Morgunblaðið - 02.10.1998, Blaðsíða 72
Jíemát
-setur brag á sérhvern dag!
s Æ
1 KOSTAB
| með vaxta þrepum |
® BÚNADAKBANKINN | www.bi.is j
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK. SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Davíð Oddsson forsætisráðherra í stefnuræðu á Alþingi
Stærstur hluti þjóðar-
innar taki þátt í útgerð
Snúið við
vegna hreyfíl-
bilunar
^pHREYFILBILUN varð til þess að
einni af Loekheed Tristar-flugvélum
Atlanta-flugfélagsins var snúið við til
lendingar skömmu eftir flugtak um
hádegisbilið á miðvikudag frá
Gatwick-flugvelli í London.
Samkvæmt upplýsingum flugfé-
lagsins voru 289 farþegar um borð,
sem flestir voru breskir ellilífeyris-
þegar, auk fjórtán manna áhafnar,
sem einnig er af erlendu bergi brot-
in. Flugvélin hefur verið í leiguflugi
fyrir breska flugfélagið Caledonian í
Bretlandi undanfarna mánuði. Að
lokinni máltíð á flugvellinum var
flogið með farþegana áfram til
áfangastaðar í einni af Boeing 747-
flugvélum Atlanta.
I fréttatilkynningu frá Atlanta
segir að ekki sé vitað um orsakir bil-
unarinnar en unnið sé að rannsókn
málsins.
----------------
Landsvirkjun
biður um
svigrúm
LANDSVIRKJUN skrifaði Rafiðn-
— -aðarsambandi íslands og Félagi
járniðnaðarmanna í gær bréf þar
sem þess er farið á leit að samtökin
gefi „svigrúm til að finna farsæla
lausn“ í máli verkamanna rússneska
fyrirtækisins Technopromexport,
sem vinna við að leggja Búrfellslínu
3A, þar til fulltrúar þess og Lands-
virkjunar hafa fundað í næstu viku.
Sex starfsmenn Technopromexport
verða sendir heim á sunnudag.
í bréfinu er vísað til þess að fé-
lagsmálaráðuneytið hafi ákveðið að
bíða með frekari ákvarðanir í málinu
þar til fundurinn verður haldinn. Þar
er undirstrikað að það séu hagsmun-
ir Landsvirkjunar að málið leysist og
öll efnisatriði þess verði upplýst áður
en ákvarðanir verði teknar. Fyrir-
’L-í*tækið hafi gert sitt ýtrasta á grund-
velli ákvæða verksamningsins við
rússneska fyrirtækið til að leysa
deiluna.
■ Sex starfsmenn/10
--------------
Þórður
Guðjónsson
skoraði tvö
ÞÓRÐUR Guðjónsson knattspyrnu-
maður með Genk í Belgíu skoraði tvö
mörk og átti þátt í tveimur öðrum er
Genk lagði Duisburg 5:0 í síðari
- i'iðureign liðanna í fyrstu umferð
Evrópukeppni bikarhafa í Brussel í
gærkvöldi. Genk tryggði sér þar með
sæti í næstu umferð, en liðin skildu
jöfn í fyrri leiknum fyrir tveimur vik-
um, 1:1. Þórður fór á kostum í liði
Genk og auk þess sem að ofan er
getið átti hann færi á því að skora
eitt mark til viðbótar.
■ C3/Þórður
------♦-♦-♦---
Norskur ferða-
' maður lést
77 ÁRA gamall norskur ferðamaður
beið bana í fjallgöngu í Vestmanna-
eyjum í gær. Maðurinn var á ferð
með hópi fólks að skoða sig um í
Vestmannaeyjum.
Þegar gengið var á Eldfellið hneig
maðurinn niður og var látinn við
komu á sjúkrahús, að sögn lögreglu.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í
gær að skoða ætti vandlega hvort hið
opinbera gæti í samvinnu við for-
ráðamenn í útvegi beitt sér fyrir að-
gerðum sem leiða myndu til þess að
enn fleiri Islendingar, jafnvel stærsti
hluti þjóðarinnar, tæki beinan þátt í
útgerð. „Með því yrði skýrara að hér
er um þjóðargrein að ræða, sem öll-
um nýtist. Verði hinn mikli gróði í
þessari grein sem sumir spá og sumir
virðast óttast, þá myndi hann fljóta
hratt út í þjóðfélagið og tortryggni
yrði minni en ella,“ sagði Davíð.
Hann sagði einnig að ekki væri um
það deilt að núverandi skipan fisk-
veiða stuðlaði að mikilli verðmæta-
sköpun, þótt víðast hvar annars stað-
ar í heiminum væri sjávarútvegur
þungur baggi. „Það er því með
nokkrum ólíkindum þegar stjórn-
málaflokkai- eða framboðsbræðingar
segjast vilja kasta fískveiðistjórnun-
arkerfi okkar í heild sinni fyrir róða,
án þess að geta bent á, hvað koma
eigi í staðinn," sagði Davíð. „Þeir,
sem sýna slíkt ábyrgðarleysi, ætla
sér bersýnilega ekki í bráð að leita
eftir því að mega hafa forystu fyrir
þjóðinni.“
ForsætisráðheiTa sagði á hinn
bóginn ljóst að ýmsir þættir er vörð-
uðu sjávarútvegsmál hlytu að lúta
endurskoðun og lagfæringum. Þjóðin
þyrfti að eiga betri aðgang að upplýs-
ingum um undirstöðuatvinnugrein
sína en verið hefði. „Þá er mjög þýð-
ingarmikið að nú er að störfum
svokölluð auðlindanefnd, sem allir
flokkar eiga aðild að. Þessi þverpóli-
tíski vettvangur er kjörinn tfl að
skoða æsingalaust og án fordóma
þætti sem lúta að nýtingu auðlinda
og afrakstri af þeim,“ sagði Davið.
