Morgunblaðið - 22.11.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.11.1998, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞAU strjúka boga á streng: Junah Chung, Sigurður Halldórsson og Hlff Siguijdnsdóttir. Hafnarborg Tónleikar á höggmyndasýningu Geisladiskur Sinfóníuhljómsveitar íslands Frábær dómur í Gramophone Kjarvalsstaðir Arkitektar ræða eig- in verk ALLA sunnudaga er fræðsla og leiðsögn fyir almenning um sýning- ar Kjarvalsstaða. í dag kl. 16 munu Baldur Ó. Svavarsson og Pálmar Kristmundsson taka þátt í leiðsögn um sýninguna Norhern Factor - ný kynslóð í norrænni byggingarlist - og ræða eigin verk á sýningunni sunnudaginn 22. nóvember kl. 16. I ljósaskiptupum kl. 17 sama dag flytja Halldór Ásgeirsson, myndlist- armaður, og Snorri Sigfús Birgis- son, tónskáld og píanóleikari, tónlist og gjörning. -------------- Fyrirlestur í MHÍ PÉTUR Örn myndlistarmaður fjallar um eigin list í Laugarnesi, mánudaginn 23. nóvember, kl. 12.30. Kristín Þorkelsdóttir heldur fyr- irlestur um vatnslitamálun í Barma- hlíð, Skipholti 1, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12.30. ------♦-♦-♦--- Lapplander að gjöf SÁ sem kaupir 3.000. eintak bókar- innar Góðir Islendingar fær Volvo Lapplander að gjöf. Huldar Breiðfjörð ferðaðist í Lapplandem- um í tveggja mánaða hringferð sinni um landið á hörðum vetrar- mánuðum og spilar hann stóra rullu í bók hans. HLÍF Sigurjónsdóttir íiðluleikari, Junah Chung lágfiðluleikari og Sig- urður Halldórsson sellóleikari koma fram á tónleikum sem haldnir verða í Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Ilafnarfjarðar, sunnudaginn 22. nóvember kl. 20.30. Á tónleikunum verða flutt Strengjatríó op. 53 eftir Franz Jos- eph Haydn, Þrír Madrigalar eftir Bohuslav Martinu og Strengjatríó í G-dúr op. 9, nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven. Hlíf Sigurjónsdóttir lauk einleik- araprófí ft-á Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Björns Ólafssonar konsertmeistara. Hún stundaði framhaldsnám við háskólana í Indiana og Toronto og við Listaskól- ann í Banff. Hlíf er fastráðin við Sin- fóníuhljómsveit Islands. Junah Chung lágfiðluleikari lauk mastersgráðu frá Juilliardskólanum í New York þar sem aðalkennarar hans voru Lillian Fuchs og William Lincer. Junah hefur komið víða fram sem einleikari og leikið með ýmsum kammarhópum. Sigurður Halldórsson nam selló- leik í Reykjavík og London. Frá ár- inu 1990 hefur hann starfað sem sellóleikari og kennari hér heima. Hann gaf nýlega út hljómdisk með tónlist frá 20. öldinni. Miðasala á tónleikana verður í Hafnarborg laugardag og sunnudag frákl. 12-18. í Hafnarborg er yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar mynd- höggvara, föður Hlífar fiðluleikara. Efnt er til sýningarinnar í samvinnu við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar í tilefni af því að 90 ár eru liðin frá fæðingu listamannsins. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands undir stjórn Peters Sakaris fær frábæra dóma í tónlistartímaritinu Gramophone fyrir flutning sinn á þremur sinfóníum finnska tónskáldsins Leevis Madetojas sem Chandos-útgáfan gaf út á geisla- disk. Gagnrýnandi ritsins segir flutn- ing „hinnar frábæru Sinfóníu- hljómsveitar Islands“ hafa verið fullan innblásturs og fer mörgum fögrum orðum um sinfóníurnar þrjár, sem samdar voru á árunum 1915 til 1926. Þær séu kraftmiklar, magnaðar og ljóðrænar, og minna um margt á verk landa Madetojas, OPNUÐ hefur verið myndlistar- sýning Þórodds Bjarnasonar á Mokkakaffi á Skólavörðustíg. Sýningin ber heitið „Tilraun til að skapa jákvæða/neikvæða umræðu“. Á sýningunni er eitt verk. Líta má á sýninguna bæði sem sjálfstæða og í samhengi við yfir- standandi sýningu Þórodds í Nýlistasafninu við Vatnsstíg sem ber yfirskriftina: Þing fljótandi umræðu. Þetta er önnur einkasýning Þórodds en hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, hér á landi sem erlendis. Jeans Sibelius, þótt þær séu ekki eins myrkar. Þá eru á geisladisknum svítur úr ballett og óperu eftir Madetoja, sem gagnrýnandinn segir að megi með réttu líkja við sviðstónlist Sibelius. „Chandos-útgáfan er framúrskar- andi í alla staði og ég get ekki mælt nógsamlega með henni,“ segir gagnrýnandinn og notar ennfremur tækifærið í umsögn um annan geisladisk til að gagnrýna flutning dönsku sinfóníuhljómsveitarinnar á sex sinfóníum Carls Nielsens, sem skorti það „tak og andrúm, sem gerir flutning Sakaris svo