Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNB LAÐIÐ Arsframleiðsla Fljóts- dalsvirkjunar Nægir orkuþörf 120.0001 álvers NORSK Hydro stefnir að byggingu 120.000 tonna álvers á Reyðarfirði, eins og fram kom í Morgunblaðinu um helgina, og verður rætt um þann möguleika á næsta fundi ís- lenskra stjórnvalda og Norsk Hydro, sem verður í næsta mánuði. Virkja þarf orku sem samsvarar orkugetu fyrirhugaðrar Fljótsdals- virkjunar, til þess að mæta orku- þörf álvers af umræddri stærð, að sögn Þorsteins Hilmarssonar upp- lýsingafulltrúa Landsvirkjunar. Afl Fljótsdalsvirkjunar er fyrirhugað 210 MW sem samsvarar um 1.700 gígawattstunda framleiðslu raforku á ári. ------«-«-«--- Snæfellsnesvegnr Héraðsverk með lægsta tilboðið HÉRAÐSVERK ehf. á Egilsstöð- um átti lægsta tilboðið í gerð Snæ- fellsnesvegar milli Búlandshöfða og Brimilsvalla. Hljóðaði tilboð Hér- aðsverks upp á tæplega 185 milljón- ir króna, en kostnaðaráætlun Vega- gerðarinnar fyrir verkið var tæp- lega 294 milljónir króna. Sautján tilboð bárust í verkið og voru þau öll nema eitt undir kostn- aðaráætlun. Næstlægsta tilboðið áttu Hjarðamesbræður ehf. á Hornafirði, rúmlega 199 milljónir króna, og þriðja lægsta tilboðið kom frá Amarfelli ehf. á Akureyri, tæp- lega 209 milljónir króna. Hæsta til- boðið var frá Jörva hf. á Hvanneyri sem bauð 310 milljónir króna í verk- ið. -------------- Bflvelta á Hellisheiði ÖKUMAÐUR slapp að mestu við meiðsl þegar hann velti bifreið sinni á Hellisheiðinni um kl. 14.30 í gær. Ökumaðurinn var á austurleið og taldi lögreglan á Selfossi að orsök óhappsins hefði verið sprunginn hjólbarði. Bifreiðin fór tvær veltur og fullyrðir lögreglan að þakka megi bílbeltanotkun að ekki varð al- varlegt slys. Ökumaðurinn var flutt- ur á slysadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur. Mjög hvasst var á heiðinni í gær, en ekki varð vart hálku. Sagði lögreglan þó að greinilegt væri að veturinn væri skammt undan og því ættu ökumenn að búast til vetrar- aksturs áður en langt um liði. ------------------ Vinnupallur fauk undan iðnaðar- mönnum MJÖG hvasst var í Keflavík í gær og hlaust af því vinnuslys við blokk í eigu Vamarliðsins. I einni hviðunni fauk vinnupallur og hrundi eins og spilaborg með þeim afleiðingum að þrír menn sem vora að vinna að viðhaldi á blokk- inni féllu til jarðar og var fallið átta metrar. Mennirnir voru allir fluttir á Sjúkrahús Suðumesja en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Full- trúi Vinnueftirlitsins kom og lagði mat á aðstæður eftir óhappið. Rússar meistarar en Island í miðjum hópi SKAK Elista f Kalmykfu ÓLYMPÍUSKÁKMÓT GÍFURLEG spenna ríkti á ólympíuskákmótinu við upphaf síðustu umferðar í gærmorgun. Bandaríkjamenn, sem hafa haft forystu nánast allt mótið, öttu kappi við Kínverja, en Rússar, sem vora hálfum vinningi á eftir Bandaríkjamönnum, tefldu við Hollendinga. Líklega hefðu Bandaríkjamenn getað hugsað sér auðveldari andstæðinga en Kínverja, sem hafa bitið grimmi- lega frá sér allt þetta mót. Lið Hollands er sterkara á pappírun- um en það kínverska, en hefur verið mjög brokkgengt í þetta sinn, tapaði m.a. 0-4 fyrir Bandaríkjamönnum snemma móts. Eftir kuldakast