Morgunblaðið - 11.12.1998, Síða 60

Morgunblaðið - 11.12.1998, Síða 60
60 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Rannsóknir - í þágu hverra? ÞEIR Sveinn Hann- esson og Hallgrímur Jónsson skrifuðu grein í Morgunblaðið 26. nóvember sl. sem þeir nefndu Rannsóknir - í þágu fortíðar eða fram- tíðar? Greinin er að mestu útaflegging ^a^úlurits sem þeir hafa útbúið um rannsókna- og þróunarfé frá ríki sem hlutfall af þætti viðkomandi atvinnu- greinar í landsfram- leiðslu. Þeir virðast vera ögn leiðir yfir því hve hlutur landbúnað- ar er þar stór. í byrjun vil ég taka það fram að ég er mjög sammála þeim félögum um mikil- vægi öflugs rannsókna- og þróunar- starfs í þágu atvinnulífsins. Hins vegar þykir mér hróður manna sjaldan vaxa við það að troða skó niður af öðrum - tiltekið ef keppt er í sama liði - en í þá gryfju féllu þeir jjelagai'nir. Nú verða þeir að eiga það við sínar stofnanir og samtök, hafi þunglega gengið að berjast fyr- ir rannsóknafjármunum í þágu greinar þeirra. Jafnan er það nú svo að góð vara selst alltaf og kann það að eiga við hér. Á Morgunblaðsgrein þeirra fé- laga má skilja að landbúnaðar- og fiskveiðirannsóknir séu fortíðar- hyggja sem jafnvel eigi sök á því hve hlutur annarra og meira „moderne“ greina samfélagsins sé sjriár í r&þ-fjármunum frá ríki. Mér aatt því í hug að nefna fáein atriði tengd landbúnaðarrannsóknum höf- undum og hugsanlegum lesendum greinarinnar til upprifjunar: Um langt skeið hafa landbúnaðarrannsóknir verið öflugar á íslandi og átt verulegan þátt í þeim framförum sem í atvinnugreininni hafa orðið. Framleiðni í kjölfar þeirra hefur los- að um verulegt vinnu- afl sem komið hefur öðrum greinum samfé- lagsins til góða. Ein megin skýring hinna öflugu landbúnaðar- rannsókna er verðugur stuðningur ríkisvalds- ins í nánu samstarfi við atvinnugeinina og þá ekki síður hinn vel menntaði hópur manna sem hefur helgað landbúnaðarannsóknum í víðasta skilningi krafta sína. Það staðfestir m.a. velgengni þeirra í Um langt skeið hafa landbúnaðarrannsóknir verið öflugar á Islandi, segir Bjarni Guð- mundsson, og átt veru- legan þátt 1 þeim fram- förum sem í atvinnu- greininni hafa orðið. opinni samkeppni um innlent og er- lent rannsóknafé. Handhafar ríkis- valdsins hafa skilið þetta samhengi - metið þjónustuna hæfa og einfald- lega keypt hana - samfélaginu til margvíslegs hagræðis. Bjarni Guðmundsson Dagskráin þín er komin út 10. des.-23. des. / allri sinni mynd! Þá er það næst hvaða tíð rann- sóknirnar þjóna - fortíð eða framtíð en um það spyrja þeir Sveinn og Hallgrímur í upphafi greinar sinn- ar. Trúlega fæst hvað skýrasta svarið með því að nefna fáein um- fangsmikil dæmi um það sem unnið hefur verið að á sviði landbúnaðar- rannsókna síðari árin: 1. Rannsóknastofnun landbún- aðarins og Landgræðsla ríkisins hafa nýlega lokið einum umfangs- mesta rannsóknaáfanga til þessa á sviði umhverfismála hérlendis. Ég á þar við verkefnið jarðvegsvernd undri stjórn dr. Olafs Arnalds. Fyrir það hlaut hann með fólki sínu umhverfisverðlaun Norðurlanda- ráðs fyrir nokkrum dögum. Verk- efnið hefur víðar vakið verðskuld- aða athygli. Stöndum við nú vel að mæta framtíðinni að þessum áfanga loknum. 