Morgunblaðið - 20.12.1998, Page 14
14 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Olafur Gottskálksson stendur sig vel í marki Hibernian
Hafði gott af mótlæti
og mikilli niðursveiflu
Wenger
vill yfir-
gefa
Highbury
Ólafur Gottskálksson hefur
fengið góða dóma fyrir leik
sinn í marki Hibernian,
sem er efst í 1. deild skosku
------------------7--------
knattspyrnunnar. I samtali
við Steinþór Guðbjartsson
kom fram að markvörður-
inn er tilbúinn að leika
með landsliðinu á ný
verði óskað eftir því.
Olafur Gottskálksson og samherjar í Hibemi-
an voru með sex stiga forystu í 1. deild
skosku knattspyrnunnar fyrir leiki helgarinnar
og hafa sett stefnuna á að endurheimta sætið í
úrvalsdeildinni. Liðið hafði leikið 19 leiki og var
með 41 stig, hafði aðeins tapað tveimur leikjum.
„Við höfum leikið á annan tug leikja í röð án taps
og unnið nokkra leiki í röð, en allt hefur verið
upp á við frá byrjun keppnistímabilsins,“ sagði
Olafur við Morgunblaðið.
Barðist fyrir stöðunni
Olafur gerði samning við Hibs sumarið 1997 og
gildir hann út júní 2000. Hann lék 16 fyrstu leik-
ina í úrvalsdeildinni í fyrra en missti mark-
mannsstöðuna um áramótin.
„Eg fékk stöðuna aftur í byrjun febrúar á
þessu ári og fór því frá Kýpur þar sem ég var
með landsliðinu. Síðan var Alex McLeish ráðinn
knattspyrnustjóri og hann kom með nokkra nýja
leikmenn með sér, meðal annars markvörðinn
Bryan Gunn. McLeish sagði við mig á liðinni ver-
tíð að ég væri ekki inni í myndinni en mótlætið
herti mig. Eg lagði gífurlega mikið á mig innan
sem utan vallar á undirbúningstímanum, ætlaði
að sanna að hann hefði haft rangt fyrir sér og
gæti notað mig. Eg ætlaði mér að komast í liðið
en gengi það ekki upp ætlaði ég að vera vel búinn
undir það að reyna mig hjá öðru liði. Síðan var
Bryan Gunn svo óheppinn að meiðast og því fékk
ég tækifærið. Eg greip það, álit McLeish á mér
hefur breyst smátt og smátt og hann hefur orðið
æ jákvæðari í minn garð. Eg hef spilað jafn vel
frá byrjun og er mjög sáttur við frammistöðuna
til þessa. Eg lék alla sjö leikina á undirbúnings-
tímanum, hef ieikið alla leikina í deildinni og þrjá
bikarleiki. Með öðrum orðum hef ég haldið stöð-
unni og hef hug á að halda henni áfram.“
Markvörður númer eitt
Jason Gardiner, sem er 25 ára, var þriðji
markvörður Hibs þar til í ár að hann hefur verið
varamarkvörður hjá Ólafi. Auk þess er félagið
með tvo yngri markverði. Gunn er ekki tilbúinn
og þar sem Ólafur hefur staðið sig vel, virðist
veldi hans ekki ógnað.
„Stjórinn hefur sagt í fjölmiðlum
að ég sé markvörður númer eitt.
Reyndar var hann að leita að öðr-
um markverði um daginn og fékk
varamarkvörð Mónakó til okkar til
reynslu, sagði að hann væri góður
varamarkvörður lyrir mig ef ég
meiddist, en hann fór fljótlega aft-
ur. Bryan Gunn lenti í slæmum
meiðslum og þó að hann æfi á fullu
með okkur er hann ekki orðinn
nógu góður. Hann er orðinn 35 ára
og mikill skrokkur en íyrir vikið á
hann erfitt með að ná sér á strik
eftir að hafa verið eins lengi frá og
raun ber vitni.“
Hibs á nú þrjá leiki í röð á
heimavelli, við Clydebank, Ayr
United og Raith Rovers, en vann
Falkirk, sem er í öðru sæti, 2:1 um
liðna helgi. „Við erum með góða
forystu og stefnum upp,“ sagði
Ólafur, sem hefur fengið góða
dóma. „Hvað sjálfan mig varðar er
allt miklu bjartara en það var á
seinni hluta síðasta tímabils og fyr-
ir líðandi tímabil en þetta er gott
ÓLAFUR Gottskálksson hefur staðið sig vel í marki Hibernian í 1. deild skosku knatt-
spyrnunnar á tímabilinu.
ARSENE Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, segist
óttast að haldi Arsenal
áfram að halda tryggð við
Highbury muni félagið helt-
ast úr lest bestu liða í
Englandi. Ástæðan er sú að
félagið verður af miklum
tekjum vegna þess að völlur-
inn getur aðeins tekið
38.000 áhorfendur í sæti,
sem er mun minnna en t.d.
heimavöllur Manchester
United tekur. „Mín skoðun
er sú að félagið eigi að bjóða
upp á völl sem tekur 60.000
áhorfendur, það er ekki
mögulegt á Highbury. Fé-
lagið á ekki möguleika á að
stækka völlinn.“ Forráða-
menn Manchester United
hafa í hyggju að stækka
áhorfendasvæðin við völl
sinn, Old Trafford, þannig
að hanh rúmi 67.000 áhorf-
endur í sæti. Slíkt færir fé-
laginu gríðarlegar tekjur til
viðbótar því færri áhorfend-
ur en vilja komast á leiki
liðsins. Núna rúmar Old
Trafford 55.000 áhorfendur.