um miðbik mótsins hefur nú hlýnað mjög í Elista. Hitinn úti er a.m.k. 25 stig og inni í salnum, þar sem efstu liðin keppa, er hitinn eins og í gufubaði. Eftir því sem leið á skákirnar óx spennan og hitinn sömuleiðis, þannig að svitinn bókstaflega draup af skákmönn- unum niður á taflborðin. Sannar- lega óvenjuleg sjón á skákmóti! Allar aðrar viðureignir féllu í skuggann fyrir þessum tveimur Bandaríkin-Kína og Rúss- land-Holland. Óvenjulegt ástand ríkir í skák- salnum við þessar aðstæður; skákmennirnir ganga um skimandi; fylgdust ekki síður með öðram skákum en sínum eigin. Ekki voru liðnir nema u.þ.b. tveir tímar af umferðinni þegar brúnin fór að þyngjast á Bandaríkjamönnunum; Hollend- ingar höfðu þegar tapað fyrstu skákinni en Kínverjar voru að ná yfirhendinni í flestum skákum sínum við Bandaríkjamenn. Enn var þó ekki öll von úti; á fyrsta borði hafði Hollendingurinn Jan Timman yfirhöndina gegn Peter Svidler. Með sigri Hollendinga í þeirri skák var enn hugsanlegt að Bandaríkjamenn næðu að snúa viðureigninni sér í hag. En gæfan var ekki með Bandaríkja- mönnum; Timman teygði sig of langt og tapaði. Hollendingar töpuðu einnig á öðra borði svo viðureigninni lauk með yfir- burðasigri Rússa, 314-14, meðan Bandaríkjamenn máttu sætta sig við jafntefli við Kínverja. Rússai- höfðu því enn einu sinni borið sigur úr býtum. Vonbrigði með árangur ís- lensku sveitarinnar íslenska sveitin á þessu ólympíumóti var mikið breytt frá fyrri mótum. Þeir Jóhann Hjart- arson, Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson, sem farið hafa fyrir íslensku sveitinni ásamt Jóni L. Árnasyni á undanförnum 5-6 ólympíumótum, sitja allir heima og nýir menn era teknir við. Þessi breyting á sveitinni vakti mikla athygli hér í Elista, enda - eins og einn viðmælandi fréttaritara orðaði það - hafa áð- urnefndir skákmeistarar verið eins konar vörumerki Islands í skákheiminum um langt árabil. Mörgum fannst með ólíkindum að Islendingar skyldu voga sér að gera jafnróttækar breytingar á ólympíusveit sinni og raun er á. Sveitin er nú mun veikari skv. meðalstigum en hér hefur verið á undanförnum mótum, eða í 38. sæti af 110. Til samanburðar má nefna, að á undanförnum mótum hefur sveitinni jafn- an verið raðað í 15.-20. sæti í upp- hafi, en árangur raunar oft verið mun betri en svo. Sveitin byrjaði þokkalega og hélt sig í kringum 30. sæti framyfir mitt mót. Staðan fyrir 3-4 síð- ustu umferðirnar var ekki slæm, með þokkalegum enda- spretti hefði mark- miðið að komast í hóp 15. bestu átt að vera raunhæft. En það er skemmst frá því að segja að allt gekk á afturfótunum í lokaumferðunum og niðurstað- an er, eins og áður segir, að sveitin er aðeins rétt fyrir ofan miðju. Þetta er líklega lakasti árang- ur Islands á ólympíuskákmóti um áratugaskeið. Skýringar era margar. Breiddin hefur aukist gríðarlega í skákheiminum sl. áratug. Þar á hrun Sovétríkj- anna vitaskuld stóran hlut að máli, en í stað einnar sveitar koma nú fimmtán sveitir frá fyrrverandi Sovétríkjum. Ýmsar aðrar þjóðir hafa verið að sækja sig mjög, einkum í Mið- og Suð- ur-Evrópu. Þannig hafa t.d. Spánverjar, Frakkar og Italir skotið okkur ref fyrir rass á seinni árum, ekki