Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 72
Atvinnutryggingar MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Fangaverðir flmga uppsagnir MIKIL óánægja ríkir í röðum fanga- varða þar sem ekki hafa náðst samn- ingar við Fangelsismálastofnun í kjölfar aðlögunarsamninga sem gerðir voru á milli SFR og fjármála- ráðuneytisins í apríl á síðasta ári. Að sögn Ara Thoroddsen, for- manns Fangavarðafélags Islands, eru félagsmenn um 100 talsins og eru 80-90% þeirra reiðubúin til að segja upp starfí sínu fyrir næstu mánaðamót hafi ekki náðst samning- ar um launamál þeirra fyrir þann tíma. Ari sagði í samtali við Morgun- blaðið að fangaverðii- hefðu viljað ná fram bótum fyrir það sem þeir teldu sig eiga inni en ekkert hefði þokast hvað það varðaði í viðræðum sem átt hefðu sér stað. „Mér sýnist að það stefni allt í uppsagnir núna fyrir næstu mánaða- mót, en við vorum með starfsmanna- fund í síðustu viku sem skilaði mjög góðri samstöðu meðal félagsmanna. Við viljum fyrst og fremst fá leiðrétt- ingu á launum til að slaga upp í þau laun sem aðrar löggæslustéttir í landinu hafa en þar vantar töluvert upp á,“ sagði Ari. Ríki og borg styðja menningarborgina árið 2000 Menningarárið kostar 610 milljonir króna REYKJAVÍKURBORG mun veita 275 milljónum króna tO Reykjavík- ur - menningai-borgar Evrópu árið 2000 og 235 m.kr. koma úr ríkis- sjóði. Undirrituðu þessir þrh- aðOar samning þessa efnis í Höfða í gær. Heildarfjárhagsrammi verkefnis- ins hljóðar upp á 610 milljónir króna en fyrirhugað er að afla 100 m.kr. hjá innlendum og erlendum kostunaraðilum og sjóðum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra og Páll Skúlason formaður stjómar menn- ingarborgarinnar stóðu að undir- ritun samningsins í Höfða en áður hafði Geir Haarde fjármálaráð- herra, sem staddur er erlendis, undirritað hann. Lýstu þau öll yfir ánægju sinni með samstarfið. Kvaðst Páll sérstaklega ánægð- ur með viðbrögð ríkis og borgar en fjárframlagið mun vera í sam- ræmi við óskir menningarborgar- innar. í máli Páls kom einnig fram að það væri mikdl heiður og mikið traust sem okkur Islendingum væri sýnt með því að Reykjavík skuli hafa verið valin ein af níu menningarborgum Evrópu árið 2000 - og um leið viðurkenning á þýðingu Islands fyrir evrópska menningu. ■ Ekki tjaldað/37 Morgunblaðið/Golli SS kaupir helmings- hlut í ísfugli SLÁTURFÉLAG Suðurlands hefur keypt helming hlutafjár í alifugla- sláturhúsinu og -vinnslunni ísfugli hf. í Mosfellsbæ. Fyrirtækið varð til við sameiningu þriggja félaga, Reykjavegar 36 hf., Isfugls hf. og Markaðskjúklinga ehf. en samkomulag um sameiningu þeirra var undirritað í gær. Um leið var samþykkt að auka hlutafé í fyrir- tækinu og keypti Sláturfélagið helm- ing hlutafjár. Framkvæmdastjóri sameinaðs félags, sem mun bera heit- ið ísfugl, er Logi Þór Jónsson. Steinþór Skúlason, forstjóri Slátur- félagsins, segir að fyrirtældð hafi fyr- ir allnokkru tekið þá stefnu að ein- skorða sig við framleiðslu og verslun á heildsölustiginu og því sé það rök- rétt framhald að leita sóknarfæra þar sem styrkleiki fyrirtækisins nýtist. Hann segii’ að fyrirséður vöxtur sé í sölu á kjúklingum hér á landi. „Við þekkjum vel til í vinnslu á kjöti og þekking okkar og innkaupasambönd nýtast vel á þessu sviði,“ sagði Stein- þór í samtali við Morgunblaðið. ■ Viljum taka virkari/18 Hugsað fyrir vorinu NÚ er rétti tíminn til að setja niður haustlauka. Þessir starfsmenn Reykjavíkurborgar voru að setja haustlauka niður í gær og væntanlega vaxa upp af þeim falleg blóm næsta vor og gleðja augu borgarbúa. ------------- Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar 4% launa- hækkun í kjöl- far starfsmats LOKIÐ er endurskoðun á starfsmati starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar, sem leiddi til breytinga á launaflokk- ,ym og um 4% launahækkunar til ' "starfsmanna að meðaltali. Hækkunin tók gildi 1. september sl. Að sögn Magnúsar Gunnarssonar bæjarstjóra fór fram heildarstarfsmat hjá starfsmönnum bæjarins í Starfs- mannafélagi Hafnarfjarðarbæjar. „Þetta var unnið á eðlilegan hátt og farið yfir starfsmat með starfsmönn- ^num," sagði hann. „Eitthvað sigu •^hunin upp eða um 4% yfir línuna.“ Hækkun sjálfræðisaldurs hefur kollvarpað meðferðarkerfí ungra vímuefnaneytenda Biðtíminn eftir með- ferð er 8 mánuðir BIÐTÍMI eftir meðferð fyrir unga vímuefnaneyt- endur hefur lengst úr 53 dögum á árinu 1997 í 240 daga, eða 8 mánuði, á árinu sem er að líða, og seg- ir Bragi Guðbrandsson, forstjóri bamavemdar- stofu, að hækkun sjálfræðisaldurs í 18 ár um síð- ustu áramót hafi kollvarpað tilvist núverandi með- ferðarkerfis ríkisins fyrir ungmenni þar sem tveir árgangar hefðu bæst við skjólstæðingahópinn. I máli Páls Péturssonar félagsmálaráðherra á Alþingi í gær kom fram að fíkniefnaneyslan hefði aukist í sumar og þá sérstaklega hjá þeim sem fæddir era 1982. Sagði hann að auka þyrfti fjár- veitingu til meðferðarúrræða fyrir unga fíkniefna- neytendur frá því sem gert væri ráð fyrir í fjár- lagaframvarpinu. Að sögn Braga Guðbrandssonar hefur það gerst á sama tíma og biðtíminn eftir meðferð hef- ur margfaldast að faraldur gengur yfir í neyslu amfetamíns og hass í yngsta neysluhópnum. „Við erum að sjá á biðlista hjá okkur unglinga niður í 14 ára aldur, sem eru í reglubundinni neyslu amfetamíns,“ segir Bragi. Hann segir að það hafi verið fyrirséð þegar ákvörðun var tekin um að hækka sjálfræðisaldur- inn að óbreytt kerfi myndi ekki anna eftirspurn eftir meðferð, og að íýrir hafi legið það álit Bama- vemdarstofu að hækkunin kallaði á tvöföldun meðferðarkerfisins. 14 og 15 ára unglingar fylltu öll þau 35-40 meðferðarrými sem kerfið hefði yfir að ráða og sérhæfða meðferð fyrir 16-18 ára skorti. Fram til síðustu áramóta hafi ekki verið önnur úrræði fyrir þann hóp en áfengismeðferð með fullorðnum á vegum Landspítala eða SÁA fyrir þá unglinga sem leituðu sjálfir meðferðar. Meðferð á vegum Bamavemdarstofu væri hins vegar meðferð sem foreldrar eða bamavemdar- nefndir sækja um fyrir ósjálfráða ungling. Endurskoða þarf fjárhæð til meðferðarúrræða Páll Pétursson félagsmálaráðherra sagði í fyr- irspurnartíma á Alþingi í gær að endurskoða þyrfti þá fjárhæð í fjárlagafrumvarpinu sem veitt væri til meðferðarúrræða fyrir unga fíkniefna- neytendur. „Við þurfum meiri peninga í þennan málaflokk," sagði hann og kvaðst hafa tekið málið upp á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku. Ráðherra benti á að þegar fjárlög hefðu verið undirbúin sl. vor hefði verið talið að þau meðferð- arrúrræði sem nú væru tiltæk og kæmu í gagnið á árinu væra viðunandi. „Nú gerist það því mið- ur, og það er hryllileg staðreynd, að fíkniefna- neyslan virðist hafa aukist í sumar sérstaklega í árganginum sem fæddur er 1982,“ sagði hann og skýrði ennfremur frá því að hann myndi taka upp viðræður við Reykjavíkurborg á næstunni um hentugt húsnæði fyrir svokallaða neyðarvistun. Að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi, varð mikil aukning um mitt ár 1995 á fjölda þeirra ungmenna sem komu til meðferðar á Vogi og það hefði haldist óbreytt allt síðan. Miðað við tölur sem lægju fyrir um fyrrihluta þessa árs væri ástandið óbreytt og hann merkti ekki aukn- ingu nú milli ára hvað sem síðar kæmi í ljós. ■ Búið að/4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.