Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Faðir okkar, JÓHANNESJÓHANNESSON listmálari, Háteigsvegi 42, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 12. október. Börnin. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PETRA LANDMARK, lést á elliheimilinu Eir að kvöldi 10. október. Jarðarförin fer fram föstudaginn 16. október kl. 10.30 frá Fossvogskapellu. Börn hinnar látnu. + Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JENNÝ DAGBJÖRT JÓRAMSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, miðviku- daginn 14. október kl. 14.00. Ragnhildur Ragnarsdóttir, Skúli Eyjólfsson, Guðný S. Ragnarsdóttir, Þorbjörn Kjærbo, Geírmundur Kristinsson, Stefanía Vallý Sverrisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær systir okkar og mágkona, SVANHILDUR SIGURGEIRSDÓTTIR fyrrverandi deildarstjóri, sem lést 5. október sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 14. október nk. kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtar- félag íslands. Pétur Sigurgeirsson, Sólveig Ásgeirsdóttir, Pálína Guðmundsdóttir, Guðlaug Sigurgeirsdóttir, Sigmundur Magnússon. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, EIRÍKS JÓNSSONAR, Einilundi 6E, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga- deildar 1, Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar. Sigrún Jónsdóttir. Oddný Eiríksdóttir, Finn Ruar, Jón Eiríksson, Jónína Hafliðadóttir, Gunnar Eiríksson, Karen Malmkvist, barnabörn og barnabarnabörn. + Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÓLAFÍU JÓHANNSDÓTTUR, Álfhólsvegi 8, Kópavogi. Karl Einarsson, Kristján Jón Karlsson, Petra Jónsdóttir, Dröfn H. Farestveit, Arthur K. Farestveit, barnabörn og barnabarnabörn. KRISTIN ELISA HEIÐVEIG SKÚLADÓTTIR + Kristín Elísa Heiðveig Skúla- dóttir fæddist á Hellissandi 15. október 1921. Hún lést á heimili sínu hinn 4. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Skúli Valdimar valdsson, f. 1898, d. 14.1. 1923, og Kristín Odds- dóttir, f. 2.5. 1901, d. 17.1. 1951. Fyrri maki Kristínar var Guðmundur Jóns- son frá Skálum á Langanesi, f. 22.2. 1921, d. 9.10. 1960. Þau slitu samvistum. Synir þeirra voru: 1) Jón Daníel, f. 31.8. 1947, d. 7.1. 1980, kona hans var Anna Hulda Auðbergsdótt- ir. Þau eignuðust tvö börn Grét- ar Berg, f. 12.1. 1976, og Söndru Kristínu, f. 22.9. 1979. 2) Skúli Jóhann, f. 14.2. 1950, d. 30.9. 1997. 3) Oskar Elías Héð- inn, f. 9.8. 1951, d. 3.11. 1978. Seinni maður Krist- ínar var Jónas Guð- mundur Björnsson, f. 6.8. 1929 á fsa- firði. Foreldar hans voru Björn Jó- hannsson og Guð- björg Sigurðardótt- ir. Þau eignuðust saman eina dóttur, Birnu Guðbjörgu, f. 9.11. 1956. Birna er gift Pétri Gunnars- syni og eiga þau tvö börn: Jónas Guð- björn, f. 10.10. 1973, sambýliskona hans er María Hlín Steingrímsdóttir, og Guðrúnu Elísabet, f. 28.2. 1978. Kristín vann ýmis störf, Iengst af við aðhlynningu aldr- aðra í 22 ár á Hrafnistu í Reykjavík. Lengst af bjó íjöl- skyldan í Vesturbænum en síð- ustu 12 árin í Grafarvogi. _ títför Kristmar fór fram frá Askirkju 13. október. Jarðsett var í Fossvogskirkjugarði. Kveðja frá dóttur Svo viðkvæmt er lífið, sem vordagans blóm, er verður að Wíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsheijardóm sem ævina felur i dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu gengin á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Fr.SL frá Grímsstöðum.) Elsku mamma mín, á kveðju- stund hafðu þökk fyrir allt sem þú varst mér. Margt er það, og margt er það sem minningamar vekur, og þær eru það eina, sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson.) Þín dóttir, Birna G. Látin er tengdamóðir mín Kristín E.H. Skúladóttir. Kynni okkar hófust fyrir 28 árum þegar ég sext- án ára síðhærður töffarinn, hóf að gera hosur mínar grænar fyrir Birnu einkadóttur hennar. Ekki leist henni vel á gripinn til að byrja með en samband okkar breyttist í einlæga vináttu með árunum sem aldrei bar skugga á. Fjölskylda mín naut góðs af gjafmildi hennar því fátt gladdi hana meir að gleðja okk- ur. Bömum mínum var hún einstök amma og bar hún hag þeirra ávallt fyrir brjósti. Allir eiga sér sögu. Saga tengdamóður minnar er sorg- um stráð. Hún þurfti að sjá á eftir þremur sonum sínum öllum langt fyrir aldur fram yfir móðuna miklu. Harm sinn bar hún í hljóði studd af Jónasi tengdafóður mínum sem ávallt var hennar stoð og stytta. V W Þegar andlát ber að höndum Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Allan sólarhringinn Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík ♦ Sími 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll lilefni. LEGSTEINAR í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410 Hver minning er dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin tjúfu og góðu kynni af alhug þakka þér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var öllum er fengu að kynnast þér. (Ingibj.Sig.) Elsku Kristín, minning þín mun lifa nú þegar við kveðjumst að sinni. Eg bið góðan Guð að styrkja okkur öll sem eigum um sárt að binda. Með þökk fyrir allt. Pétur Gunnarsson. Elsku amma, okkur systkinin langar í nokkrum orðum að minn- ast þín og allra góðu stundanna sem við áttum saman. Allt það sem við gerðum fyrir þig fengum við margfalt til baka. Þú varst mikið fyrir það að gleðja okkur. A yngri árum þegar við komum í heimsókn til þín laum- aðirðu alltaf til okkar pening svo við gætum farið út í sjoppu og keypt okkur nammi, einnig komstu okkur oft á óvart þegar þú birtist með kjúklinga eða pizzur í matinn þegar mamma var búin að ákveða eitthvað annað. Þú hafðir alltaf áhyggjur af því að við borðuðum ekki nóg, þá sérstaklega þegar við komum í mat til þín, því þá vildir þú alltaf að við borðuðum aðeins meira en við gátum því alltaf var nóg til í pottunum. Aldrei datt okk- ur í hug þegar við hittum þig laug- ardaginn 3. október að það yrði í síðasta sinn sem við fengjum að njóta með þér samverunnar, því lífsgleðin geislaði af þér og þú sýndir á þér allar þær bestu hliðar sem þú áttir. Þegar við lítum til baka til þess dags þá munum við þakka fyrir að hafa átt hann með þér því betri minningu er ekki hægt að eiga. Amma, við munum sakna þín sárt, takk fyrir allar góðu minningamar sem við mun- um geyma í hjarta okkar um alla framtíð. Guðrún og Jónas. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. egsteinar í Lundi «««,» « « v/Nýbýlaveg SÓLSTKINAR 554 4566 www.mbl l.is t L* 1 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararsljóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Simi 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.