síst vegna þess að austur-evrópskir skák- menn hafa gengið til liðs við þá. Til þess að gera betur en að ná 38. sæti hefði verið nauðsynlegt að meira en helmingur liðs- manna tefldi betur en stigin segja til um. Aðeins tveir liðs- manna náðu að bæta sig að þessu leyti. Þröstur Þórhallsson tók mikinn sprett um mitt mót og hélt liðinu á floti lengi vel. Hannes Hlífar átti í erfiðri bar- áttu á 1. borði og var í flestum skákum að tefla við sér stiga- hærri menn. Að ná saman 5!4 v. í tíu skákum við þær aðstæður, sérstaklega eftir að hafa tapað tveimur fyrstu, verður að teljast vel viðunandi árangur. Eftir góða byrjun dalaði Helgi Áss verulega. Þeir Jón Viktor, Björgvin og Jón Garðar náðu heldur ekki að sýna þann styrk sem nauðsynlegur hefði verið svo liðið næði góðu sæti. 11. umferð: Ísland-Kanada......................2-2 Hannes-Spraggett...................1-0 Þröstur-Lesiege....................0-1 Helgi-Nikoloff..................1/*-'h JónViktor-Hergott...............'hr-'k Enn glatað tækifæri, en Kanada eigum við að geta unnið 3-1 á góðum degi. Þröstur mátti sætta sig við tap eftir mistök í byrjuninni. Hann var fyrir skák- ina taplaus í 16 skákum í röð á ólympíumóti, sem líklega er ís- landsmet. Jón Viktor missti hartnær unnið tafl niður í jafn- tefli í tímahraki andstæðingsins. Hannes tefldi af öryggi og vann góðan sigur. 12. umferð: Indland-ísland.................214-114 Barua-Hannes.....................14-14 Thipsay-Þröstur .................14-14 Kunte-Helgi .....................14-14 Sarishkian-Jón Viktor..............1-0 Enn syrtir í álinn; þessi viðureign var sú fyrsta þar sem við unnum ekki skák. Jón Viktor lenti snemma í erfið- leikum gegn mjög vel undirbúnum andstæðingi og eftir það var eins og hinir Indverjarnir legðust allir í mikinn jafn- teflisgír; andstæð- ingur Hannesar fórnaði manni fyrir þráskák, Thipsay varðist vel öllum til- raunum Þrastar og vinningstilraunir Helga í endatafli reyndust einnig ár- angurslausar. 13. umferð: Ísland-Moldova ..............114-214 Hannes-Bologan...................1-0 Þröstur-Rogozenko..............14-14 Helgi-Komlianov .................0-1 Jón Garðar-Chemov ...............0-1 Það er enginn happadráttur að fá Moldovu í síðustu umferð, þeg- ar stór sigur hefði getað fleytt ís- lensku sveitinni upp undir 30. sæti. Moldovar era nr. 32 í styrk- leikaröðinni, þ.e. sex sætum ofan við okkur; með sterkan fyrsta- borðsmann og þétt lið þar fyrir neðan. Engu að síður var allt lagt í sölumar, og um tíma leit út fyrir að sveitin gæti bjargað andlitinu með stóram sigri. Á 4. borði virt- ist Jón Garðar vera að snúa erf- iðri stöðu sér í vil og Helgi stóð betur á 3. borði. Þröstur náði jafntefli á lakari stöðu og Hannes var peði yfir. En þá gerðust ósköpin: Jón Garðar lék af sér manni og mátti gefast upp; Helgi lék hverjum afleiknum á fætur öðram og sumum virtist skákin vera að snúast í höndum Hannes- ar. Það reyndist þó óþarfa svart- sýni; hann náði hagstæðum upp- skiptum og um síðir dugði um- frampeðið til sigurs. Niðurstaðan: ísland fékk 27 vinninga af 52, eða rúmlega 50%. Miðað við þá and- stæðinga sem sveitin atti kappi við era þetta nokkurn veginn