Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 57.
FRÉTTIR
SKÓGARÞRÖSTUR. Myndin er tekin á Flateyri.
Opið hús hjá skóg-
ræktarfélögunum
Málþing um
lífsýnasöfn
SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskól-
ans og Samtök um krabbameins-
rannsóknir á Islandi gangast fyrir
málþingi um lífsýnasöfn í Odda,
stofu 101, þriðjudaginn 13. október
kl. 17-19. Rætt verður um söfnun,
vörslu, meðferð og nýtingu lífsýna
m.a. frá vísindalegu, lagalegu og
siðfræðilegu sjónarmiði og með
hliðsjón af drögum að frumvarpi til
laga um þetta efni.
Fundarstjóri Astríður Stefáns-
dóttir, læknir og MA í heimspeki.
Frummælendur: Guðríður Þor-
steinsdóttir, skrifstofustjóri í heil-
brigðisráðuneytinu, Helga M. Ög-
mundsdóttir, læknir, Krabba-
meinsfélagi Islands, Valgarður
Egilsson, læknir á Landspítala,
Haraldur Briem, læknir, fulltnii
Tölvunefndar og Bryndís
Hlöðversdóttir alþingismaður.
Að framsöguerindum loknum
verða umræður. Málþingið er öll-
um opið og aðgangur er ókeypis.
Málverkasvning
hjá RKI
í TILEFNI af alþjóðlegum geð-
heilbrigðisdegi þann 10. október sl.
var opnuð málverkasýning í hús-
næði sjálfboðaliðamiðstöðvar
Rauða kross íslands, Reykjavíkur-
deildar, á Hverfísgötu 105.
Að sýningunni standa fjölmargir
gestir Vinjar, athvarfs fyrir geð-
fatlaða og er hún opin á skrifstofu-
tíma til 21. október.
SKÓGRÆKTARFELOGIN
standa fyrir fræðslu- og mynda-
kvöldi þriðjudaginn 13. október
í húsi Ferðafélagsins, Mörkinni
6, kl. 20.30. Þetta er annað opna
hús skógræktarfélaganna í
haust sem haldið er í samvinnu
við Búnaðarbankann.
Fyrirlesari verður Jóhann Óli
Hilmarsson fuglafræðingur.
Aukin skógrækt í landinu skap-
ar búsvæði fyrir fugla sem hing-
að flækjast og getur eins haft
áhrif á þær fuglategundir sem
fyrir eru. Mun Jóhann Óli fjalla
um þessa fugla sem hugsanlega
geta sest hér að samhliða auk-
inni nýskógrækt í máli og mynd-
um.
Magnea Arnadóttir þver-
flautuleikari leikur nokkur lög á
undan við undirleik Unnar Vil-
helmsdóttur píanóleikara. Boðið
verður upp á kaffi og kökur og
eru allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Úr dagbók lögreglunnar
Fjölmörgum börnum og
unglingum vísað heim
helgina 9. til 12. okt. 1998
FYRIR helgina hófst auglýs-
ingaátak til að minna á reglurnar
um útivistartíma barna en nú
eiga 12 ára börn og yngri að vera
komin inn kl. 20 en 13 ára mega
vera úti til kl. 22. Lögreglan
fylgist grannt með því að þessar
reglur séu haldnar og vísaði
fjöldamörgum heim víðsvegar
um borgina enda er alltaf meiri
hætta á að eitthvað komi fyrir
börnin seint á kvöldin eins og
dæmin sanna.
Veruleg ölvun var í miðborg-
inni aðfaranótt laugardags en
þar voru um 3.000 manns þegar
flest var talið. Fjórir voru hand-
teknir vegna líkamsmeiðinga en
alls urðu 6 sinnum átök milli
manna þar sem líkamsmeiðingar
hlutust af. Þá flutti lögregla 4 á
slysadeild en enginn var fluttur
með sjúkrabifreið. 26 unglingar
voru fluttir í athvai-f vegna ald-
urs. Kveikt var í ruslatunnum,
rúða brotin og tvær bifreiðar
skemmdar. Tveir menn voru
fluttir í fangageymslu eftir að
hafa egnt til slagsmála, otað
hnífí að fólki og sprautað mace-
úða. Flest mál gengu vel upp en
mikill erill var í miðborginni. Að-
faranótt sunnudags var svipaður
fjöldi í miðborginni og nóttina
áður, ölvun talsverð en ástand að
öðru leyti þokkalegt. Lítið var af
unglingum undir aldri en þó voru
7 slíkir færðir á lögreglustöðina
og komið til síns heima. Sjö
manns voru handteknir vegna
líkamsmeiðinga og 3 vegna ölv-
unar.
