Morgunblaðið - 20.12.1998, Side 22

Morgunblaðið - 20.12.1998, Side 22
22 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MIKIL UMSKIPTI bjartsýnina að leiðarljósi 0ksfjord er höfuóstaóurinn í Loppa-héraöi í Noróur-Noregi. í héraóinu búa um 1.450 íbúar. Fram á miójan þennan áratug var þar allt í kaldakoli, atvinnuleysi, fólksflótti og vonleysi. Svo varó vióhorfsbreyting. Guðni Einarsson heimsótti 0ksfjord þar sem allt er nú á uppleiö, störfum fjölgar og bjartsýnin ræóur. íslendingar eiga ekki minnstan þátt í breyttu atvinnuástandi. 0KSFJORD er lítið sjávar- þorp undir brattri fjallshlíð. Um miðjan desember grám- ar fyrir degi um hádegið, annars er þar svarta myrkur, enda bærinn ná- lægt 71°N - um 300 km norðan við heimskauts- baug. Greinarhöfundur var í hópi norrænna frétta- og blaðamanna sem sótti námsstefnu í Finnmörku um miðjan desember. Viðfangs- efnið var hvernig fólk kemst af á norðurslóð- um. Stjórnendur ráð- stefnunnar voru dr. Sigrún Stefánsdóttir, rektor Norrænu blaða- mannamiðstöðvarinnar í Árósum, og Magne Kveseth frá Norrænu uppiýsingamiðstöðinni í Alta í N-Noregi. Pað þótti sérstök ástæða til að heimsækja þennan litla bæ þar sem tekist hefur að snúa neikvæðri byggðaþróun í já- kvæða. Eftir fimm stundarfjórðunga sigl- ingu frá Alta lagði hraðbáturinn Mjánes að bryggju í 0ksfjord. Ame Dag Isaksen oddviti sveitarstjóm- arinnar og Jostein Stordal skrif- stofustjóri tóku á móti hópnum og sögðu frá ævintýrinu sem er að ger- ast þarna við ysta haf. Isaksen sagði að þama væri að skapast fjölþjóðlegt samfélag, íri stjómar nýrri fiskifóðurverk- smiðju og íslensk kona hans rekur matvöra- verslun í bænum. Pá era rússneskir togarar aufúsugestir, en þeir landa fiski hjá fyrir- tæki sem er í eigu ís- lendinga og stýrt af Is- lendingi. Hörmungarár aö baki A árum áður var at- vinnulífið í Oksfjord mjög einhliða, á 7. ára- tugnum unnu t.d. nær allir sem vettlingi gátu valdið hjá síldarverksmiðjunni í bænum. Verksmiðjan var sóðaleg og byggðarlagið líka, að sögn Isaksens. Svo hallaði undan fæti í síldinni og árið 1995 var ástandið orðið mjög dapurlegt í 0ksfjord. At- vinnulífið í rúst, gjaldþrot og upp- sagnir dundu yfir með tilheyrandi atvinnuleysi. Unga fólkið flykktist í burtu. Pað var óróleiki meðal fólks- ins sem eftir var og heilsufarið versnaði. Stjórnun sveitarfélagsins var í molum. Samstarf flokka í sveitarstjórn splundraðist og öll for- ysta lamaðist í raun. Sveitarfélagið fékk mjög neikvæða umfjöllun í fjöl- miðlum, almennt ríkti vonleysi um framtíð byggðarinnar í Loppa. Fjöldasöngur í bæjarstjórn „Petta er lítið sveitarfélag og allir þekkja alla, þegar fólk hittist talaði það gjarnan á neikvæðu nótunum, enda var sveitarfélagið í fríu falli, ef svo má segja,“ sagði Isaksen. „Pað þurfti að grípa til einhverra ráða. Við stofnuðum það sem við kölluð- um Loppa-teymið og brugðum á ýmis ráð til að breyta andrúmsloft- inu. Til dæmis byrjuðum við bæjar- stjómarfundina með fjöldasöng.“ Pað var meðvitað reynt að opna allt stjómkerfi sveitarfélagsins og kynna fólki innviði atvinnulífsins svo það vissi hvaðan tekjumar kæmu. Ekkert pukur skyldi viðhaft! Isaksen segir að það hafi verið nauðsynlegt að nálgast viðfangsefn- in á óhefðbundinn hátt og að reyna að finna nýjar leiðir til að brjótast út úr neikvæðninni sem farin var að tröllríða öllu. Lögð var áhersla á samstarf, þvert á stjómmálalegar girðingar, og að allir hefðu hags- muni heildarinnar í fyrirrúmi. Keppt að sama marki Isaksen segir að það hafi tekist að slá á sundrangina í forystuliði sveitarfélagsins. Hann segir að menn hafi gert sér grein fyrir því að virkja þyrfti bæði stjórnmálaforyst- una og embættismenn sveitarfé- lagsins. Skipulega