Morgunblaðið - 11.12.1998, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hlutafjárútboð í Fram - Fótboltafélagi Reykjavíkur hf. hefst á mánudag
Hlutabréf í boði fyrir 30
milljónir á genginu 1,15
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Fram
verður fyrsta íslenska íþróttafélagið
sem fer á hlutabréfamarkað en
hlutafjárútboð í félaginu fyrir 30
miljónir króna á nafnvirði á genginu
1,15 hefst á mánudag. Hlutafélagið
Fram - Fótboltafélag Reykjavíkur
hf. hefur verið stofnað til þess að
fjármagna endurskipulagningu í
knattspyrnustarfsemi félagsins. í
fjögurra ára rekstraráætlunum er
stefnt á að félagið snúi 5,7 milljóna
króna taprekstri í 8,7 milljóna króna
hagnað eftir skatta árið 2001.
I hlutafjái-útboði Fótboltafélagsins
verður hverjum kaupanda heimilt að
skrá sig fyrir hlutabréfum fyrir allt
að einni milljón ki-óna að nafnvirði.
Verðbréfastofan hf. og Kaupþing hf.
munu annast sölu bréfanna og verður
sölutímabilið frá 14. desember til 31.
desember. Kaup á hlutabréfúm eru
frádráttarbær frá skatti. Stjórn
Fram hyggst sækja um skráningu fé-
lagins á Vaxtarlista Verðbréfaþings
íslands snemma árs 1999.
Skuldir knattspyrnudeildar Fram
nema nú um 45 milljónum króna en
félagið tapaði umtalsverðum fjár-
hæðum er liðið lék í 2. deild árið
1996. Með stofnun Fram - Fótbolta-
félags Reykjavíkur, sem tekur yfír
rekstur meistaraflokks og 2. flokks
deildarinnar, verður starfsemi
knattspyrnudeildar endurskipulögð.
Hlutafé hlutafélagsins, sem er
skuldlaust, er 44,5 milljónir króna.
Aðalsjóður Fram á ráðandi hlut í
hlutafélaginu og ef hlutaféð selst í
útboðinu verður hlutur aðalstjórnar
60% en hlutur annarra 40%.
Stefnt á meistaratitil
árið 2001
Gerð hefur verið rekstraráætlun
hlutafélagsins til fjögurra ára sem
felur í sér að rekstrartekjur aukist
úr 27 milljónum króna árið 1997 í
78,8 milljónir króna árið 2002. í
rekstraráætlun hlutafélagsins er
gert ráð fyrir að rekstur þess skili
hagnaði upp á 8,7 milljónir króna
eftir skatta í lok tímabilsins. Á þess-
um tíma stefnir félagið að því að ná
3. sæti á næsta ári og meistaratitli
árið 2001 auk góðs árangurs í bikar-
keppni og Evrópukeppnum. Á tíma-
bilinu er einnig stefnt að því að
Yfirlit yfir rekstur knattspyrnudeildar Fram árin 1994-1997
og rekstraráætlun Fótboltafélags Reykjavíkur hf. 1999-2002
Allar upphæðir
eru í milljónum króna
Knattspyrnudeild Fram
w
1994 1995 1996 1997
Reykjavíkur hf.
1999 2000 2001 2002
Framlög og styrkir 1,0 3,0 2,6 3,1 4,2 4,4 5,0 5,1
Tekjur af knattspyrnumótum 5,3 6,8 2,8 5,4 10,4 14,2 18,7 44,1
Auglýsingatekjur 12,0 5,5 3,7 4,2 11,6 13,1 13,4 17,9
Húsa- og vallarleigutekjur 0 3,0 4,7 4,0 - - - -
Sölustarfsemi 6,7 4,4 4,0 3,3 4,5 5,5 5,5 7,5
Aörar tekjur 6,0 17,1 9,3 4,5 3,1 7,6 12,6 2,6
Eigin fjáröflun 2,0 2,8 2,6 2,5 1,6 1,6 1,6 1,6
Rekstrartekjur samtals 33,0 42,7 29,7 27,0 35,4 49,4 56,7 78,8
Rekstrargjöld samtals 30,3 38,5 35,6 29,4 36,9 44,3 48,7 63,5
Fjármagnsgjöld (2,0) (2,0) (2,8) (3,3) 1,6 0,8 0 0
Greiðsla til knattspyrnudeildar - - - - - (0,6) (0,8) (1,5)
Tekju- og eignarskattar - - - - 0 (1,9) (2,6) (5,0)
Hagnaður (tap) ársins 0,6 2,2 (8,7) (5,7) 0 3,4 4,6 8,7
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HLUTAFJÁRÚTBOÐ í Fram - Fótboltafélagi Reykjavíkur hf. var
kynnt á blaðamannafundi í gær. Á fundinum kom fram að félagið
stefnir að meistaratitli árið 2001.
fjölga áhorfendum í 1.500 að meðal-
tali á hvern heimaleik, en það er
sambærilegt og áhorfendafjöldinn
var hjá félaginu um 1990 þegar það
náði sem bestum árangri. Einnig er
stefnan að selja leikmenn til liða í
Evi’ópu.
