Morgunblaðið - 22.11.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998 29
Getur ekki verið betra að ég dreypi á
víni með mat, heima hjá börnum mín-
um og ræði um það við þau - fræði þau
um vín með þeim hætti - en að minn-
ast aldrei á það og láta þau kynnast
áfengi í gegnum einhverja landasala,
eins og Kristín nefndi?
Morgunblaðið/Arnaldur
KRISTÍN Jónsdóttir: Feluleikurinn verri en hitt. „Þetta er alveg eins og með lítii
börn. Ef þú bannar þeim eitthvað fara þau beint að gera það sem þú bannar þeim!“
(Rétt er að taka fram að þegar
hér var komið sögu hvarf Helgi af
vettvangi).
Skapti: Elst ekki fólk upp við
þetta í dag? Getur verið að böm og
unglingar haldi að svona „eigi“ að
nota áfengi? Miðað við það ítreka
ég að best væri að rætt væri um
vín inni á heimilunum og ekkert
væri athugavert við það þó að for-
eldrar hefðu það um hönd, væri
það gert skynsamlega, léttvín til að
mynda drukkið með mat.
Sigrún: „Auðvitað er sjálfsagt
að þetta sé rætt á heimilinu en það
eru bara allt of margir sem kunna
ekki að fara með það.“
Skapti: Hvers vegna?
Sigrún: „Það er góð spuming.
Þetta rekur fólk áfram í meira og
meira.“
Skapti: En ég hef þá trú að það
þurfi ekki að vera svoleiðis.
Bjöm: „Eg er hér með stefnu
ríkisstjómarinnar í fíkniefna-,
áfengis- og tóbaksvömum í desem-
ber 1996. Markmið: að uppræta
fíkniefnaneyslu barna og unglinga.
Gott. Draga stórlega úr áfengis- og
tóbaksneyslu þeirra. Fínt. Og leiðir
til þess: efla forvarnir, hefta að-
gengi, fækkun fíkniefnabrota, efla
andstöðu gegn notkun bama og
unglinga á efnunum. Þetta er allt
saman mjög gott. Mjög góð stefna.
En svo kemur á móti stefna ATVR,
sem fjármálaráðhema er fulltrúi
fyrir. Þar segir: lækka ber hlut-
fallslega verð á léttum vínum og
bjór. Auka þjónustu, lengja af-
greiðslutíma, fjölga verslunum,
bjóða út rekstur verslana, einka-
sala verði afnumin. Og svo segir,
eins og í framhjáhlaupi: efla með-
ferðarúrræði. Þetta er algjörlega
hvað á móti öðra. Þetta er ekki
hægt. Eða hvað finnst ykkur?“
Sigrún: „Auðvitað er ekki hægt
að vinna svona. Að samþykkja eitt-
hvað á hátíðisstundum en fara svo
ekki eftir því.“
Skapti: Er algjört bann á vínsölu
nauðsynlegt að þínu mati, Bjöm?
Björn: „Nei, ég tel það ekki. En
ég tel nauðsynlegt að aðgengi að
því sé heft og bæði að vínútsölu-
stöðum og krám sé stórlega fækkað
og verð hækki.“
Kristín: „I dag er aldurstakmark
20 ár til að fara í Ríkið. Krakkar
biðja því oft foreldra sína að fara
fyrir sig, og þeir gera það af því
þeir vilja ekki að krakkamir hringi
í einhvem landasala. Sjálfræðisald-
ur er 18 ára; ég er ekki að leggja til
að áfengiskaupaaldur verði lækkað-
ur niður í 18 ár en held þó að það
yrði ekki vema vegna þess að þau
fá hvort sem er vín. Ef þau byrja að
drekka er það yfirleitt áður en þau
verða tvítug.“
Sigrún: „Það er auðvitað okkar
stefna að þau byrji sem síðast. Það
er mildll munur á því ef unglingur
byrjar að drekka 18 ára en 14 ára.
Þá veit hann miklu betur hvað hann
er að gera, en fræðslan virðist þó
ekki skipta mikiu máli nema hún
nái til foreldranna, til að þeir viti
hvemig eigi að bregðast við. Allir
vita að eiturlyf era skaðleg og
áfengi getur farið út í öfgar.“
Skapti: Tekur þetta ekki bara
svolítinn tíma? íslendingar hafa
ekki kunnað að fara með áfengi...
Sigrún: „Nei, það er rétt, og eina
von okkar er sú að kynslóðin sem
nú er að alast upp sé komin á það
stig að hún viti hvað hún er að
gera.“
Skapti: Ég sagði að forboðnu
ávextirnir væru alltaf mest spenn-
andi.
Bjöm: „Víst er það og hafa verið
lengi. Mjög lengi.“
Kristín: „Það skiptir miklu máli
ef einhverjir úr vinahópnum ætla
að fara áð drekka. Þá finnst sumum
eins og þau verði að fara líka. Geti
ekki verið ein úti í homi.“
Skapti: Þau sötra ekld úr rauð-
vínsglasi. Unglingar drekka til þess
að detta fða - til þess að verða full,
ekki satt?
Bjöm: „Það er eins og það sé
mottó hjá yngra fólki að það ætli
sér að detta fða.“
Skapti: Af hveiju mótast þetta
viðhorf? Er það ekki vegna þess
hvernig næsta kynslóð, foreldrar
þeima og aðrir, haga sér? Vegna
þess að krakkamir hafa ekki verið
fræddir rétt eða jafnvel alls ekki.
Að detta í ‘ða er eitthvað sem allir
tala um og hljómar spennandi og þá
langar til að prófa.
Kristfn: „Já, það er náttúrlega
ein ástæðan og þetta skapast líka af
vinum.“
Bjöm: „Ég er ekki kunnugur
skemmtistöðum nema lítið á síð-
ustu áram, en mér hefur virst lítið
um að óáfengum drykkjum sé hald-
ið að fólki en meira gert að því að
ota áfengi að því. Og það að fara út
að skemmta sér, hvað þýðir það í
dag? Þýðir það ekki að fara út á
fyllirí?"
Kristfn: „Ég fer út að skemmta
mér, fer út að djamma..."
Skapti: Hjá sumum gerir það
það eflaust, en ég held, sem betur
fer, að þetta sé að breytast. Ég
kalla það víndrykkju að fá sér vín
með mat, en þamb hvemig íslend-
ingar umgangast iðulega áfengi og
mín skoðun er að koma þurfi í veg
fyrir það.
Bjöm: „Eftir að bjórinn var
leyfður óheftur er hann drakkinn [í
yngstu aldursflokkunum] og svo
sterkt vín í framhaldinu. Hann er
ódýrastur, því er byrjað á honum
og svo haldið áfram með sterkara."
Kristín: „Ég held að það sé voða
misjafnt. Ég er bara 19 ára en á
vini sem drekka. Sumir byrjuðu 16
ára að fá sér í glas, hafa orðið full,
en era nú orðin hundleið á því. Nú
langar þau oft að fá sér bara eitt
glas en finnst ekkert gaman að
verða full.“
Skapti: Einmitt þessu reyndi ég
að koma á framfæri í sumar. Að
það sé ekki eftirsóknarvert að
drekka vín þannig að fólk verði
mjög ölvað? Slíkt hefur tíðkast
lengi en unga fólkið sér að það er
orðið úrelt, ef svo má segja. Menn
þurfa auðvitað ekki að drekka vín
en ég hef skrifað - og fer ekki ofan
af því - að með góðri máltíð er gott
að fá sér víntár. Og það þarf ekki
alltaf að leiða til þess að viðkom-
andi haldi áfram.
Bjöm: „Hve marga getur þú,
með þínu gullna, fallega fordæmi,
leitt út í að falla og fara niður?“
Skapti: Verður ekld hver og einn
að sjá um sjálfan sig? Verður ekki
að treysta einstaklingunum?
Bjöm: „Snemma var talað um
forboðna eplið en líka snemma
spurt: Á ég að gæta bróður míns?“
Kristín: „Mikið hefur verið talað
um að ungir krakkar séu blindfullir
í miðbænum. Þegar ég labba þar
um er fullorðna fólkið að koma út af
skemmtistöðunum; það er fólkið
sem veltur um og er miklu verra en
unglingamir."
Skapti: Fordæmið er einmitt
slæmt. Unglingamir hafa fullorðna
fólkið fyrir augunum og halda jafn-
vel að svona fari áfengi alltaf með
fólk. Þetta er fræðslan! Ástandið
hefur þó blessunarlega breyst mik-
ið; nú er algengt að fólk setjist inn
á kaffihús og fái sér eitt rauðvíns-
glas.
Sigrún: „Það er líka mikið til af
mjög góðum foreldram - þeir eru
að batna. Það gengur auðvitað ekki
að ala næstu kynslóð upp á sama
hátt.“
Skapti: Þess vegna velti ég því
fyrir mér í pistlunum í sumar
hvaða leið væri best. Algjört bind-
indi, eða að reyna að kenna fólki
hófdrykkju? Ég ítreka að ekki
þurfa alUr að drekka, en ég vil
fræða. Finnst ykkur það vitlaust að
fræða unglinga á þann hátt frekar
en tala hugsanlega aldrei um
áfengi?
Björn: „Fordæmisleiðin er eina
leiðin sem gildir.“
Skapti: Þú vilt helst enga
drykkju. Getur ekki verið betra að
ég dreypi á víni með mat, heima
hjá bömum mínum og ræði um það
við þau - fræði þau um vín með
þeim hætti - en að minnast aldrei á
það og láta þau kynnast áfengi í
gegnum einhverja landasala, eins
og Kristín nefndi? Þau sjá að mér
líður vel, er sallarólegur og ég held
áfram að njóta kvöldsins með þeim
þó ég hafi drakkið vín með matn-
um?
Kristín: „Það er ekki gott að fela
þetta fyrir börnunum. Það er
verra. Feluleikurinn er miklu verri
en hitt. Mér finnst mun betri leið
að ræða um málið.“
Skapti: Þess vegna hef ég á til-
finningunni - með fullri virðingu
fyrir ykkur - að aðferðirnar geti
verið rangar. Mætti ekki aðeins
breyta þeim og ná þannig eyram
fleiri, jafnvel miklu fleiri?
Sigrún: „Við eram auðvitað bara
hópur sem hefur valið þennan lífs-
stíl. Okkur líkar hann vel og eram
ekkert að kássast upp á hóf-
drykkjufólk. Það er ekki aðal
vandamálið okkar. Við viljum helst
að unglingarnir vaxi upp í friði án
þess að þeir hafi þessar fyrirmynd-
ir, sem verið er að tala um í dag.“
Skapti: Ofdrykkjan er auðvitað
það sem þið viljð stöðva, og mál-
flutningur minn í sumar var á
sömu lund...
Björn: „Ofdrykkjan er það sem
við viljum stöðva og ef okkur tekst
að stöðva hana, stöðva drykkju-
skapinn, er um leið hálfur - ég segi
ekki allur - en hálfur sigur unninn í
baráttunni gegn sterkari vímuefn-
um. Áfengið er óumdeilanlega
hættulegasti vímugjafinn."
JDY
lMý jólasending
vikulega
VERO MODA
Laugavegi 95-97 sími 552 1444 Kringlan sími 568 6244