Sama vandamál er upp á
teningnum hjá Arsenal.
Vegna þess að Highbury-
völlurinn tekur svo fáa
áhorfendur ákvað stjórn Ar-
senal að Ieika heimaleiki
sína í Meistaradeild Evrópu
í haust á Wembley. Það hitti
svo sannarlega í mark og
um 75.000 áhorfendur
mættu að meðaltali á hvern
heimaleik liðsins. Það skil-
aði félaginu um leið um 170
milljónum króna í tekju-
aukningu af hveijum leik.
Árangur liðsins var hins
vegar ekki nógu góður og
liðið komst ekki áfram.
Wenger telur að ein ástæð-
an sé sú að leikmenn séu
ekki vanir að leika á stórum
leikvelli og nauðsynlegt sé,
ætli það sér í fremstu röð,
að leika sem oftast á stórum
velli. Slíkt sé einn liður í að
byggja upp stórlið á evr-
ópskan mælikvarða.
Arsenal hefur verið neitað
um aukið land til þess að
stækka völl sinn í Lundún-
um. Rætt hefur verið um að
byggja nýjan völl annað
hvort í Kings Cross eða jafn-
vel í Milton Keynes.
dæmi um að hlutimir eru fljótir að
breytast í knattspymunni."
Karfan kæfð í fæðingu
Ólafur er ekki aðeins góður
er ekki aðeins
markvörður heldur hefur hann
þótt öflugur körfuknattleiksmaður.
Þetta spurðist út í Edinborg í sum-
arbyijun og lið í borginni hafði
áhuga á að fá kappann en mark-
vörðurinn var ekki sama sinnis.
„Það stóð aldrei til að fara í körf-
una. Liðið frétti að ég hefði spilað
20 landsleiki, túlkuðu það sem A-
landsleiki en ekki unglingalands-
leiki, sem um var að ræða. Menn
héldu að ég væri mikil körfubolta-
stjarna en ég kæfði þessar hug-
myndir í fæðingu. Þetta var á net-
inu en við hjá Hibs tókum þessu
bara sem gríni.“
Ólafur er kvæntur Mörtu Guð-
mundsdóttur, fyrrverandi lands-
liðskonu í körfuknattleik, og eiga
þau dótturina Andreu Björt, sem
er þriggja ára. „Lið héma hafa
sóst mikið eftir því að fá hana til
liðs við sig en hún hefur haft um
annað að hugsa, er meðal annars í
fjamámi við Kennaraháskóla Is-
lands.“
Tilbúinn í iandsliðið
Sem fyrr segir var Ólafur með
landsliðinu í æfingaferð á Kýpur
þegar hann fór til Skotlands til að
spila með Hibs. Birkir Kristinsson
var þá kallaður til Kýpur og hefur
verið landsliðsmarkvörður síðan en
Ólafur hefur ekki verið valinn í
hópinn aftur.
„Eins og staðan er núna hugsa
ég fyrst og fremst um að standa
mig héma úti. Á meðan ég geri það
hlýt ég að vera hæfur til að spila
með landsliðinu þegar það þaif á
mér að halda. Aðalatriðið er að
standa mig í starfinu og gangi það
vel vona ég að ég fái aftur tækifæri
með landsliðinu. Þetta leit ekki vel
út á tímabili en ég hef lært mikið af
því að hafa lent í mikilli niður-
sveiflu og mótlæti. Það er góð
reynsla."
Engquist á
bobbsleða
SÆNSKA hlaupakonan Lud-
milla Engquist, sem sigraði í
110 metra grindahlaupi á
Ólympíuleikunum í Atlanta
1996, hefur í hyggju að keppa
á tveggja manna bobbsleða á
vetrarleikunum í Salt Lake
City 2002. „Ég hef mikla trú á
að ég geti sigrað og hversu
margir hafa fengið gull, bæði á
sumar- og vetrarleikum?" sagði
hin rússneskættaða Engquist.
Það gæti auðvitað verið
gaman fyrir hana að sigra á
vetrarólympíuleikunum, en
fyrst þarf alþjóða ólympíu-
nefndin að heimila konum að
keppa á bobbsleðum á leikun-
um. Engquist segir að sig
vanti einhvern til að vera með
sér og vill helst fá skíðakon-
una Pernillu Wiberg. „Hún
væri fullkomin í þetta. Hún
hefur kraftinn sem til þarf og
svo veit hún allt um hóla og
brekkur,“ segir Engquist. Wi-
berg virðist einnig hafa
nokkurn áhuga: „Ég er viss
um að við gætum náð langt, en
við verðum að sjá til. Ég verð
að finna einhvern tíma til að
æfa þetta,“ sagði hún.