Morgunblaðið - 11.12.1998, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Sorpsamlag Eyjafjarð-
ar og Akureyrarbær
Umhverfís-
fræðingur
ráðinn
fljótlega
ALLS bárust 10 umsóknir um starf
umhverfisfræðings hjá Sorpsamlagi
Eyjafjarðar og Akureyrarbæ en
stefnt er að því að ráða í stöðuna til
tveggja ára.
Umsækjendur eru: Baldur Gunn-
laugsson, Guðmundur Sigvaldason,
Jóhannes Arnason, Sonja S.
Gústafsdóttir og Valur Þ. Hilmars-
son, öll á Akureyri, Ómar Banine,
Blönduósi, Ragnar B. Pálsson,
Reykjavík, Albert S. Sigurðsson,
Finnlandi, Gunnar H. Kristinsson,
Danmörku, og Hafdís Hjálmars-
dóttir, Þýskaiandi.
Sigríður Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri stjórnsýslu- og upp-
lýsingasviðs Akureyrarbæjar, sagði
sérstaklega ánægjulegt hversu
margar og góðar umsóknir bái'ust.
Hún sagði stefnt að því að ráða í
stöðuna í lok þessa mánaðar eða í
byrjun þess næsta.
Starfssvið umhverfisfræðings lýt-
ur m.a. að stjómun verkefnis um
umhverfísáætlanir, skipulagningu
fræðslu um umhverfísmál, sam-
starfí við almenning, félagasamtök
og fyriræki og aðstoð við sveitar-
stjórnir á svæði Sorpsamlags Eyja-
fjarðar.
------------
Aðventukvöld í
Dalvíkurkirkju
AÐVENTUKVÖLD verður haldið í
Dalvíkurkirkju sunnudagskvöldið
13. desember og hefst það kl. 20.30.
Sr. Hulda M. Helgadóttir flytur
hugleiðingu, Barnakór Dalvíkur-
skóla syngur undir stjórn Sigrúnar
Ásgeirsdóttur, Kór Dalvíkurkirkju
syngur undir stjórn Hlínar Torfa-
dóttur. Almennur söngur og einnig
verður lesin jólasaga. Kaffí verður á
könnunni á eftir.
Morgunblaðið/Kristján
S
Islenskt
handverk á
Steinhólum
SÝNING á íslensku handverki af
ýmsu tagi verður opnuð á Stein-
hólum í Eyjafjarðarsveit í dag,
föstudaginn 11. desember, og
verður hún opin fram til jóla frá
kl. 13 til 21 daglega.
A sýningunni kennir margra
grasa, tréverk, málverk, málaðir
steinar og munir úr horni svo
eitthvað sé nefnt og eru hand-
verksmennirnir bæði af heima-
slóð og einnig lengra að.
^ Á myndinni er Kristján
Óskarsson innan um muni á sýn-
ingunni.
FSA og Starfsmannafélag Akureyrarbæjar
Nýr vinnustaðasamn-
ingur undirritaður
FULLTRÚAR Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, FSA og Starfs-
mannafélags Akureyrarbæjar,
STAK, undimtuðu nýjan vinnu-
staðasamning í vikunni og er þar
um að ræða útfærslu á kjarasamn-
ingi í nýtt launakerfi. Samningurinn
nær til um 300 starfsmanna FSA í
nánast öllum starfsgi-einum og gild-
ir frá 1. aprfl sl. til 30. apríl árið
2000. Áður hafði STAK undirritað
sambærílega samninga við Heilsu-
gæslustöðina á Akureyri og Verk-
menntaskólann á Akureyri.
í kjarasamningi STAIi og ríkisins
frá síðasta ári voru aðilar sammála
um að taka upp nýtt launakerfi er
taki gildi 1. apríl 1998. Aðlögunar-
nefndir FSA og STAK eru sammála
um markmiðið með samkomulaginu
sé að launakerfíð verði sveigjanlegra
og skilvirkara en eldra kerfí og taki í
auknum mæli mið af þörfum og
verkefnum stofnana og starfsmanna
þehra. Jafnframt að ákvarðanir um
launaröðum séu teknar með mál-
efnalegum hætti.
Arna Jakobína Björnsdóttir, for-
maður STAK, sagði að með þessari
yfirfærslu í nýtt launakerfí væri
verið að skipuleggja hlutina upp á
nýtt og að breytingin þýddi að
starfsfólk fengi einhverja kaup-
hækkun.
Launahækkunin 12-15%
Halldór Jónsson, framkvæmda-
stjóri FSA, sagði að launahækkunin
væri á bilinu 12-15%. Hann sagði
hins vegar ekki hafi enn verið tekið
tillit til þessara breytinga á fjárlög-
um. „Það var ekki hægt að halda
þessu fólki lengur frá útfærslu
kjarasamnings og ég vonast því til
að hlutirnir komi til með að ganga
upp,“ sagði Halldór.
