Morgunblaðið - 22.11.1998, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞAU strjúka boga á streng: Junah Chung, Sigurður Halldórsson
og Hlff Siguijdnsdóttir.
Hafnarborg
Tónleikar á
höggmyndasýningu
Geisladiskur Sinfóníuhljómsveitar íslands
Frábær dómur
í Gramophone
Kjarvalsstaðir
Arkitektar
ræða eig-
in verk
ALLA sunnudaga er fræðsla og
leiðsögn fyir almenning um sýning-
ar Kjarvalsstaða. í dag kl. 16 munu
Baldur Ó. Svavarsson og Pálmar
Kristmundsson taka þátt í leiðsögn
um sýninguna Norhern Factor - ný
kynslóð í norrænni byggingarlist -
og ræða eigin verk á sýningunni
sunnudaginn 22. nóvember kl. 16.
I ljósaskiptupum kl. 17 sama dag
flytja Halldór Ásgeirsson, myndlist-
armaður, og Snorri Sigfús Birgis-
son, tónskáld og píanóleikari, tónlist
og gjörning.
--------------
Fyrirlestur
í MHÍ
PÉTUR Örn myndlistarmaður
fjallar um eigin list í Laugarnesi,
mánudaginn 23. nóvember, kl.
12.30.
Kristín Þorkelsdóttir heldur fyr-
irlestur um vatnslitamálun í Barma-
hlíð, Skipholti 1, miðvikudaginn 25.
nóvember kl. 12.30.
------♦-♦-♦---
Lapplander
að gjöf
SÁ sem kaupir 3.000. eintak bókar-
innar Góðir Islendingar fær Volvo
Lapplander að gjöf. Huldar
Breiðfjörð ferðaðist í Lapplandem-
um í tveggja mánaða hringferð
sinni um landið á hörðum vetrar-
mánuðum og spilar hann stóra
rullu í bók hans.
HLÍF Sigurjónsdóttir íiðluleikari,
Junah Chung lágfiðluleikari og Sig-
urður Halldórsson sellóleikari koma
fram á tónleikum sem haldnir verða í
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Ilafnarfjarðar, sunnudaginn
22. nóvember kl. 20.30.
Á tónleikunum verða flutt
Strengjatríó op. 53 eftir Franz Jos-
eph Haydn, Þrír Madrigalar eftir
Bohuslav Martinu og Strengjatríó í
G-dúr op. 9, nr. 1 eftir Ludwig van
Beethoven.
Hlíf Sigurjónsdóttir lauk einleik-
araprófí ft-á Tónlistarskólanum í
Reykjavík undir handleiðslu Björns
Ólafssonar konsertmeistara. Hún
stundaði framhaldsnám við háskólana
í Indiana og Toronto og við Listaskól-
ann í Banff. Hlíf er fastráðin við Sin-
fóníuhljómsveit Islands.
Junah Chung lágfiðluleikari lauk
mastersgráðu frá Juilliardskólanum
í New York þar sem aðalkennarar
hans voru Lillian Fuchs og William
Lincer. Junah hefur komið víða
fram sem einleikari og leikið með
ýmsum kammarhópum.
Sigurður Halldórsson nam selló-
leik í Reykjavík og London. Frá ár-
inu 1990 hefur hann starfað sem
sellóleikari og kennari hér heima.
Hann gaf nýlega út hljómdisk með
tónlist frá 20. öldinni.
Miðasala á tónleikana verður í
Hafnarborg laugardag og sunnudag
frákl. 12-18.
í Hafnarborg er yfirlitssýning á
verkum Sigurjóns Ólafssonar mynd-
höggvara, föður Hlífar fiðluleikara.
Efnt er til sýningarinnar í samvinnu
við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar í
tilefni af því að 90 ár eru liðin frá
fæðingu listamannsins.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
undir stjórn Peters Sakaris fær
frábæra dóma í tónlistartímaritinu
Gramophone fyrir flutning sinn á
þremur sinfóníum finnska
tónskáldsins Leevis Madetojas sem
Chandos-útgáfan gaf út á geisla-
disk.