Umferðin
Komandi vetur minnti á sig í
borginni aðfaranótt sunnudags
en upp úr miðnætti var komin
hálka um alla borgina og saltbfl-
arnir kallaðir út. Engin alvarleg
slys urðu á svæði Reykjavíkur-
lögreglu um helgina en nokkur
minniháttar. Níu voni grunaðir
um ölvun við akstur og 45 stöðv-
aðir fyrir of hraðan akstur. Með-
al annars var bifreið mæld á 102
km hraða á Breiðholtsbraut þar
sem er 60 km hámarkshraði.
Ökumaðurinn reyndi að sleppa
en lögreglumaður hljóp hann
uppi. Síðdegis á föstudag var ek-
ið á 7 ára stúlku á Skeiðarvogi.
Hún hlaut meiðsl á hægra fæti.
A laugardagsmorgun varð harð-
ur árekstur á Miklubraut/Skeið-
arvogi. Annar ökumaðurinn var
fluttur á slysadeild með lög-
reglubifreið en hinn ökumaður-
inn og farþegi voru fluttir með
sjúkrabifreið. Þeir voru meiddir
á höfði og fótum. Umferðarljósin
blikkuðu gulu ljósi þegar árekst-
urinn varð. Síðdegis á laugardag
varð hjólreiðamaður fyrir bifreið
er hann var á leið yfir gangbraut
á Hringbraut við Smáragötu.
Hann var talinn með minniháttar
meiðsl á mjöðm.
Innbrot og þjófnaðir
Tilkynnt var um innbrot í
söluskála í Skeifunni á laugar-
dagsmorgun. Einhverju af sæt-
indum var stolið. Þá hafði einnig
verið farið inn um glugga á íbúð
við Fagrabæ og stolið mynd-
bandstæki. Einnig var farið inn í
4 bifreiðar um helgina og yfír-
leitt stolið hljómtækjum.
Átök og árásir
Aðfaranótt laugardags var
ráðist á mann á Laugavegi. Mað-
urinn kenndi eymsla í baki og
var fluttur á slysadeild. Þá kom
maður á Miðborgarstöðina með
sár á hvirfli sem blæddi mikið úr
en hann vissi ekki hvernig hann
hafði fengið sárið. Maðurinn var
fluttur á slysadeild með sjúkra-
bifreið. Á laugardagskvöld um
kl. 21 réðst fullorðinn maður á
dreng á Eiðistorgi. Drengurinn
var fluttur á slysadeild til að-
hlynningar en maðurinn í fanga-
geymslu. Aðfaranótt sunnudags
sló maður konu sína í Pósthús-
stræti svo hún féll í götuna. Er
parið var á leið á lögreglustöðina
virtist konan hætt að anda og
var flutt með hraði á slysadeild.
Þetta reyndist hins vegar gabb
hjá konunni og má því ekki á
milli sjá hvort hjónanna hagaði
sér verr þessa nótt. Þá kom mað-
ur á Miðborgarstöðina og var
hann alblóðugur í andliti og á
höndum. Er gert hafði verið að
sárum hans til bráðabirgða vildi
hann ekki frekari afskipti lög-
reglu og var það með eftirgangs-
munum að hann fékkst til að fara
á slysadeild.
Annað
Á föstudag var lagt hald á tugi
lítra af landa í bílskúr í Mosfells-
bæ. Aðfaranótt laugardags lokaði
lögreglan veitingastað í miðborg-
inni. Komið var fram yfir lokun-
artíma staðarins og hann enn op-
inn er lögreglan fór fram á það
við forráðamann að staðurinn
yrði rýmdur og honum lokað. Því
var neitað og var þá gestum vísað
út og staðurinn innsiglaður.
Leyft var að opna staðinn kvöldið
eftir. Tveir menn bundu reiðhjól
sín við fiskikör á Miðbakkanum
aðfaranótt laugardags. Síðar um
nóttina voru fískikörin komin í
sjóinn en reiðhjólin fundust ekki.
Áðfaranótt sunnudags var ölvuð
stúlka að vaða í Tjörninni við ráð-
húsið. Henni var vísað á brott.
Um sama leyti fannst rænulaus
kona utan við veitingahús í mið-
borginni og var hún flutt á slysa-
deild. Ekki er talið að hún hafi
orðið fyrir árás.
Gildi mjólk-
ur rætt á
fundi
Beinverndar
BEINVERND á Suðurlandi heldur
fræðslufund á Hótel Selfossi mið-
vikudaginn 14. október kl. 20. Félag-
ið er eitt af þremur félögum innan
landssamtakanna Beinvernd á Is-
landi sem stofnuð voru að tilhlutan
landlæknis í mars 1997. Eitt mark-
miða samtakanna er að vekja at-
hygli almennings og stjórnvalda á
beinþynningu sem heilsufarsvanda-
máli.
