Morgunblaðið - 11.12.1998, Síða 32

Morgunblaðið - 11.12.1998, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Reuters Dýrasta samtímalistaverkið MÁLVERK breska myndlistar- mannsins Luciens Freuds, „Nakin fyrirstæta þungt hugsi“ var selt á uppboði hjá Sotheby’s í vikunni. Fengust um 2,8 millj- ónir punda fyrir myndina, um 320 milljónir ísl. kr. og er hún þar með dýrasta samtímalista- verk sem selt hefur verið í Evr- ópu. Bóksala stórmarkaða fyrir jólin Skaðar ekki millistór- ar bókabúðir en hefur drepið litlar BÓKSALA stórmarkaða á borð við Hagkaup, Bónus, Nettó og Kaupfé- lag Arnesinga fyi-ir jólin skaðar ekki millistórar verslanir sem selja bækur allan ársins hring. Þetta er álit formanns Bókabúðakeðjunnar, samtaka millistórra bókabúða, Jónasar Gunnlaugssonar í Bóka- verslun Jónasar Tómassonar á ísa- fírði. „I upphafí skaðaði þetta okkur en við teljum að við höfum náð varnarsigri í fyrra, stöðvað þessa þróun, og flest bendir til þess að við höldum áfram að sækja í okkur veðrið núna,“ segir Jónas. „Vissu- lega má segja að seldu þessir aðilar ekki bækur fyrir jólin værum við með meiri sölu, þeir skaða okkur þannig, en þeir eru ekki að taka af okkur sölu lengur. Það hefur snúist við.“ Jónas fullyrðir aftur á móti að smæiri bókaverslunum hafi fækkað af þessum sökum. „A sama tíma og Hagkaup, Bónus og Mál og menn- ing tala um aukna bóksölu hjá sér staðfesta bókaútgefendur að sala hafí heilt yfir dregist saman á síð- asta ári um 12-15%. Söluaukningin hjá þessum aðilum hlýtur að stafa af því að bókaverslunum hefur fækkað eftir að stórmarkaðirnir fóru að selja bækur - þeir hafa drepið minni bókabúðir, bæði í Reykjavík og úti á landi. Þegar rjóminn er fleyttur með þessum hætti í desember eiga menn erfið- ara með að standast samkeppnina eftir því sem einingin, verslunin, er minni og leggja því upp laupana. Niðurstaðan er því sú að bókaunn- endur fá verri þjónustu en áður og sölunni er ennfrekar beint inn á jólatímann." Bókabúðakeðjunni var komið á fót á liðnu ári en í samtökunum eru átta verslanir á ísafirði, Akureyri, Húsavík, Akranesi, í Keflavík, Hafnarfirði og tvær í Reykjavík. Að sögn Jónasar eru þessar verslanir með um 20% af bókamarkaðnum yfir árið. Jónas segir verslanimar í keðj- unni vera í bóksölu til að lifa af henni og veita þjónustu árið um kring. „Við getum fyrir vikið engan veginn gert eins og til dæmis Bón- us, selt bækur á kostnaðarverði eða jafnvel undir því. Enda veita þeir enga þjónustu. Samt sem áður er- um við með tilboð, bjóðum nálægt hundrað titlum með 10-30% af- Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson JONAS Gunnlaugsson formað- ur Bókabúðakeðjunnar. slætti, og þau tilboð standa fram yf- ir jól,“ segir Jónas en sömu tilboð eru í gildi í öllum búðunum átta. „Við erum alveg samstiga í þessu - sömu tilboð, sömu titlar og sami tími.“ Leið ábyrgra bókaverslana Jónas veitir því athygli að Mál og menning býður upp á svipuð tilboð fyrir þessi jól. „Við notuðum þessa aðferð í fyrra og hún gafst mjög vel. Þá nam minnkun í bóksölu 12-15%, eins og ég gat um áðan, en við héldum eigi að síður okkar hlut. Það kemur ekki á óvart að Mál og menning hafi tekið þessa aðferð upp því þetta er, að mínu mati, sú leið sem ábyrgar bókaverslanir velja. Hitt eru ekki bókaverslanii- í orðsins fyllstu merkingu. Þá á ég SJÖFN Har opnar sýningu í List- húsinu í Laugardal á morgun, laug- ardag, kl. 17. Yfirskrift sýningar- innar er Lítil mynd og verður í aðal- sal miðrýmis og vinnustofu lista- mannsins. Sjöfn stundaði nám í Konunglegu dönsku listaakademíunni í Kaup- mannahöfn og Myndlista- og hand- við Hagkaup, Bónus og aðrar versl- anir af þeim toga.“ Jónas segir að til séu hópar fólks sem stöðugt eru að „eltast við til- boð“ - til þeirra höfði stórmarkað- irnir. Bókaunnendur fari aftur á móti í bókabúðir til að kaupa bæk- ur. „Það fer enginn bókaunnandi í kjörbúð til að kaupa sér bækur, þar sem hann þarf að leita að einhverj- um fimmtíu til hundrað titlum inn- an um hveiti og kartöílur." Að sögn Jónasar eru bókaskipti mikilvægur liður í þjónustu bóka- verslana, ekki síst eftir jólin. „Eitt af því sem gerir bókina jafn vinsæla jólagjöf og raun ber vitni er hversu auðvelt er að skipta henni í bóka- búð fyrir aðra bók eða einhverja aðra vöru. Þetta er þjónusta sem stórmarkaðirnir veita sínum við- skiptavinum ekki.“ Jónasi þykja athyglisverð um- mæli Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss, í Morg- unblaðinu síðastliðinn þriðjudag, þess efnis að hæpið sé að gera ráð fyrir metsölu bóka í ár, vegna þess að minna sé um spennandi titla nú en í fyrra. „Þetta er, að mínu áliti, út í hött og sýnir að þarna er engin fagmennska á ferðinni. Það er fullt af fínum bókum í ár og okkar til- finning er sú, eftir þessa fyrstu daga, að bóksala verði góð fyrir þessi jól. Bókin er í sókn. Undanfar- in ár hefur hún átt í vök að verjast, sérstaklega í samkeppni við geisla- plötur og myndbandsspólur á gjafa- markaði, en nú finnum við fyrir því að hún er að rétta sinn hlut, ekki síst gagnvart myndbandsspólunni. Fólk er aftur farið að kaupa bækur fyrir börnin sín í stað myndbands- spólu, eins og það hefur verið að gera í tvö til þrjú ár. Það er því eng- in ástæða til svartsýni." íðaskóla íslands. Hún hefur haldið margar einkasýningar og verk eftir hana má fínna víða um heim. Á opnuninni mun gítartríóið Git- ar Islancio leika fyrir gesti. Sýningn er opin virka daga kl. 12-19, laugardaga kl. 11-19 og sunnudaga kl. 14-19. Sýningunni lýkur 22. desember. Sjöfn Har sýnir í Listhúsinu í Laugardal GUesilegar jólagjafir Jólasölusýning í Perlunni til 22. des. Heimsækið sýningarbás okkar, einnig verslunina að Laufásvegi 11 Opnunartími kl. 13.00 - 22.00 alla daga - 30% - 50% afsláttur. COLONY Laufásvegi 17 Sími 893 8100 og 562 4513
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.