Morgunblaðið - 13.10.1998, Síða 63

Morgunblaðið - 13.10.1998, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 63 MYNPBÖNP Casper í góðum fé- lagsskap Casper hittir Wendy (Casper meets Wendy)_ Æ vi nlvramvinl ★★ Framleiðandi: Mike Eliott. Leikstjóri: Sean MeNamara. Handritshöfundur: Jymn Magon. Kvikmyndataka: Christian Serbaldt. Aðalhlutverk: Hilary Duff, Cathy Moriarty, Shelley Duvall, Teri Garr og George Ha- milton. (92 mín.) Bandarísk. Skífan, október 1998. Öllum leyfð. CASPER hittir Wendy er þriðja myndin um vinalega drauginn Ca- sper, sem gerði sérlega lukku í fyrstu Casper- myndinni. Þar kemst góðhjartaði draugurinn í kynni við góðu nornina Wendy sem þrátt fyrir ungan aldur er ákaflega kröftug galdrakona. Af þeim sökum hefur hinn illi Desmond, mesti galdramaður heims, ákveðið að koma Wendy fyr- ir kattarnef. Þegar Desmond gerir áhlaup nýtur Wendy ekki eingöngu aðstoðar göldróttra frænkna sinna, heldur einnig Caspers og framlið- inna frænda hans. Þessi mynd er ákaflega ærslafull og viðburðarík en nornainnleggið gefur upprunalegu Capser-hug- myndinni góða innspýtingu. Tækni- brellur eru vel útfærðar og leikur- inn alveg sómasamlegur miðað við þessa tegund kvikmyndar. Hins vegar er húmorinn fremur ófyndinn og þreytandi en það er bætt upp með spennandi atburðarás þar sem hvergi er slakað á. Heiða Jóhannsdóttir ------------------ Hundur sem talar Loppur (Paws)_______________________ Gainaninynd ★★ Framleiðendur: Andrea Finley og Vieky Watson. Handritshöfundar: Karl Zwicky og Harry Cripps. Leikstjóri: Karl Zwicky. Aðalhlut- verk: Billy Connolly, Nathan Cavaleri og Emile Francois. (83 mín.) Áströlsk. Háskólabíó, september 1998. Öllum leyfð. AF ÞEIM þremur hundamyndum sem komu út á myndbandi sl. mánuð er þessi tvímælalaust sú besta. Þar segir frá hundin- um PC sem öðlast þá hæfileika að geta talað eftir að hafa fíktað dálítið við tölvur. Þegar mikilvægum tölvu- disklingi er stolið frá eiganda hunds- ins lendir hann í spennandi atburðarás ásamt ung- lingnum Zac, fjölskyldu hans og ná- grönnum. Húmorinn í þessari mynd er bráðskemmtilegur og vegur þar þyngst leikrödd hundsins, sem flutt er frábærlega af hinum skoska Billy Connolly. Ekki er hægt að segja að myndin sé mjög vönduð og má t.d. sjá fullkomið þekkingarleysi í per- sónusköpun hins íslenska glæpa- kvendis, sem ber slavneskt nafn og á sleðahund fyrir gæludýr. En myndin er fersk, skemmtileg og kraftmikil - góð fjölskyldumynd. Heiða Jóhannsdóttir FOLK I FRETTUM GESTUM Fjárfestingar & rdðgjafar virtist líka húmorinn hans Sveins. Eg er bannaður innan 16 ára Hláturinn lengir lífið, segir Sveinn Waage, sem býst við að verða mjög langlífur. Hann sagði Hildi Loftsdóttur leyndarmál fyndnasta manns Islands. - SEGÐU mér Sveinn, ertu fyndn- astimaður á Islandi? „Eg ber reyndar þann titil, en það eni auðvitað til margir reynd- ari skemmtikraftar en ég. Þessi keppni var frekar haldin til þess að fínna nýja hæfileikaríka grínara og við tólf sem tókum þátt í henni höfðum öll mismikla reynslu. Sum- ir keppendanna höfðu skemmt í framhaldsskólum og voru nú að reyna sig á öðrum vettvangi. Reynsla mín sem grínari er ekki mikil en ég er vanur að koma fram. Ég hef verið í ræðumennsku, á leiksviði og í tónlist. Þetta var mjög skemmtileg keppni.“ -Hvernig byrjaðir þú á uppi- standi? „Áhuginn kviknaði þegar ég bjó í Bandaríkjunum í rúm tvö ár. Þar fór ég á næturklúbba og satt að segja fannst mér grínaramir þar ekkert sérlega fyndnir. Ég hugsaði sem svo að ef þeir geta unnið við að segja brandara þá get ég að minnsta kosti prófað það. A áhuga- mannakvöldunum var gaur sem vann við þetta, og hann var ekki mjög sáttur við að þurfa að koma fram á eftir mér því það var hlegið miklu meira að mér en honum.“ -Af hverju einkennist þinn húmor? „Ég nota bandarísku uppskrift- ina að uppistandi. Ég fer ekki í karakter eins og Laddi. Ég er einn ólíkt Tvíhöfða og Radíus-bræðrum sem geta svarað hvor öðrum og það er auðveldara. Örn Árnason er með leikmuni og lög. Ég er bara einn á sviðinu með hljóðnemann og ekkert annað. Ég ræði um það sem er að gerast; Clinton, Keikó og annað sem ég hef áhuga á. Ég sem ekki brandara fyrir þig eða neinn annan, heldur er samkvæmur sjálf- um mér. Ég er hrár, grófur með svartan húmor og það gengur vel í Islendinginn." - Líkistu Seinfeld að því leyti að gera grín að fáránleika hversdags- ins? „Þetta er sama form, en hann er fjölskylduvænn. Þú getur farið með níu ára dóttur þína á skemmt- un hjá honum. Ég er bannaður inn- an 16 ára, minnst. Seinfeld talar ekki um kynlíf, minnihlutahópa né neitt sem gæti verið umdeilanlegt. Það eru margir hvítir grínarai’ í Bandaríkjunum sem tala um flug- freyjur, flugmenn, leigubílstjóra og gæludýr. Það er þeirra lína. Aftur Fallegust í Póllandi IZABELA Opechowska var valin Ungfrú Pólland um helgina og sést hér í baðfötunum. Hún er aðeins 18 ára og er mennta- skólanemi í Biskupiec í Austur- Póllandi. ecco Gangur lífsins STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Kringlunni 8-12. Sími: 568 9212 Egilsgötu 3. Sími: 551 8519 SVEINN Waage lætur gamminn geisa. Morgunblaðið/Gollí á móti koma svörtu grínararnir eins og Martin Lawrence, Eddie Murphy og Chris Rock mér til að hlæja.»Þeii- era nær rótinni og tala um hluti sem við þekkjum svo vel, eins og samskipti kynjanna. Það gerir Seinfeld ekki.“ - Ertu mjög eftirsóttur, með þennan titil? „Eftirspurnin er orðin miklu meiri. Ég var fyrir norðan um seinustu helgi og það var alveg meiriháttar. Eigandinn á Kaffí Menningu á Dalvík neitaði að borga mér nema ég lofaði að koma aftur. Ég hef líka skemmt mjög fínu fólki, og þá skiptist hópurinn í tvennt; þá sem springa úr hlátri og þá sem trúa ekki sínum eigin eyr- um. Það er helst að ég njóti mín best þegar ég skemmti yngra fólki, eins og í framhaldsskólum og á klúbbum." - Er satt að íslendingum fmnist skemmtilegra að hlæja að öðrum en sjálfum sér? „Ég veit það ekki, kannski. Við erum náttúrlega með svartan húmor en reyndar þarf mjög mikið til að hneyksla fólk nú orðið. Ég veit stundum ekki hvort ég á að þora að segja sumt sem mér dettur í hug. En þegar stemmningin er góð og ég læt það vaða, þá fer það alltaf vel í mannskapinn. Ég er að tala um hluti sem eru það grófir að ég myndi aldrei geta sagt þá dags daglega við fólk og horft í augun á því.“ - Hefurðu húmor fyrir sjálfum þér? „Ég hlæ að sjálfum mér alveg endalaust og hef yfírhöfuð ofboðs- lega gaman af því að vera til. Ég held að það sé ekki möguleiki að vera grínisti án þess að hafa húmor fyrir sjálfum sér og vera sjálfs- gagnrýninn. Fólki finnst húmorinn í mér frekar sjúklegur, og þannig er ég að gera grín að sjálfum mér með því að upplýsa hvað ég er skrítinn í hausnum." LÍMMIÐAPRENT Þegar þig vantar límmiða! Skemmuvegl 14 • 200 Kópavogur Sími: 587 0980 • Fax: 557 4243 Farsími: 898 9500 Nei! Ekki úr gulli, en úr flestum öðrum málmum smíðum við hluti í tölvustýrðum vélum, t.d varahluti í fisk-, kjöt-, trésmíða- og sælgætisgerðarvélar, auk fjölda hluta í vökvakerfi. Er hægt að gera eitthvað fyrir þig? Kannaðu málið! S.S.G E □ VELSMIÐJA Trönuhraun 10, sími 555 3343

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.