Morgunblaðið - 11.12.1998, Side 6

Morgunblaðið - 11.12.1998, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Breytingar á 5. grein laganna um stjórn fískveiða og breytt kerfí fískveiðisljórnunar Eins Iitlu breytt og unnt reyndist Með lagafrumvarpi sjávarútvegsráðherra, sem lagt var fram á þriðjudag, er látið við það sitja að taka á því sem óhjákvæmilegt var eftir dóm Hæstaréttar. Páll Þórhallsson veltir fyri sér stöðunni sem kemur uppefekkert annað verður að gert. VIÐBRÖGÐ lögfræðinga við dómi Hæstarétt- ar síðastliðinn fímmtudag í máli Valdimars Jó- hannessonar gegn íslenska ríkinu hafa verið í megindráttum þrenns konar. Til eru þeir sem hafa talið að hann snerti eingöngu 5. gr. lag- anna um stjórn fískveiða, þ.e.a.s. um almenn veiðileyfi. Aðrir telja að í dómnum séu mjög skýrar vísbendingar um að hann kalli á meiri breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, það verði sem sagt að breyta reglum um úthlutun veiðiheimilda þannig að fleíri fái notið en nú er. Loks eru þeir til sem játa því að dómurinn varði fleira en 5. gr. Hins vegar hafi Hæstirétt- ur farið út af sporinu með því að ganga svona langt. Því eigi Alþingi að láta á það reyna hvort Hæstiréttur heggur aftur í sama knérann. Frelsi um leiðir Dómurinn hefur verið birtur í Morgunblað- inu og hann er ekki flóknari en svo að hver og einn ætti að geta myndað sér skoðun á því hvað hann felur í sér. Má ætla að flestir viður- kenni að í dómnum era ummæli um núverandi fiskveiðistjórnunai-kerfi sem hefðu verið óþörf ef meiningin var ekki önnur en sú að hrófla við 5. gr. Það er ekki fjarri lagi að álykta að Hæstiréttur hafi gengið eins langt í að senda skilaboð til Alþingis eins og hægt var miðað við það hvernig hann afmarkaði sakarefnið, sem kallað er. Frá öðra sjónarhorni var Hæstirétt- ur að þreifa á andstæðingnum, tók á mjög af- mörkuðu efni en gaf til kynna að sömu sjónar- mið ættu við um miklu stærra svið. Dómurinn er í raun sömu ættar og dómar frá til dæmis þýska stjómlagadómstólnum og Mannréttindadómstól Evrópu þar sem því er lýst yfir að tiltekið fyrirkomulag löggjafar standist ekki stjórnarskrá eða aðrar grann- reglur. Löggjafinn fær hins vegar frest til þess að kippa málum í liðinn. Hann hefur frelsi um leiðh- en nást verður markmiðið um að jafn- ræðis og atvinnufrelsis sé gætt auk almennra stefnuyfirlýsinga um hagkvæmni og sameign þjóðarinnai- á fiskimiðum. Til þess að ná ör- ugglega eyrum þeirra sem hafa ráð þjóðarinn- ar í hendi sér var velt við einu fremur veigalitlu lagaákvæði. Kvótakerfið er einmitt gott dæmi um svið löggjafar þar sem dómstólai- eru í ákaflega erf- iðri aðstöðu til að gera meira en einmitt þetta, þ.e. benda á hvenær grundvallarreglur hafi verið virtar að vettugi og beina því til lög- gjafans að reyna betui'. Dómstólar geta ekki farið að úthluta kvóta svo dæmi sé tekið til þeirra sem fram hjá hefur verið gengið í núver- andi fiskveiðistjórnunarkerfi. Við hvað í ósköp- unum ætti að miða? Hins vegar má búast við því að þeir ógildi ráðstafanir stjórnvalda og lýsi lagaákvæði ómerk alveg þangað til fyrr- greindum kröfum stjómarskrárinnar hefur verið fullnægt. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að taka glímu- tökin og skilja dóm Hæstaréttar frá síðastliðn- um fimmtudegi á þrengsta mögulega hátt, þ.e.a.s. að einungis þurfi að rýmka um skilyrði fyrir því að menn geti öðlast almennt veiðileyfi. Það breytir ekki því að til að komast í auðlind- ina þaií að kaupa veiðiheimildir af þeim sem fyrir eru, gi'eiða veiðaleyfagjald til samkeppn- | isaðila ef svo má að orði komast. Hin fyrirfar- andi tálmun er minni, svo notuð séu hugtök úr dómnum, en ójafnræðið er enn fyrir hendi. Ef j frumvarpið verður að lögum með þessu sniði og Alþingi bætir ekki úr þá mun koma upp mjög athyglisverð staða út frá sjónarhóli sam- spils dómstóla og annarra greina ríkisvaldsins. Ekki þarf að efast um að það mun koma til Hæstaréttar mál þar sem reynir aftur á aðra þætti fiskveiðistjórnunarkerfisins. Er það vegna þess að með dómnum í máli Valdimars var opnuð leið fyrir menn að láta reyna al- L mennt á fiskveiðistjórnunarlöggjöfina. Þrekraun Þá verður spurt hvort Hæstiréttur lætur kné fylgja kviði. Stendur hann fast á sínu og knýr löggjafann til að endurskoða úthlutun veiðiheimilda út frá þeim sjónarmiðum sem fram komu í dómsforsendunum? Vegna þess hve gífurlegir hagsmunir eru í húfi kynnu þá að vera í uppsiglingu einhver mögnuðustu átök dómsvalds og annaraa greina ríkisvaldsins sem dæmi eru um á síðari tímum. Ef Hæsth'éttui’ i lætur hins vegar hér við sitja þá yrði dómurinn frá síðastliðnum fimmtudegi ekkert annað en stormur í vatnsglasi. 