginnar reynslu af því hvernig íslendingar tóku breytingum á eignarfyrirkomulagi Landsbanka Islands. Þúsundir landsmanna flykktust til að eign- ast hlut í þeim rekstri. Mjög margir taka nú þegar þátt í útgerð víðs vegar um land- ið, svo ekki sé talað um ef eignatengsl í gegnum verðbréfa-, hlutabréfa- og lífeyr- issjóði eru tekin með í reikning. Að auki njóta landsmenn hagkvæmrar nýtingar á sjávarfangi í gegnum niðurgreiðslu skulda útvegs við opinbera aðila, blómlega sam- búð hans við aðrar greinar, vaxandi skatt- greiðslur frá fyrirtækjum á þessu sviði og dreifikerfi opins hagkerfis á þeim verð- mætum sem í greininni skapast. Það er sem sagt einfaldlega engin tilviljun að Is- lendingar njóta ríflegs kaupmáttarbata á sama tíma og sjávarút- vegurinn er í sókn. Hins vegar ætti að skoða vandlega hvort hið op- inbera geti í samvinnu við forráðamenn í út- vegi beitt sér fyrir að- gerðum sem leiða myndu til þess að enn fleiri íslendingar, jafn- vel stærsti hluti þjóðar- innar, tækju beinan þátt í útgerð. Með því yrði skýrara að hér er um þjóðargrein að ræða, sem öllum nýtist. Verði hinn mikli gróði í þessari grein sem sumir spá og sumir virðast óttast, þá myndi hann fljóta hratt út í þjóðfé- lagið og tortryggni yi’ði minni en ella. Það skiptir íbúa hinna dreifðu byggða öllu að undirstöðuat- vinnuvegur þeirra sé þróttmikill, njóti ekki lakari kjara en aðrar greinar og búi við al- mennt traust lands- manna. Stefnumótun í byggðamálum, sem stjórn Byggðastofnunar undirbjó og kynnt var á Alþingi sl. vor, verður flutt og afgreidd á þessu þingi. Ekki er vafi á, að hún á að geta veitt góða viðspyrnu í byggðamálum, verði vel á eftir fylgt, og vonandi snúið vörn í sókn. Langtímaáætlun í vega- gerð, sem nú er í fyrsta sinn unnið eftir, verður einnig mikilvægt tæki í þeirri baráttu. Hagur bænda, sem verið hefur þröngur, fer nú nokkuð batnandi og er það mikið fagnaðarefni. Hafa bændur sýnt mikið þolgæði við erfið- ar aðstæður og eru samningar þeirra við ríkisvaldið nú smám saman að skila þeim og neytendum betri hag. Gróska í ferða- þjónustu, sem er mikil um þessar mundir, ýtir undir væntingar manna. Þarna felast miklir möguleikar, sem búa þarf í haginn fyrir og mun ekki síst landsbyggðin fá mikinn styi’k af þessum vaxtarbroddi ís- lensks atvinnulífs. Herra forseti. ísland býr enn við ríka sérstöðu, þótt það sé nú í nánari snertingu við alþjóðlegt umhverfi en áður. Þá sérstöðu landsins á að viðurkenna og nýta. I mjög athyglis- verðri ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sagði hæstvirtur utanríkisráð- herra: „Það er órökrétt og ósanngjarnt að neita löndum um réttinn til að nýta hreina og endurnýjanlega orku til iðnaðar og leyfa á sama tíma að iðnaður, sem notast við mengandi jarðefnaeldsneyti, sé settur á fót annars staðar." ísland er og verður í fremstu röð á sviði umhverfismála. Það þýðir á hinn bóginn ekki að forystumönnum þjóðarinnar beri ekki að sjá til þess, að íslendingar búi við sanngjörn skilyrði, þegar ákveðnum þátt- um umhverfismálanna er markaður rammi með alþjóðlegum samþykktum. Islensk stjórnvöld væru að bregðast hlutverki sínu með ámælisverðiim hætti, ef þau gættu ekki hagsmuna Islendinga að þessu leyti, eins og hæstvirtur utanríkisráðherra og hæstvirtur umhverfisráðherra hafa af ein- urð gert fyrir okkar hönd. Á alþjóðlegi’i ráðstefnu í Japan á síðasta ári um aðgerðir til að draga úr losun svo- nefndra gi’óðurhúsalofttegunda var sam- þykkt Kyoto-bókunin, sem svo er kölluð. Þar er gert ráð fyrir að á Islandi geti losun slíkra lofttegunda að hámarki verið tíu prósentum meiri á árunum 2008 til 2012 en hún var árið 1990. Þetta torveldar okkur að nýta íslenska orku með þeim hætti sem vonir höfðu staðið til. Engin þjóð