Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Glæpur og eftirspurn / — „Eg veit um stjórnmálamenn sem hafa lært að sjá sjálfa sig einungis með augum sjónvarpsmyndavélanna. Ætli þeir sofi líka þannig að það komi vel út í sjónvarpi?“ Václav Havel Getur það verið að einhver þáttur Lewinsky-málsins svonefnda sé enn að mestu órakinn af fjölmiðlum? Núorðið virðast fjölmiðlar flestir - að minnsta kosti í Norður-Ameríku - helst uppteknir af því að stuðningur almennings við Bill Clinton virðist ekkert minnka þrátt fyrir allar afhjúpanir, en fátt hefur komið fram um hverjar kunni að vera ástæður þessa. Fréttamenn em forviða. Þeir höfðu verið vissir um að þegar nægilega mikið af öllu þessu óhreina í VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson pokahomi Clintons hefði verið hrist fram myndi al- menningur sjá það sem fréttamennimir sáu sjálfir: að forsetinn væri alls- endis óhæfur til að gegna emb- ætti. En þarna virðist almenn- ingur hafa komið auga á dálítið sem fréttamönnunum hefur kannski yfírsést í öllum hasarn- um: greinarmuninn á einkalífi og opinberu lífí. Fjölmiðlar setja jafnaðar- merki á milli mannsins og stjórnmálamannsins, það sem maðurinn Clinton gerir er yfir- fært á stjórnmálamanninn Clinton. Þetta virðist almenn- ingur ekki gera. Flestum finnst framferði Clintons í einkalífinu fyrirlitlegt, en embættisfærslur hans hinar ágætustu. Ástæða þess að fjölmiðlar virðast hafa lent í hálfgerðum ógöngum með þennan þátt málsins kann að vera sú að greinarmunurinn á einkalífi og opinberu lífi er siðferðislegur, og þær aðferðir sem fjölmiðlafólk getur beitt í starfi sínu virðast ekki duga til að taka á siðferðislegum þátt- um. Ber að gera þennan grein- armun þegar forseti á í hlut? Fjölmiðlar virðast með engu móti geta tekist á við þessa spurningu. Það er gi-undvallarboðorð í starfi fréttamanna að fjalla ein- ungis um staðreyndir. En það er líka næsta viðtekin skoðun að staðreyndir og siðferði fari alls ekki saman og þess vegna geti fréttamenn - sem einungis eiga að fjalla um staðreyndir - ekki fjallað um siðferðisleg efni. Siðferði sé persónubundið (það er jafnvel fullyrt að hver einstaklingur hafi sitt eigið sið- ferði, hvernig svo sem það má vera) og þar af leiðandi ekki hægt að fullyrða neitt í þeim efnum. Þetta skapar ómældan vanda er kemur að málum á borð við Lewinsky, því það er fyrst og fremst siðferðislegt. Af þessum ástæðum reyna frétta- menn að halda því til streitu að málið sé í rauninni um það hvort forsetinn hafí logið eða ekki, það er að segja, farið rétt eða rangt með staðreyndir, en enginn fréttamaður getur full- yrt að málið snúist alls ekki um það heldur íyrst og fremst um kynlíf - ósiðlegt kynlíf, það er að segja - og þar með dregið fram kjarna málsins: Siðsemi. Og þegar kemur að því að fjalla um andstæðing forsetans, sérstakan saksóknara Kenneth StaiT, verður vandi fjölmiðl- anna enn meiri, því það virðist augljóst að Starr sé rekinn áfram af réttlætiskennd fremur en fagmennsku. En hvernig er hægt að fjalla um réttlætis- kennd án þess að byrja að grípa til skilgreininga á borð við rétt/rangt og gott/vont? (Tja, þegar allt um þrýtur er hægt að vitna í einhvern sem segir eitthvað um slíka hluti.) Kjarni vandans er enn þessi: Fjölmiðla skortir aðferðh- til að fjalla um siðferðisleg efni. Það eina sem þeir geta gert er að etja saman tveim eða fleiri and- stæðingum sem hver um sig heldur fi-am sínu viðhorfi og úr verður oftar en ekki innihalds- lítið hávaðarifrildi. Til að halda sig við „staðreyndir" einbeita fjölmiðlarnir sér að lagalegum þáttum málsins. En þessi vandi fjölmiðlanna endurspeglar í raun og veru almennan vanda. Umræða um rétt og rangt er tabú nema á einhvers konar markaðsfor- sendum: að hafa rétt fyrir sér virðist snúast um það að sem flestir „kaupi“ viðhorf manns, það er að segja, veiti samþykki sitt. Gamla hugmyndin sem John Stuart Mill setti svo glæsilega fram í Frelsinu, um að jafnvel þótt öllum nema einum finnist eitthvað vera rétt geti það samt verið rangt, virðist gersamlega horfin úr hugmyndaheiminum. Enda hvernig er hægt að ræða slíka hugmynd? Þarna skortir kannski bara orð, en líklegra er þó að það skorti hugmyndir. Þess vegna sitjum við uppi með eftirspurnarsiðferði, sem myndi sennilega flokkast sem ein undirtegund tómhyggju, og þar er kannski komið verk- efni handa siðfræðingi að fást við - greining á innviðum eftir- spurnarsiðferðis. Til að byrja með þarf að gera grein fyrir því hvernig þessi siðfræði- kenning svarar grundvallar- spurningu siðfræðinnar: Hvað ber mér að gera? Utlinur svarsins eru harla augljósar: Mér ber að gera það sem eftir- spurn er eftir. Og samkvæmt þessu yrði svarið við spurning- um um hvað teljist glæpsam- legt að ráðast af því hvað fólk vill að sé glæpsamlegt. (Þar virðist reyndar strax kominn í Ijós vandi við eftirspurnarsið- ferði.) Clinton játaði frammi fyrir bandarísku þjóðinni að hann hefði haldið framhjá konu sinni og brugðist því fólki sem hann unni mest. Hann kvaðst iðrast þessa, og baðst fyrirgefningar. Og viti menn, það reyndist eftirspurn eftir iðrun. HROLLVEKJA í GÖMLU ÍSHÚSI Morgunblaðið/Ásdís VILHJÁLMUR Hjálmarsson segir Arnari Jónssyni til í leiklist. LEIKLIST Sjónleikur í Tjariiarbíói SVARTKLÆDDA KONAN Höfundur hinnar upphaflegu skáldsögu: Susan Hill. Höfundur leikgerðar: Stephen Mallatratt. Þýðing: Ottó G. Borg. Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason. Aðstoðarleik- stjóri: Bryndís Petra Bragadóttir. Hljóðmynd: Kjartan Kjartansson. Lýsing: Þorsteinn Sigurbergsson. Leikmynd, búningar og leikmunir: Charlotta Eriksson, ísold Grétars- dóttir og Rannveig Eva Karlsdótt- ir. Kjólameistari: Kristín Anna Hjálmarsdóttir. Förðun: Charlotta Eriksson og Isold Grétarsdóttir. Leikarar: Arnar Jónsson og Vil- hjálmur Hjálmarsson. Laugardag- ur 10. október. FJÖLMARGAR tegundir kvik- mynda eru upprunnar úr leikhús- inu. Fyrr á tímum var hægt að sjá glæpagátur og jafnvel stórslysa- leikrit í leikhúsum, sem núna sjást varla nema á sjónvarpsskjám og á hvíta tjaldinu. Langt er síðan hroll- vekja hefur verið leikin hér í at- vinnuleikhúsi þó að sífellt megi sjá nýjar og nýjar kvikmyndir af þess- um meiði. Leikgerð þessi er lipurlega samin upp úr skáldsögu. Verkið er áhugavert fyrir þær sakir að það gerist á tveimur þrepum sam- tímis: Leikari tekur að sér að flytja sögu gamals manns með að- stoð þess síðarnefnda og þeir leika saman hina eiginlegu sögu. Auk þess er sögumaður bókarinn- ar kallaður til ef þurfa þykir. Sag- an hittir enn frekar í mark því auk þess að fylgjast með persón- unum í greipum sögunnar geta áhorfendur velt fyrir sér tilfinn- ingum leikarans og gamla manns- ins sem rifjar upp sorgarsögu sína. Hér er áhrifamáttur leikhússins nýttur til að hrella áhorfendur. Ljós, hljóð, leikmunir auk skyggnumynda sem varpað er á tjald eru notuð til að ná upp spennunni auk texta og leiks að sjálfsögðu. Ljósin eru hnitmiðuð og vel afmörkuð, hljóðmyndin er sérstaklega áhrifamikil, leikmunir og búningar vel valdir en skyggnumyndir eru óþarfar. Allir kannast við tilfinninguna að vera hluti hóps sem upplifir hryllings- mynd. I leikhúsi verða áhrifin enn magnaðri vegna beinna tengsla við leikarana á sviðinu. Skyggnu- lýsingum er hér ofaukið þar sem áhorfandinn getur með ímyndun- araflinu og hjálp snjallra leikara framkallað mun áhrifameiri mynd- ir fyrir hugskotssjónum sínum. Betur hefði farið á að nota leyni- vopnið sparlegar framan af og svo láta allt gossa í lokin í stað þess að kasta upp mynd á baktjaldið. Ahorfendur voru þar sviknir um hámark hryllingsfullnægingarinn- ar. En eftir því sem spennan eykst gefst áhorfendum oft tækifæri til að láta kalt vatn renna sér milli skinns og höninds eða a.m.k. að fá gæsahúð. Það er t.d. áhrifamikið að finna sæþokuna smám saman byrgja manni sýn þegar þurrís- móðan vellur fram af sviðinu og fyllir vitin. Þá verða leikhljóðin enn áhrifameiri og skýrari og ískrar í áhorfendum af hryllingsblandinni nýjungagirni. Þetta á sérstaklega vel við þarna, því eins og leikskráin minnir á var Tjarnarbíó einmitt byggt sem íshús. Vilhjálmur Hjálmarsson fer með hlutverk leikarans sem tekur að sér að flytja þennan kafla úr ævi- sögu Kipps lögmanns. Vilhjálmur leikur af miklu örvggi og staðfestu og textameðferð hans er góð. Arn- ar Jónsson leikur Kipps gamla sjálfan og svo ýmis smáhlutverk sem falla til við flutning frásagnar- innar. Það er skemmtilegt að sjá Arnar breyta um svip, fas og fram- sögn þegar hann bregður sér í gervi nýrrar persónu. Orðfæri þýð- ingarinnar, sem hæfii' efni sígildr- ar hryllingssögu, hentar Arnari vel og hinn hátíðlegi framsagnarstíll hans fær notið sín við þessar að- stæður. Hinu er ekki að leyna að í heild- ina skorti nokkuð á snerpu og inn- lifun í leiknum og sýningunni óx of hægt ásmegin. Guðjón Sigvaldason leikstjóri hefði þurft að halda fast- ar um taumana til þess að ná jafn- ari stígandi og alltumvefjandi úr- lausn. En sú ánægja sem fylgir því að finna hrollinn hríslast niður bakið á sér var vissulega fyi'ir hendi svo það er ekki ástæða til annars en að hvetja unnendur hryllingsmynda til að nota tæki- færið og láta eftir sér að njóta hrollvekju í návígi. Ekki má gleyma að minnast á framlag aðstoðarleikstjórans, Bryndísar Petru Bragadóttur, en hún skilaði sínu með miklum sóma. Sveinn Haraldsson Glas fyrir svefninn SJÖIWARPS- LEIKRIT Ríkissjónvarpið ANDAGLAS Höfundur: Friðrik Erlingsson. Leikstjóri: Marteinn St. Þórsson. Leikmynd: Ólafur Engilberts. Tónlist: Pétur Grétarsson. Leikendur: Edda Björg Eyjólfsdóttir, Linda Ásgeirsdóttir. Sunnudagur 11. október EKKI var tiltakanlega hátt risið á sunnudagsleikriti Ríkissjón- varpsins í fyrrakvöld. Friðrik Erl- ingsson hefur skrifað þrjú leikrit undir þeim sameiginlega titli Sög- ur fyrir svefninn, og var leikritið í fyrrakvöld, Andaglas, hið fyrsta í röðinni. Þó tengjast þau ekki efnis- lega, heldur er hvert þeirra sjálf- stæð saga, en ætlunin er væntan- lega að vekja dulítinn hroll með áhorfendum. Yfirskriftin bendir til þess. Tvær unglingsstúlkur ákveða að fara í andaglas og ekki er að sök- um að spyrja, andinn er svo ákaf- ur að ná sambandi við þær að hann er kominn í glasið áður en leikurinn hefst. Stúlkurnar spyrja um það sem þeim liggur mest á hjarta, hvenær verður efnafræði- prófið, hvort strákarnir sem þeim líst best á séu skotnir í þeim og loks - af því að önnur er veil fyrir hjarta og má þess vegna ekki sofa hjá kærastanum sínum - hvernig þær muni deyja. Andinn kann svör við öllu. Hann er óstýrilátur, kemur með smávægilegar kyn- ferðislegar athugasemdir en held- ur sig engu að síður ágætlega á mottunni, hristir þó borðið og stafar skilaboðin svo hratt að mesta furða er að stelpurnar geti lesið úr þeim. A meðan stynja stelpurnar í lok þriðju hverrar setningar einhverri munntamri enskuslettunni, „plís“, „krípí“, o.s.frv. Onnur stelpan er svolítið smeyk við þetta dulræna fikt, hin er djarfari, þó skiptast þær aðeins á um að hvetja til dáða um fram- haldið og þær örfáu augljósu dramatísku „plöntur" sem sáð er í textann framan af spretta úr sér í lokin með nánast ótrúlega fyrir- segjanlegum hætti. Hugmyndin að baki leikritinu er ágæt og því er synd að tækifærið sem höfund- urinn býður sjálfum sér til að skoða hugarheim tveggja ungra stúlkna skuli fara svona fullkom- lega forgörðum. Tæknivinnslan fylgdi þessu ör- lagadrama eftir með spennutón- list, kunnáttusamlegri lýsingu og viðeigandi hreyfingum á mynda- i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.