Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Ágætis sildveiði
á Síðugrunninu
Sfldin er víða en ekki í miklu magni
SÍLDVEIÐIN hefur nú færst suð-
ur fyrir land en síldarskipin hafa til
þessa einkum verið að veiðum út af
Austfjörðum. Flest skipin voru
hinsvegar af fá ágætis afla á Síðu-
grunni, rétt austan við Ingólfs-
höfða, á sunnudag.
Síldarskipin voru að veiðum
grunnt á Síðugrunni í fyrrinótt og
að fá um 50 tonn í kasti. Leið-
indaveður var hinsvegar á þess-
um miðum í gær og skipin því
flest við leit í Seyðisfjarðardjúpi í
gær.
Húnaröst SF landaði um 270
tonnum á Hornafirði í gær og
sagði Jón Axelsson, skipstjóri, í
samtali við Morgunblaðið skipin
hafa náð misjöfnum árangri, enda
aðstæður nokkur erfiðar. „Við vor-
um að kasta á mjög grunnu vatni,
eða um 50 til 60 fóðmum. Flest
skipin eru hinsvegar með 100
faðma djúpar nætur en þær eru
þungar og sökkva hratt. Það er
mjög slæmur botn á þessu svæði
og voðinn vís ef nótin sekkur til
botns. Því verður að kasta mjög
hratt og snurpa á útopnu,“ sagði
Jón.
Víða sfld að sjá
Grindvíkingur GK varð var við
stóra síldartorfu á Síðugrunni á
laugardag en gat ekki kastað á
hana vegna veðurs. Jón sagði þessa
torfu ekki hafa fundist aftur, held-
ur hafi síldin verið í litlum eining-
um á stóru svæði. „Það virðist víða
vera sfld þó hún sé hvergi í miklu
magni. Nokkur skip fengu ágætis
afla inn á Seyðisfirði á fostudag en
það varð síðan ekkert úr því. Þá
hafa menn orðið varir við sfld í
Lónsdýpinu en það er lokað vegna
smásíldar."
Fjallað um sfldveiðar
Norðmanna við Island
HREINN Ragnarsson sagnfræð-
ingur heldur heldur á morgun,
miðvikudag, fyrirlestur í boði
Rannsóknarseturs í sjávarútvegs-
sögu og Sjóminjasafns Islands og
nefnist hann: Sfldveiðar Norð-
manna við ísland. Fyrirlesturinn
verður fluttur í Sjóminjasafni ís-
lands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði,
og hefst kl. 20.30.
I fyrirlestrinum verður almennt
llcimaNÍOa; atlanlis.miuedia.iy/iiiKvaro^lli
auping
^NOHA
Brunaslöngur
frá Noregi
Viðurkennd brunavörn
Fáanlegar með og án skáps
Heildsöludreifing:
TEnGlehf.
Smiðjuvegi 11. Kópavogi
Sími 564 1088.fax 564 1089
Fást í bvagingauöruverslunum um land allt.
fjallað um sfldveiðar Norðmanna
við Island, sem hófust á Austfjörð-
um um 1870 og síðar fyrir Norður-
landi, en lítil sem engin sfldveiði
var við landið fyrir miðja 19. öld.
Norðmenn hófu reknetaveiðar um
aldamótin 1900 og veiðar í
snurpunót nokkrum árum síðar en
fram að þeim tíma var eingöngu
veitt með landnót. Nýju veiðarfær-
in leiddu meðal annars til þess að
Siglufjörður varð aðalmiðstöð sfld-
veiðanna vegna legu sinnar.
Hreinn Ragnarsson lauk cand.
mag.-prófi í sagnfræði frá Háskóla
íslands árið 1980. Hann hefur á
undanfömum árum stundað rann-
sóknir á sfldarsögu íslands og
starfar nú sem menntaskólakenn-
ari á Laugarvatni.
Þetta er annað erindið í nýrri
röð fyrirlestra á vegum Rannsókn-
arseturs í sjávarútvegssögu og
Sjóminjasafns íslands. Fyrsti fyr-
irlesturinn á þessari haustönn var
mánudaginn 14. september sl. á
Hafrannsóknastofnun, en þá talaði
Vinnie Andersen, sagnfræðingur
frá Kaupmannahafnarháskóla, um
fiskveiðar Grænlendinga á tímabil-
inu 1900-1940.
