Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 20
m ^ , r~T-~T~. . , -rT r~T .-
20 PRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998
VIÐSKIPTI
Afkomuvið-
vörun frá Den
norske bank
Newcastle
United
í við-
ræðum?
London. Reuters.
HLUTABRÉF í Newcastle
United Plc hafa hækkað um
rúm 10% vegna nýrra bolla-
legginga um tilboð í enska úr-
valsdeildarliðið.
Verð bréfanna hækkaði um
9,5 pens í 85,5 pens en hafði
komizt hæst í 95 pens. Ahug-
inn stafaði af frétt í blaðinu
Mail on Sunday um að
Newcastle ætti í viðræðum
við ónefnt fjölmiðlafyrirtæki
um 150 milljóna punda yfir-
töku.
Haldið hefur verið fram að
Newcastle eigi í viðræðum við
kapalfyrirtækið Telewest
Communications Plc og
keppinautinn Cable & Wire-
less Communications.
Leverkusen
skráir bréf
til sölu
Berlín. Reuters.
ÞÝZKA knattspymuliðið Ba-
yer Leverkusen vill skrá
hlutabréf til sölu í þýzku
kauphöllinni samkvæmt blað-
inu Die Welt.
Liðinu verður breytt í
skráð hlutafélag fyrir leik-
tímabilið 1999/2000.’
Ósld.
DEN norske Bank, stærsti banki
Noregs, segir að áframhaldandi af-
ski-iftir útlána í skipadeild muni
þurrka út hagnað á þriðja ársfjórð-
ungi og hreint tap muni nema 250
milljónum norskra króna.
Bankinn gerir ráð fyrir afskrift-
um upp á 500 milljónir norskra
króna í tengslum við skipadeildina
og 200 milljóna n. króna framlagi á
afskriftareikning útlána vegna
ótryggs ástands í efnahagsmálum
heimsins.
Svein Aaser, aðalbankastjóri
DnB, sagði að bankinn neyddist til
að gefa út hagnaðarviðvörun vegna
þess að alvarleg breyting til hins
verra hefði átt sér stað síðan á öðr-
um ársfjórðungi. Bankinn skýrði frá
ótilgreindu tapi upp á 155 milljónir
norskra króna og tilteknu tapi upp
á 82 milljónir norskra króna í skipa-
flutningum á öðrum ársfjórðungi.
„Okkur er mikilvægt að markað-
urinn geti treyst DnB,“ sagði Aa-
ser. Hann sagði þó að vera mætti að
bankinn gæti eignfært nokkuð af
því sem hefði verið gjaldfært á öðr-
um sviðum en siglingum á þriðja
ársfjórðungi.
Fyrir afskriftir nemur rekstrar-
hagnaður 350 milljónum norskra
króna á þriðja ársfjórðungi að sögn
DnB og rekstrarhagnaður bankans
fyrir skatta nemur 7 milljörðum
norskra króna á fyrstu níu mánuð-
um ársins. Eftir afskriftir er búizt
við að hagnaður nemi alls um 900
milljónum norskra króna.
í tölunum er gert ráð fyrir að
hlutur DnB í tryggingardeildinni
Vital Forsikring hafí minnkað úr
140 milljónum norskra ki’óna í 50
milljónir norskra króna á fýrri hluta
ársins.
Afkomuviðvörunin olli því að
hlutabréf í DnB féllu í verði eftir
opnun, en þau réttu við þegar á dag-
inn leið og lækkaði lokagengi þeirra
um 1 norska krónu í 18,80 norskar
krónur. Hæst hefur verðið komizt í
45,80 norskar krónur á þessu ári.
Sjö vaxtahækkanir í ár
Hagnaður hefur dregizt saman í
norska bankageiranum vegna sjö
vaxtahækkana norska seðlabankans
á þessu ári. Búizt er við að vaxta-
hækkanirnar haldi áfram að grafa
undan hagnaði á þessum ársfjórð-
ungi að sögn Ingimars Persons,
bankasérfræðings Aros Securities í
Ósló. Honum kæmi ekki á óvart ef
áhrifanna gætti einnig hjá Christi-
ania Bank, Bergens Bank og Fin-
ansbanken.
Afkomuviðvörunin styrkir rök-
semdir fyrir samþjöppun í norska
bankageiranum, segir Person. I síð-
asta mánuði kom fram tillaga frá
keppinautum DnB, Christiania
Bank, Fokus Bank og hinum ríkis-
rekna Postbanken, um þríhliða
samruna í því skyni að koma á fót
stærstu markaðsþjónustu Noregs
að markaðsvirði.
LIFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
Hefur þú fengið iðgjaldayfirlitið ?
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent sjóðfélögum yfirlit yfir móttekin iðgjöld á
tímabilinu 1. mars 1998 til 31. ágúst 1998. Ekki er óeðlilegt að greiðslur fyrir
mánuðina júní 1998 til ágúst1998 vanti áyfirlitið.
