Morgunblaðið - 22.11.1998, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Flokksþing Framsóknarflokksins afgreiðir sjávarútvegsályktun samhljóða
Hluta af aukningu á
kvóta verði haldið eftir
SAMÞYKKT var á flokksþingi
Framsóknarflokksins ályktun þar
segir að til álita komi að halda eftir
hluta af aukningu á veiðiheimildum
þegar fiskistofnar hafí náð þeirri
stærð sem miðað var við þegar
kvótakerfinu var komið á fót. Enn-
fremur var lýst óánægju með kvóta-
þingið og krafist endurskoðunar á
lögum um kvótaþing.
I drögum að ályktun um sjávar-
útvegsmál sem lögð var fyrir
flokksþingið var lagt til að stjórn-
völd héldu eftir hluta af aukningu
veiðiheimilda. Ályktuninni var
breytt í sjávarútvegsnefnd þingsins
í þá veru að til álita komi að halda
eftir aukningu veiðiheimilda og sá
fyrirvari sleginn að það verði ekki
gert fyrr en fiskistofnarnir hafi náð
þeirri stærð sem þeir voru í þegar
kvótakerfinu var komið á.
„Framsóknarmenn telja að þegar
aflaheimildir í hverri tegund hafa
náð þeirri stærð sem var á viðmiðun-
arárum þeirra komi til álita að halda
eftir hluta af aukningu veiðiheimilda.
Þessar heimildir verði meðal annars
notaðar til að bregðast við óvæntum
áfollum í sjávarútvegi og tíl leigu á
almennum markaði.
Framsóknarmenn telja óeðlilegt
að einstakir aðilar skuli hafa komist
upp með að fénýta endurnýjanlegar
auðlindir í eigin þágu. Nauðsynlegt
er að skattkerfinu verði beitt til að
koma í veg fyrir að slíkt gerist í
framtíðinni," segir orðrétt í álykt-
uninni.
Skiptar skoðanir voru í sjávarút-
vegsnefndinni um ályktunina, en
sáralitlar umræður urðu um álykt-
unina á sjálfu þinginu og hún var
samþykkt samhljóða.
Vilja veiða 100 hrefnur
í áiyktuninni er hvatt til þess að
nú þegar verði tekin ákvörðun um
nýtingu á sjávarspendýrum á vís-
indalegum forsendum. Strax á
næsta ári verði heimilaðar veiðar á
a.m.k. 100 hrefnum í rannsóknar-
skyni. Lagt er til að við ákvörðun
um heildarveiðiheimildir verði sér-
staklega tekið tillit til þess sem
hvalir éta af fiski.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
Mótmælir
Evrópustefnu
formannsins
Hús vita-
varða fá ný
hlutverk
HÚS vitavarða eru mörg hver
að fá ný hlutverk þar sem fóst
búseta vitavarða Siglingastofn-
unar íslands hefur verið að
leggjast af síðustu árin. Er nú
aðeins einn vitavörður í fullu
starfi sem býr í húsnæði stofn-
unarinnar, þ.e. á Stórhöfða í
Vestmannaeyjum.
Þetta kemur fram í frétta-
bréfi Siglingastofnunar, Til
sjávar. Þar segir Tómas Sig-
urðsson, forstöðumaður vita-
sviðs, að reynt sé að selja eða
leigja vitavarðahúsin sem ekki
eru lengur notuð. A Dalatanga
og Sauðanesi er húsnæði leigt
mönnum sem annast vitavörslu
í aukastarfi. Þá hefur Náttúru-
fræðistofnun falast eftir neðri
hæð Bjargtangavita fyrir
fræðslustarf um fuglalíf og
fleira og stofnunin hefur einnig
óskað eftir samvinnu um bætt
aðgengi ferðamanna kringum
vitann við Dyrhólaey. Ýmsir
aðilar hafa lýst áhuga sínum á
að nýta húsin við Horn-
bjargsvita í Látravík og þá hef-
ur hús vitavarðarins á Reykja-
nesi nýlega verið selt.
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra lýsti á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins yfir andstöðu við
hugmyndir Halldórs Ásgrímsson-
ar, formanns flokksins, um hugsan-
lega aðild íslands að Evrópusam-
bandinu. Hann sagðist telja óraun-
hæft að gera ráð fyrir að Island
gæti staðið utan við sjávarútvegs-
stefnu ESB.
