Morgunblaðið - 13.10.1998, Side 42

Morgunblaðið - 13.10.1998, Side 42
£ 42 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÚR KVIKMYND Ágústs Guðmundssonar, Dansinum, sem frumsýnd var á dögunum. - Fagmennska og góð að- sókn en lítið fj árniagn í skýrslu Viðskiptafræðistofnunar Háskóla íslands um kvikmyndaiðnaðinn á Islandi kemur meðal annars fram að umfang greinarinnar sé orðið umtalsvert, fag- mennska ríkjandi og aðsókn að myndum góð. Á móti kemur að fjármagn til kvik- myndagerðar er af skornum skammti. Orri Páll Ormarsson skoðaði skýrsluna og ræddi við Þorfinn Omarsson, fram- kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs. , "W'HUGUM margra er kvikmynd- I in listgi-ein tuttugustu aldarinn- I ar. Önnur listform, svo sem ^Lbókmenntir, leiklist, myndlist og tónlist, hafa fylgt manninum frá alda öðli en það er fyrst um síðustu aldamót að kvikmyndatæknin kemur til sögunnar. Hefur útbreiðsla henn- ar verið hröð og eftirspurn eftir myndefni farið stigvaxandi - og ger- ir enn. Umsvif greinarinnai’ um víða veröld eru alltaf að aukast. Eigi að síður verður kvikmynda- gerð oft út undan þegar rætt er um ís- lenska list og menningu, jafnvel þótt hún hafi á undanfómum árum og ára- tugum verið að festa sig í sessi sem at- vinnugrein hér á landi. Sætir þetta furðu í ljósi þeirrar þróunar sem orðið ^■’Vhefur í heiminum. Nú hefur Við- skiptafræðistofnun Háskóla Islands gert úttekt á kvikmyndaiðnaði á ís- landi fyrii’ Aflvaka hf., þai- sem staða, horfur og möguleikar era skoðuð. Þorfinnur Ómarsson, fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs Is- lands, segir skýrslu Viðskiptafræði- stofnunar ákaflega mikilvægt inn- legg í umræðuna um kvikmyndaiðn- aðinn á Islandi. „Þetta er fyrsta skýrslan sem óháðir aðilar, fagmenn, hafa unnið á viðskiptalegum forsend- um um umfang kvikmyndagerðar á Islandi. Hingað til hefur þetta verið gert af hagsmunaðilum í greininni og fyrir vikið ekki nógu mikið mark tek- ið á niðurstöðum - litið á skýrslurnar sem ái’óðursrit. í því ljósi er ánægju- legt að þessir óháðu aðilar skuli komast að svipuðum niðurstöðum." Að hyggju Þorfinns er bæði já- kvæða og neikvæða hluti að finna í skýrslunni, margt af hvora. „Það er auðvitað ánægjulegt hve umfangs- mikil kvdkmyndagerð er orðin hér á landi og að atvinnumennska skuli vera orðin ríkjandi í greininni. Það er líka já- kvætt að aðsókn að ís- lenskum myndum er greinilega mikil, að ekki sé talað um að tekjur rík- isins af kvikmyndagerð eru áætlaðai’ hálfur millj- arður króna. Þá kemur fram, sem við höfum lengi vitað, að kvikmynd- in er áhrifamesta list- greinin hvað varðar ímynd landsins út á við, fyrir utan sérstök tilfelli, Þorfinnur eins og tónlist Bjarkar.“ Ómarsson Af neikvæðum niðurstöðum skýrslunnar nefnir Þorfinnur fyrst að fjármagn til kvikmyndagerðar kemur eftir ótraustum leiðum. Kvik- myndasjóður leggi of lítið fram til hverrar myndar. „Það eru bara fjöl- menn lönd í Evrópu, Ítalía og Frakk- land, þar sem sjónvarpsstöðvar eru mjög voldugar og borga stóran hlut í kvikmyndaframleiðslu, sem leggja jafn lítið af mörkum og Island. [Sjá töflu] Eftir því sem heimamarkaður- inn er veikari hækkar hins vegar hlutfall ríkisins, þannig að opinber framlög á Islandi ættu, samkvæmt þessu, að vera há. Svo er ekki. Þetta er nánast að ganga af islenskum kvikmyndaframleiðendum dauðum. Framlagið er svo lítið að framleið- endur verða annaðhvort að treysta á að mynd þeirra slái rækilega í gegn hér á Iandi, verði helst söluhæsta mynd ársins eins og Djöflaeyjan, sem gerist afar sjaldan, eða að selja myndina vel erlendis. Þótt íslenskar Síðu jakkarnir komnir aftur Jakkar frá 5.900 Buxur frá 2.900 Pils frá 2.900 Blússur frá 2.800 Kjólar og vesti Mikið úrval af fallegum velúrgöllum frá 4.900. Nýbýlavegi 12, sími 554 4433. Brandtex Sli o p in S h o p fyrir alla :. 34-52 St myndir seljist þokka- lega í útlöndum, miðað við norrænar myndir, er ekki auðvelt að markaðssetja kvikmynd á íslenskri tungu. Þar fyrir utan er íslenski framleiðandinn oft bú- inn að afsala sér réttin- um til erlendra með- framleiðenda - bestu markaðssvæðin era far- in.“ Umfang greinarinnar Á undanförnum átta áram hafa verið fram- leiddar íslenskar kvik- myndir fyrii’ rúmlega 2 milljarða króna, eða um 260 milljónir á ári. Síðustu þrjú árin hafa umsvif kvik- myndagerðarmanna verið rúmlega 300 milljónir króna á ári. Afkomutöl- ur í greininni liggja ekki fyrir, meðal annars vegna þess hvað kvikmyndir eru lengi í sölu. Fyrirtæki í kvik- myndaiðnaði eru lítil og mörg og starfsfólk yfirleitt lausráðið. Frá árinu 1980 hafa verið fram- leiddar hér á landi 52 kvikmyndfr í fullri lengd. Segja má að fram komi þrjú timabil í kvikmyndasögu Is- lendinga frá þeim tíma. Á árunum 1980-85 voru framleiddar margar myndir og aðsókn var mjög góð. Á áranum 1985-91 dró úr framleiðslu á íslenskum kvikmyndum og meðalá- horf var á milli 10 og 15 þúsund. Frá 1992 hefur fjöldi mynda aukist en áhorf ekki aukist að sama skapi, að undanskildu árinu 1996 þegar 70 þúsund manns sáu Djöflaeyju Frið- riks Þórs Friðrikssonar. Meðalað- sókn að erlendri mynd hérlendis er um 7.000 manns. Meðalframleiðslukostnaður á Is- lenska kvikmynd er rúmar 100 m.kr. og meðalaðsókn um 16-17 þúsund manns á heimamarkaði. Innlend að- sókn gefur af sér um 13 milljóna kr. brúttótekjur í aðgöngumiðasölu, þannig að tekjur af innanlandsmark- aði eru engan veginn nægai’ til að standa undir kostnaði við framleiðslu á meðalkvikmynd. Leiðir til að fjármagna kvikmynd- ir eru einkum þrjár: Styrkur frá Kvikmyndasjóði Islands, Norræna kvikmyndasjóðnum og Evi’ópska kvikmyndasjóðnum, Eurimages. Kvikmyndasjóður Islands styrkir að hámarki 25% af framleiðslukostnaði, Norræni kvikmyndasjóðurinn 15-20% og Eurimages 10%. Það fjármagn sem upp á vantar þurfa kvikmyndagerðarmenn að útvega eftir öðrum leiðum. í skýrslunni er þeim fjái’munum sem runnið hafa til kvikmyndagerð- ar á árunum 1991-97 skipt í fimm flokka: Erlendir meðframleiðendur (32%), erlendfr sjóðir (22%), innlend- ir framleiðendur (23%), Kvikmynda- sjóður Islands (21%) og aðrir inn- lendir aðilar (2%). Athygli vekur að erlent fjármagn er 54% af heildarfjármögnun en þetta háa hlutfall verður oft og tíðum til þess að íslenskir framleiðendur missa söluréttinn erlendis, eins og Þorfinnur bendfr á hér að framan. „Það er ekki síst af þessum sökum sem það er mikilvægt fyrir okkur að hækka hlutfall okkar í kvikmyndum, þannig að íslenski framleiðandinn eigi stæn-i hlut í henni.“ í skýrslunni er gert ráð fyrir að umfang kvikmyndaframleiðslu hér á landi muni ekki minnka á allra næstu árum, aukin umsvif vfrðist varanleg. Kvikmyndaiðnaðurinn sé aftur á móti viðkvæmur fyrfr sveifl- um og lítið eigið fé framleiðslufyrir- tækja samfara mikilli áhættu við gerð verkefna geti stefnt þessari já- kvæðu þróun í hættu. Tekjur í ríkissjóð íslenskar kvikmyndir og þættir um ísland í sjónvarpi erlendis skil- uðu ríkissjóði um hálfum milljarði króna í skatttekjur á árinu 1997 um- fram fjárframlög ríkisins til Kvik- myndasjóðs það ár. Munar þar mest um þau áhrif sem íslenskt efni, sem sýnt er erlendis, hefur á straum ferðamanna til íslands. Umsvif íslenski-a kvikmyndagerð- armanna hér á landi skiluðu ein og sér 87 milljónum króna beint í ríkis- sjóð í skatttekjum á síðasta ári. Framlög Kvikmyndasjóðs til þeirra á sama tíma voru aðeins lægri upp- hæð, 85 m.kr. Þannig fær ríkið allan styrkinn til baka af þessum þætti, en til viðbótar koma skatttekjur af er- lendum ferðamönnum, áætlað um 446 m.kr., og erlendum tökuliðum, áætlað um 50 m.ki’., sem eru að miklu leyti til komnar vegna ís- lenskrar kvikmyndagerðar. Samkeppnishæfni Islenskui’ kvikmyndaiðnaður hef- ur margt að bjóða í samkeppni við erlenda kvikmyndagerð, að áliti Við- skiptafræðistofnunar, á tímum þegai’ aukin eftirspurn er eftir kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum í heiminum. Á Islandi er kjami staiTsmanna í kvikmyndagerð fyrir hendi, þótt nokkui’ vöntun sé á sérhæfingu á sumum sviðum, svo sem hljóðvinnslu og kvikmyndatöku. Skortur á sam- fellu í fi’amleiðslu getur aftm’ á móti leitt til þess að starfsmenn, einkum lausamenn, leiti í aðrar atvinnugrein- ar. Þá hafa einhverjfr reynt fyi'ir sér erlendis. Samkvæmt upplýsingum frá Lánasjóði^ íslenskra námsmanna hafa um 200 Islendingar stundað nám í kvikmyndagerð og -fræðum. Áætlað er að ekki snúi nema hluti þessa fólks aftur til landsins. Það gæti breyst ef starfsskilyrði batna. Þorfinnur segir menn þvi miður ekki hafa nægar áhyggjur af þessu. Fari menn utan komi bara aðrir í staðinn. „Þetta er auðvitað rnjög hættulegt sjónaiTnið ef við segjum sem svo að aðeins hæfasta fólkið fari utan.“ Þótt alþjóðlegur mai'kaðm’ sé for- senda fyrir blómlegri íslenskin kvik- myndagerð er ekki þar með sagt að stefna beri að eftfröpun í framleiðslu. Sagnahefð þjóðarinnar er kvik- myndagerðarmönnum mikill styrkur, enda mikill áhugi fyi-fr óvenjulegum sögum og óvenjulegu sögusviði, að ekki sé talað um óvenjulega birtu eða framandi landslag. Það hefur aftur á móti háð ís- lenskri kvikmyndagerð að almennt er skortm’ á áhættufé fyrir ný fyi’ir- tæki eða ný verkefni. Þetta stafar af því að fjármögnun byggist á einstök- um verkefnum. Mun álitlegra er, frá sjónarhóli fjárfesta, að taka þátt í að fjármagna framleiðslufyrirtæki, sem ná innbyi'ðis áhættudreifmgu með fjölda verkefna, fremur en að fjár- magna einstök verkefni. Islensk fjár- málafyrirtæki og fjárfestar halda sig með öðram orðum frá kvikmynda- gerð vegna áhættunnar. Aðstaða og tækjabúnaður kvik- myndagerðarmanna hefrn- eflst á síð- ustu ái'um. Eftirvinnsla hefur í aukn-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.