Gagnrýnandi ritsins segir flutn-
ing „hinnar frábæru Sinfóníu-
hljómsveitar Islands“ hafa verið
fullan innblásturs og fer mörgum
fögrum orðum um sinfóníurnar
þrjár, sem samdar voru á árunum
1915 til 1926. Þær séu kraftmiklar,
magnaðar og ljóðrænar, og minna
um margt á verk landa Madetojas,
OPNUÐ hefur verið myndlistar-
sýning Þórodds Bjarnasonar á
Mokkakaffi á Skólavörðustíg.
Sýningin ber heitið „Tilraun til að
skapa jákvæða/neikvæða umræðu“.
Á sýningunni er eitt verk.
Líta má á sýninguna bæði sem
sjálfstæða og í samhengi við yfir-
standandi sýningu Þórodds í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg sem
ber yfirskriftina: Þing fljótandi
umræðu.
Þetta er önnur einkasýning
Þórodds en hann hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga, hér á landi sem
erlendis.
Jeans Sibelius, þótt þær séu ekki
eins myrkar.
Þá eru á geisladisknum svítur úr
ballett og óperu eftir Madetoja, sem
gagnrýnandinn segir að megi með
réttu líkja við sviðstónlist Sibelius.
„Chandos-útgáfan er framúrskar-
andi í alla staði og ég get ekki mælt
nógsamlega með henni,“ segir
gagnrýnandinn og notar ennfremur
tækifærið í umsögn um annan
geisladisk til að gagnrýna flutning
dönsku sinfóníuhljómsveitarinnar á
sex sinfóníum Carls Nielsens, sem
skorti það „tak og andrúm, sem
gerir flutning Sakaris svo eftir-
minnilegan“.
Sýningin stendur í þrjár vikur
og er opin á opnunartíma kaffi-
hússins.
-----♦♦“♦----
Tónleikum
frestað
TÓNLEIKUM Jóhanns Smára
Sævarssonar og Helgu Brjmdísar
Magnúsdóttur, sem fyrirhugaðir
voru í Digraneskirkju annað kvöld,
mánudagskvöld, er aflýst vegna
veikinda.
Jákvæð / neikvæð
umræða
http://www.simnet.is/
mannvernd
blekking
& ÞEKKING
Fundur 3. des
Norræna húsið kl 16:45 - 18:00
Héfur
©
hugleitt!!
Eriðhelgi einkalif s ?
Bersóojvemd ?
Upplýst sanþykki ?
Rétt bamsins þins ?
Rétt hinna látnu ?
Þagnarskyldu lækna ?
Trúnað við s júklinga ?
annvernd
persónuvemd og rannsóknafrelsi
S:881-7194 milli 10:00 & 13:00
Pósthólf 94 121 Rvk.
I_L
Andartak áður
en það gerist
ERLEMÐAR
REKIR
Sk:í I dsaga
NÁIÐ SAMBAND
„INTIMACY"
eftir Hanif Kureishi. Faber
and Faber 1998. 115 síður.
BRESKI rithöfundurinn Hanif
Kui-eishi er af indverskum ættum
og þekktastur íyrir kvikmynda-
handrit sín sem fjalla um breskt
alþýðufólk og kynþáttamál eins og
bersýnilegast er í íyrstu bíómynd-
inni hans, Fallega þvottahúsið mitt
eða „My Beautiful Laundrette".
Það var árið 1984. Myndin hlaut
fádæma góðar viðtökur með Daniel
Day-Lewis í aðalhlutverki og Kur-
eishi var tilnefndur til Óskai-sverð-
launanna fyrir besta handi’it. Tvær
aðrar myndir íylgdu í kjöli'arið,
Sammy og Rosie fá’ða eða „Sammy
and Rosie Get Laid“ og London
drepur mig eða „London Kills Me“
og fleiri eftir þær.