Síðastliðinn vetur var í safninu
röð fýrirlestra fyrir almenning í
samvinnu fyrrgreindra stofnana
með tilstyrk Hafnarfjarðarhafnar,
Hafnarfjarðarbæjar og Sparisjóðs
Hafnarfjarðar. Fyrirlestramir
vom vel sóttir og hlutu góðar und-
irtektir.
Fyrirlestur Hreins Ragnarsson-
ar, sem styrktur er af menningar-
málanefnd Hafnarfjarðar, er öllum
opinn og hefst eins og áður segir
kl. 20.30.
gardeur*
- b u x u r
íenu
GARÐURINN
-klæðirþigvel
Morgunblaðið/Golli
Velkomin um borð í Rán
ÞESSIR spræku drengir voru
meðal 200 gesta sem nýttu sér
boð um að stíga um borð í
frystitogarann Rán HF-42,
sem Stálskip ehf. gera út.
Fræðsluátak íslenskra útvegs-
manna á ári hafsins mælist vel
fyrir hjá almenningi, að sögn
Ágústs Sigurðssonar, útgerð-
arstjóra Stálskipa: „Fólk
spurði margs og sumir voru
greinilega undrandi yfir því
hversu fullkomin vinnsla af-
urða um borð í frystitogara
er.“ Almenningi gafst einnig
kostur á að skoða Sjóminja-
safnið í Hafnarfirði og þangað
kom nokkur hópur fólks. „Það
er okkur einnig til framdrátt-
ar og mjög ánægjulegt að taka
þátt í kynningu sem þessari,“
sagði Ágúst Georgsson, safn-
vörður Sjóminjasafns Islands í
Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
ÞÓTT Grindvíkingar séu þaulkunnugir öllu því er lýtur að sjávarútvegi notfærðu þeir sér boð útvegs-
manna um helgina til að skoða skip og fiskvinnslu. Hér eru fulltrúar ungu kynslóðarinnar í Grindavík
um borð í Ólafi GK-33.
Saltfiskur og skipin skoðuð
Grindavík - Það var vel við hæfi
að sýna húsnæði Vísis h/f í til-
efni af fræðsluátaki íslenskra
útvegsmanna. Búið er að taka
húsið nánast allt í gegn á síð-
ustu 3-4 árum og ekki laust við
að framkvæmdastjórinn, Pétur
Pálsson, hafi verið nokkuð
ánægður með að fá tækifæri til
að sýna húsnæðið.
„Þetta er náttúrulega gott
tækifæri til að tengja saman
veiðarnar og vinnsluna. Það
hefur verið slæðingur af fólki
sem komið hefur að skoða“,
sagði Pétur. Meðal þess sem
Vísismenn gerðu í tilefni dags-
ins var að bjóða uppá ljúfa tóna
frá tveimur ungum stúlkum
sem spiluðu á þverflautu og frá
einum trompetleikara sem spil-
aði líka með. Þessi tónlist
hljómaði í vinnslusal fyrirtækis-
ins og þá dreifðu þeir bæklingi
með suðrænum saltfiskupp-
skriftum. Gömul myndbönd
voru látin ganga og vöktu
mikla athygli. Þá gátu gestir
komið um borð í Gnúpinn GK -
11, Reyni GK - 47 og Ólaf GK -
33 og auðvitað var gestum og
gangandi boðið kaffi, gos og
með því í tilefni dagsins.
S CEIRMUNDSSON
fSAFJÖRÐUR
gekk ljómandi vel“
„Þetta
VESTFIRSKIR útvegsmenn
kynntu starfsemi sína á sunnu-
dag á Isafirði. „Þetta gekk
Ijómandi vel, fólk virtist ánægt
með kynninguna og þátttaka
var góð,“ sagði Ingimar Hall-
dórsson, formaður Utvegs-
mannafélags Vestfjarða, „Við
buðum um borð í frystitogar-
ann Júli'us Geirmundsson og
sýndum fólki hvernig fram-
leiðslan fer fram um borð. Haf-
rannsóknastofnun var einnig
með kynningu um borð, m.a. á
niðurstöðum rannsóknar á grá-
lúðuslóð, sem farin var á Júl-
íusi Geirmundssyni. Þá kynnti
Slysavarnafélagið einnig sína
starfsemi á hafnarbakkanum
og kynntur var búnaður frá
Póls.“