Ai-na Jakobína sagðist ánægð
með að samningurinn væri í höfn.
Hún sagði ástæðuna fyrir því að
ekki var skrifað undir fyrr en í vik-
unni vera þá, að samningagerðin
hafi tekið nokkurn tíma, auk þess
sem aðilar hafi ekki farið að tala
saman af alvöi-u fyrr en í október
sl.
Betri endurskoðun á starfinu
„Við leggjum áherslu á að þetta
nýja launakerfi fái að þróast áfram
á jákvæðan hátt, bæði fyrir starfs-
menn og FSA og að báðir aðilar hafi
hag af. Þetta launakerfi býður upp á
það að starfsfólk getur fengið mun
betri endurskoðun á starfí sínu en
áður. Félagið er þar með einnig
með formlegum hætti komið með
samstarfsnefnd við stofnunina, en
áður töluðum við saman í gegnum
fj ármálaráðuneytið.“
:
Morgunblaðið/Kristján
NEMAR á 1. ári í hjúkrunarfræði tóku próf á Akureyri og ísafirði í gær með aðstoð fjarkennslubúnaðar.
Próf með aðstoð
fj arkennslubúnaðar
Jólaundir-
búningur í
Gamla bæn-
um í Laufási
STARFSDAGUR á aðventu í Lauf-
ási verður haldinn á sunnudag, 13.
desember, og hefst hann með helgi-
stund í kirkjunni kl. 13.30. Að henni
lokinni hefst dagskrá í Gamla bæn-
um þar sem fram fer jólaundirbún-
ingur eins og tíðkaðist hér á landi
fyrir 100 árum.
I baðstofu verður fólk við iðju
sína, kertagerð, tóvinnu og þar
verður einnig skorið út laufabrauð.
I eldhúsi verður laufabrauðið steikt
og á hlóðum sýður hangikjötið og
gefst gestum færi á að bragða á því.
I stofunni verður setið við að útbúa
jólaskraut og þar verður sýnishorn
af jólabrauði eins og tíðkaðist á
borðum.
Starfsfólk Minjasafnsins á Akur-
eyri hefur tekið saman smábækling
um jólahald á íslandi á fyrri tímum
og geta gestir fengið hann keyptan
fyrir 100 krónur. Einnig verður
boðið til kaups heitt kakó og pipar-
kökur og eru það nemendur grunn-
skólans á Grenivík sem annast þær
veitingar.
Heyrst hefur af ferðum jóla-
sveina á þessum slóðum og ættu
þeir að verða á hlaðinu í Laufási um
kl. 14.30. Munu þeir drífa unga sem
eldri með sér í hringdans kringum
jólatré sem er fyrir framan Gamla
bæinn.
Aðgangseyrir að hátíðinni er 200
krónur fyrir eldri en 12 ára en
ókeypis fyrir þá sem yngri eru.
NEMENDUR á 1. ári í hjúkrunar-
fræði við heilbrigðisdeild Háskól-
ans á Akureyri þreyttu í gær próf
með aðstoð Qarkennslubúnaðar,
en þetta eru fyrstu próf sinnar
tegundar við háskólann. Nemend-
urnir eru að ljúka fyrsta misseri
þar sem kennt er í einu nemend-
um á Akureyri og Isafirði, alls
eru þeir 35 og stunda 9 þeirra
nám á ísafirði.
Alls verða fimm próf tekin með
þessum hætti, en próf hjúkrunar-
fræðinemanna eru svokölluð sam-
keppnispróf þar sem 35 nemend-
ur keppa um 30 sæti á næsta
misseri. Samningur um fjar-
kennslu kveður einnig á um að
minnst 5 nemendur séu við nám á
ísafirði. Elsa B. Friðfinnsdóttir,
forstöðumaður heilbrigðisdeildar,
sagði að mikið álag væri á nem-
endum vegna samkeppninnar um
að komast áfram. „Þetta er gífur-
leg pressa," sagði Elsa. Ástæðu
þess að ekki er unnt að hafa fleiri
nemendur en 30 sagði hún vera
að í verknámi á 3. og 4. ári í sér-
greinum hjúkrunarfræðinnar
kæmust ekki fleiri nemar að á
sjúkrahúsunum, einkum á smærri
deildum, s.s. geð- og barnadeild-
um. Þrýst hefur verið á skólana
að fjölga nemum en skoriur er á
hjúkrunarfræðingum, en leysa
þarf úr ýmsum málum áður en
það verður hægt.
Þar sem mikið er í húfi þurfti
að mörgu að hyggja áður en próf
hófust. Þannig fengu allir nem-
endur möppu með prófnúineri
sem þeir svo merkja inn á úr-
lausnir sínar, kennari veit því
ekki hver á viðkomandi prófúr-
lausn fyrr en búið er að yfirfara
lausnir og skila þeim inn á skrif-
stofu háskólans. Fjarbúnaðurinn
var í gangi meðan á prófinu stóð
og gátu nemendur á Isafirði
þannig gefið kennara til kynna
vildu þeir fá aðstoð. Þá brá kenn-
ari sér út úr prófstofunni á Akur-
eyri og hafði samband við við-
komandi nemanda um GSM-síma.
