Morgunblaðið - 13.10.1998, Síða 59

Morgunblaðið - 13.10.1998, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 59 BREF TIL BLAÐSINS Af hverju sérframboð öryrkja? Frá Jóhannesi Pór Guðbjartssyni: ÞAÐ SEGIR í Stjómarskrá ís- lands að allir þjóðfélagsþegnar séu jafn réttháir en í dag er svo ekki. Öryrkjar hafa alltaf verið látnir íinna til þess að þeir væru sér þjóð- flokkur og ættu að vera þakklátir fyrir það sem að þeim er rétt. Það er skýlaus krafa öryrkja að réttur þeirra sé virtur. Allir fæðast í þennan heim jafn réttháir. Býr ekki ein þjóð á Islandi og eigum við ekki öll jafnan rétt til að brauðfæða okkur með þeim gæðum og tæki- færum sem landið og auðlindir þess veita okkur? Þegar flett er sögu þeirra félaga sem barist hafa fyrir bættum kjör- um öryrkja alveg frá fyi-stu tíð, rekst maður alltaf á greinar og fyr- irsagnir um setningu laga um mál- efni öryrkja, og má þá jafnan skilja að nú sé takmarkið í augsýn. Þegar maður svo flettir áfram endurtekur þetta sig reglulega alveg fram á þennan dag. Af hverju? Er það kannski vegna þess að þunga vantar í eftirfylgnina? Þeir alþingismenn, sem settu þessi lög til að bæta kjör okkar, vöruðu sig ekki á því að þegar lögin komu í framkvæmd var búið að búa svo um hnútana, með reglugerðum og öðrum tilfæringum, að ekki náði nema smáræði af upphaflegu end- urbótinni, sem lögin fjölluðu um, fram að ganga. Þeir þingmenn sem fyrst unnu að málinu eru búnir að snúa sér að öðru og kraftar þeirra dreifðir á marga aðra málaflokka, þannig að ekkert verður úr leiðréttingum. Ætlun löggjafans er hindruð. Ef við værum með okkar eigin fulltrúa á þingi, myndi þetta ekki henda. Þeir myndu einbeita sér að okkar málefnum, fara yfir öll gögn og bregðast við strax ef eitthvað bjátar á. Á flestum þjóðþingum er hefð fyr- ir hagsmunaþrýstingi (lobbíisma), það er að segja starfskraftar hags- munaaðila era í því að reka erindi umbjóðenda sinna við þingmenn. Þessi hefð er varla til hér, alltént ekki hvað varðar þá sem minna mega sín, hvers vegna veit ég ekki. Besta leiðin til að gæta hagsmuna okkar er að eiga fulltrúa á Alþingi úr okkar röðum sem þekkja málin af eigin raun. Þannig afl væri hvorki til hægri né vinstri heldur væri miðað fyrst og fremst við málefni öryrkja ogvelferð ahnennings. Örorka á ekki að vera ávísun á fátækt. JÓHANNESÞÓR GUÐBJARTSSON, framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar á höfuðborgai'svæðinu. Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur www.mbl.is/fasteignir Skíðaveisla Heimsferða lil Austurríkis frá kr. 29.630 Heimsferðir bjóða nú glæsilegt úr- val skíðaferða til bestu skíðastaða Austurríkis með beinu flugi til Múnchen, vikulega frá 30. janúar 1999. Við höfum valið Zell am See og Saalbach-Hinterglemin sem okkar aðal áfangastaði. Þeir sam- eina stórkostlegt úrval skíða- brekkna við allra hæfi, afbragðs gististaði og síðast en ekki síst feiknarlega skemmtilegt mannlíf á kvöldin, mikið úrval góðra veit- inga- og skemmtistaða. Hér getur þú valið um yfir 60 lyftur á hveiju svæði, snjóbrettasvæði og yfir 100 km af skíðagöngubrautum. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjón- ustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. 20.000 kr. afsláttur tyrir fjölskylduna 5.000.- kr. afsláttur á mann' fytstu 200 sætin. Verð kr. 29.630 Flugsæti á mann til Munchen m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Verð kr. 48.930 Flug, hótel og flugvallarskattar m.v. hjón m. 2 böm, vika, 30. janúar, Pinzgauer Hof. Verð kr. 56.960 Flug, hótel og flugvallarskattur m.v. 2 í herbergi, 30. janúar. Beint morgunflug til Munchen Brottför kl. 8.30 á laugardögum 30. janúar 6. febrúar 13. fcbrúar 20. febrúar 27. febrúar 6. mars HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is DÆLUR 0G TJAKKAR ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 www.mbl.is Morgunverðarfundur Miðvikudaginn 14. október 1998, kl. 8:00 - 9:30 í Sunnusal Hótels Sögu ALÞJOÐLEG VIÐSKIPTAMIÐSTÖÐ - NÝIR MÖGULEIKAR FYRIR FYRIRTÆKI í ALÞJÓÐAVIÐSKIPTUM FRAMSOGUMENN: , Baldur Guðlaugsson hrl. i Tryggvi Jónsson, aðstoðarforstjóri Baugs hf. Að loknum framsöguerindum geta fundarmenn boriö fram fyrirspumir eða komið með innlegg í umræðuna. Annar fundur um sama efni verður haldinn á Akureyri föstudaginn 16. október nk. Nánar auglýstur síðar. Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.500,- Fundurinn er opinn en æskilegt er aö tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 VERSLUNARRAÐ ISLANDS 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.