Morgunblaðið - 02.10.1998, Qupperneq 64
»í64 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Stutt
Kynlíf á
efri árum
► f KÖNNUN sem birt var í
Bandaríkjunum af National
Council á mánudaginn kom f
ljós að nærri helmingur Band-
aríkjamanna sem eru sextugir
eða meira stunda kynlíf a.m.k.
einu sinni í mánuði. Af könn-
unni mátti einnig ráða að kyn-
lífið væri síst of mikið og meira
en 40% aðspurðra sögðu að þau
myndu ekki slá hendinni á móti
meiri hvflubrögðum. Einnig
kom fram í könnuninni að flest-
ir telja kynlíf sitt betra en þeg-
ar þeir voru á fertugsaldri, í
það minnsta meira gefandi til-
fínningalega. James Firman
sem stjórnaði könnuninni gaf
frá sér eftirfarandi yfírlýsingu:
„Könnunin afsannar mýtuna
um kynlíf og efri árin. Eldra
fólk er virkt í kynlífí og lítur á
það sem mikilvægan þátt í lífi
sínu.“
- Tungulipur
í neyð
► KONA sem sér um húsvörslu
nektarklúbbs á Pompano-
ströndinni í Flórída notaði
óvanalegar aðferðir til að
bjarga sér og stöllu sinni þegar
brotist var inn í klúbbinn eftir
lokun, því hún notaði tunguna
til að hringja í neyðarsíma lög-
reglunnar, 911. Konan sér um
húsvörslu í klúbbnum ásamt
annarri konu en á mánu-
dagskvöldið hafði gleymst að
loka einum dyrunum og réðust
tveir grímuklæddir menn inn í
klúbbinn eftir lokun.
Talsmaður lögreglunnar segir
að ræningjarnir hafi bundið
konurnar tvær, en önnur komist
að símanum og hringt með þess-
ari óvanalegu aðferð. Vegna
tungulipurðar konunnar sluppu
þær báðar óslasaðar, en ræn-
ingjarnir höfðu á brott með sér
peningaskáp, sem innihélt 50
þúsund dollara. Þeir hafa enn
ekki náðst.
Hjartaáfall
undir stýri
► SVEITASÖNGVARINN Randy
Travis lenti í heldur óvenjulegri
bílferð á dögunum. Hann var
ásamt eiginkonu sinni á heimleið
frá flugvellinum í Los Angeles,
þegar ökumaður bflsins féll fram
á stýrið vegna hjartaáfalls. Trav-
is brá skjótt við og klifraði yfír
sætið og gat stöðvað bflinn. Strax
var haft samband við sjúkrabfl,
en þrátt fyrir margar tilraunir
var ekki hægt að lífga ökumann-
inn við.
Raunir Adolfs
► LÍFIÐ er ekki auðvelt þegar
maður er nefndur eftir manni
sem hataður er af þorra manna,
Adolf Hitler.
Sextugur vörubflstjóri í Aust-
urríki þekkir af eigin raun erfið-
leika sem af þessu geta stafað, en
foreldrar hans skírðu hann Adolf
Hittler. „Enginn trúði því að
þetta væri nafn mitt,“ segir Ad-
olf og bætir við að hann hafí oft
—verið vakinn upp á nóttunni af
fólki sem hringir í hann og segir
„Heil Hitler" eða eitthvað álíka.
Raunir Adolfs hafa þó hugsan-
lega minnkað eitthvað við það að
hitta fleiri sem eiga við svipað
vandamál að stríða, en á dögun-
um var haldin ráðstefna um erf-
iðar nafngiftir í Brunau í Aust-
urríki.
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin, Regnboginn og Laugarásbíó hafa tekið til sýninga gamanmyndina
Dr. Doolittle með Eddie Murphy í titilhlutverkinu.
Dagfínnur dýra-
læknir snýr aftur
Leikstjóri myndarinner heitir
Betty Thomas, en hún leikstýrði
Private Parts með Howard Stem
og The Brady Bunch Movie. „Þeg-
ar ég sá Eddie Murphy fyrir mér
að tala við dýrin þá fannst mér
hugmyndin að þessari mynd strax
heillandi,“ segir hún. Hún segir að
fyrir sér hafi Rex gamli Harrison
verið dr. Doolittle og þess vegna
hafí það verið mikil áskomn að
ALLT í einu fer hinn virti læknir, dr. John Doolittle, að skilja dýrin
og þau hópast að honum.
gera nýja mynd um sömu persónu
með Eddie Murphy, sem er eigin-
lega eins ólíkur Rex Harrison og
hægt er að vera.
Þótt framleiðendur og leikstjóri
væru sammála um að það væri
frábær hugmynd að fá Eddie
Murphy til að leika dýralækninn
kom það þeim á óvart hvað hann
var óöraggur og hræddur innan
um dýrin. „Það passaði vel inn í
söguna,“ segir leikstjórinn. „I upp-
hafi myndarinnar líður Doolittle
illa innan um dýrin af því að hann
er löngu búinn að týna niður þeim
hæfileika sem hann hafði þegar
hann var barn, að tala við dýrin.“
Fjölskyldu Eddie Murphys var
líka skemmt yfír því að hann ætti
að fara að leika með dýram.
„Bræður mínir stríddu mér sér-
staklega á því að vera dr. Doolittle.