í umræðum um stefnuræðuna í
gærkvöld gagnrýndi Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins, forsætisráðherra fyrir það
að hafa ekkert minnst á málefni aldr-
aðra, öryrkja eða fatlaðra í ræðu
sinni sem spurt hefðu að því hvað
orðið hefði af þeirra hlut í góðærinu.
Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins, taldi að
stjórnarstefna Davíðs fæli ekki í sér
aukinn jöfnuð og réttlæti og sagði að
undir hans stjóm hefði orðið gífurleg
eignatilfærsla sem í æ ríkai'i mæli
stuðlaði að því að fámennur hópur
manna ætti allt og réði öllu.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður þingflokks óháðra, sagði að
góðærið sem forsætisráðherra talaði
um væri aðallega di'ifið áfram af
eyðslu umft-am efni. „Það stefnir í
nærfelldan fjörutíu milljarða við-
skiptahalla íslenska þjóðarbúsins,“
sagði hann.
Halldór Ásgrímsson formaður
Framsóknarflokksins sagði að mál-
efnagrunnm' stjómarandstöðunnar
væri fullur af góðum óskum, en það
vantaði á hinn bóginn í hann allan
efnahagslegan grunn. Sagðist hann
vera farinn að halda það að það væri
hreinlega skflgreining á vinstri
stefnu að tala bara um útgjöld.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra beindi spjótum sínum að
stjórnendum heilbrigðiskerfisins og
spurði hvernig stæði á því að jafnvel
stjórnendur í heflbrigðiskerfínu
gerðu sjálfum sér og sjúklingunum
það að gagnrýna heilbrigðiskerfið
„sundur og saman.“ Kerfi sem þeir
ættu sjálfir að stjóma.
■ Setning Alþingis/4/6/36
Setning Alþingis
Morgunblaðið/Golli
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra setti Alþingi fs-
lendinga í gær í umboði Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta íslands. Sendi hann Ólafí Ragnari og eigin-
konu hans, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, hlýj-
ar kveðjur, en þau eru nú í Seattle í Bandaríkjun-
um, vegna veikinda Guðrúnar Katrínar.
Með fjárlagafrumvarpinu er stefnt að mikilli lækkun skulda
Stefnt að því að ríkið
dragi sig út af lánamarkaði
30 MILLJARÐA skuldalækkun ríkissjóðs á
tveimur árum mun leiða til þess að vaxtagjöld rík-
isins lækka um einn milljarð þegar áhrif skulda-
lækkunar verða að fullu komin fram. Geir H. Ha-
arde fjármálaráðherra, sem lagði fram sitt fyrsta
fjárlagafrumvarp í gær, segir að með því sé mörk-
uð sú stefna að nota auknar tekjur ríkissjóðs til að
lækka skuldir. Ríkið sé að draga sig út af lána-
markaði, en það hafi á undanförnum áram sogað
til sín gífurlegt fjármagn og átt þannig þátt í að
halda uppi háum vöxtum.
Geir sagði að þetta fjárlagafrumvarp væri sól-
skinsframvarp. Það bæri með sér að hagur ríkis-
sjóðs væri að batna. Frumvarpið væri svar við
gagnrýni, sem heyrst hefði í sumar, um lausatök í
fjármálum ríkisins. Ríkissjóður væri að draga sig
út af fjármagnsmarkaði, borga niður skuldir og
draga úr þenslu. Ríkissjóður, ríkisfyi'ii'tæki og
sjóðir myndu á næsta ári taka að láni um 59 millj-
arða, en endurgreiðsla eldri lána næmi svipaðri
upphæð. Þetta gerðist þrátt fyrir umfangsmiklar
orkuframkvæmdir sem fjármagnaðar væru með
lánum.
1,9 milljarða afgangur
Fjárlagaframvarpið gerir ráð íyrir að ríkissjóð-
ur skili 1,9 milljarða afgangi á næsta ári. Þetta er
tæplega 5 milljörðum betri afkoma en horfur eru
á að verði á þessu ári. Fjárlagaframvarpið er nú í
annað sinn lagt fram á rekstrargrunni, en ef það
hefði verið lagt fram á greiðslugrunni hefði verið
um 10 milljarða afgangur á fjárlögum.
Geir sagði að mestu skipti að framvarpið gerði
ráð fyrir að ríkið héldi áfram að greiða niður
skuldir. Skuldir ríkissjóðs myndu á þessu ári og
því næsta lækka um 30 milljarða. Við það myndi
vaxtakostnaður ríkissjóðs lækka. Þar væri hægt
að ná miklum árangri við niðurskurð ríkisfjár-
mála. Þegar áhrif 30 milljarða skuldalækkunar
era að fullu komin fram lækka vaxtagjöld ríkis-
sjóðs um einn milljarð.
I frumvarpinu er gert ráð fyrir að framlög til
samgöngumála verði aukin um tæpan milljarð.
Geir sagði að þetta bæri ekki vott um lausatök í
ríkisfjármálum. Áætlað væri að fjárfesting á
næsta ári myndi dragast saman um 10% milli ára.
Það væri því útlit íyrir samdrátt í verktakastarf-
semi og við slíkar aðstæður væri eðlilegt að halda
sig við áætlun í samgöngumálum.
I Fjárlagafrumvarpið/Dl