Morgunblaðið - 11.12.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 11.12.1998, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ HJÁLPARSTARF Söfnunarátak Hjálparstarfs kirkjunnar og RUY fyrir nauðstadda í Mið-Amerrku Þörfín enn brýn Morgunblaðið/Ásdís ANNA Ólafsdóttir, Hjálparstarfi kirkjunnar. Ekki er enn séð fyrir endann á afleiðingum náttúruhamfara í kjöl- far fellibylsins Mitch sem skall á löndum Mið-Ameríku í lok október. Hjálparstarf kirkjunnar er með söfnunarátak í dag í samvinnu við Ríkisút- varpið, Rás 2. og skiptinemar bjóða upp á dagskrá í Háskólabíói til styrktar SQS-barna- þorpum í sömu löndum. VEGNA mikillar neyðar í lönd- um Mið-Ameríku sem verst urðu úti þegar fellibylurinn Mitch skall á í lok októbennánaðar síðastliðins verður dagskrá Ríkisút- varpsins á Rás 2 í dag helguð söfn- unarátaki frá klukkan 9-19. Átakið er á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar og RÚV. Fólk getur hringt í síma 5687 123 á Rás 2 og sjálfboðaliðar taka við framlögum. Hægt er að biðja um gíróseðil eða borga með greiðslukorti. Að sögn Önnu Ölafsdóttur hjá Hjálparstarfi kirkjunnar munu venjulegir dagski’árliðir halda sér, svo sem morgun- og dægurmálaút- varp en inn í dagskrána verður skot- ið fréttum af ástandinu og upplýs- ingum um viðkomandi lönd. Þá verða viðtöl við fólk statt í Hondúras og Níkaragva og fólk sem þekkir til. Veðurfræðingur mun útskýra fyrir- bærið „fellibyl“. Auk þess verður leikin suður-amerísk tónlist. Fjölbreytt dagskrá og nýjustu fréttir af ástandinu Meðal annarra verður rætt við blaðamann sem staddur er í Hondúras og starfar hjá samtökun- um sem leiða kirkjulega hjálpar- starfið. Þessi samtök heita CCD og eru kristileg samtök sem starfa að þróunarmálum, að sögn Önnu. „Styrkurinn við þetta kirkjulega hjálparstarf er einmitt sá að CCD- samtökin eiga rætur í því samfélagi sem þau eiga að hjálpa. CCD hefur starfað í Mið-Ameríku í mörg ár og hafa áður komið að álíka neyðarað- stæðum, t.d. eftir fellibylji og mikla þurrka af völdum E1 Ninjo.“ Anna segir samtökin því þekkja vel til í löndunum og viti um þá möguleika sem fyrir hendi eru. Þeim sé kunnugt um bestu flutningaleiðir og hvar hægt sé að nálgast gögn. „Starfsmenn CCD þekkja þar að auki fólkið, hugsunai’hátt þess og menningu en það skipth' ekki litlu máli. Það er því mikill styrkur í því að hafa þetta svona. Auk þess hafa samtökin unnið með hinu opinbera við það að meta aðstæður en það er stór liður í því að hægt sé að dreifa öllum þeim hjálpargögnum sem þeim hafa borist á skilvirkan og skjótan hátt.“ Hjálparstarfið mun koma fénu sem safnast, í hendur alþjóðlegu neyðar- hjálpai' kirkna eða ÁCT sem síðan kemur þvi áleiðis. „Við erum aðilar að ACT og CCD-samtökin sem leiða hjálparstarfið í Níkaragva eru það líka. Einn viðmælenda okkar mun skýra frá því í útsendingunni hvernig samtökin starfa og hvemig þessu fé frá íslendingum verður varið.“ Að sögn Önnu verður rætt við Að- alheiði Héðinsdóttur eiganda Kaffitárs. Hjá fyrirtækinu er hægt að kaupa sérmerkt kaffi frá Ník- aragva en ágóðinn af sölu þess renn- ur til hjálparstarfsins. „Við vildum líka vekja athygli á tengslum okkar við þessi lönd en þaðan fáum við t.d. gæðakaffi." Anna vildi koma því á framfæri að söfnunin núna sé sérstakt átak. „Um þessar mundir erum við náttúrlega í okkar hefðbundnu jólasöfnun. Við höfum þegar sent eina og hálfa millj- ón til hjálparstarfsins í Mið-Ameríku og það var gert strax eftir að ham- farirnar dundu yfir. Þessi sérstaka söfnun er vegna þess hvað neyðin er mikil núna.“ Jákvæð þróun en margt ógert Þær fréttir berast nú frá Hondúras að búið sé að gera bráðabirgðavið- gerðii' á 90% af þeim brúm sem skemmdust. „Þetta eru ákaflega já- UNG stúlka lítur yfir eyðilegginguna í borginni La Colonia í Honduras. Reuters bai-naþorp eru frjáls félagasamtök sem lúta hvorki stjórnmálum né trúarbrögðum en eru aðilar að Sa- meinuðu þjóðunum. Samtökin voru stofnuð árið 1949 í Austurríki með það fyrir augum að byggja upp barnaþorp fyrir munaðarlaus og yf- irgefin börn. Ulla Magnusson, formaður SOS- barnaþorpa á Islandi, segir starfið hafa þróast mikið á undanförnum ár. „Nú er rekið 361 barnaþorp á vegum SOS-barnaþorpa víða um lönd. Fyrir utan þetta reka sam- tökin líka 478 leikskóla og 133 grunnskóla fyrir okkar börn og önnur. Það eru líka 62 hjúkrunar- miðstöðvar í ýmsum löndum sem fleiri en börnin í þorpunum njóta góðs af. En samtökin starfa í 128 löndum." Sérstakur neyðarsjóður Neyðarsjóðurinn var settur á fót fyi'ir nokkrum árum til að bregðast við þegar neyðarástand skapast í þorpunum. „Þegar hörmungar ríða yfii' leita margir í þorpin því þau eru oft einu staðirnir sem rafmagn og vatn er að fá. Þetta gildir t.d. í Mið-Ameríku núna en þá eru þorp- in okkar opnuð fyrir aðra.“ Ulla segir að ekkert barnanna í þorpunum í Mið-Ameríku hafi farist en þau hafi þurft að flytjast burt sumstaðar þótt þorpin hafi sloppið nokkuð vel. „Samfélagið þai'na er bókstaflega í rúst og mikl- ir erfiðleikar framundan. Eftir sovna hörmungar verða enn fleiri börn munaðarlaus og þurfa að komast í öruggt þorp.“ í Háskólabíói á morgun mun SOS-barnaþorp kynna starfsemi sína og þeim sem hafa áhuga gefst kostur á að styrkja samtökin, t.d. með því að gerast „styrktarfor- eldri“. í því felst að borga ákveðna upphæð, t.d. 1.400 krón- ur, með ákveðnu barni og styrkt- arforeldrum gefst síðan kostur á að fylgjast með framvindu og lífi barnsins án þess að taka á sig neinar skyldur framyfir mánaðar- legar greiðslur. Netslóð SOS-bamaþorpa á ís- landi er www.centrum.is/sos. Skiptinemar bregðast við Á MORGUN verður haldin dag- skrá í Háskólabíói kl. 15-18 til styrktai’ bágstöddum börnum í Hondúras. Fram koma hljómsveit- imar Jagúar, Unun, Magga Stina og Hringir og Súkkat. Radíusbræður og Hallgrímur Helgason fara með gamanmál en Eva María Jóns- dóttir kynnir dag- skrána. Aðgangur kostar 1.200 krónur og rennur allur ágóði í neyðarsjóð á vegum Sameinuðu þjóðanna til styrktar SOS- barnaþorpum en sam- tökin verða á staðnum til að kynna sig. Þeir sem standa fyrir þessu átaki era fyrrverandi skiptinemar sem dvöldu í Hondúras á árunum 1989-91. Einn formælenda hóps- ins, Sif Karlsdóttir, segir hópinn hafa verið sleginn við fregnir af náttúruhamförunum og hafa verið einhuga um að bregðast með ein- hverjum hætti við. „Við urðum öll slegin að heyra af hörmungunum og vorum öll á því að reyna að gera eitthvað. Þessi dagskrá á laugardaginn er sú hugmynd sem við duttum niður á. Við eram um fimm sem höfum staðið mest í þessu en fjölmargir aðrir hafa komið að þessu og hjálpað til. Hondúras-búar búsettir hér á Is- landi hafa t.d. lagt okkur lið. Og listamennirnir sem leggja fram vinnu sína eiga þakkir skildar." Sif segir að lögð sé áhersla á að hafa dagskrána skemmtilega en að auki verði komið á framfæri fróð- leik um land og þjóð. „Við eigum t.d. von á því að fram komi Hondúrasbúi og segi okkur frá landinu sínu en aðalatriðið er að fólk komi þama sam- an og eigi góða stund saman." Sif dvaldi sem skiptinemi í Hondúras, í borginni La Ceipa við Karíbahaf. Hún segir ástandið þar ekki nærri eins slæmt og t.d. í höfuðborginni Tegucigalpa og víðar. „Hverfið sem ég bjó í slapp nánast alveg óskemmt. Fólkið sem ég bjó hjá slapp alveg og mér skilst að eng- inn sem ég þekki hafi orðið fyrir skaða. En þau okkar sem voru í höf- uðborginni hafa ekki enn náð sam- bandi við sitt fólk. Þar og víðs vegar um landið varð fólk illa úti. Sérstak- lega fátækt fólk sem bjó illa en léleg hús standast ekki svona ofsaveður. I La Ceipa eru reyndar tvær ár sín hvoram megin í borginni og brýmar á þeim fóra báðar og vegir í ná- grenninu, en mér skilst að búið sé að gera við helstu samgönguæðar til bráðabirgða.“ SOS-bamaþorp Ágóðinn af dagskránni í Há- skólabíói rennur allur til SOS- barnaþorpa í Mið-Ameríku í gegn- um neyðarsjóð í Vínarborg. SOS- Sif Karlsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.