„Talsverð áhætta“
Stefán Hilmarsson, gjaldkeri að-
alstjórnar Fram, segir að rekstrará-
ætlun hlutafélagsins sé varlega
áætluð enda sé ekki gert ráð fyrir
neinum tekjum af sjónvarpsrétti af
leikjum í Évrópukeppni, enda um
óvissar tekjur að ræða. „Markmið
okkar er að koma félaginu aftur í
fremstu röð meðal íslenskra knatt-
spyrnuliða. Ef það tekst eykst
áhorfendafjöldi og möguleiki liðsins
til þess að taka þátt í Evrópukeppn-
um. Þá er eitt að markmiðum okkar
að hlúa betur að ungum leikmönnum
félagsins með því að fá færa þjálfara
til liðs við okkur. Félagið ætlar að
byggja á þeim leikmönnum sem fyr-
ir eru en fá nokkra innlenda og er-
lenda leikmenn til þess að styrkja
leikmannahópinn og verður það fé
sem fæst með hlutafjárútboðinu
meðal annars notað til þess.“
Stefán segist hafa fundið fyrir
talsverðum áhuga hjá fjái-festum og
almenningi að kaupa hlut í hlutafé-
laginu. „Ég sé fyrir mér að hluta-
bréfakaup í Fram verði góð viðbót
fyrir hlutafjáreigendur. Jafnframt
er skemmtilegt fyrir Framara að
eiga hlut í félaginu sínu. Vissulega
er fjárfesting í íþróttafélagi talsverð
áhætta en hún tekur mið af allt öðr-
um þáttum heldur en áhætta sem
felst í kaupum í öðrum hlutafélög-
um, sem skráð eru á verðbréfamark-
aði. Gengi gjaldmiðla hefur ekki
áhrif á gengi hlutabréfa í íþróttafé-
lagi með sama hætti og í sjávarút-
vegsfyrirtækjum. Þess heldur skipt-
ir gengi liðsins á knattspyrnuvellin-
um miklu meira máli.“
Stefán sagði að tekið hefði tals-
verðan tíma að undirbúa hlutafjár-
útboð'ð og því hefði desember orðið
fyrir valinu, en tímasetningin
skemmdi ekki fyrir því um þetta
leyti velti fólk hlutabréfakaupum
talsvert fyrir sér vegna skattaaf-
sláttar.
Kennitölusöfnun
enn í rannsókn
Hæsta
gengi 2,56
ENN liggur engin niðurstaða
fyrir í rannsókn bankaeftirlits-
ins á kennitölusöfnun fjáimála-
fyrii-tækjanna í hlutafjái-útboð-
um ríkisbankanna. Unnið hefur
verið að rannsókninni frá því í
lok nóvember. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins
stendur gagnavinnsla enn yfir
hjá bankaeftirlitinu og er niður-
stöðu ekki að vænta fyrr en í
íyrsta lagi í næstu viku.
Á meðan heldur slagur fjár-
málafyi’irtækjanna áfram um
kaup á kennitölum landsmanna.
Við lokun í gær buðu Handsal
og Fjárvangur hæst eða 2,56
fyrir hverja kennitölu. Til sam-
anburðar er fast gengi á þeim
350 milljónum ki-óna nafnverðs
sem boðnar era út 2,15. Ljóst
er að til verulegrar skerðingar
mun koma og er jafnvel rætt
um að allt að 40 þúsund ein-
staklingar skrái sig fyrir hlut í
bankanum áður en útboðinu
lýkur í dag.
íslenska álfélagið
Hópbilar taka
við akstri
starfsmanna
UM NÆSTU áramót verða
breytingar í akstursmálum
starfsmanna íslenska álfélags-
ins í Straumsvík, ÍSALS. Fyr-
irtækið Hópbílar hf. mun taka
við akstrinum af Vestfjarðaleið
sem hefur veitt ÍSAL þessa
þjónustu síðan í byrjun áttunda
ái’atugarins.
Rannveig Rist, forstjóri
ISALS, segir að ástæða breyt-
ingarinnar sé sú að í rekstrar-
umhverfí nútímans verði að
fara með alla samninga af
þeiiri stærðargráðu, sem hér
um ræðir, í útboð til að ná fram
sem mestu hagræði.
