Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
Litir: Svart, brúnt
Stærðir: 36-41
Tegund: 1541
Verð: 10.900
Mikið úrval af leðurstígvélum
STEINAR WAAGE
DOMUS MEDICA
við Snorrobiout • Reykjovík
Sími 551 8519
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 • Reykjovík
Sími 5689212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
S% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Kynnum nýju
Oroblu tísku-
línuna T98 -T99
föstudaginn
11. des. kl. 14-18
20% afsláttnr
APOTEK
GARÐABÆJAR
Garðatorgi, Garðabæ,
sími 565 1321.
Urval af stuttum
og síðum kjólum
á yngri sem eldri
Tiskuverslun « Kringlunni 8-12»Sími 553 3300
Barbarn
Oossi
BRÉF TIL BLAÐSINS
Nú er lag alþingismenn
Frá Sigurbjarti Jóhannessyni:
NÚ HEFUR Hæstiréttur staðfest
það, sem öll þjóðin vissi, e.t.v. að-
undanskildum flestum þeim sem á
Alþingi íslendinga sitja, að réttur
landsmanna við gjafaúthlutanir
fiskveiðiheimilda til örfárra útval-
inna aðila er grófleg mismunum.
Með þessu háttalagi sjávarútvegs-
ráðuneytisins myndaðist hér á
landi hástétt, svokallaðir sægreif-
ar, sem með heimild til að fram-
selja veiðiheimildir gátu auðgast
gífurlega á sölu kvóta. Sumir hafa
reyndar hætt að gera út skip og
veiða fisk heldur leigja hæstbjóð-
endum heimildina til að veiða.
Engan þarf að undra þótt þessir
aðilar vilji ekki borga réttum eig-
endum fyrir heimildina. Þeir voru
einfaldlega ekki vanir að borga
fyrir sig. Það varð uppi fótur og fit
á hinu háa Alþingi þegar þessi
staðreynd blasti við og ráðleysið
er algjört. Eins og það ætti ekki
að vera augljóst nú að ekkert ann-
að en veiðileigugjald kemur til
greina. Gjald fyrir að fá að veiða.
Enginn fær að veiða í ám landsins
án þess að borga fyrir heimildina
og sums staðar er aflahámark.
Sveitarfélog selja einnig aðgang
að sundstöðum þótt íbúarnir eigi
sundlaugarnar. Sumir alþingis-
menn segja að það muni eyða
byggðum landsins ef útgerðirnar
borgi fyrir veiðiheimildir. Ekki
hafa sunnlenskar byggðir verið
eyddar, þótt þær hafi hvorki hlotið
gjafafyrirgreiðslu í kaupum á
fiskiskipum né úthlutanir á veiði-
heimildum. Þá mætti hugsa sér að
hluta kvótans yrði úthlutað svæða-
skipt, þannig að sveitarfélög
fengju að endurleigja aflaheimild-
ir sem væri þannig hluti af gjald-
stofnum sveitarfélaganna. Þá væri
sveitarfélögum í sjálfsvald sett
hvort heimildin rynni til aðila inn-
an sveitarfélagsins.
Umfram allt, notið nú tækifærið
virðulegu alþingismenn og krefjist
leigugjalds fyrir aflaheimildir. I
framhaldi af því leysið þjóðina
undan þeirri þjóðarskömm sem
tekjuskattskerfið er og afnemið
tekjuskattinn. Sýnið öðrum þjóð-
um fordæmi, verið ekki alltaf að
elta og apa eftir öðrum. Sýnið for-
dæmi einnig í skattlagningu. Það
mætti byrja á að afnema tekju-
skattinn í þrepum af öryrkjum,
öldruðum, sjómönnum, opinberum
starfsmönnum, öðrum launþegum,
o.s.frv. Þó ekki fyrr en þjónusta
við framangreinda aðila hefur ver-
ið bætt. Mest áríðandi er að bæta
heilbrigðisþjónustuna, trygginga-
kerfið, menntakerfið, fræðslu um
fíkniefni og fíkniefnavarnir.
