Morgunblaðið - 13.10.1998, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Hamingjusöm á hattadegi
KRAKKARNIR í Glerárskóla sem og kennarar og um. A myndinni eru þau Anton, Sigmundur Þórir,
starfsmenn mættu með óhefðbundin höfuðfót í skól- Gunnar, Bríet, Karen, Sindri og Jón Geir glað-
ann í tilefni af hattadegi sem efnt var til í skólan- hlakkaleg á hattadegi.
Jólaverkefni Leikfélags Akureyrar
Æfingar hafnar
á Pétri Gaut
með fjölda litríkra og eftirminni-
legra persóna.
Sveinn leikstýrir
Jakob Þór Einarsson fer með
titilhlutverkið í sýningu Leikfélags
Akureyrar, Þórunn Magnea
Magnúsdóttir leikur Asu móður
hans og Pálína Jónsdóttir er í hlut-
verki Sólveigar. Aðrir leikarar eru
Aðalsteinn Bergdal, Arndís Hrönn
Egilsdóttir, Árni Pétur Reynisson,
Hákon Waage, Stefán Sturla Sig-
urjónsson, Sunna Borg og Þráinn
Karlsson. Guðni Franzson semur
tónlist í sýninguna, Hulda Kristín
Magnúsdóttir hannar búninga,
Kristin Bredal gerir lýsingu og
leikmynd og Sveinn Einarsson
leikstýrir.
ÆFINGAR eru hafnar á jólaverk-
efni Leikfélags Akureyrar, Pétri
Gaut eftir Henrik Ibsen. Sýningin
verður byggð á nýrri þýðingu
Helga Hálfdanarsonar á verkinu
og er þetta í fyrsta sinn sem hún
er leikin á leiksviði.
Henrik Ibsen skrifaði Pétur
Gaut á Italíu vorið og sumarið
1867 og kom leikritið út sama ár.
Það vakti þegar mikla athygli og
hefur í áranna rás hlotið heiðurs-
sess í norskum og nori’ænum bók-
menntum. Pétur Gautur er eitt
mest leikna sviðsverk allra tíma og
hefur verkið verið sýnt um víða
veröld. I því tekst höfundurinn á
við áleitnar spurningar um tilvist
mannsins á öllum tímum en leikrit-
ið er jafnframt stórskemmtilegt
Fjarnám til
meistaragráðu
í hjúkrunarfræði
Kynningarfundur
Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Manchester-háskóla, auglýsir fjarnám til
meistaragráðu í hjúkrunarfræði. Áætlað er að námið, sem tekur tvö ár, hefjist í lok
janúar 1999. Gert er ráð fyrir að hjúkrunarfræðingar geti stundað námið jafnhliða
a.m.k. hálfu starfi. Inntökuskilyrði er B.S.-gráða í hjúkrunarfræði ásamt starfsreynslu.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk.
Upplýsingar um námið fást hjá Þóru Ragnheiði Stefánsdóttur, skrifstofustjóra heil-
brigðisdeildar, Þingvallastræti 23, 600 Ak., s. 463 0901. Upplýsingar um námið
veitir einnig prófessor Sigríður Halldórsdóttir í vs. 463 0900 og hs. 462 7676.
Haldinn verður kynningarfundur um meistaragráðunámið fimmtudaginn
15. október kl. 15 á sex stöðum samtímis:
Akureyri, Háskólinn á Akureyri, Þingvallastræti 23,1. hæð í stofu 14.
ísafirði, Framhaldsskóli Vestfjarða, Torfnesi, 2. hæð í heimavist.
Egilsstöðum, Menntaskólinn á Egilsstöðum, 1. hæð í stofu 2.
Neskaupstað, Verkmenntaskóli Austurlands, 3. hæð í stofu 11.
Austur-Skaftafellssýsla, Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu, 1. hæð í stofu 4.
Reykjavík, Háskóli íslands, Félagsvísindadeild Odda, kjallara.
AKUREYRARBÆR
ENDURSKOÐUN DEILISKIPULAGS
í GILJAHVERFI
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur ákveðið að
endurskoða deiliskipulag þess hluta Giljahverfis sem er
norðan Snægils og afmarkast af Merkigili að vestan og
norðan og Skessugili að austan. Skipulagssvæðið er
sýnt rúðustrikað á uppdrættinum að ofan. Ástæður
endurskoðunarinnar eru m.a. breyttar forsendur frá því
að skipulagið var samþykkt árið 1991. Gert er ráð fyrir að
fjöldi íbúða á svæðinu verði hinn sami og í gildandi
skipulagi eða 88.
Hér með eru bæjarbúar, byggingaverktakar, hönnuðir og
aðrir hagsmunaaðilar sem vilja hafa áhrif á skipulag
svæðisins áður en tillaga verður fullunnin og auglýst,
hvattir til þess að koma athugasemdum eða ábendingum
á framfæri við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 600 Akureyri í síðasta lagi miðvikudaginn
26. október næstkomandi.
