Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 44
^4 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Leikskólakennaranám Nám leikskólakennara miðast að drjúgum hluta að því að kenna verðandi leikskóla-
kennurum að nota leik til að örva þroska leikskólabarna og álykta um líðan þeirra og hugarástand. María Hrönn
Gunnarsdóttir leit inn hjá leikskólaskor KHI og sá m.a. skugga- og brúðuleiksýningar annars árs nema.
Leikur
og listir
Ú Leikur og skapandi starf er stór þátt-
ur í öllu leikskólastarfí.
• Leikskólabörn tjá sig frekar með
hegðan og atferli en orðum.
ANNARS árs nemendur
við leikskólaskor Kenn-
araháskóla íslands ein-
beittu sér að því í síðustu
viku að kynna sér hvernig nota má
leik og listir í leikskólastarfi. Var
^gjlri vikunni varið í þemað og
myndlist, leiklist, tónlist og fleiri
listgreinum fléttað saman við leik
bama á leikskólaaldri.
„Leikur og skapandi starf er gíf-
urlega stór þáttur í öllu leikskóla-
starfi," segir Jóhanna Einarsdóttir,
dósent við Kennaraháskóla Islands
og skorarstjóri leikskólaskorar, og
leggur áherslu á forskeytið leik- í
nafni skólastigsins.
Um síðustu áramót sameinuðust
fjórir skólar, Fósturskólinn,
Þroskaþjálfaskólinn, Iþróttakenn-
'áraskólinn og Kennaraháskólinn í
nýja stofnun sem einu nafni heitir
Kennaraháskóli Islands.
„Leikskólakennarar þurfa í
meira mæli en aðrir kennarar að
huga að öllum þroskaþáttum barn-
anna, ekki síst þeim félagslega og
tilfínningalega. Eftir því sem böm-
in em yngri era þau háðari hinum
fullorðnu og síður fær um að tjá til-
finningar sínar í orðum og hafa því
meiri þörf fyrir aðstoð. Þess vegna
þurfa leikskólakennarar að vera
færir um að meta tilfínningalega
og vitræna stöðu þeirra og hugar-
ástand. í leikskólakennaranáminu
læra nemendur aðferðir við að at-
huga, skrá og draga ályktanir af
hegðun barnanna. Eftir því sem
bömin eru yngri þeim mun mikil-
vægara er hlutverk kennarans við
að styðja við þau i samskiptum við
önnur börn. Hlutverk leikskóla-
kennarans er því mjög víðtækt,
hann ber ábyrgð á tilfinningaleg-
um, félagslegum, líkamlegum og
vitrænum þörfum og þroskaþátt-
um bamanna," segir Jóhanna.
Kennsla í leikskóla er
óbeinni en í grunnskóla
„Kennslan í leikskólum er óbeinni
en í grannskóla. Leikskólabömin
læra í gegnum leik og í gegnum
hann örvast þroskaþættir þeirra. I
hlutverkaleik fer bamið í hin ýmsu
hlutverk, tekur ákvarðanir og leysir
vandamál. Bamið hefur samskipti
við önnur böm, lærir að sjá hlutina
frá sjónarhóli annarra og í leiknum
þjálfast málfarsleg fæmi þeirra.
Mikilvægi leiksins fyrir þroska
barnsins er löngu viðurkennt," seg-
ir Jóhanna enn fremur. Námskeiðið
Leikur og listir sem annars árs
nemamir tóku þátt í í síðustu viku
miðaði einmitt að því að samþætta
þessa tvo þætti, listir og hinn upp-
eldislega þátt sem felst í leiknum.
Nemendur leikskólaskorar sækja
NEMENDUR nota hugarflug sitt og þá þekkingu og reynslu sem þeir fá af skapandi starfi
í leikskólakennaranáminu og vinna verkefni sín út frá því.
alla jafnan námskeið í tónlist,
myndlist, framsögn og leikrænni
tjáningu þar sem lögð er áhersla á
þjálfun nemenda og að þeir öðlist
fæmi í viðkomandi greinum. Segir
Jóhanna að námskeiðin séu tengd
starfi leikskólans þar sem stuðst er
við kenningar um hvemig böm
læra og vaxa. I síðustu viku fékk
þessi þáttur námsins aukið vægi í
skólastaifi annars árs nema og önn-
ur starfsemi lögð til hliðar á meðan.
„Ung böm eru skapandi í daglegum
leik sínum og starfi og í þeirra aug-
um er lífið ein heild. Þau flokka list-
greinar ekki niður, eins og fullorðn-
h- gera,“ segir Jóhanna enn fremm-.
Þess vegna er lögð áhersla á að
samþætta listgreinamar í nám-
skeiðinu Leikur og listir sem og yf-
irleitt í skólastarfi leikskólakenn-
araskorar. Sigríðm- Pálmadóttir,
lektor í tónmennt, skipulagði og
hafði umsjón með námskeiðinu.
Flestir leikskólakennarar lands-
ins í meira en fimmtíu ár vora
Morgunblaðið/Þorkell
ÉG LEYFI mér að segja að fyrstu kennarar barnsins séu mikilvægustu
og áhrifamestu kennararnir, segir Jóhanna Einarsdóttir.
menntaðir í Fósturskólanum, sem sameinaðir. Nú stunda um 300
lagður var niður um síðustu nemendur nám við leikskólaskor,
áramót er skólarnir fjórir voru þar af um 90 í fjarnámi. Fjar-
Viðskiptavinir Málnmgar athugið:
Við höfum flutt
söludeild og lager
að Dalvegi 18 í Kópavogi
Nýtf símanúmer er
580 6000
málninaehf.
Kringlan 8-12 • sími 553 3600
Haustlínan komin frá Triumph.
Stórkostlegt úrval lita og gerða
lympíi