Morgunblaðið - 22.11.1998, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, er
glöddu mig á 80 ára afmœlisdegi mínum,
þann 10. nóvember sl., með blómum, gjöfum
og heillaóskum.
Sérstakar þakkir fœri ég börnum mínum,
tengdabörnum og bama- börnum fyrir gjöf
og gleði, sem þau veittu mér og gerðu mér
daginn þannig ógleymanlegan.
Lifið heil.
Inga Valfríður Einarsdóttir.
Hcísqqgnqsýning
Járnhósgðffi - fMceftásg&fn
^RISTALL
' HÚSGAGNADEILD
Faxafeni
OPIÐ SUNNUDAG
KL. 13.00 - 16.00
húsgögnin
- Ný sending komin
Sófaborð - Borðstofuborð
Stólar - Kommóður
xfBfdí
7CKRISTALL
og húsgagnadeild okkar
Faxafeni
NETIÐ
LÍTILL vafí er á því, að fáar
þjóðir í heiminum hafa verið eins
fljótar að tileinka sér tölvutækn-
ina og sú íslenzka. Það er ekki að-
eins yngri kynslóðin sem orðin er
tölvufær, heldur virðist þorri
landsmanna meira og minna vera
flæktur í Netið. Ég sá um daginn í
Mogga, að Víkverji var að býsnast
yfír því, að einir tólf þingmenn
landsins hafi ekki vefföng og þar
af leiðandi gætu landsins börn
ekki sent þeim tölvupóst.
Tölvupósturinn er að verða sá
farvegur, sem um fer stækkandi
hluti samskipta fólks í hinum
vestræna heimi. Margir lærðir
menn, hérna í henni Ameríku,
hafa látið í ljós áhyggjur af því, að
tungumálið sé að breytast vegna
þess, að tölvuritarar nenni ekki
að slá alla stafi ýmissa orða og búi
til ný orð og orðskrípi, sem góð og
gild séu tekin í tölvuheiminum.
Þeir sjá tölvupóstinn sem enn eitt
nauðsynlegt tímanna tákn, en
með alls kyns óæskilegum hliðar-
verkunum, rétt eins og bifreiðun-
um fylgir umferðaröngþveiti og
mengun.
Einn dálkahöfundur, sem ritar í
bæjarblaðið hér, var um daginn að
bera saman tölvupóst og sendi-
bréf. Sagði hann að það, að senda
tölvupóst, væri eins og að ferðast í
flugvél; hratt, hentugt, þröngt og
órómantískt. En að skrifa sendi-
bréf mætti líkja við að sigla á
skipi; svífa seglum þöndum yfir
mjúka öldudali hafsins njótandi
víðáttunnar langt frá ys og þys
líðandi stundar.
Við keyptum okkur tölvu fyrir
nokkrum árum, en erum enn ekki
tengd inn á Netið. Tækið er svo til
eingöngu notað við ritvinnslu og
annarra „innvortis“ athafna. Við-
urkennt skal, að persónulega er
ég hræddur um það, að nettengd
tölva komi til með að vera mikill
tímaþjófur. Blessun getur það
verið fyrir þá, sem hafa meiri tíma
en þeir vita hvað við á að gera.
Þannig hefi ég heyrt um eftir-
launafólk, sem nú eyðir flestum
stundum sínum fyrir framan tölv-
una. Sérfræðingar í Pittsburgh
hafa fundið út, að langsetur við
tölvunetið auka á einmanakennd
og geta valdið þunglyndi. A Is-
landi er mikið af þunglyndu og
Þórir S. Gröndal
innhverfu fólki, svo því ætti að
vera óhætt að eyða nokkrum
stundum á dag við tölvuna sína.
Einn alvanur tölvunetsmaður
fussaði og sveiakði, þegar hann
heyrði, að ég væri enn ekki búinn
að tengja „mig“ inn á Netið. Sagði
hann mrg ’vera eins og mann í
myrkri, sem ætti góðan lampa, en
hefði ekki vit á að stinga honum í
samband við rafmagnið! Við tvenn
áramót hefi ég strengt þess heit,
að á nýja árinu ætli ég að drífa
mig og tengjast alheimsnetinu.
Ungur tölvufær landi, sem hér
býr, hefir lofað að vera tæknilegur
ráðgjafi og veitir ekki af, því þessi
nýja tækni er mér að miklu leyti
hulin gáta. Kannske ég geri það á
næsta ári.
