Morgunblaðið - 11.12.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 23
Mál myrtu gíslanna í Tsjetsjeníu
Nj ósnaviðurkenn-
ing á myndbandi
Grozní. Reuters.
HATTSETTUR fulltrúi stjórnvalda
í Tsjetsjeníu sýndi í gær blaðamanni
Reuters-fréttastofunnai' myndband
þar sem einn af vesturlandabúunum
fjórum, sem myrtir voru af mann-
ræningjum, gengst við því að hafa
starfað að njósnum í héraðinu fyrir
bresku leyniþjónustuna.
Höfuð gíslanna fjögurra, þriggja
Breta og eins Ný-Sjálendings, fund-
ust í poka í vegkanti um þrjá km frá
þorpinu Dovydenko á þriðjudag.
„Hljóta að hafa neytt
þá til að játa“
„Mannræningjaniii' hljóta að hafa
neitt þá til að játa. En við vitum það
ekki enn fyrir víst, við verðum að
kanna þessi gögn,“ sagði Vakha Arsa-
nov, varaforseti Tsjetsjeníu, við
fréttamann Reuters.
Sir Andrew Wood, sendiherra
Breta í Moskvu, sagði að við eðlilegar
kringumstæður myndi hann ekkert
láta hafa eftir sér um mál sem þessi.
„En hver heilvita maður myndi sjá og
skilja að við höfum engan áhuga á að
stunda njósnir í Tsjetsjeníu."
A myndbandinu sjást mennirnir
fjórir, Rudolf Petschi, Darren
Hickey, Peter Kennedy og Stanley
Shaw, kynna sig með nafni. „Við höf-
um verið ráðnir til starfa af bresku
leyniþjónustunni," segir Kennedy
síðan á rússnesku. „Við komum fyrir
loftneti fyrir gervitungl þannig að
þýska, enska og ísraelska leyniþjón-
ustan, auk þeirrar bandarísku, geta
Fyrsta konan kjc
heyrt öll samtöl sem fram fara í
Tsjetsjeníu.“
Að sögn Reuters munu mennirnir
virðast í ágætu ásigkomulagi á mynd-
bandinu og ekki er að sjá að þeir hafi
þurft að þola pyntingar. Mun Aslan
Maskhadov, forseti Tsjetsejníu, hafa
bannað opinbera birtingu mynd-
bandsins uns fram hefur farið ná-
kvæm rannsókn á tilurð þess.
• •
Orverur éti
nærklæðin
London. Reuters.
LAUSNIN á einu torleystasta
vandamáli í sambandi við geim-
ferðir frá upphafi kann að vera í
sjónmáli. Segjast rússneskir
vísindamenn hafa fundið lausn
á því hvernig losna megi við
óhrein undirföt geimfara en það
hyggjast þeir gera með örver-
um sem „éti“ fötin.
Undiríotin eru ýmist úr bóm-
ull eða pappfr og hafa haugar af
óhreinum nærklæðum verið til
trafala í löngum geimferðum,
rétt eins og rusl og annar úr-
gangur. Nú segjast rússneskfr
vísindamenn hins vegai' langt
komnir með að finna örverur
sem leysi vandann. Vonast þeir
til þess að verkinu verði lokið
fyrir árið 2017.
in forseti Sviss
Málefnaleg
Ziirich. Morgunblaðið.
og látlaus
RUTH Dreifuss, innanríkisráðherra
Sviss, var kjörin forseti landsins á
sameinuðu þingi á miðvikudag. Hún
er fyrsta konan til að
gegna embætti forseta
sambandsríkisins. Ráð-
herramir sjö skiptast á
um að gegna embættinu
í eitt ár í senn. Eliza-
beth Kopp, fyrsta konan
til að eiga sæti í sviss-
nesku ríkisstjóminni,
sagði af sér embætti út
af ólöglegu athæfi eigin-
manns síns áður en röð-
in kom að henni. Ruth
Dreifuss er einhleyp.
Dreifuss hafði ekki
látið mikið á sér bera í
pólitík þegar hún var
kjörin i rfldsstjórnina
1993. Hún sat í borgar-
stjóm Bern frá 1989 til 1992 og var
ritari svissneska verkalýðssam-
bandsins þegar sameinað þing kaus
hana ráðherra 10. Mars 1993.
Svisslendingar taka afstöðu til
flestra mála sem viðkoma stjórn
landsins í beinni atkvæðagreiðslu.
Þeir greiða atkvæði um endurnýjun
elliheimla í sveitarfélaginu, um
stækkun sjúkrahúsa í kantónunni og
eiturlyfjalöggjöf landsins í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Þeir láta hins vegar
þingmennina á þjóðþinginu um að
velja ráðherra og forseta landsins.
