Morgunblaðið - 20.12.1998, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
heilræðavísur. En við fáum líka
vörur frá útlöndum, t.d. frá Bret-
landi, Belgíu og Frakklandi sem
búa til trúarlegar vörur. Einnig
flytjum við inn nokkuð af vörum frá
Bandaríkjunum." Hver ætli sé
vinsælasta varan í búðinni? „Mjög
mikið af því sem keypt er hér snýst
um bænalíf barna - ekki síst í jóla-
versluninni. Þar á ég við bænabæk-
ur, barnabiblíu, bænir og heilræða-
vísurnar í römmum og englastytt-
ur. Englamir era hér sem betur fer
yfir og allt um kring. Ekki má
gleyma krossunum og helgimynd-
unum. Við flytjum og inn íkona frá
listagalleríi í Belgíu. Þeir eru ekki
handmálaðir en vandaðir eigi að
síður.“
Skilar verslunin kirkjunni
hagnaði? „Kirkjuhúsið styður mjög
vel við Skálholtsútgáfuna. Þetta er
forlagsverslun útgáfunnar og hún
er henni mjög nauðsynleg. Venju-
legar bókabúðir setja kirkjulegar
bækur oft „neðan nafla og ofan
hnés“ í hillur. Það er mjög mikil-
vægt fyrir kirkjuna að hafa kristi-
lega bókabúð, ekki síst hérna við
Laugaveginn. Þar er hægt að nálg-
ast allar kristilegar bækur sem
gefnar hafa verið út og líka úrval af
erlendum bókum um kristilegt efni
á einum stað. Það er ómetanlegt
fyrir Skálholtsútgáfuna að hafa
þessa verslun fyrir bækur sínar.
Þetta er blönduð verslun og það
eru einu verslanirnar sem ganga á
íslandi í dag. Kirkjuhúsið með vör-
ur sínar og bækur gerir Skál-
holtsútgáfunni kleift að gera allt
það sem hún gerir.“
En hvað gerir Skálholtsútgáfan
helst? „A þessu ári hefur Skál-
holtsútgáfan til dæmis gefið út nýju
sálmabókina. Við erum einnig gefa
út bækur fyrir organista og
bamakóra með trúarlegri tónlist.
Við erum að ljúka við að koma í út-
gáfu nýrri söngbók fyrir sunnu-
dagaskóla, með 170 söngvum og
nótum við. I vor gáfum við út bók-
ina Börn í sorg eftir séra Sigurð
Pálsson sem vakið hefur mikla at-
hygli. Einnig gáfum við út aðra bók
eftir Sigurð Pálsson sem heitir
Börn og bænir. Þá gáfum við út í
vor bókina Lifandi kirkja eftir séra
Kjartan Jónsson kristniboða. Hún
kom út í kjölfar ferða biskups á
kristniboðsslóðir í Afríku. Við gáf-
um út prósaljóðabók sem séra Jón
Bjarman þýddi eftir biskupinn í
Stokkhólmi, Caroline Crook. Við
erum búin að gefa út mikið efni fyr-
ir barna- og æskulýðsstarf í haust.
Við sjáum um alla útgáfu fyrir
barna- og unglingastarf kirkjunnar.
Og við gáfum einnig út bók sem
heitir Stund í snatri og einnig jóla-
dagatal fyrir leikskóla sem heitir:
Pabbi er Guð svartur á nóttunni og
hvítur á daginn? Síðan gefum við út
kirkjuritið, fréttablaðið Víðförla og
ritröð Guðfræðistofnunnar. Loks
tvær barnabækur í síðasta mánuði,
önnur heitir Hirðir og hundrað
kindur og hin heitir Ævintýri frá
ýmsum löndum. Einnig prentum
við ýmislegt smálegt, svo sem kort
sem gefin eru börnum sem
heimsækja kirkjur landsins.
Hvað með útgáfu næsta árs?
„Utgáfa næsta árs er mjög víðtæk.
Þar á meðal gefum við út bók fyrir
börn sem heitir Framtíðarlandið. í
þeirri bók er saga fyrir hvern dag
frá 1. desember 1999 til 1. janúar
árið 2000. Þetta eru biblíusögur,
nýjar sögur frá Norðurlöndum og
eldri sögur ainnig. Gert er ráð fyrir
að foreldrar eða börnin lesi eina
opnu á dag í bókinni þennan tíma.
Þetta er barna- og fjölskyldubók
Morgunblaðið/Porkell
EDDA Möller framkvæmdastjóri í húsakynnum Kirkjuhússins, forlagsverslunar Skálholtsútgáfunna að Laugavegi 31.
ingaþjónusta bókasafns - mér dett-
ur það stundum í hug. Upplýsinga-
hlutverk okkar er orðið svo stórt
gagnvart kirkjunum, prestunum og
starfsfólki kirknanna. Sem slíkt
rekum við þessa verslun - sem for-
lagsverslun Skálholtsútgáfunnar.
