Morgunblaðið - 11.12.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENPAR GREINAR
Hver er full-
trúi hvers?
ÞEGAR íslenskt
Alþingi var endur-
reist fyrir rúmlega
einni og hálfri öld var
gengið út frá því að
íbúar hvers héraðs
skyldu kjósa sér þann
fulltrúa sem þeir
treystu best til að
ráðgast við fulltrúa
annarra héraða,
kosna á sama hátt; og
því var trúað að þar
með væri fengin sú
„bestu manna yfir-
sýn“, sem frá fornu
fari var talin forsenda
þess að hægt væri að
taka skynsamlegar
ákvarðanir um stjórnarmál lands-
ins.
Síðan hefur margt breyst.
Stjómmálaflokkar urðu til og með
tímanum var kjördæmaskipun
landsins stokkuð upp; í stað þess að
Kosningakerfi okkar er
val á milli flokka, segir
Kristján Bersi
Ólafsson, sem þýðir
að þingmenn eru
kjörnir á flokks-
legum forsendum.
fá að kjósa sér þingmenn hafa kjós-
endur síðan 1959 orðið að láta sér
nægja að velja bókstaf í kosningum
til alþingis. Fyrir kjósendur hefur
þessi breyting iðulega þýtt að þeir
geta ekki kosið þá sem þá langar til
að styðja án þess að stuðla að því
um leið að einhverjir aðrir nái kjöri,
sem þeir jafnvel síst af öllu vildu
hafa íyrir fulltrúa sína á þingi. En
þetta er auðvitað bara afleiðing
þess að við kosningar núna era það
flokkamir sem sitja í fyrrirúmi og
þær snúast ekki lengur um það að
velja milli einstaklinga, heldur er
kosið um flokka og stefnumál.
Þessi breyting hefur líka haft
grandvallaráhrif á stöðu þing-
manna. Þeir era ekki fýrst og
fremst kosnir á þing vegna mann-
kosta sinna eða vinsælda heldur
hljóta þeir sætið fyrir atbeina ein-
hvers stjórnmálaflokks. En löggjöf
um kosningar og starfshætti á
þingi hefur ekki breyst til samræm-
is við þetta. Öðrum þræði er ennþá
látið eins og stjómmálaflokkar séu
ekki til og þingmenn séu þingmenn
vegna eigin verðleika en ekki vegna
flokksins sem studdi þá til þingset-
unnar. Þetta misræmi milli vera-
leika nútímans og hugmynda fortíð-
arinnar er stundum í
seinni tíð farið að taka
á sig fáránlegar mynd-
ir.
Það er ekki nóg með
að einstakir þingmenn
hafi iðulega sagt skilið
við flokkinn sinn á
miðju kjörtímabili, en
setið þó sem fastast
áfram á þingi. Núna er
kominn fram þingmað-
ur sem lætur ekki við
það sitja, heldur geng-
ur beinlínis til liðs við
andstæðingana og leit-
ar til þeirra eftir
stuðningi við áfram-
haldandi þingsetu.
Þarna finnst mér mælirinn vera
endanlega fullur.
Við verðum einfaldlega að hafa
eitthvert samræmi í hlutunum.
Fyrst við höfum ákveðið að haga
kosningafyrirkomulagi okkar
þannig að valið sé fyrst og fremst
milli flokka en ekki einstaklinga
verðum við líka að skoða stöðu ein-
stakra þingmanna í samræmi við
það. Við getum ekki lengur haldið í
þann sýndai’veraleika að þingmenn
sitji á þingi sjálfs sín vegna og ef
menn hafa ekki sómatilfinningu til
að sjá þetta sjálfir verður löggjaf-
inn að grípa í taumana. Það væri
einfaldlega hægt að gera með því
að lögfesta ákvæði um að þingmað-
ur, sem segir skilið við flokkinn
sem kaus hann á þing, skuli þegar í
stað láta af þingmennsku og eftir-
láta varamanni sæti sitt.
Með þessu er ég ekki að segja að
þingmenn megi ekki skipta um
skoðun eða flokk. En ef þeir ætla
sér að stíga slíkt skref held ég
þeim væri hollt að líta til fordæmis
Hermanns Guðmundssonar. Hann
sat á þingi fyrir Sósíalistaflokkinn
1946-1949 og var orðinn undir lok-
in óánægður með ýmislegt í fari
flokksins síns, en hann sagði sig
ekki úr honum fyrr en daginn eftir
næsta kjördag.
Höfundur er skólanieist-ari f
Flensborg í Hafnarfirði.
( N
BIODROGA
jurtasnyrtivörur
Kristján Bersi
Ólafsson
HAFÐU ÞAÐ FRA ISLENSKT-FRANSKT
.MaifÓlL þaf) SDúUtió oilltl
Borgarnes kjötvörur ehf.
Sfmar 437-1190 ■ 687-6077 - F«x 437-1093
- fllltafbetra!
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 61v
Ferskir leggir a
fersku veröil
FJARÐARKAUP
Ferð til fjár!
og letty fyrir jolin J
i
Fljotlegt og auðvelt
aðelda, enn betra
að borða.
Verði ykkur
aðgóðu!
KJUKLINGAR
Finndu muninn!
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is
S> mbl.is
-ALLTAf= eiTTHVAÐ NÝTT
itnu m
e m i' u 'i
Eiginleikar Tempur felost
fyrst og fremst í þrýsti-
jöfnunoreiginleikum
efnisins. Koddinn
lagor sig 06 hito og
þrýstingi höfuðs og hóls.
Þor af leiðondi myndast
engir þrýstipunktar og
blóðstreyQii helst óheft.
Heilsukoddinn sem
sjúkroþjólforar,
kíróproktorar og iðjuþjólfor
um lond ollt mælo meó.
Dýno þrouó af NASA fyrir geimfara - nú faanleg fyrir þig
Faxafeni 5 • 108 Rvk « Simi;S88-8477