Það er algjör undantekning ef það
verða ráðherraskipti í framhaldi af
þingkosningum. Fjórir stærstu
flokkarnir skipta með sér ráðherra-
sætunum og ráðherrarnir sitja yfir-
leitt fram undir 65 ára aldur ef heilsa
leyfir.
Jafnaðarmenn buðu Christiane
Brunner, þekkta þingkonu frá Genf,
fram í ríkisstjóm 1993. Hún var of
róttæk fyrir þingheim og náði ekki
kosningu. Flokksbróðir hennar var
kjörinn en afþakkaði embættið.
Flokkurinn leitaði út fyrir raðir
þingmanna og bauð Ruth Dreifuss
fram. Fæstir landsmanna höfðu
nokkurn tíma heyrt á hana minnst.
Dreifuss starfaði í þróunar- og
mannréttindadeild ut-
anríkisráðuneytisins
áður en hún fór til
starfa hjá verkalýðs-
sambandinu. Hún sagði
eftfr að hún var kjörin
forseti að hún myndi
helst leggja áherslu á
mannréttindamál sem
forseti.
Opinber störf forset-
ans bætast við störf
hennar í innanríkis-
ráðuneytinu. Helsta
baráttumál hennai- nú
er að koma á mæðra-
tryggingu í Sviss. Sviss
er eitt af örfáum vest-
rænum ríkjum þar sem
konur hafa ekki lögum samkvæmt
rétt á mæðraorlofi. Neðri deild
þingsins samþykkti nýlega lög sem
munu tryggja barnshafandi konum
laun í 14 vikur. Atvinnuveitendm-
hafa hingað til greitt útivinnandi
konum fæðingarorlof en heimavinn-
andi konur hafa ekki fengið neitt.
Þær eiga einnig rétt á fæðingarorlofi
samkvæmt nýju lögunum og ríkið
mun borga þeim. Dreifuss vill fresta
þjóðaratkvæðagreiðslu um málið í
nokkur ár með því að nota peninga
sem þegar eru inni í fjárlögum til að
greiða fæðingarorlofið. Hún kemst
væntanlega ekki upp með það og það
er með öllu óvíst að meirihluti Sviss-
lendinga kæri sig um fæðingarorlof.
Þjóðin er ótrúlega íhaldssöm og rétt-
ur kvenna er enn á stigi sem margir
eiga erfitt með að skilja.
Ruth Dreifuss er málefnaleg og
þykir góður ráðherra. Hún er 58 ára,
lætur lítið yfir sér og tekur enn
strætó í vinnuna. Hún segist ekki
hafa breyst mildð síðan hún tók sæti
í ríkisstjórn. „Ég klæði mig öðru vísi
en annars hef ég lítið breyst,“ sagði
hún í blaðaviðtali.
Ruth Dreifuss
Lifi
frelsiö!
GSM Frelsi er ný þjónusta hjá
Símanum GSM sem felur i sér að
símtöl eru greidd fyrirfram.
Þannig ákveðurþú hversu mikinn
kostnaðþú vilt hafa afGSM símanum
og bætir sjálfur við inneignina þegar
þérhentar.
GSM Frelsi er einföld og þægileg leið
til að vera í góðu GSM sambandi.
Kostirnir eru ótvíræðir:
- engir reikningar
- engin mánaðargjöld
- engin binding
Með GSM Frelsi frá
Símanum færðu:
- GSM númer
- talhólfsnúmer
- 2000 ki. inneign
- íooo kr. aukainneign
við skráningu
GSM Frelsi kr. 3.500,-
SÍMINN
Sölustaðir GSM Frelsis:
Síminn: Ármúla, Kringlunni, v/Austurvöll, Akureyri, Sauðárkróki, Selfossi og Síminn Internet
Reykjavík og nágrenni: Nýherji, Radiómiðun, Kaplan, Hátækni, Heimilistæki, Rafmætti, Símvirkinn, Smith & Norland og Elkó.
Select Opið allan sólahringinn Suðurfelli Breiðholti, Öskjuhlið og Vesturlandsvegi. Opiðtil 23:30 Birkimel (Vesturbær).
Landið: Tölvu- og rafeindaþj. Suðurl., Eyjaradíó, Naust Akureyri, Hljómsýn Akranesi, Tölvuþj. Akranesi, Árvirkinn, Rafeind og Bókval.
Afgreiðslustaðir íslandspósts.
wxvw.gsm. is/frels i