2. Norður á Hólum í Hjaltadal hafa bleikjurannsóknamenn undir stjórn dr. Skúla Skúlásonar lagt faglegan grundvöll að nýrri at- vinnugrein hérlendis: bleikjueldi, sem þegar hefur skilað íslendingum í fremstu röð á þessu sviði í heimin- um. Alibleikjan nemur nú 1.000 tonnum á ári. Framtíðina munar um það. 3. Suður á Keldum hafa dr. Sig- urður Helgason o.fl. með rannsókn- um sínum lagt íslenskum fiskeldis- mönnum til bóluefni sem eytt hefur þeim vanda sem var við að rústa fiskeldi landsmanna fyrir nokkrum árum. 4. Á Rannsóknastofnun landbún- aðarins hefur dr. Áslaug Helgadótt- ir með fólki sínu í náinni samvinnu við bændur flutt kornrækt til fjöl- margra sveita, svo nú eru á 3. hund- rað kúabú nær sjálfbjarga um kjarnfóður (óniðurgreitt, sem um þessar mundir er einsdæmi á Vest- urlöndum!). Með markvissum kom- kynbótum og nátengdri þróunar- vinnu hefur þetta tekist og er þó enn mikils viðbótarárangurs að vænta. Mörg fleiri dæmi mætti nefna en til þess er hvorki tími né rými að sinni. Það er ekki mjög vænlegt til árangurs í mikilvægri baráttu að leggja til samherja; miklu frekar ber að safna liði um sameiginlegan málstað, skipta verkum með hæfi- legum hætti, setja sér raunhæf markmið og keppa þrotlaust að þeim. Rannsóknamenn landbúnað- arins búa yfir mikilli starfshæfni og njóta álits víða. Ég er sannfærður um að þeir eru enn sem fyrr tilbún- ir til að láta samfélagið njóta verk- hæfni sinnar og leggja markvissum rannsóknaverkefnum lið, meðal annars viðfangsefnum sem eru sameiginleg hagsmunamál hinna ýmsu atvinnugreina, t.d. iðnaðar. Við róum öll á einum báti - og stefnum til framtíðar, eða er það ekki? Höfundur er kenrmri við Hvanneyrarskóla. New Minni og ódýrari ryksuga Sömu sterku NILFISK gœöin Meban birgbir endast Aöeins kr. 15.900,- stgr. __ __ FYRSTA ÁFLOKKS /rOmx HATUNI6A REYKJAVIK SIMI 552 4420 Ný Normandí ÍSLENSK höfð- ingjastétt hefur löng- um verið lítillát á heimsmælikvarða. Á meðan frændur henn- ar náðu Normandí á sitt vald undir lök síð- asta árþúsunds og not- uðu það sem stökkpall í að leggja undir sig England og síðar heiminn, sátu íslenskir höfðingjar sæhr að sínum fáu þegnum og rýru löndum. Að vísu bættust þeim þegar fram liðu stundir gjöf- ul fiskimið, sem urðu uppspretta einhvers- konar iðnvæðingar hér á landi á þessari öld. Höfðingjar frumframleiðslunnar hafa löngum átt erfitt með að skilja mikilvægi menntunar og tækni- framfara og fóru til að mynda ekki Menntun er samskonar hlutur og fjárhagslegur sparnaður. Magnús Arni Magnússon telur -----------7------------------ þó að Islendingum gangi illa að skilja það. að nota hjólið að neinu marki fyrr en á tuttugustu öld. Þegai- íslend- ingar seildust til sjálfstæðis á síð- ustu öld, töldu danskir fremur vit- urlegt að tefja það sem frekast væri unnt, til að landinn lenti ekki óvarinn í klóm þessarar illvígu yfir- stéttar, sem helst vildi halda þræl- dómsoki landbúnaðarins á þjóðinni sem allra lengst. Iðnbyltingin hefur breyst í tækni- og upplýsingabyltingu og verðmætasta eign hvers manns, í alþjóðlegu samhengi, er ekki leng- ur landið sem hann á, heldur það sem hann hefur í kollinum. Fyrir það eru greiddar háar upphæðir erlendis. I hagvaxtarkenningum nútím- ans, sem eiga rætur sínar í módeli sem nóbelsverðlaunahafinn Robert Lucas þróaði seint á síðasta áratug, er almennt talað um ávöxtun mannauðs sem annan helsta þátt- inn í að skapa vaxandi þjóðfélag til framtíðar. Hinn þátturinn er auð- vitað hvemig fjármagn er ávaxtað. Tæknivæðing þjóðfélaga er það sem skilur á milli feigs og ófeigs í upphafi upplýsingaaldarinnar og að eiga mannafl til að nýta þá tækni. Á svæðinu, sem hefur fengið gælunafnið Sílikondalur, er vagga upplýsingaiðnaðarins. Þar flæðir fjármagnið yfír bakka sína og eftir- spurnin eftir fólki, sem hefur ein- hver tök á að nýta þetta fjármagn, er gríðarleg. Það er meira að segja svo komið að fólk með doktors- gráður í sálfræði og öðrum félags- vísindum er farið að taka námskeið í HTML til að eiga möguleika á að byrja nánast á botninum hjá tölvu- fyrirtækjunum, því launin sem þau borga þykja svo góð. Að sama skapi er slegist um fólk sem af rælni eða framsýni tók þá ákvörð- un fyrir nokkrum árum að mennta sig á tölvusviðinu og þeir sem hafa einhverja reynslu í að gera góðar hugmyndir að arðbærum fyrir- tækjum, geta krafist árslauna, sem Hörður Sigurgestsson gæti ekki látið sig dreyma um að hafa fyrir tutt- ugu ára starf sem for- stjóri Eimskips. Það eru ekki ein- göngu tölvunarfræð- ingar og verkfræðing- ar sem fyrirtækin eru að sækjast eftir, held- ur fólk sem kann að nota þau forrit sem eru til staðar til að skapa eitthvað nýtt. Umræðan á viðskiptasíðum dag- blaðanna þar snýst að mestu um þessa nýju atvinnugrein og þegar allt er lagt saman er útkoman aug- ljós: Bandaríkjamenn vita hvað þarf til að halda sér í fremstu röð og eru harðákveðnir í að gera það. Menntun og tæknivæðing eru kjör- orð samtímans. Islendingar voru seinir til að iðn- væðast á sínum tíma og þrátt fyrir augljósan vilja almennings til tæknivæðingar nú, eru ýmis teikn á lofti um að stjómvöld á Islandi geri sér ekki fulla grein fyrir mikil- vægi hennar eins og er. Þannig er Háskóli Islands rekinn á smánar- framlögum og tækjabúnaður hans fyrir neðan allar hellur. Launa- kjörin eru á þann hátt að ungu mennimir sem em að taka dokt- orspróf í tölvunarfræði og stærð- fræði við Stanford-háskóla þurfa ekki að hugsa sig um tvisvar, hvort þeir eiga að taka atvinnutilboðun- um frá NASA og öðmm slíkum eða flytja heim til að miðla af þekkingu sinni við Háskóla Islands. Það sem er sorglegt við það er að flestir ungir Islendingar, sem sækja sér menntun erlendis, vilja flytja heim. Launamismunurinn gerir það hins vegar að verkum að sá kostur kemur sjaldnast til greina. Menntun er samskonar hlutur og fjárhagslegur sparnaður. Hluti vinnuaflsins er tekinn af vinnu- markaði í ákveðinn tíma, þar sem verðmæti þess margfaldast. Þetta hafa Islendingar verið seinir að skilja. Atvinnugreinar sem byggj- ast á menntafólki hafa ekki ratt sér mikið til rúms á Islandi og því hefur lítil eftirspurn eftir því gert það að verkum að það er lágt laun- að og menntun þess hefur ekki nýst þjóðfélaginu sem skyldi. Nú stöndum við á hinn bóginn á krossgötum og ef þetta breytist ekki á allra næstu árum er ís- lenskt samfélag dæmt til að drag- ast aftur úr nágrönnum sínum á næstu öld. Við munum missa menntafólk úr landi í stóram stíl og í besta falli vera verstöð og áfangastaður erlendra og vestur- íslenskra ferðamanna. Enn situr höfðingjastéttin á Is- landi sæl að sínu. Henni er sama yfir hverju hún drottnar svo lengi sem hún drottnar. Á meðan flytur menntafólkið úr landi og finnur sér ný Normandí. Höfundur cr 15. alþingismaður Reykvíkinga. Magnús Árni Magnússon TILBOÐ £jósmyn3astofa Qunnars Sngimarssonar Suðurveri, sími 553 4852 MATARLITIR fyrir kökur, marsipan og skreytingar 15 mismunandi litir afkonfektmóti.m PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 Sími 562 3614
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.