Hafir þú ekki fengið yfirlit, en dregið hafi verið af launum þínum í Lífeyrissjóð
verzlunarmanna, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, þá vinsamlegast
hafið samband við innheimtudeild sjóðsins hið allra fyrsta og eigi síðar en 1.
nóvember nk.
ELLILÍFEYRIR - ÖRORKULÍFEYRIR - MAKALÍFEYRIR - BARNALÍFEYRIR
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS!
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna
gjaldþrota skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr
skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á
iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit
launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram
frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á
grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi
lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Skrifstofa sjóðsins er opin frá kl. 9.00 - 17.00
Húsi verslunarinnar, 4. og 5. hæð, 103 Reykjavík.
Sími 580 4000, fax 580 4099.
Heimasíða: www.lifver.is
Netfang: skrifstofa@lifver.is
MORGUNBLADIÐ
J* / n
H % 1
p| /; /) * !
/ '
Morgunblaðið/Ásdís
ÞAÐ fer að verða hálf gamaldags að kaupa bækur úti í bókabúð eins
og þessar stúlkur eru að gera en verslun með bækur á netinu hefur
stóraukist á milli ára.
Bækur mest
keyptar á Netinu
New York. Reuters.
TUTTUGU milljónir manna
keyptu einhverja neytendavöru á
veraldarvefnum á fyrri hluta árs-
ins, 100% fleiri en á sama tíma í
fyrra, samkvæmt könnun rann-
sóknarstofnunarinnar Nielsen
Media Research.
Af þeim 20 milljónum sem gerðu
innkaup á vefnum keyptu 5,6 millj-
ónir bækur, 3,3 milljónum fleiri en
í fyrra.
Næstmest var keypt af tölvuvél-
búnaði og voru kaupendur hans 4,4
milljónir, 2,4 milljónum fleiri en í
lyrra.
Tölvuhugbúnaður var í þriðja
sæti og voru innkaup í þeim flokki
4 milljónh’, samanborið við 2,8
milljónir á sama tíma 1997.
Af öðrum niðurstöðum Nielsens
má nefna:
• 71% þeirra sem keyptu á vefn-
um á fyrstu sex mánuðum ársins
voru karlar en 29% konur, sem er
sama hlutfall og í fyrra.
• Fólk á aldrinum 16-24 ára kaup-
ir aðallega bækur, geisladiska,
snældur, myndbönd og föt.
• Alls keyptu 3,4 milljónir geisla-
diska, snældur eða myndbönd,
samanborið við 2 milljónir á sama
tíma í fyrra.
• Þeim sem pöntuðu flugmiða,
hótelherbergi og bílaleigubíla
fjölgaði úr 1,6 milljónum í fyrra í
2,8 milljónir á fyrstu sex mánuðum
þessa árs.
ESB semur um nýj-
an flugvöll Mílanó
Brussel. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hefur komizt að
samkomulagi við Itala um dreif-
ingu flugumferðar í Mílanó og fá
Vönduð
dagatöl og jólakort
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir þig
Nýjar víddir
í hönnun og útgáfu
Snorrabraut54 ©5óf 4300 Q561 4302
Ulstein-
þjónusta
= HÉÐINN =
SM IÐJA
Stórási 6 »210 Garðabæ
sfmi 565 2921 • fax 565 2927
fjórir af hverjum 10 farþegum að
halda áfram að nota Linate-flug-
völl borgarinnar í stað hins nýja
Malpensa flugvallar.
Stjórnarkreppan á Italíu getur
að vísu sett strik í reikninginn og
bíður framkvæmdastjórnin enn
eftir staðfestingu á nokkrum atrið-
um. ítalir þurfa að samþykkja lög
um flugvallarmálið fyrir 25. októ-
ber.
Framkvæmdastjórnin hafnaði í
síðasta mánuði ítalskri tilskipun
um að öllu Mílanóflugi yrði beint
til Malpensa nema flugi frá Róm
þar sem ríkisflugfélagið Alitalia
ræður lögum og lofum.
Níu félög kvörtuðu
Níu evrópsk flugfélög kvörtuðu
yfir því að lögin drægju taum
Alitalia og að vega- og brautar-
samband yrði ekki tilbúið á tilsett-
um tíma.
Að sögn ESB hafa ítalir fallizt á
aðlögunartíma þar til komið verð-
ur á vega- og brautarsambandi við
Malpensa, sem er 50 km frá
Mílanó. Aðlögunartíminn mun ná
til desember 2000 „að minnsta
kosti“.
Öll flugfélög sem halda uppi
flugi til Mílanó fá að nota Linate
eingöngu nema fimm þau helztu -
Alitalia, Air France, British
Airways, Lufthansa og ítalska
svæðaflugfélagið AirOne.
www.mbl.is