„Þessi samningur er upp á
um 42 milljónir á ári og er því
um kostnaðarþátt að ræða, sem
eðlilegt er að bjóða út. Vest-
fjarðaleið hefur vissulega verið
nokkurs konar tákn okkai’ í
gegnum tíðina en í útboðinu var
töluverður munur á tilboðunum
sem bárust og Hópbílar hf.
buðu lægst,“ sagði Rannveig.
S
Hlutabréf Islandsbanka
107 milljónn kr.
viðskiptí á VÞÍ
VIÐSKIPTI með hlutabréf á Verð-
bréfaþingi Islands námu alls 160
milljónum króna í gær. Mest viðskipti
voru með bréf í íslandsbanka eða fyr-
ir 107 milljónir króna og hækkaði
gengi þeirra um 2,4%. 28 milljón
króna viðskipti voru með hlutabréf í
Flugleiðum og lækkaði gengi þeirra
um tæpt 1%. Nokkur félög hækkuðu í
verði í gær og hækkuðu hlutabréf
Eignarhaldsfélags _ Alþýðubankans
mest, eða um 5,7%. Urvalsvísitala að-
allista hækkaði um 0,72%.
Tilkynnt utanþingsviðskipti með
hlutabréf námu 202 milljónum
króna, mest með FBA fyrir 101
milljón króna á genginu 1,40 til 1,83.
Á VÞÍ námu viðskipti með FBA 11
milljónum króna.
Ávöxtunarkrafa skammtíma-
bréfa hækkar
Alls námu viðskipti á Verðbréfa-
þingi 866 milljónum króna, mest með
spariskírteini, 310 milljónir króna og
húsbréf, 256 milljónir króna. í Mark-
aðsyfírliti Landsbanka íslands kem-
ur fram að birting visitölu neyslu-
verðs þar sem verðhjöðnunin reynd-
ist vera 2,6% hafí valdið nokkurri
hækkun ávöxtunarkröfu á stuttum
verðtryggðum bréfum og jafnframt
lækkun á löngum verðtiyggðum
bréfum í gær.
„Frá því að Lánasýslan lýsti því
yfir 15. október að hún myndi nota
allt að 2 milljörðum til kaupa á
lengstu spariskírteinum hefur ávöxt;
unarkrafa þeirra lækkað verulega. I
dag (í gær) hins vegar hækkaði krafa
bréfanna um 5 punkta frá því í gær
(miðvikudag) og er það til marks um
það að líklegt er að Lánasýslan sé
langt komin með að ráðstafa þessum
2 milljörðum. Ef viðskipti með flokk-
inn á VÞI frá 15. október eru skoðuð
sést að heildarveltan með bréfín
nemur um 1,6 milljörðum. Það má
því búast við því að ávöxtunai-krafa
bréfanna hafi náð botninum að
sinni,“ að því er fram kemur í Mark-
aðsyfírliti Landsbankans.
MR-búðin í nýtt húsnæði
MR-BÚÐIN verður opnuð á nýj-
um stað klukkan 8 í dag, á
Lynghálsi 3. Verslunarplássið
tvöfaldast frá því sem verið hef-
ur á Laugavegi 164 auk þess
sem birgðageymslur eru ólíkt
rúmbetri og bflastæði næg.
Mjólkurfélag Reykjavíkur,
eigandi MR-búðarinnar, hefur
rekið verslun undir þessu nafni
í rúm 40 ár á Laugavegi 164.
Sigurður Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri mjólkurfélagsins,
segir að starfsemi MR-búðar-
innar hafi vaxið á undanförnum
árum og gengið vel en pláss-
leysi innanhúss og ekki síður
utan hafí háð rekstrinum. Fyrr
á árinu keypti mjólkurfélagið
húsnæði fyrir verslunina á
Lynghálsi 3 og hefur nú selt
síðasta hluta hússins á Lauga-
vegi 164 en þar voru höfuð-
stöðvar og meginhluti starfsemi
félagsins í áratugi.
Kaffíhorn í
hestadeildinni
MR-búðin hefur lagt áherslu
á sölu girðingarefnis, sáðvara,
fóðurs, garðyrkjuáhalda, einnig
Morgunblaðið/Ásdís
FORSVARSMENN MR-búðarinnar. F.v. Björn Björnsson, Fannar Bergs-
son, Ásdís Kjerúlf, Höskuldur Sæmundsson og Gunnar Már Gunnarsson.
vörur fyrir hestamenn og fjöl-
breytt úrval af rekstrarvörum
fyrir bændur. Með betri að-
stöðu verður vöruúrval stór-
aukið. Meðal nýjunga er kaffi-
horn í hestavörudeildinni en
þar geta viðskiptavinir sest nið-
ur og skoðað myndbönd og
fengið féttir úr hestamennsk-
unni.