Halldór sagði í setningarræðu á
flokksþinginu að það væri ekki rétt
að útiloka aðild að ESB um alla
framtíð. Hann sagðist vilja láta
gera ítarlega úttekt á því hvort ís-
land gæti staðið utan við sjávarút-
vegsstefnu ESB með því að sér-
stök stefna yrði mörkuð fyrir haf-
svæðin í N-Atlantshafi sem væri
óháð yfirstjórn ESB.
„Eg er vantrúaður á að Evrópu-
sambandið muni samþykkja að við
fáum að stofna einhver sérstök
svæði fyrir okkur í Norður-Atl-
antshafi. Sérstaklega er ég van-
trúaður á að hinir harðdrægu
Spánverjar muni láta slíkt við-
gangast.“
Eigum ekki að játast undir yfír-
þjóðlegt vald ESB
„Ég tel að eðli Evrópusam-
bandsins þurfi að breytast ef það á
að geta verið skynsamlegt fyrir
okkur að gerast aðilar. Við eigum
ekki að játast undir hið yfirþjóð-
lega vald sem skipulag Evrópu-
sambandsins býður upp á. Af þeirri
ástæðu, miklu frekar en vegna
óskynsamlegrar fiskveiðistefnu
sambandsins, getum við ekki átt
samleið með því,“ sagði Páll.
Morgunblaðið/Þorkell
Jólí
Jólahöllinni
SÝNINGUNNI Jólahöllinni í Laug-
ardalshöll í Reykjavík lýkur í dag
klukkan 18 en hún hefur staðið
alla helgina. Aðsókn hefur verið
góð en þarna kynna um 100 fyrir-
tæki ýmislegt til jólanna auk þess
sem boðið er upp á ýmis skemmti-
atriði, ekki síst fyrir börnin.
BLAÐINU í dag fylgir 16 síðna
auglýsingablað frá Máli og menn-
ingu og Forlaginu.
Álver það eina sem
við sjáum framundan
►Austfirðingar er þess fullvissir
að orkufrekur iðnaður geti hindr-
að fólksflóttann. /10
Fremst meðal jafningja
í Rómönsku-Ameríku
►Graciela F. Meijide, er leiðtogi
bandalags stjórnarandstöðunnar í
Ai-gentínu. /12
Lambagrasið jafn-
merkilegt og suðræn
rós
► Rætt við Hörð Ágústsson um
stórvirki hans, bókina um íslenska
húsagerðarsögu. /21
Til móts við breyttar
þarfir neytenda
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Finn Áma-
son framkvæmdastjóra Nýkaups.
/30
► l-28
Pétur Ben
► Saga Péturs Benediktssonar er
mikill aldarspegill. Ævisaga hans
er komin út og nokkur kaflabrot
birtast í blaðinu í dag. /1 og 2-5
Mig langaði svo
í hausinn
►Bein eru ekki algeng hýbýla-
prýði í barnaherbergjum á Is-
landi, líkt og hjá Jörgen Má
Ágústssyni, átta ára. /6
Syndlaus á björtu
ævikvöldi
►Sigrún Pétursdóttir hefur orðið
sér úti um ótal áhugamál að lok-
inni fjölbreyttri starfsævi. /14
FERÐALÖG
►l-4
Róm
►Þar sem allt getur gerzt. /2
Samgöngumál og
kynning á fortíðinni
►Málþing um stöðu og tækifæri í
ferðaþjónustu á Vestfjörðum. /4
D BÍLAR
► l-4
Framtíðin komin í líki
Prius
► Bílaframleiðendur um allan
heim eru að þróa bíla sem menga
minna. /2
Reynsluakstur
►Þægilegur M-jeppi en ekki
snarpur. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1—20
Háskólar fá 100 millj.
króna gjöf
► íslensk útgáfa komin af við-
skipta- og stjórnunarkerfinu
Axapta /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir lÆ'4/S/bak
Leiðari 32
Helgispjall 32
Reykjavíkurbréf 32
Skoðun 34
Minningar 40
Myndasögur 48
Bréf til blaðsins 48
í dag 50
Brids 50
Stjörnuspá 50
Skák 50
Fólk í fréttum 54
Útv/sjónv. 52,62
Dagbók/veður 63
Mannl.str. 12b
Dægurtónl. 18b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6