„Við höfum þannig með öllum
ráðum reynt að koma í veg fyrir
að annar liópurinn búi við betri
aðstæður en hinn. Mér sýnist
þetta hafa gengið vel,“ sagði Elsa
eftir prófið í gær.
Fyrirkomulag kennslunnar
hefur ýtt kennurum út í að nú-
tímavæðast í kennsluháttum að
sögn Elsu og hafa nemendur
einnig grætt á því, en með því að
skoða á Netinu hvað liggur fyrir í
næstu kennslustund hafa þeir
undirbúið sig betur og skoðana-
skipti eru meiri.
Byggðamál
Sem fyrr segir stunda 9 nem-
endur námið á ísafirði, en að fjöl-
skyldum þeirra meðtöldum er um
að ræða 30-40 manna hóp, um 1%
íbúa ísafjarðar. „Ef þetta
námstilboð hefði ekki verið fyrir
hendi stefndi í að þetta fólk hefði
þurft að flytja burt til að stunda
námið, þannig að þetta er mikil-
vægt skref í byggðamálum,"
sagði Elsa.
Blómaval
Giljagaur
gefur
pakka
GILJAGAUR kemur í heimsókn
í Jólalandið í Blómavali á Akur-
eyri í dag, föstudaginn 11. des-
ember, og verður þar frá kl. 17
til 18, en hann verður á staðnum
alla daga fram til jóla á þessum
sama tíma.
Að þessu sinni hefur hann með
í för gjafapoka mikinn sem inni-
heldur ýmsan skjólfatnað sem
ætlaður er stríðshrjáðum börn-
um úti í heimi. I samvinnu við
Blómaval, Glófa og Kassagerðina
gefur Giljagaur öllum þeim börn-
um sem heimsækja hann í Jóla-
landið jólapakka sem hann
mælist til að börnin fari með að
„Jólatré allra barna“ á Norður-
pólnum og afhendi pakkann í
jólapakkasöfnun Norðurpólsins.
Góðir hálsar
í Dalvíkur-
kirkju
BARNAKÓRINN Góðir hálsar
heldur tónleika í Dalvíkurkirkju
á morgun, laugardaginn 12. des-
ember kl. 16.
Á efnisskránni eru jólalög frá
ýmsum löndum og ýmsum tím-
um. Kórinn sem starfræktur hef-
ur verið við Húsabakkaskóla í
Svarfaðardal á þriðja ár stefnir á
ferð til Finnlands með vorinu.
Þar mun hann taka þátt í barna-
kóramóti í Helsinki og syngja
tónleika í Borgá sem er vinabær
Dalvíkur. Enginn aðgangseyrir
er að tónleikunum á laugardag
en við útganginn er tekið á móti
styrktarframlögum sem renna í
fararsjóð. Einnig verður selt
kaffí gegn vægu verði í safnaðar-
heimilinu eftir tónleikana. Kór-
inn stendur í ströngu þessa dag-
ana við að syngja jólalög fyrir
starfsmenn fyrii'tækja og stofn-
ana sem þess óska enda fátt bet-
ur fallið en fallegur barnasöngur
til að koma mönnum í jólaskap.
Stuðmenn
á Akureyri
STUÐMENN leggja land undir
fót um helgina og verða á Akur-
eyri á föstudag, fyrst á tónleik-
um í Kompaníinu sem áður hét
Dypheimar, og síðan í Sjallanum.
Á laugardag mun sveitin árita
nýju plötuna Hvílík þjóð! í
Bókval kl 16, síðan koma Stuð-
menn fram á styrktarsarnkomu
fyrir börn frá Bosníu í Iþrótta-
skemmunni kl. 21 og síðan verð-
ur klykkt út með stórdansleik í
Sjallanum á laugardagskvöldið.
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli í Svalbarðskirkju kl.
11 á morgun, laugardag. Kirkju-
skóli í Grenivíkurkirkju kl. 13.30
á morgun, laugardag. Helgi-
stund í Laufáskirkju kl. 13.30 á
sunnudag, í upphafí dagski'ár í
Gamlabænum. Aðventukvöld
verður í Grenivíkurkirkju kl.
20.30 á sunnudagskvöld, 13. des-
ember, með fjölbreyttri dagskrá.
Ræðumaður er Halldóra Bjai’na-
dóttir hjúkrunarfræðingur.
Aðventukvöld
í Glerárkirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í
Glerárkirkju sunnudagskvöldið
13. desember og hefst það kl.
20.30. Kristinn G. Jóhannsson
listmálari flytur aðventuhugleið-
ingu. Að venju verður mikill
söngur, en kór Glerárkirkju
ásamt bamakór syngja. Hátíð-
inni lýkur með ljósaathöfn.