eftir- minnilegan“. Sýningin stendur í þrjár vikur og er opin á opnunartíma kaffi- hússins. -----♦♦“♦---- Tónleikum frestað TÓNLEIKUM Jóhanns Smára Sævarssonar og Helgu Brjmdísar Magnúsdóttur, sem fyrirhugaðir voru í Digraneskirkju annað kvöld, mánudagskvöld, er aflýst vegna veikinda. Jákvæð / neikvæð umræða http://www.simnet.is/ mannvernd blekking & ÞEKKING Fundur 3. des Norræna húsið kl 16:45 - 18:00 Héfur © hugleitt!! Eriðhelgi einkalif s ? Bersóojvemd ? Upplýst sanþykki ? Rétt bamsins þins ? Rétt hinna látnu ? Þagnarskyldu lækna ? Trúnað við s júklinga ? annvernd persónuvemd og rannsóknafrelsi S:881-7194 milli 10:00 & 13:00 Pósthólf 94 121 Rvk. I_L Andartak áður en það gerist ERLEMÐAR REKIR Sk:í I dsaga NÁIÐ SAMBAND „INTIMACY" eftir Hanif Kureishi. Faber and Faber 1998. 115 síður. BRESKI rithöfundurinn Hanif Kui-eishi er af indverskum ættum og þekktastur íyrir kvikmynda- handrit sín sem fjalla um breskt alþýðufólk og kynþáttamál eins og bersýnilegast er í íyrstu bíómynd- inni hans, Fallega þvottahúsið mitt eða „My Beautiful Laundrette". Það var árið 1984. Myndin hlaut fádæma góðar viðtökur með Daniel Day-Lewis í aðalhlutverki og Kur- eishi var tilnefndur til Óskai-sverð- launanna fyrir besta handi’it. Tvær aðrar myndir íylgdu í kjöli'arið, Sammy og Rosie fá’ða eða „Sammy and Rosie Get Laid“ og London drepur mig eða „London Kills Me“ og fleiri eftir þær. Að fara eða ekki fara, þar liggur efinn Kureishi hefur jöfnum höndum ski-ifað skáldsögur, m.a. Búddha úthverfisins eða „The Buddha of Suburbia" og Svarta albúmið eða „The Black Album“ og loks þessa nóvellu hér, Náið samband eða „Intimaeý'. Hún hefst á orðunum „Þetta er drungalegt kvöld því ég er á förum og mun ekki koma aft- ur,“ og lýsir nokkrum stundum í lífi manns þar sem hann situr á heimili sínu og gerir það upp við sig hvort hann eigi að stíga skrefið til fulls og fara frá eiginkonu og tveimur börn- um. Efinn nagar hann ekkert síður en Hamlet forðum og hann veltú fyrir sér þessari spumingu, að fara eða ekki fara? En hver er þessi maður og af hverju hefur spurningin orðið til? Líkt og Kureishi er hann reyndar hand- ritshöfundur og starfar við kvikmyndir og nýtur bærilegrar velgengni, að minnsta kosti er hann tekinn að vinna fyrir Hollywoodmógúlana. Hann hefur aldrei viljað kvænast Susan en hefur verið í sambúð með henni í mörg ár og þau hafa eignast tvo syni. Hann á viðhald sem heitir Nína og uppfyllir mjög kynferðislegar þarfir hans. Susan virðist hafa misst áhugann á kynlífi einhvem tíma þegar líða tók á sambúð þeirra. Vinur hans, Vict- or, fór frá eiginkonu sinni fyrir nokkru og hann hyggst flytja inn til hans fyrsta kastið. Annars veit hann ekki hvað gerist í framtíðinni. Hann veit bara að hann er að fara að stíga stórt skref í lífi sínu og það verður aldrei það sama ef hann ákveður að gefa fjölskylduna upp á bátinn. Að mörgu að hyggja Hvað fer um huga manns sem stendur í þessum sporum? Sam- viskubit, spenna, eftirsjá, líka eftir- vænting og jafnvel tilhlökkun að hefja kannski nýtt líf með annarri konu. Það er sannarlega að mörgu að hyggja. Hann hugsar um dreng- ina sína tvo sem munu alast upp án föður síns. Hann hugsar um manninn sem jafnvel kemur inn á heimilið síðar sem nýi maðurinn í lífi fyrrverandi konu hans og verður faðir barnanna hans. Það er eitt að fara frá kon- unni sinni, annað að fara frá börnunum. Hann hugsar um kon- una sína, það var aldrei mikil ástríða í sambandinu og kannski það sé partur af vandamálinu. Hann hugsar um sína eigin foreldra og samband þein-a. Þau skildu aldrei en það var engin hamingja sýnileg í hjóna- bandinu. Hann hugsar um sína kynslóð. Við vorum síðasta kynslóðin sem barðist fyrir kommúnisma, hugsar hann. Svo fór hún að græða peninga. Hann hugsar um hjónabandsráðgjöfina sem þau hafa leitað og fleira og fleira, allt í þeim tilgangi að reyna að skilja hvernig hann er kominn í þessa stöðu. Kureishi gerir þessu litla en mildlvæga andartaki í lífi mannsins ákaflega gi’einargóð skil, efanum, samviskubitinu og hinni yfírveguðu heimspekilegu umræðu sem hann á við sjálfan sig. Höfundurinn virðist snerta við flestu því sem hægt er að ímynda sér að fari í gegnum huga manns sem er að taka svo örlagaríka ákvörðun og fjallar um það af hreinskilni og góðu innsæi. Bókin er um hjóna- skilnað frá sjónarhóli karlmanns- ins og ákaflega fomtnileg sem slík. Arnaldur Indriðason BRESKI rithöfundur- inn, Hanif Kureishi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.