Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dansandi ráðherra EKKI er ólíklegt að hæstvirtur ráðherra kunni eitthvað fleira fyrir sér í kúrekalistinni en að dansa sjálf . . . Borgarafundur um miðborgina FJÖLMENNI var á borgara- fundi um miðborg Reykjavík- ur, sem haldinn var í Ráðhús- inu á laugardag en þar voru kynntar nýjar áherslur í stjórn miðborgarinnar. Meðal annars kynntu breskir ráðgjafar, sem unnið hafa þróunaráætlun fyr- ir borgarhlutann ásamt starfs- mönnum borgarskipulagsins, vinnu sína. Jafnframt var kynnt fyrirkomulag nýrrar miðborgarstjórnar og nýtt starf framkvæmdastjóra hennar. Nýkomið! Stretchefni í buxur, verð kr. 1.645 Netefni í toppa og kjóla Debbie Mums-bútasaumsefni ^VÓgué-búðirnar Námstefnur Stjórnunarfélags Islands Efla samstarf- ið við Berkeley- háskólann Árni Sigfússon Næstkomandi miðvikudag hefst fyrsta námstefn- an af fjórum sem haldnar eru á vegum Stjómunar- félags íslands í samstarfi við Berkeley-háskólann í Kaliforníu en hann er sagður einn þekktasti viðskiptaháskóli í heimi. Arni Sigfússon er framkvæmdastj óri Stjórnunarfélags íslands. „Samstarf Stjómunar- félagsins og Berkeley-há- skóla er á öðru ári og felst í því að háskólinn sendir íyrirlesara til að fjalla um efni sem óskað er eftir að tekið sé fyrir.“ Árni segir að miklar kröfur séu gerðar til leið- beinenda í endurmenntun stjómenda. „Þeir þurfa að sameina þrennt; hafa viðamikla sérfræði- menntun, reynslu í rekstri og kennsluhæfileika. Þessar kröfur hafa skilað sér vel til okkar.“ - Um hvað fjalla þessar nám- stefnur? „Sú fyrsta fjallar um fimm gryfjur sem dýpka þegar vel gengur í rekstri. Innihald þeirr- ar næstu er nýtt bandalag við- skiptavina og fyrirtækis sem tengist viðskiptatryggð. Þá bjóð- um við upp á námstefnu um markaðssetningu á Netinu og aðra um endurskoðun á starfi stjórnarmanna.“ Ami segir að á fyrstu nám- stefnunni verði kynntar leiðn- til markaðssetningar á Netinu og það sem best er gert á því sviði borið saman við það sem oftast er gert. - Hvers konar endurskoðun á starfí stjórnarmanna verður til umfjöllunar? „Sú námstefna er orðin tíma- bær. Það virðist vera alþjóðleg reynsla að stjórnir séu ekki að gera það sem þær þyrftu að vera að gera. Þær era gagnteknar af smáatriðum þegar þær ættu að sinna marksvissri stefnumótun og árangursmælingu.“ Ámi segir að kynnt verði þau sjónarmið sem vel rekin fyrir- tæki og stofnanir hafa uppi um hlutverk stjórnai' og grandvall- aratriði sem eiga að leiða vinnu hverrar stjórnar. „Við sem höfum setið í stjórn- um fyrirtækja eða stofnana verðum að viðurkenna að það er brotalöm í þessari vinnu. í dag er nánast eðlileg krafa að árang- ur starfsmanna og sérstaklega stjómenda sé mældur með markvissum hætti. Það er á hinn bóginn einn hópur sem alltaf sleppur og það era þeir sem sitja í stjómunum sjálfiim og eiga að móta stefnu °g fylgja henni eftir. Þessu þarf að breyta og til þess er nám- stefnan." - En lenda fyrir- tæki sem ganga vel í einhverjum gryfjum? „Já það getur komið fyrir. Vandinn í rekstri er sá að þegar vel gengur hugleiða menn síður undirstöðuatriði í rekstri og á námstefnunni verður lögð áhersla á að kynna nútímalegar leiðir til að meta stöðuna í rekstri. Sérstaklega er fjallað um fimm hættur sem flest fyrir- ►Árni Sigfússon er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1956. Hann lauk MPA-prófi í sljórn- sýslu frá Háskólanum í Tenn- essee árið 1986. Hann hefur verið fram- kvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands frá árinu 1990. Árni hefur verið borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá árinu 1986. Eiginkona hans er Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræð- ingur og eiga þau ijögur börn. tæki standa frammi fyrir og mörg falla fyrir ef þau hafa ekki vara á sér.“ - Hverjar eru þessar hættur? „Mistökin hefjast gjarnan á því að fyrirtækin byrja ekki á einstaklingnum sjálfum en það þarf að taka tillit til þess að þeir era mismunandi, með ólíkar þarfir og aðstæður. I öðru lagi skortir oft skráða áætlun og markmiðasetningu sem menn setja sér oftar þegar illa gengur. Þá þarf að ákveða hvernig ekki eigi að bregðast við aðstæð- um og síðan þurfa fyrirtæki að gera sér grein fyrir á hvaða starfssviði þau era og skilgreina sig betur.“ Fimmta gryfjan segir Árni að sé skortur á sveigjan- leika í ákvarðanatöku. -Hvers konar bandalag við- skiptavina og fyrirtækis er fjall- að um á síðustu námstefnunni? „Vandi fyrirtækja í dag teng- ist því að viðskipta\inurinn er ekki eins tryggur og áður. Þess vegna glíma fyrirtæki við nýjar leiðir eða lausnir til að halda honum. Við munum kynna þær leiðir sem gefíst hafa best hjá fyrir- tækjum íþessu sambandi." -Verður framhald á þessu samstarfi Stjómunarfélagsins og Berkeley-háskóla? „Við höfum fullan hug á að auka sam- starfíð frekar á næsta ári og efna til fleiii námstefna. Við höfum fundið fyi-ir því að stjórnend- ur á sviði starísmannaþjónustu eru stöðugt að leita að hestu að- ferðunum til að styðja fólk í auk- inni samkeppni. Við munum til dæmis fá umfjöllun um það nýjasta sem er að gerast í starfs- mannaþjónustu strax í byrjun næsta árs. “ Öllum er heimil þátttaka í námstefnunum og hefst sú fyrsta næstkomandi miðvikudag. Viðskiptavin- urinn er ekki eins tryggur og áður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.