Við útvegum oblátur, kerti, dúka,
altarisklæði, rykkilín, sálmabækur
og hvað eina. Jafnvel hökla útveg-
um við - en erum þó ekki umboðs-
menn fyrir slíkt. Við bendum á þá
íslensku aðila sem búa til hökla en
ef þjónusta þeirra hentar ekki þá
útvegum við hökla frá Belgíu og
Bretlandi. Stærri kirkjur reyna að
kaupa íslenska hökla, en minni
kirkjur kaupa oft hökla frá útlönd-
um. Þeir íslensku eru yfirleitt tals-
vert dýrari í framleiðslu. Við lítum
á það sem okkar skyldu að benda á
þá íslensku aðila sem búa til hökla,
en við lítum einnig á það sem okkar
skyldu að útvega þeim kirkjum
hökla sem ekki geta keypt þá ís-
lensku."
En hvaðan skyldi gjafavaran sem
verslunin selur vera komin? „Margt
af því sem fæst í versluninni er ís-
lenskt. Við höfum aðeins þar á
boðstólum vörur sem hafa trúarlegt
gildi. Sumt látum við gera sjálf, svo
sem innrammaðar kvöldbænir og
VlÐSKIPn A3V1NNULÍF
Á SUMNUDEGI
►Kirkjuhúsið er forlagsverslun Skálholtsútgáfunnar sem hef-
ur á undanförnum árum orðið æ umsvifameiri í útgáfu á kristi-
legu efni. Edda Möller er framkvæmdastjóri Kirkjuhússins og
Skálholtsútgáfunnar. Hún er fædd 1959. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund og var á mennta-
skólaárum sínum eitt ár skiptinemi í Sviss. Hún lauk BA prófí í
þýsku og sagnfræði frá Háskóla íslands árið 1984 og hefur
verið starfandi hjá Skálholtsútgáfunni frá 1986. Hún hefur
verið framkvæmdasljóri Kirkjuhússins og Skálholtsútgáfunnar
frá 1990 en þá voru þessi fyrirtæki kirkjunnar sameinuð. Edda
Möller er gift séra Einari Eyjólfssyni fríkirkjupresti í Hafnar-
firði og eiga þau tvö börn - son sem heitir Einar Andri og er
nemi í Verslunarskóla íslands og dóttur sem heitir Inga Rakel
og er nemi við Lækjarskóla í Hafnarfírði.
Kirkjuhúsið er búið að vera
til frá 1982, fyrst starfaði
það á Klapparstígnum.
Hlutverk þess er að vera
þjónustumiðstöð fyrir kirkjuna og
verslun fyrir kirkjulega muni, bæk-
ur og fleira,“ segir Edda Möller
framkvæmdastjóri Kirkjuhússins
og Skálholtsútgáfunnar í upphafi
samtals við blaðamann Morgun-
blaðsins. Kirkjuhúsið er forlags-
verslun Skálholtsútgáfunnar og er
til húsa að Laugavegi 31. Þar inni
gefur að líta ýmsa fallega hluti, svo
sem kertastjaka af ýmsum stærð-
um, krossa áf margvíslegum gerð-
um, fjölbreytt úrval bóka og ótal-
margt fleira. Að öllu þar inni ólöst-
uðu vöktu innrammaðar kvöldbæn-
ir einna mestan áhuga blaðamanns.
Skilirí þessi eru prýdd myndum af
englum og börnum í bland við
prentaðar bænimar - myndir sem
vekja upp barnslegt trúnaðar-
traust, jafnvel í sálum þeirra sem
kannski telja sig fyrir margt löngu
hafa glatað því. Trúin og allt sem
henni fylgir er reyndar þarna yfir
og allt um kring - í slíkum mæli að
blaðamaður hefði hreint ekki orðið
svo undrandi þótt hann hefði mætt
þarna einhverri helgri persónu -
þótt ekki væri nema Þorláki helga.
En áður en til þess kemur býður
Edda Möller upp á kaffi og frekari
upplýsingar um fyrirtækið inni á
skrifstofu sinni. „Það er ekki
aðeins að kirkjur landsins geti
fengið hér alla þá muni sem yfir-
leitt prýða kirkjur heldur útvegum
við líka sem útgáfa allt efni sem
þarf fyrir innra starf kirkjunnar,
svo sem fyrir bama- og æskulýðs-
starf, hjónastarf og biblíuleshópa"
segir Edda. „Við gefum líka upplýs-
ingar um hvar hægt er að nálgast
efni, hvar það er að finna. Við erum
á margan hátt eins og upplýs-
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn
eðaltré, í hœsta gæðaflokki og prýða pau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
»• 10 ára ábyrgð
t*- 12 stœröir, 90 - 500 cm t*
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga f*
f* Truflar ekki stofublómin ;
SNORRABRAUT 60
Eidtraust
Þarf ekki að vökva
íslenskar leiðbeiningar
Traustur söluaðili
Skynsamleg fjárfesting
Bandalag islenskra skóta
Hugheilar þakkir fœri ég sonum mínum
og tengdadœtrum, fölskyldu minni og þeim
mörgu góðu vinum, sem samglöddust mér
á ýmsan hátt á áttatíu ára afmœli mínu
í september sl.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og blessun
sína á nýju ári.
Kær kveðja.
Lýdía Pálmarsdóttir,
Eskihtíð 5.
Verslunin og útgáfan
styðia hvort annað
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur