Morgunblaðið - 22.11.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
267. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Clinton varar N-Kóreu
við frekari ögrunnm
Seoul. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti átti fund
með Kim Dae-jung, forseta Suður-Kóreu í
Seoul í gær. Viðræður þeirra snerust fyrst og
fremst um öryggismál, vegna vísbendinga um
að Norður-Kóreumenn væru á ný farnir af
stað með áætlun sína um smíði kjarnavopna.
Clinton sagði á fréttamannafundi með Kim
Dae-jung í gær að hann hefði miklar áhyggj-
ur af vísbendingum um að kjarnorkutilraunir
færu fram í neðanjarðarstöð í Norður-Kóreu,
og sagðist vona að stjómvöld í Pyongyang
neyddu ekki Bandaríkin til að breyta stefnu
sinni í þeirra garð. Bandaríkjastjórn sam-
þykkti árið 1994 að veita Norður-Kóreu að-
stoð við orkuframleiðslu, gegn því að Norður-
Kóreumenn hættu við áætlun sína um smíði
kjarnavopna. Clinton sagði að stuðningur
Bandaríkjaþings við samkomulagið væri í
hættu ef Norður-Kóreustjórn færi ekki að
skilyrðum þess.
Spennan i samskiptum Kóreuríkjanna
magnaðist enn þegar Suður-Kóreustjóm
krafðist þess opinberlega í gær að Norður-
Kórea léti af ögrunum, eftir að norður-
kóreskt skip sigldi í óleyfi inn í landhelgi Suð-
ur-Kóreu á föstudag.
Vonar að írakar afhendi
UNSCOM uinbeðin skjöl
írakar neituðu á fóstudag að afhenda vopna-
eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna,
UNSCOM, skjöl um vopnakerfí sín, innan við
viku eftir að Saddam Hussein, forseti Iraks,
hét því að hindra ekki stöif nefndarinnar.
Clinton sagði á fréttamannafundinum í Seoul
í gær að hann vonaði að Irakar létu UNSCOM
í té þau skjöl sem nefndin hefði beðið um, en
ekki væri ráðlegt að bregðast strax hai-t við.
Riyadh al-Qaisi, aðstoðarutanríkisráðherra
íraks, segir að Richard Butler, yfirmaður
UNSCOM, hafi farið út fyrir valdsvið sitt
með því að ki-efjast þessara upplýsinga, sem
Irakar fullyrða að hafí aldrei verið til, eða séu
ekki lengur fyrir hendi. Starfsmenn
UNSCOM héldu þrátt fyrir deiluna til eftir-
litsstarfa í írak í gær.
Fréttamenn spurðu Clinton einnig um
rannsókn Bandaríkjaþings á Lewinsky-mál-
inu, sem hófst á fimmtudag. Forsetinn kvaðst
ekki telja við hæfí að hann léti hafa nokkuð
eftir sér um rannsóknina, en sagði að fyrir
sér væri málið ekki lengur lagalegs eðlis,
heldur persónulegt vandamál, sem hefði or-
sakað miklar þjáningar.
Morgunblaðið/RAX
Slegist um rólurnar
KRAKKARNIR á barnaheimilinu Sólvöllum í Neskaupstað eru ar eru sívinsælar. Sumum virðist ekki þó nægja ein róla, og
ánægðir með tilveruna. Það er gaman að leika sér úti, og rólurn- skemmta sér best þegar þeir hafa fæturna hvorn í sinni rólunni.
Fundu engan
óspilltan
embættis-
mann
Nýju Delhí. The Daily Telegraph.
EFTIR að hafa leitað að heiðarlegum
embættismanni í átján mánuði hafa yfir-
völd í Punjab-héraði á Indlandi viður-
kennt að leitin hafi verið árangurslaus.
Hins vegar fundust 300 spilltir embættis-
menn.
Yfirvöld í Punjab, sem er eitt blómleg-
asta hérað Indlands, hugðust verðlauna
„heiðarlegasta embættismanninn“ með
100 þúsund rúpíum (um 160 þúsund ísl.
kr.) Enginn embættismaður þótti verðug-
ur verðlaunanna, en leitin kostaði hér-
aðsstjómina samtals 6,6 milljónir rúpía
(10,8 milljónir ísl. kr.) í mútufé til upp-
Ijóstrara sem bentu á spillta embættis-
menn.
Háttsettir embættismenn hafa hins
vegar lýst yfir efasemdum um heiðar-
leika uppljóstraranna, enda þáðu inargir
þeirra greiðslu án þess að gefa nokkrar
vísbendingar sem nægðu til að sakfella
þá sem þeir sögðu spillta.
Indland telst vera áttunda spilltasta
ríki heims, samkvæmt alþjóðlegri könn-
un, og féll um eitt sæti síðan í fyrra.
Rússneskur
þingmaður
skotinn
til bana
Moskvu. Reuters.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, og Jev-
gení Prímakov forsætisráðherra lýstu í
gær yfir reiði sinni vegna morðsins á
þingmanninum Galinu Starovoitovu.
Starovoitova var skotin til bana við
heimili sitt í Pétursborg aðfaranótt laug-
ardags. Hún gat sér orð sem einn helsti
baráttumaður lýðræðisþróunar í valdatíð
Mikaels Gorbatsjevs, og undanfarnar vik-
ur var hún fremst í flokki þeirra sem
krefjast þess að samþykktar verði vítur á
þingmann sem ítrekað hafði látið falla
fordómafull ummæli um gyðinga. St-
arovoitova var sögð íhuga að gefa kost á
sér til embættis ríkisstjóra í Leningrad-
héraði, og jafnvel að bjóða sig fram í for-
setakosningum i Rússlandi árið 2000.
Jeltsín lýsti því yfir að hann myndi
sjálfur hafa yfirstjórn með rannsókn
málsins, og samkvæmt fyrirmælum hans
flaug Sergei Stepashin innanríkisráð-
herra til Pétursborgar í gærmorgun til
að fylgjast með framvindu rannsóknar-
innar.
Af hverju álver
á Austurland?
íslensk byggingararfleifð
Harðar Ágústssonar
Til móts við breyttar
þarfír neytenda