Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ HJALPARSTARF FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 27 Reuters BORN við ömurlegar aðstæður í bænum Flores de Oriente í Hondúras. kvæðai' fréttir en maður verður að hafa í huga að um er að ræða bráða- birgðaviðgerðir, framtíðarlausnir eru ekki enn í sjónmáli. Samt sem áður hafa aðstæður til hjálparstarfa breyst mjög mikið með því að vegasamband- ið er orðið betra. Nú eru líka hafnir opnar og ekki bara flugsamgöngur. Því miður er ekkert lát á rigning- um. I Norður-Hondúras hefur rignt mjög mikið og það eru ennþá að falla aurskriður. Fólk er orðið óþolinmótt að komast heim aftur til að huga að uppbyggingu. En það er ennþá mjög hættulegt og skörð eru uppi í fjöllum þar sem áður voru þorp en ekkert er eftir. Enn eru að koma lík upp úr aurnum og dýrahræ sem valda hættulegri mengun í vatni.“ Sniitsjúkdómar Að sögn Önnu herjar niðurgangur á fólk og alls konar bakteríusýkingar sem geta valdið sjúkdómum svo sem nýmasjúkdómum og heilahimnu- bólgu. Hættan á smiti eykst stöðugt en hátt rakastig er stór þáttur í því að sjúkdómarnir berast og ástæða fyrir því að fólk nær ekki heilsu. Kóleru- og malaríutilfelli hafa einnig aukist til muna. „í sumum löndunum voru skráð kólena- og malaríutilfelli áður en þetta dundi yfir. Hins vegar hefur þessum tilfellum fjölgað mjög eftir fellibylinn," segir Anna. Samkvæmt tölum frá 8. desember voi-u skráð í Gvatemala 49 tilfelli af kóleru á viku fyrir fellibylinn en 485 í lok nóvember. í Níkaragva voru sambærilegar tölur 16 fyrir fellibyl- inn og 95 eftir. I Hondúras voru eng- in skráð tilfelli fyrir fellibylinn en eru núna 18 á viku. Að sögn Önnu hefur verið haft eftir bandarískum lækni sem starfar í Hondúras að það séu engar langtímalausnir á heilsu- vandanum í sjónmáli og að nú sé að- eins verið að setja plástur á hann. Söfnunarpeningum vel varið Anna vekur athygli á því að CCD- samtökin leggja áherslu á að fá pen- inga frekar en hjálpargögn. „Það hafa borist hjálpargögn viðs vegar að en þau liggja enn í gámum enda fer heilmikill tími í flokkun. Nú er vegakerfið að komast í lag og því munu menn eiga auðveldara með að útvega sér þá vöru sem þeir þurfa. Peningunum sem safnast er m.a. varið til að kaupa neyðarskýli og tjöld, til að byggja upp vegi og sam- gönguleiðir, kaupa lyf, matföng og hreinlætisvörur og til að byggja upp landbúnaðinn. Nú er t.d. flogið með hreint vatn á milli staða. Til allrar hamingju hefur uppskera sem notuð er til matar innanlands ekki skemmst eins mikið og sú sem ætluð er til útflutnings. Það er því hægt að fá matvæli í Hondúras, það er ekki vandamál. Bananauppskeran er öll farin og það koma því ekki inn nein- ar tekjur af útflutningi. Þá er búið að frysta laun og verð á tilteknum mat- vælum í ákveðinn tíma. í stað þess að deila út peningum láta CCD-sam- tökin fólki í'té mat til að styðja það til þess að vinna sjálft að uppbygg- ingunni þar sem það er hægt.“ Vandinn enn gífurlegur Anna vildi leggja áherslu á að hörmungarnar væru engan veginn yfirstaðnar. „Þetta er hvergi nærri búið. Það koma stöðugt upp ný vandamál. Það eru t.d. fjölmargir staðir sem eru enn alveg einangraðir og þangað hefur engin hjálp borist. Kristilegu samtökin hafa einmitt verið að reyna að komast að slíkum stöðum en það er ákaflega erfitt. Dæmi eru um það að læknar og fylgdarlið fari á „kanóum“ til að komast að afskekktum stöðum." I Hondúras hefur verið stofnað ráðuneyti uppbyggingar. Anna seg- ir að þeir þrír sem settir hafa verið yfir það séu annálaðir fyi'ir heiðar- leika. „Það hefur verið minna um spillingu en menn áttu von á og það er talið vera vegna þess að borgar- búar og landsmenn almennt eru mjög vakandi fyrir því og veita að- hald. Það hafa ekki komið upp nein hneykslismál í sambandi við hjálp- arstarfíð.“ Anna telur brýnt að fólk reyni að skyggnast á bak við tölurnar sem berast um mannskaða. „Það er sagt að svo og svo margra sé saknað. Þá getur maður ímyndað sér börnin sem ekki finna foreldra sína. Svona tölur hreyfa ekki við manni nema maður reyni að hugsa um hvað ligg- ur þeim að baki.“ Borðstofan hjarta heimilisins Rondo borðstofusett Falleg dönsk hönnun - glæsilegt mahogny. Borð með 2 stækkunarplötum og 6 stólar kr. 223.500, Skenkur kr. 98.420,-. Glerskápur 133.920,- HÚSGAGNAHÖLUN Bíldshöfði 20 -112 Rvík - S:510 8000 Allt jfyrir (i in í I CASIO. • G-SHOCK úr í mikiu úrvali Verð frá 7.990,- stgr. Philips útvarpsuekjari 2.990,- stgr. (/ a r.p d (/ e hj a r a i Philips útvarpstæki« 4.990,- stgr. Heyrnartól í miklu úrvali Verð frá 1.1 90,- stgr. Supertech rafmagnsvekjari 990,- stgr. Casio reiknivel 4 FX350 1.870,- stgr. Ef þú kaupir fyrir 7.000 krónur eða meira, fer nafn þitt í lukkupott þar sem dregið er í hverri viku um < krónur j z z < 2 o Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO 100.000 http.//www.ht.is umboðsmenn um land allt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.