var gengið í að setja sveitarfélaginu framtíðar- markmið. Allir urðu að keppa að sama marki, til að árangur næðist. Verkefnum var úthlutað og hlut- verkum skipt. Það þurfti líka að byggja upp skilning á því að jafnvel þyrfti að grípa til óhefðbundinna lausna. Isaksen segir að það hafi verið mikilvægt að forystumenn bæjarins sýndu einingu út á við og að sveitar- stjómin veitti ákveðna og styrka forystu. Pað var líka mikilvægt að byggja upp trúnað, innan stjóm- málaforystunnar og gagnvart starfsfólki sveitarfélagsins. Þetta nýja traust hafi smitað út frá sér og virkað hvetjandi á íbúana. Nýir tímar Haustið 1996 var andrúmsloftið í sveitarfélaginu gjörbreytt. Við- horfsbreytingin varð á öllum svið- um, jafnt í forystu bæjarins og á meðal íbúanna, að sögn Isaksens. Hann segir það hafa verið mikil- vægt að byggja upp trúnað og tryggð hjá bæjarbúum, því þeir skipti allir miklu máli. Til dæmis sé ræstingakonan ekki síður mikilvæg en skólastjórinn í barnaskólanum. Mæti hún ekki í vinnu, þá sé skólan- um lokað vegna vanþrifa, en kenn- aramir geti leyst skólastjórann af um tíma. Frá þvi umskiptin urðu hefur ríkt bjartsýni, framkvæmdagleði og trú á framtíðina í sveitarfélaginu, að sögn Isaksens. Hann segir að fólki sé ljóst að það beri sameiginlega ábyrgð. Menn eru hvattir til að eignast ft-amtíðarsýn og að þora að stíga ný skref. „Petta er sjávarbyggð og byggir á hinum hefðbundnu atvinnuveg- Morgunblaðiö/Guðni 0KSFJORD. Fyrir miðri mynd blasir við ný fóðurverksmiðja Polarfeed a/s. Við bryggjuna fjær til hægri er athafnasvæði Loppa Fisk a/s. um,“ segir Isaksen. „En það þurfti að uppgötva nýja vaxtarmöguleika og skoða hvar tækifærín lágu.“ Leifarnar af síldarverksmiðjunni voru hreinsaðar burt og þar skapað- ist nýtt athafnasvæði á besta stað við höfnina. Einnig var leitað nýrra leiða í sambandi við sjávarútveginn. Farið var að veita flutningsstyrki til ungs brottflutts fólks sem vildi snúa aftur heim og fá sér vinnu. Skilyrði var að fólkið væri ekki atvinnulaust annars staðar. Samstarf innan héraðsins var eflt og einnig efnt til nánara samstarfs við önnur héruð í Finnmörku. Möguleikar til opinberra styrkja vora kannaðir og nýttir. Það skyldi enginn ætla að þetta hafí gengið þrautalaust fyrir sig. Isaksen segir að þrotlaus vinna liggi að baki, bæj- arfulltrúarnir og starfsfólk bæjar- ins hafi lagt nótt við dag. Stóraukin fjárfesting Isaksen segir að sveitarfélagið hafi lagt út alls 230 milljónir ís- lenskra ki'óna til að hvetja til fjár- festingar. Þar með er talin lóð undir laxafóðurverksmiðju, lagfæring á hafnaraðstöðu og fleira. Sveitarfé- lagið fékk um 200 milljónir til baka, m.a. frá ríkinu og fylkinu, þannig að bein útgjöld era um 30 milljónir ís- lenskra króna. Pessar aðgerðir hafa orðið til þess að náðst hafa fjárfest- ingar upp á um 1,2 milljarða ís- lenskra ki’óna inn í sveitarfélagið. Þannig hafa skapast og era að verða til um 400 ný störf í þessu 1.450 manna byggðarlagi. Svo hröð er atvinnuuppbyggingin að til greina kemur að hefja reglulegar ferðir með vinnuafl frá Alta til 0ks- fjord. Það þarf líka að huga að velferð fólksins. Pað era ekki margir af- þreyingarmöguleikar í 0ksfjord sem stendur, en Isaksen segir að bókasafnið sé mikið notað! Umbreytingin í 0ksfjord er rétt upphaf þess sem koma skal, ef marka má Isaksen bæjarstjóra. Hann segir að áfram þurfi að hvetja til enn meiri fjölbreytni í atvinnulíf- inu og styrkja búsetuna í sveitarfé- laginu. Það sé mikilvægt að stuðla að því að lykilfólk haldist í plássinu. Einnig þurfi að laða að hæft vinnu- afl og fjárfesta sem reiðubúnir eru að taka áhættu með hagnaðarvon í huga. ► ARNE Dag Isaksen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.