Morgunblaðið - 22.11.1998, Side 24

Morgunblaðið - 22.11.1998, Side 24
24 SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, er glöddu mig á 80 ára afmœlisdegi mínum, þann 10. nóvember sl., með blómum, gjöfum og heillaóskum. Sérstakar þakkir fœri ég börnum mínum, tengdabörnum og bama- börnum fyrir gjöf og gleði, sem þau veittu mér og gerðu mér daginn þannig ógleymanlegan. Lifið heil. Inga Valfríður Einarsdóttir. Hcísqqgnqsýning Járnhósgðffi - fMceftásg&fn ^RISTALL ' HÚSGAGNADEILD Faxafeni OPIÐ SUNNUDAG KL. 13.00 - 16.00 húsgögnin - Ný sending komin Sófaborð - Borðstofuborð Stólar - Kommóður xfBfdí 7CKRISTALL og húsgagnadeild okkar Faxafeni NETIÐ LÍTILL vafí er á því, að fáar þjóðir í heiminum hafa verið eins fljótar að tileinka sér tölvutækn- ina og sú íslenzka. Það er ekki að- eins yngri kynslóðin sem orðin er tölvufær, heldur virðist þorri landsmanna meira og minna vera flæktur í Netið. Ég sá um daginn í Mogga, að Víkverji var að býsnast yfír því, að einir tólf þingmenn landsins hafi ekki vefföng og þar af leiðandi gætu landsins börn ekki sent þeim tölvupóst. Tölvupósturinn er að verða sá farvegur, sem um fer stækkandi hluti samskipta fólks í hinum vestræna heimi. Margir lærðir menn, hérna í henni Ameríku, hafa látið í ljós áhyggjur af því, að tungumálið sé að breytast vegna þess, að tölvuritarar nenni ekki að slá alla stafi ýmissa orða og búi til ný orð og orðskrípi, sem góð og gild séu tekin í tölvuheiminum. Þeir sjá tölvupóstinn sem enn eitt nauðsynlegt tímanna tákn, en með alls kyns óæskilegum hliðar- verkunum, rétt eins og bifreiðun- um fylgir umferðaröngþveiti og mengun. Einn dálkahöfundur, sem ritar í bæjarblaðið hér, var um daginn að bera saman tölvupóst og sendi- bréf. Sagði hann að það, að senda tölvupóst, væri eins og að ferðast í flugvél; hratt, hentugt, þröngt og órómantískt. En að skrifa sendi- bréf mætti líkja við að sigla á skipi; svífa seglum þöndum yfir mjúka öldudali hafsins njótandi víðáttunnar langt frá ys og þys líðandi stundar. Við keyptum okkur tölvu fyrir nokkrum árum, en erum enn ekki tengd inn á Netið. Tækið er svo til eingöngu notað við ritvinnslu og annarra „innvortis“ athafna. Við- urkennt skal, að persónulega er ég hræddur um það, að nettengd tölva komi til með að vera mikill tímaþjófur. Blessun getur það verið fyrir þá, sem hafa meiri tíma en þeir vita hvað við á að gera. Þannig hefi ég heyrt um eftir- launafólk, sem nú eyðir flestum stundum sínum fyrir framan tölv- una. Sérfræðingar í Pittsburgh hafa fundið út, að langsetur við tölvunetið auka á einmanakennd og geta valdið þunglyndi. A Is- landi er mikið af þunglyndu og Þórir S. Gröndal innhverfu fólki, svo því ætti að vera óhætt að eyða nokkrum stundum á dag við tölvuna sína. Einn alvanur tölvunetsmaður fussaði og sveiakði, þegar hann heyrði, að ég væri enn ekki búinn að tengja „mig“ inn á Netið. Sagði hann mrg ’vera eins og mann í myrkri, sem ætti góðan lampa, en hefði ekki vit á að stinga honum í samband við rafmagnið! Við tvenn áramót hefi ég strengt þess heit, að á nýja árinu ætli ég að drífa mig og tengjast alheimsnetinu. Ungur tölvufær landi, sem hér býr, hefir lofað að vera tæknilegur ráðgjafi og veitir ekki af, því þessi nýja tækni er