Þeir höfðu oft heyrt mig lýsa ótta
við hunda og dýr,“ segir Eddie.
„Eg hef alltaf vara á mér gagnvart
dýrum og það fór stundum um mig
meðan ég var að leika í þessari
mynd.“
Auk Eddie Murphy era í helstu
hlutverkum myndarinnar Ossie
Davis, sem leikur föður læknisins,
Oliver Platt leikur þröngsýnan
kollega hans. Kristen Wilson leikur
eiginkonu hans.
Dýi’in tala í myndinni og margir
þekktir leikarar leggja þeim til
raddir. Þar á meðal era Chris Rock
(Lethal Weapon) og Ellen De
Generes (Ellen) og einnig John
Leguizamo (To Wong Foo) og Julie
Kavner (Marge Simpson).
SMÁM saman færir dr. Doolittle sig upp á skaftið og fer að sinna
tígrisdýrum.
I FYRSTU er læknirinn dauðhræddur við nýju sjúklingana sfna.
DR. JOHN Doolittle á allt
sem nokkum mann gæti
langað í; blómlegan starfs-
feril, fallega konu, tvær yndislegar
dætur, nóg af peningum. En allt í
einu fara undarlegir hlutir að ger-
ast. Lækninum góða til mikillar
skapraunar fer hann allt í einu að
heyra dýrin tala og skilja hvað þau
eru að segja. A skömmum tíma
tekur líf læknisins stakkaskiptum
og hann er síður en svo sáttur við
breytinguna. Ferfætlingarnir era
hins vegar mjög hrifnir af því að
vera loksins búnir að fá lækni sem
skilur þá og þau hópast að heimili
hans. Aður en læknirinn veit af er
hann farinn að lækna ketti, hunda
og tígrisdýr.
Myndin er endurgerð hinnar
þekktu sögu um Dr. Doolittle, eða
Dagfinn dýralækni, eins og bæk-
urnar eftir Hugh Lofting hétu þeg-
ar þær komu út á íslensku.
Kvikmyndaframleiðandinn John
Davis átti hugmyndina að því að
endurgera myndina frá 1967 um
Dagfinn dýralækni þar sem Rex
Harrison var í titilhlutverki lækn-
isins sem gat talað við dýrin.
„Við ákváðum að gera söguna
nútímalega og við komumst að
þein-i niðurstöðu að til þess að
áhorfendur féllu fyrir sögunni í dag
væri nauðsynlegt að finna gaman-
leikara í titilhlutverkið," segir John
Davis.
Hann segist hafa sannfærst um
að Eddie Murphy væri rétti mað-
urinn í hlutverkið þegar hann sá
hann leika í The Nutty Professor.
Eddie er stórstjama eftir að hafa
leikið í þeirri mynd og einnig
myndum á borð við 48 Hrs, Trad-
ing Places, Beverly Hills Cop I-III,
Coming to America og Metro. Það
kom á daginn að Eddie var
aðdáandi Dagfínns dýralæknis.
„Eg man að ég sá myndina þegar
ég var strákur. Ég man sérstak-
lega eftir lamadýri með tvö höfuð;
það þótti mér magnað þegar ég var
lítill," segir hann.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
RAGNHEIÐUR Sigurðardóttir, Guðrún Björg Sig-urðardóttir og
Kristín Soffía Jónsdóttir létu fara vel um sig í sófanum.
TÖFFARARNIR létu sig ekki vanta á svæðið; Orri Freyr Finnbogason,
Þorsteinn Davíðsson, Guðjón Haukur Jóhannsson, Daníel Halldór
Marteinsson og Árni Grétarsson.
Club Fischer opnaður á ný
Klámmyndatónlist
og langir sófar
HELGA Ásgeirsdóttir stóð sig við barinn.
► í FISCHERSUNDI
var opnaður sl. föstu-
dag skemmtistaðurinn
Club Fischer á ný eftir
að hafa verið lokaður í
sumar. „Við misstum
vínveitingaleyfið en
ekki skemmtanaleyfið
bara út af kosningalof-
orði R-listans og það
átti engan rétt á sér,“
segir Bryndís Ás-
mundsdóttir, veitinga-
og starfsmannasljóri á
Club Fischer.
„Við erum búin að
berjast fyrir því í allt
sumar að fá að opna að
nýju. Nú hefur það tek-
ist með pompi og prakt
og staðurinn stútfyllt-
ist strax á föstu-
dagskvöldinu án þess að við
auglýstum neitt. Við erum búin að
endurhanna allar innréttingar frá
því að seinasti skemmtistaður var
hér og gestirnir taka breytingun-
um opnum örmum.
Á efri hæð hússins leikum við
þægilega tónlist, eins og klám-
myndatónlist, og þar getur fólk
slappað af í löngu sófunum. Á
neðri hæðinni er svo rosalega góð
dausstemmning. Plötusnúðar
þeyta skífum með „drum & bass“
tónlist og „teknó“. Á dansgólfinu
eru allir sem einn, líkt og á tón-
leikum, og það er stórkostlegt að
sjá hversu vel fólkið skemmtir sér.
I vetur bjóðum við upp á ýmsar
nýjungar sem koma í Ijós þegar
þar að kemur,“ sagði Bryndís yfir
sig lukkuleg yfir velgengninni.