Margir íslandsmenn, sem halda
hér heimili hluta úr ári og hafa til-
einkað sér tölvutæknina, nota
tæki sín til þess að vera í góðu
sambandi við heimalandið. Ekki
einasta lesa þeir Moggann á Net-
inu, heldur hlusta þeir á fréttir og
allt mögulegt annað efni. Nú ku
vera hægt að kaupa hér tæki, sem
tengir saman tölvuna og sjónvarp-
ið. Heyrt hefi ég um ein hjón, sem
eiga risastórt sjónvarp, og nú hafa
þau tengt tölvuna við það. Hjóna-
komin halla sér aftur á bak í hæg-
indastólunum sínum og lesa
Morgunblaðið á risa-sjónvarps-
skerminum. Bara að þau rífist þá
ekki um það, hvenær á að fletta
blaðsíðunum!
ísland hefir vakið athygli úti í
hinum stóra heimi fyrir það, hve
þjóðin er tæknilega langt komin í
tölvumálum og hve almenn tölvu-
eign er í landinu. Tekið höfum við
eftir því, að íslenzk ungmenni,
sem koma til náms hér í Flórída,
skilja helzt ekki við sig ferðatölv-
una sína, og nota hana m.a. til
þess að halda sambandi við vini og
ættingja á Fróni. Einn ungur
maður gisti hjá okkur í fyrra og
bað hann um leyfi til þess að
tengja tölvuna inn á símalínu, því
hann sagðist vera viss um að hans
biði einhver tölvupóstur. Sat hann
svo við skjáinn og leturborðið
langt fram á nótt og sagði okkur
daginn eftir að 21 orðsending og
bréf hefðu verið komin í póstinn
sinn!
í nýlegum Mogga sé ég, að ein-
hver Ameríkani hyggst stofna al-
þjóðlegan alnetsdómstól á íslandi.
Skilst mér, að hann vilji staðsetja
dómstól þennan þar vegna þess
m.a. að fornmenn hafi komizt af í
300 ár án ríkisvalds en hefðu búið
engu að síður við lög og reglu. A
alnetinu sé einmitt ekkert ríkis-
vald, segir þessi merki maður.
Líklega vill hann, að íslendingar
stýri umferðinni í tölvuheiminum í
a.m.k. 300 ár. Svo segir hann líka,
að við séum vel fallnir til starfans
þvf samkvæmt vel auglýstri
þýzkri könnun, sé spilling lítil í
okkar fagra landi, meira að segja
minni en í Ameríku, og þá er nú
mikið sagt!
Ekki má svo gleyma hinu stór-
merka framlagi íslands til lýð-
ræðismála í hinum vonda heimi,
þá er upp var tekinn í haust sá
háttur að varpa öllum fundum
hins háa Alþingis um víða veröld á
margumræddu Neti. Lítill vafi er
á því, að allar lýðræðiselskandi
þjóðir heimsins hafi fagnað þessu
Grettistaki. Er þess vænzt að hin-
ar spöku og ígrunduðu ræður
þingmanna landsins geti haft góð
áhrif, sérstaklega í þeim löndum
þar sem lýðræði er skammt á veg
komið.
Hefi ég það eftir gárungum, að
fyrstu dagana eftir þingsetning-
una hafi orðið mikil eftirspurn eft-
ir íslenzkum túlkum í stærstu
borgum hér vestra og mest nátt-
úrulega í Washington. Munu
landsins feður og aðrir stjórn-
málamenn hér hafa setið við tölv-
ur sínar og drukkið í sig hvert
túlkað orð sem af vörum þing-
mannanna féll. Telja sumir að það
sé ekki tilviljun að kosningamar í
nóvember hafi snúizt demókröt-
um í vil, nokkrum vikum eftir að
þingfundir Islandsmanna fóru að
birtast á alnetinu.
1 ÚTILÍF
mm
GLÆSIBÆ • S: 581 2922 www.utilif.is
GDK16 l$DN §ímk#rfj fyrir h&imiU mmrri iyririmitíi á v@rdí §#m K#mur þægjl#f# á áv#fí
ffi Istd. <9*6
B h iel
Siðumúla 37 - 108 fieykjevik
S 588,2800 - Fux 668-7447
www,í§í@Ms