Frummælandi á fundinum verður
Laufey Steingrímsdóttir, næringar-
fræðingur og forstöðumaður Mann-
eldisráðs íslands. Hún mun fjalla
um gildi mjólkur og mjólkurafurða
sem kalkgjafa. Beinvernd hefur
staðið fyrir útgáfu tveggja bæk-
linga: Beinvernd og Líkamshreyfmg
og beinþynning. I undirbúningi er
gerð bæklings um hormónameðferð
og beinþynningu.
Hverfafundur
lögreglustjóra
og borgarstjóra
GEORG Kr. Lárusson, settur lög-
reglustjóri, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, halda
hverfafund um löggæslumálefni
miðvikudaginn 14. október nk.
Fundurinn verður fyrir íbúa Bú-
staða-, Fossvogs- Grensás og Háa-
leitishverfí og hefst kl. 20.30 í hátíð-
arsal Verslunarskóla Islands, Ofan-
leiti 1.
Á fundinum verður kynnt
hverfalöggæsla á svæðinu sem er
samstarfsverkefni lögreglustjóra-
embættisins og borgaryfirvalda.
Að lokinni kynningu á þessu verk-
efni gefst íbúum hverfisins tækifæri
til að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri og koma með fyrirspurnir
um löggæslumálefni.
Rabb um sam-
kynhneigð og
umhverfíð
GUÐMUNDUR Páll Ásgeirsson
námsráðgjafi verður gestur á
rabbfundi Rannsóknarstofu í
kvennafræðum fimmtudaginn 15.
október.
Guðmundur mun fjalla um viðtöl
sín við nokkrar lesbíur og homma.
Þar sögðu þau frá átökunum við eig-
in ótta og fordóma er þau gerðu sér
grein fyrir því að þau væru samkyn-
hneigð, segir í fréttatilkynningu. At-
hyglinni verður beint að sorg og sár-
um tilfínningum og hvernig tekist
var á við þær.
Rabbið er á vegum Rannsóknar-
stofu í kvennafræðum við Háskóla
íslands og fer fram í stofu 201 í
Odda kl. 12-13. Rabbið er öllum op-
ið.
Aftöku í
Bandaríkjunum
mótmælt
AMNESTY International mótmælir
yfirvofandi aftöku Dwayne Allen
Wright sem áætlað er að verði tek-
inn af lífi 14. október nk. í Virginíu.
Dauðadómurinn yfir honum er
brot á alþjóðasamningi S.þ. um
borgaraleg og stjórnmálaleg rétt-
indi, segir í frétt frá íslandsdeild
A.I. í 6. gr. 5 mgr. segir: „Dauða-
dómi skal ekki beitt fyrir glæpi sem
menn undir átján ára aldri hafa'
framið.“ Dwayne var dæmdur til
dauða vegna glæps sem hann framdi
tæplega 17 ára gamall.
Málstofa
á Bifröst
JÓN Kalmannsson, forstöðumaður
Siðfræðistofnunar Háskóla Islands,
mun flytja fyrirlestur á málstofu
Samvinnuháskólans miðvikudaginn
14. október. Fyrirlesturinn nefnir
hann „Hvers vegna þurfum við sið-
fræði?“
Málstofan hefst kl. 15.30 í hátíðar-
sal Samvinnuháskólans á Bifröst og^
eru allir velkomnir.
Opinn fundur
um sam-
fylkinguna
ALÞÝÐUBANDALAGSFÉLAGIÐ
Birting - Framsýn í Reykjavík held-
ur opinn fund um stöðu mála í sam-
fylkingu Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Kvennalista um málefna-
skrá og framhaldið.
Fundurinn verður miðvikudags-
kvöldið 14. október nk. kl. 20.30 á 2.
hæð í Austurstræti 10. Frummæl-
andi verður Margrét Frímannsdótt-
ir, formaður Alþýðubandalagsins.
Fundarstjóri verður Bryndís
Hlöðversdóttir, alþingismaður.
Hörður Torfa
á tónleikum
SÖNGSKÁLDIÐ Hörður Torfa
heldur tónleika á Norður- og Aust-
urlandi dagana 13.-18. október og
hefjast þeir allir kl. 21.
Hörður leikur þriðjudaginn 13. __
okt. í Félagslundi, Reyðarfírði, mið-
vikudaginn 14. okt. í Skrúði, Frá-
skrúðsfirði, fimmtudaginn 15. okt. á
Hótel Reynihlíð, Mývatni, föstudag-
inn 16. okt. í Deiglunni, Akureyri,
laugardaginn 19. okt. í Tónlistar-
skólanum Siglufirði og sunnudaginn
18. okt. í Höfðaborg, Hofsósi.
í fréttatilkynningu segir m.a. að
Hörður Torfa hafi um árabil verið
einn dáðasti trúbador landsins, enda
frumhverji á því sviði.