myndi í alþjóðasamningi fórna baráttulaust mögu- leikum sínum til að bæta lífskjör sín með nýtingu auðlinda sinna. Iðnríkin, sem gengist hafa undir að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um fáein prósent, eiga fæst í erfiðleikum með að ná þvi markmiði. Það gera sum þeirra með því að leggja af mjög mengandi starf- semi, sem þegar er orðjn óhagkvæm og úr- elt. Slíka kosti eiga Islendingar ekki. Á hinn bóginn gjöldum við þess að hafa að mestu lokið hitaveituvæðingu landsins fyr- ir árið 1990, en Kyoto-bókunin er miðuð við það ártal. Hefði hitaveituátakinu ekki verið lokið fyrir þennan tíma ættu Islend- ingar þar innistæðu og ættu auðveldara með að fallast á niðurstöðu fundarins í Kyoto. Unnið er að því að afla sjónarmiðum Is- lands fylgis á alþjóðavettvangi. Það skaðar hins vegar hagsmuni landsins út á við, ef þessi viðleitni er gerð tortryggileg heima fyi’ir. Almennt er viðurkennt að hrein og endurnýjanleg orka er forsenda stóriðju á íslandi. Með þeirri nýtingu er einmitt dregið úr mengun í heiminum. Gagnvart okkur gengur því Kyoto-bókunin þvert á sín eigin markmið. Herra forseti. í opinbem heimsókn til Grænlands sl. sumar gafst kærkomið tækifæri til að rækta tengslin við gi-annþjóðina í vestri. Grænlenska landstjórnin er mjög áhuga- söm um að efla samskipti og samstarf á milli þjóðanna. Gefin var út sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Islands og for- manns landstjórnar Grænlendinga um aukna samvinnu á ýms- um sviðum, svo sem í heilbrigðis-, menningar-, viðskipta- og í sjávarút- vegsmálum. Varðandi hið síðasttalda er byggt á ít- arlegum samstarfssamn- ingi, sem sjávarútvegsráðherrar landanna undirrituðu í júlí í sumar. Akveðið var að eiga samstarf um að minnast þess, að árið 2000 munu löndin fagna því að þúsund ár era liðin frá því er Leifur heppni Eiríksson fann Ameríku. Leitast verður við að vekja athygli um- heimsins á sameiginlegum arfi þjóðanna og nýta hið sögulega tilefni til að styi’kja samvinnu íslenskra og grænlenskra aðila í ferðaþjónustu. Islendingar, Færeyingar og Grænlend- ingar vilja auka samstarf sín á milli. Til að undirstrika þann vilja hefur verið ákveðið að taka upp reglubundna samráðsfundi forsætisráðherra Islands, lögmanns Færeyja og formanns grænlensku land- stjórnarinnar. Þjóðirnar þrjár hafa ríka samkennd og sameiginlega hagsmuni og þurfa að eiga náið samráð um alþjóðlega þróun og samninga sem snerta málefni hafsins og sameiginlega fiskistofna. ísland tekur við formennsku í norrænu ráðherranefndinni um næstu áramót. Nor- ræn samvinna er Islendingum afar mikil- væg, enda einn af hornsteinum utanríkis- stefnunnar. Það er gleðiefni hve vel hefur tekist að laga norrænt samstarf að aðild Svíþjóðar og Finnlands að Evrópusam- bandinu og gerbreyttum aðstæðum í álf- unni. Norræn samvinna er orðin fjöl- breyttari og efnismeiri en áður og um leið enn mikilvægari vettvangur fyrir Island til að tryggja hagsmuni sína í Evrópu. I for- mennskutíð Islands verður leitast við að styrkja þessa þróun og efla umræðu og samráð milli Norðurlandanna um alþjóða- og öryggismál. Atlantshafsbandalagið verður fimmtíu ára á næsta ári. Áfangans verður minnst í apríl næstkomandi á leiðtogafundi banda- lagsins í Washington. Á afmælisárinu hefst nýi’ kafii í sögu bandalagsins, en þá fá inngöngu þrjú ríki, sem áður vora í Var- - sjárbandalaginu sáluga. Það er til marks um styrk og velgengni NATO, að flestöll Evrópuríki utan þess sækjast eftir því að komast þar inn fyrir dyr. Kúvending for- ystumanna Alþýðuflokksins í afstöðu til sameiginlegra öryggishagsmuna vest- rænna ríkja hefur valdið áhyggjum og vakið spurningar um tráverðugleika og stefnufestu. Herra forseti. Á síðastliðnum vetri var kynnt ný skóla- stefna fýrir grann- og framhaldsskóla landsins. Um hana náðist víðtæk sátt í samfélaginu. Ritun nýrra aðalnámskráa_ fyrir þessi skólastig er á lokastigi en þær munu taka gildi frá og með næsta hausti. I fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir allt að 260 milljónum króna í sérstök verkefni til að tryggja að nýju skólastefnunni sé fylgt myndarlega eftir. Kennaramenntun verður efld, gert verður átak í endur- menntun kennara og farið í aðgerðir til að bæta námsráðgjöf. Fé verður varið til gi’einingar á sérþörfum nemenda og sér- stök áhersla lögð á upplýsingatækni innan skólakerfisins. Þær þúsundir milljóna ki’óna, sem nú þegar renna til skóla lands- ins, munu nýtast enn betur en áður, þegar skólamir hafa skýrari markmið í dagleg- um störfum sínum. Framkvæmd nýiTar skólastefnu er forsenda þess að íslenskir skólar geti í framtíðinni veitt nemendunrt menntun sem stenst samanburð við hið besta sem þekkist. í fjárlagaframvarpinu er gert ráð fyrir fjárveitingum til umfangsmikils átaks á sviði upplýsingatækni og_ umhverfismála á vegum Rannsóknarráðs Islands. Framlag- ið tekur mið af áætlun til nokkurra ára sem Rannsóknarráðið hefur lagt fram að ósk menntamálaráðherra en samtals er áætlað að veita 580 milljónir króna til verkefnisins á næstu árum. Á vegum félagsmálaráðuneytisins hefur á kjörtímabilinu verið unnið að uppstokk- un á fjölmörgum málaflokkum sem undir það falla. Eru vandfundin önnur ár þar sem jafnmiklar breytingar hafa orðið á einu málasviði. Nægir að nefna í því sam- bandi nýjar heildstæðar reglur um sam- skipti á vinnumarkaði og gjörbreytingar í húsnæðismálum sem leysa munu úr marg- víslegum vanda þar. Á þessu kjörtímabili hefur sveitarfélögum fækkað og viðfangs- efni þeirra og ábyrgð vaxið í sama skyni. Áfram verður haldið á þeirri braut. Hér á landi er jafnrétti kynjanna með því besta sem þekkist meðal þjóða heims. Það dregur þó ekki úr rfldsstjórninni að leitast við að bæta stöðuna, því enn hallar á konur á ýmsum sviðum samfélagsins og á karla á öðrum sviðum þess. * Stefnt er að því að leggja fyrir yfirstandandi þing framvarp til nýrra jafn- réttislaga þar sem gætir nýrrar sýnar í þessum mikilvæga mála- flokki. Á sviði dóms- og lögreglumála hefur orðið byltingarkennd breyting á undan- förnum árum og hefur skilvirkni dóms- kerfisins og réttaröryggi borgaranna auk- ist stórlega. Áfram verður haldið á þeirri braut. Þá er upplífgandi og eykur okkur styrk að heyra hvað alþjóðleg samtök, sem berjast gegn spillingu í opinbeiTÍ stjórn- sýslu, hafa að segja um Island. Samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar könnunar sem samtökin létu gera er Island eitW óspilltasta land í heimi og fær einkunnina 9,3 af 10 mögulegum. Við getum öll verið stolt af. Herra forseti, góðir áheyrendur. Nokkurs ótta hefur gætt í heiminum vegna óvissu um efnahagsþróun í Asíu og Suður-Ameríku, og vandamála sem Rúss- land hefur búið við undanfarin ár og ekki sér fyrir endann á. Þessir atburðir ýta undir varfærni af okkar hálfu. Sagan kennir okkur, að efnahagskreppa er iðu- lega að verulegu leyti mannanna verk. Brugðist er rangt við og afturkippur í ytri aðstæðum er magnaður upp með mannleg- um mistökum. Þess vegna verða menn nú að fara með gát og tefla ekki í tvísýnu hin- um mikla ávinningi sem við höfum þegar náð og eigum enn í vændum, ef vel verður á haldið. Ef við stöndum staðfastlega við stefnuna, sem svo miklu hefur skilað, bendir flest til þess að góðærið megi fram- lengja ölium til heilla. Að því skulum við stefna. Ég þakka þeim sem hlýddu. i Kúvending Alþýðu- flokks í öryggismál- um veldur áhyggjum Davíð Oddsson Byltingarkennd breyting í dóms- og lögreglumálum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.