Skipulagsstjóri
hAskólinn
Á AKUREYRl
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
ALEXANDER Kirkorov, Kjai’tan Bergsteinsson og Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Útvegs-
mannaféiags Norðurlands, skoða nýja búnaðinn, sem sjávarútvegssvið VMA á Dalvík fékk að gjöf.
Sjálfstæðisflokkurinn
á Norðurlandi eystra
Utvegsmannafélag Norðurlands og
sjávarútvegssvið VMA á Dalvík
Nýr fjarskipta-
kennslubúnað-
ur í notkun
ÚTGERÐIR innan Útvegsmannafé-
lags Norðurlands afhentu Sjávarút-
vegssviði Verkmenntaskólans á
Akureyri nýjan fjarskiptakennslu-
búnað fyrir skipstjómendui’, svo-
nefndan GMDSS-búnað í gær og
hófst þá einnig fyrsta námskeiðið.
Heildai’kostnaður við þennan bún-
að nemur 3,6 milljónum króna _og
greiddu nokkrar útgerðir innan ÚN
hann, en skipstjórnendur þeirra fá
afslátt af námskeiðum á móti. Fram
til þessa hefur kennsla á GMDSS-
búnað eingöngu boðist í Reykjavík
og Vestmannaeyjum þannig að þetta
eru töluverð tímamót í sögu sjávarút-
vegssviðsins á Dalvík. Öll kennsla fer
fram í tölvum, en tæki í brú skipsins
blasa við á skjánum í sérlega vand-
aðri upplausn og vinna skipstjórnar-
menn á námskeiðunum eins og þeir
séu staddir í brú skips á hafi úti.
Fullbókað á næstu sjö námskeið
Fyrsta námskeiðið hófst í gær og
er það fullskipað en átta skipstjórn-
armenn komast á hvert námskeið.
Þeir munu útskrifast með svonefnd
GOC-skírteini að loknum 80 kennslu-
stundum, en samkvæmt lögum ber
þeim að hafa slíkt skírteini frá og
með 1. febrúar næstkomandi. Sjö
næstu námskeið á tækin eru fullbók-
uð, þannig að áhuginn er mikill.
Rússneskur sérfræðingur frá
framleiðanda búnaðarins, Alexander
Kirkorov, er staddur á Dalvík og
hefur hann unnið að uppsetningu
tækjanna og þjálfun kennara. Sigur-
jón Sigurjónsson annast kennsluna,
en einnig mun Bárður Gunnarsson
loftskeytamaður á Akureyri sjá um
nokkra þætti hennar og Kjartan
Bergsteinsson loftskeytamaður hef-
ur yfirumsjón með fyrsta námskeið-
inu en hann hefur annast þessa
kennslu í Vestmannaeyjum undan-
farin ár og þýtt allt kennsluefni á ís-
lensku.
Hugur í verki
Útvegsmenn á Norðurlandi eru af-
ar ósáttir við þau áform stjórnvalda
að skipstjórnarmenntun leggist af á
Norðurlandi og að einungis verði
boðið upp á hana í Reykjavík. Á
Norðurlandi er stærsti hluti skipa-
flotans og í Eyjafirði hafa Verk-
menntaskólinn og Háskólinn á Akur-
eyri boðið upp á sérhæft nám á sviði
sjávarútvegs. Með fjármögnun á
þessum kennslubúnaði vilja útvegs-
menn á Norðurlandi því sýna hug
sinn í verki í þessum efnum.
Kjördæmisráð
kýs efstu
menn á
framboðslista
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandi
eystra samþykkti um helgina aðferð
við val á framboðslista flokksins í
kjördæminu við næstu alþingis-
kosningar.
Allir aðal- og varamenn í kjör-
dæmisráðinu verða kallaðir saman
til fundar þar sem kosið verður um
fyi-stu 6 sætin á listanum. Byrjað
verður á að kjósa efsta mann og svo
koll af kolli. Kjörnefnd er falið að
raða niður í 7. til 12. sæti listans, en
kjördæmisráð mun að lokum taka
listann til samþykktar.
Gunnar Ragnars var kjörinn for-
maður kjördæmisráðs, en hann tek-
ur við því starfí af Önnu Fr. Blön-
dal. Gunnar sagði að full samstaða
hefði verið á fundinum um að fara
þessa leið, en alllangt er síðan próf-
kjör hefur verið viðhaft í kjördæm-
inu við val á lista flokksins til Al-
þingiskosninga.
AKSJON
13. október, þriðjudagur
12.00^Skjáf réttir
18.15^-Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endursýndur kl.
18.45,19.15,19.45, 20.15 og 20.45.
21.00^-Áttatíu og eitthvað Sí-
gild tónlistarmyndbönd.