SIGURBJARTUR JÓHANNESSON,
Víghólastíg 24, 200 Kópavogi.
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 71 ~
Meiriháttar leðurstígvél
mmc,
.
yerg Litir: Svart - brúnt
10.900 ——^——41
Póstsendum samdægurs
SKÆÐI
Kringlurmi, 1. hæð, s. 568 9345
OROBLU
NYJU ASKO
UPPÞVOTTAVÉLARNAR
Þær eru svo ótrúlega hljóblátar - og þvílíkur árangur
Vínglasahilla
Hnífaskúffa
Há neöri karfa
m ASKO fíokks ÆOnix
Sænskar og serstakar frama# hátúni6A reykjavi'k sími 552 4420
Við kaLpja frímesdd.
Eirii sinni sm knun við til íslands
V ið kaupuna íslaosk cg erlaod frinHEkjasöfn, gönxil umslög,
lEÍTar eitkir. Við getrm eimig' tdcið blutina á rpptooð.
KjaLl Larsscn verður á íslandi 14.—16. cfesa±Hr.
Áhjgasarár seljaniir geta baft satfcand við KjéLl
í síita 00464072290, fax 00464072299 eða
HótaL ísland, Árnúla 9, s&i 568 8999.
Stærsta frfcrerkjarEptooðsfyrirtMd á NurðurlcriiiTi í yfir 25 ár.
POSTILJONEN, Södra Tullgatan 3, IfeTitö, Svitgóð.
ANTIK
Nýkomið frá Danmörku úrval af
húsgögnum og gömlum munum.
Tilvalið til jólagjafa.
Bókamarkaður
Úrval af nýjum og gömlum bókum.
Hverfisgötu 39 sími 869 1669 - Opið frá kl. 12.00 til 18.00
Hugleiðingar ungs
íslendings
Frá Björgvin Hilmarssyni:
KÆRI Halldór Finnsson. Ég rak
augun í bréf þitt í Morgunblaðinu
2.12. þar sem þú opinberar hug-
leiðingar þínar. í máli þínu koma
fram vangaveltur eins og hvar allt
það fólk sem mætti á fund Hálend-
ishópsins hafi verið þegar virkjað
var fyrir stór-Reykjavíkursvæðið
og að gróður og fuglalíf í kringum
vötnin og í þeim sjálfum (væntan-
lega uppistöðulónin) sé meiri en
áður. Fólkið sem mætti á fundinn
hefur eflaust á sínum tíma verið
ómeðvitað um umhverfisáhrif af
völdum virkjana en nú er öldin
önnur og fólk orðið ábyrgara
gagnvart umhverfi sínu. Þetta með
að gróður og fuglalíf hafi aukist
veit ég, jafnvel og þú, að er ekki
satt.
Þetta er ekki spurning um að
vera „fordæma nokkuð fyrirfram“
eins og þú kemst að orði, heldur er
krafan sú að stórframkvæmdir eins
og virkjanir og uppbygging stór-
iðju séu íhugaðar vandlega og allir
þættir skoðaðir. Þeir sem vilja
þrýsta málum í gegn án umhverfis-
mats og nægilegi’ar íhugunar, líkt
og framsóknarmennirnir sem höfn-
uðu umhvei’fismatinu um daginn,
geta vart talist annað en skeyting-
arlausir og óábyi’gir.
Sem einn af ungu kynslóðinni vil
ég benda á að við sem eigum að
erfa þetta fallega land af foreldrum
okkar höfum ekki áhuga á að lifa í
landi sem keppir við þriðjaheims-
ríki um hráefnisframleiðslu og hef-
ur reykspúandi stói’verksmiðjur
hvert sem litið er með tilheyrandi
mengun. Við förum fram á að
nýrra leiða sé leitað sem ekki
ganga svo óhóflega á náttúru, sem
við og komandi kynslóðir höfum
áhuga á að eiga ósnortna.
BJÖRGVIN HILMARSSON,
Vesturási 5, Reykjavík.
Siíreínisvörur
Kynning
í Holts Apóteki,
Giæsibæ, f dag kl. 14—18.
www.mbl.is