mér að miklu leyti hulin gáta. Kannske ég geri það á næsta ári. Margir íslandsmenn, sem halda hér heimili hluta úr ári og hafa til- einkað sér tölvutæknina, nota tæki sín til þess að vera í góðu sambandi við heimalandið. Ekki einasta lesa þeir Moggann á Net- inu, heldur hlusta þeir á fréttir og allt mögulegt annað efni. Nú ku vera hægt að kaupa hér tæki, sem tengir saman tölvuna og sjónvarp- ið. Heyrt hefi ég um ein hjón, sem eiga risastórt sjónvarp, og nú hafa þau tengt tölvuna við það. Hjóna- komin halla sér aftur á bak í hæg- indastólunum sínum og lesa Morgunblaðið á risa-sjónvarps- skerminum. Bara að þau rífist þá ekki um það, hvenær á að fletta blaðsíðunum! ísland hefir vakið athygli úti í hinum stóra heimi fyrir það, hve þjóðin er tæknilega langt komin í tölvumálum og hve almenn tölvu- eign er í landinu. Tekið höfum við eftir því, að íslenzk ungmenni, sem koma til náms hér í Flórída, skilja helzt ekki við sig ferðatölv- una sína, og nota hana m.a. til þess að halda sambandi við vini og ættingja á Fróni. Einn ungur maður gisti hjá okkur í fyrra og bað hann um leyfi til þess að tengja tölvuna inn á símalínu, því hann sagðist vera viss um að hans biði einhver tölvupóstur. Sat hann svo við skjáinn og leturborðið langt fram á nótt og sagði okkur daginn eftir að 21 orðsending og bréf hefðu verið komin í póstinn sinn! í nýlegum Mogga sé ég, að ein- hver Ameríkani hyggst stofna al- þjóðlegan alnetsdómstól á íslandi. Skilst mér, að hann vilji staðsetja dómstól þennan þar vegna þess m.a. að fornmenn hafi komizt af í 300 ár án ríkisvalds en hefðu búið engu að síður við lög og reglu. A alnetinu sé einmitt ekkert ríkis- vald, segir þessi merki maður. Líklega vill hann, að íslendingar stýri umferðinni í tölvuheiminum í a.m.k. 300 ár. Svo segir hann líka, að við séum vel fallnir til starfans þvf samkvæmt vel auglýstri þýzkri könnun, sé spilling lítil í okkar fagra landi, meira að segja minni en í Ameríku, og þá er nú mikið sagt! Ekki má svo gleyma hinu stór- merka framlagi íslands til lýð- ræðismála í hinum vonda heimi, þá er upp var tekinn í haust sá háttur að varpa öllum fundum hins háa Alþingis um víða veröld á margumræddu Neti. Lítill vafi er á því, að allar lýðræðiselskandi þjóðir heimsins hafi fagnað þessu Grettistaki. Er þess vænzt að hin- ar spöku og ígrunduðu ræður þingmanna landsins geti haft góð áhrif, sérstaklega í þeim löndum þar sem lýðræði er skammt á veg komið. Hefi ég það eftir gárungum, að fyrstu dagana eftir þingsetning- una hafi orðið mikil eftirspurn eft- ir íslenzkum túlkum í stærstu borgum hér vestra og mest nátt- úrulega í Washington. Munu landsins feður og aðrir stjórn- málamenn hér hafa setið við tölv- ur sínar og drukkið í sig hvert túlkað orð sem af vörum þing- mannanna féll. Telja sumir að það sé ekki tilviljun að kosningamar í nóvember hafi snúizt demókröt- um í vil, nokkrum vikum eftir að þingfundir Islandsmanna fóru að birtast á alnetinu. 1 ÚTILÍF mm GLÆSIBÆ • S: 581 2922 www.utilif.is GDK16 l$DN §ímk#rfj fyrir h&imiU mmrri iyririmitíi á v@rdí §#m K#mur þægjl#f# á áv#fí ffi Istd. <9*6 B h iel Siðumúla 37 - 108 fieykjevik S 588,2800 - Fux 668-7447 www,í§í@Ms

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.