Að fara eða ekki fara,
þar liggur efinn
Kureishi hefur jöfnum höndum
ski-ifað skáldsögur, m.a. Búddha
úthverfisins eða „The Buddha of
Suburbia" og Svarta albúmið eða
„The Black Album“ og loks þessa
nóvellu hér, Náið samband eða
„Intimaeý'. Hún hefst á orðunum
„Þetta er drungalegt kvöld því ég
er á förum og mun ekki koma aft-
ur,“ og lýsir nokkrum stundum í lífi
manns þar sem hann situr á heimili
sínu og gerir það upp við sig hvort
hann eigi að stíga skrefið til fulls og
fara frá eiginkonu og tveimur börn-
um. Efinn nagar hann
ekkert síður en
Hamlet forðum og
hann veltú fyrir sér
þessari spumingu, að
fara eða ekki fara? En
hver er þessi maður
og af hverju hefur
spurningin orðið til?
Líkt og Kureishi er
hann reyndar hand-
ritshöfundur og
starfar við kvikmyndir
og nýtur bærilegrar
velgengni, að minnsta
kosti er hann tekinn
að vinna fyrir
Hollywoodmógúlana.
Hann hefur aldrei
viljað kvænast Susan en hefur verið
í sambúð með henni í mörg ár og
þau hafa eignast tvo syni. Hann á
viðhald sem heitir Nína og uppfyllir
mjög kynferðislegar þarfir hans.
Susan virðist hafa misst áhugann á
kynlífi einhvem tíma þegar líða tók
á sambúð þeirra. Vinur hans, Vict-
or, fór frá eiginkonu sinni fyrir
nokkru og hann hyggst flytja inn til
hans fyrsta kastið. Annars veit
hann ekki hvað gerist í framtíðinni.
Hann veit bara að hann er að fara
að stíga stórt skref í lífi sínu og það
verður aldrei það sama ef hann
ákveður að gefa fjölskylduna upp á
bátinn.
Að mörgu að hyggja
Hvað fer um huga manns sem
stendur í þessum sporum? Sam-
viskubit, spenna, eftirsjá, líka eftir-
vænting og jafnvel tilhlökkun að
hefja kannski nýtt líf með annarri
konu. Það er sannarlega að mörgu
að hyggja. Hann hugsar um dreng-
ina sína tvo sem munu alast upp án
föður síns. Hann
hugsar um manninn
sem jafnvel kemur
inn á heimilið síðar
sem nýi maðurinn í
lífi fyrrverandi konu
hans og verður faðir
barnanna hans. Það
er eitt að fara frá kon-
unni sinni, annað að
fara frá börnunum.
Hann hugsar um kon-
una sína, það var
aldrei mikil ástríða í
sambandinu og
kannski það sé partur
af vandamálinu. Hann
hugsar um sína eigin
foreldra og samband
þein-a. Þau skildu aldrei en það var
engin hamingja sýnileg í hjóna-
bandinu. Hann hugsar um sína
kynslóð. Við vorum síðasta
kynslóðin sem barðist fyrir
kommúnisma, hugsar hann. Svo
fór hún að græða peninga. Hann
hugsar um hjónabandsráðgjöfina
sem þau hafa leitað og fleira og
fleira, allt í þeim tilgangi að reyna
að skilja hvernig hann er kominn í
þessa stöðu.
Kureishi gerir þessu litla en
mildlvæga andartaki í lífi mannsins
ákaflega gi’einargóð skil, efanum,
samviskubitinu og hinni yfírveguðu
heimspekilegu umræðu sem hann
á við sjálfan sig. Höfundurinn
virðist snerta við flestu því sem
hægt er að ímynda sér að fari í
gegnum huga manns sem er að
taka svo örlagaríka ákvörðun og
fjallar um það af hreinskilni og
góðu innsæi. Bókin er um hjóna-
skilnað frá sjónarhóli karlmanns-
ins og ákaflega fomtnileg sem slík.
Arnaldur Indriðason
BRESKI rithöfundur-
inn, Hanif Kureishi.