50 ára afmælishátíð Mannréttindayfir- lýsingar Sameinuðu þjóðanna Stuðlað að um- burðarlyndi manna á meðal HÁTÍÐARDAGSKRÁ í tilefni 50 ára afmælis Mannréttindayfirlýsing- ar Sameinuðu þjóðanna fór fram að viðstöddu fjölmenni í Tjamarsal Ráðhúss Reykjavíkur í gær. Skemmtiatriði fyrir unga sem aldna voru flutt og erindi um áhrif mann- réttindayfirlýsingarinnar á íslandi. Áður en málfundur um áhrif mann- réttindayfirlýsingarinnar hófst í Tjarnarsal var mannréttindafélagið Fjölbreytni auðgar stofnsett. í stofn- samþykkt félagsins segir að mark- mið þess sé að vinna að jafnrétti á Islandi og að fyrirbyggja misrétti á grundvelli kynþáttar, litarháttar, þjóðernis, upprana, trúarbragða eða annarra aðstæðna. Tíu mínútna töf varð á setningu málfundarins, sem átti að hefjast að lokinni stofnun félagsins, vegna framígripa Ástþórs Magnússonar og stuðningsmanna hans, sem ekki vildu una auglýstum fundarsköpum. Var lögreglulið kvatt á vettvang, en þurfti ekki að grípa til aðgerða. Ást- þór og fylgismenn beindu spjótum sínum einkum að Halldóri Ásgríms- syni utanríkisráðherra. Ávörp á málfundinum fluttu Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Gréta Gunnarsdóttir lögfæðingur og Davíð Þór Björgvinsson, formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Há- skóla Islands. Lýsti ráðhen-a meðal annars hvemig íslendingar hefðu komið að ýmsum alþjóðasamþykktum um mannréttindamál ■ og tekið afstöðu gegn bamaþrælkun, mansali og fleiru. Hann sagði styrk mannrétt- indabaráttu felast í styrk fjölda fólks, sem hætti lífi sínu í baráttu fyrir mannréttindum, sem flestum þættu sjálfsögð. Ráðherra bárust ýmsar fyrirspumir úr sal um mann- réttindi erlends verkafólks á íslandi, jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og ennfremur barst honum skrifleg umsókn Ástþórs Magnússonar um viðskiptaleyfi við Irak. í ávarpi sínu sagði Gréta Gunnars- Morgunblaðið/Ásdfe DAGSKRÁIN hófst um nónbil með skemmtiatriðum og stóð fram eftir kvöldi í Tjarnarsal Ráðhússins að viðstöddu fjölmenni. dóttir að ástæða væri til að staldra við og hugleiða hvort breytingar í ís- lensku þjóðfélagi, sem átt hefðu sér stað á liðnum árum krefðust ertdur- skoðunar á einhverjum þáttum þjóð- félagsins. „Er nægilega vel hugað að ís- lenskukennslu og kennslu í móður- máli barna sem hingað flytja?“ spurði hún. Hún spurði hvað væri gert til að koma í veg fyrir einangr- un þeirra og hvort fjölmiðlar væru sér meðvitandi um þá ábyrgð sem fylgdi því að fjalla um fólk af mis- munandi upprana. „Gerir forvarnar- starf lögreglu ráð fyrir ólíkum þjóð- félagshópum og svo mætti lengi telja?“ sagði hún. Sagði Gréta að sér fyndist hafa farið heldur lítið fyrir mannréttindaumræðu hérlendis í gegnum árin. „Heilbrigð mannréttindaumræða og sjálfsskoðun er nauðsynleg. Sjálf hef ég orðið vör við gífurlega for- dóma eftir að ég flutti heim sumarið 1997. í daglega lífinu hef ég heyrt orðanotkun eins og niggaraferðir þar sem mér skildist að viðkomandi væri að tala um ódýrar pakkaferðfr til útlanda, júða og hunda Tyrkja. Og þeir sem þetta er haft eftir voru ekki menn sem í daglegu tali myndu flokkast undir götustráka heldur menn sem maður hélt að væra vel upplýstir.“ Fullveldi einstakra ríkja skert með mannréttindasáttmálum Davíð Þór Björgvinsson sagði að með mannréttindayfirlýsingunni og öllum þeim mannréttindasáttmálum TÁKNMÁLSTÚLKUR túlkaði alla dagskrárliði, þar á meðal ávarp utanríkisráðherra og ennfremur sat rittúlkur í sal, og varpaði töluðu máli upp á tjald. sem af henni leiddu væri „fullveldi" einstakra ríkja í vissum skilningi skert. „En vegna hinna alþjóðlegu sáttmála, þeirra sem lögfestir eru og þeirra sem era það ekki, er tilhneig- ing til þess við túlkun ákvæða stjórn- arskrárinnar að hafa hliðsjón af þessum sáttmálum. Þannig er stuðl- að að því og eftir atvikum betur tryggt að við túlkun og afmörkun þessara réttinda í innanlandsréttin- um hefur alþjóðleg skilgreining og afmörkun réttindanna þýðingu. Afleiðingin er sú að minna svigrúm verður fyrir stjórnvöld og dómstóla einstakra ríkja til að móta og skil- greina inntak þessara réttinda í sam- ræmi við sínar eigin lagahefðir," sagði Davíð Þór meðal annars í rök- stuðningi sínum. Skemmtidagskrá hófst að loknum málfundinum þar sem félagsmiðstöð- inni í Frostaskjóli voru afhent verð- laun fyrir bestu myndaröðina í Ijós- myndamaraþoninu „Öll mannrétt- indi handa öllum“. Fram komu einnig tónlistarmenn sem fluttu tón- list fram eftir kvöldi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.