eðli- leg úrslit. Þó er niðurstaðan mikil vonbrigði, m.t.t. árangurs á fyrri mótum og væntinga sem bundnar vora við sveitina nú. Árangur íslensku sveitarinnar var eftirfarandi. Hannes Hlífar Stefánsson fékk 514 vinning í tíu skákum; Þröstur Þórhallsson 7/11; Helgi Áss Grétarsson 514/H; Jón Viktor Gunnarsson 414/10; Björgvin Jónsson 114/4; Jón Garðar Viðarsson 3/6. Þar með er lokið mjög óvenju- legu ólympíuskákmóti. Þegar þátttökuþjóðir mættu til leiks vora gestgjafarnir ekki tilbúnir og varð að fresta mótinu um tvo daga. Þetta varð til þess að annar frídagur keppenda var tekinn af þeim og umferðunum fækkað um eina. Mannréttindasamtök lögð- ust mjög gegn þátttöku þjóða heims í mótinu og hættu m.a. Danir og Norðmenn við. Þátttaka íslendinga var gagnrýnd af sum- um, en hvað sem mönnum finnst ÞRÖSTUR Þórhalls- son náði besta ár- angri íslensku kepp- endanna. um þá ákvörðun, þá stendur eftir sú staðreynd, að 110 sveitir tefldu á mótinu, þeirra á meðal sveitir frá þeim þjóðum, sem háværastar hafa verið í mannréttindabaráttu, með Bandaríkjamenn, Englend- inga og Svía í broddi fylkingar. Að lokum sjáum við skák Hannesar Hlífars við hinn þraut- reynda og sterka stórmeistara Kevin Spraggett frá Kanada. Til marks um styrkleika Kanada- mannsins má nefna, að hann hef- ur tvisvar teflt á áskorendamót- um, og í síðara skiptið sló hann út sovéska stórmeistarann Andrej Sokolov, en tapaði með minnsta mun fyrir Artúr Júsupov. Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson Svart: Kevin Spraggett Nýtískubyijun 1. e4 - g6 2. d4 - d6 3. Rc3 - Bg7 4. f4 - a6 5. Rf3 - b5 6. Bd3 - Rd7 7. a4 - - Hvítur leikur oftast 7. e5 eða 7. 0-0 í þessari stöðu, en Hannes hefur áður leikið 7. Be3 gegn Ti- ger Hillarp Persson, en hann tap- aði þeirri skák. 7. — b4 8. Re2 - c5 9. c3 - bxc3 10. bxc3 - e6 11. h4! - Re7 Svartur getur ekki stöðvað fram- rás h-peðsins með 11. - h5, því að þá sprengir hvítur svörtu peða- stöðuna upp með 12. f5 o.s.frv. 12. h5 - cxd4 13. cxd4 - Rf6 14. e5 - Rfd5 Svartur má ekki taka peðið: 14. - - Rxh5 15. g4 og riddarinn fellur. 15. Rg5 - Rf5 16. Re4 - 0-0 Svartur á ekki um annað að velja en að hróka, því að hvítur hótar 17. g4 ásamt 18. Rxd6+ o.s.frv. 17. Db3 - a5 18. g4 - dxe5 19. fxe5 - Rxd4 20. Rxd4 - Rb4 21. Bb2 - Bxe5 22. Hdl - - Svartur hefur sett traust sitt á þessa stöðu þegar hann fórnaði manni fyrir gagnsókn á miðborð- inu. Hvíti kóngurinn stendur enn á upphafsreit, og það er mjög óvenjulegt í svona opinni stöðu. Spraggett hefur talið sig geta notfært sér þetta, en það er Hannes, sem verður á undan með sóknina á h-línunni. 22. - - Bxd4 23. Bc4! - Rc6 Eftir 23. - - e5 24. hxg6 á svartur enga vöm gegn hótunum hvíts, 25. Bxf7 + og 25. Dh3 o.s.frv. 24. hxg6 - fxg6 Hvítur hótaði einfaldlega 25. Dh3 ásamt 26. Dxh7+. 25. Bxe6+ - Kh8 Eða 25. - - Bxe6 26. Dxe6+ ásamt 28. Dxc6 og hvítur vinnur. 26. Hxd4! - Rxd4 27. Dd5 og svartur gafst upp. Riddarinn á d4 er dauðans matur og svarti kóng- urinn fastur í mátneti, t.d. 27. - - Bxe6 28. Bxd4+ - Kg8 29. Dxe6+ - Hf7 30. Hxh7! - Kxh7 31. Dxf7+ - Kh6 32. Dg7+ mát. Áskell Örn Kárason Bragi Kristjánsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.