Morgunblaðið - 20.12.1998, Page 42

Morgunblaðið - 20.12.1998, Page 42
42 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐRÚN (STELLA) Margeir á erfiðum tímum. Hvíl þú í friði. Þbpar anaíát fvr Utfararfajónusta sem hyggir á langri regnslu Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf Sími 55 1 1266 www.utfarastofa.coni UTFARARSTO FA OSWALDS sími551 3485 ÞJÖNUS J A ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTRÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK LÍKKISTUVINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR Dæmi svo mildan dauða, Drottinn, þínu bami, eins og léttu laufi lyfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali. (M.Joch.) Dóra Hafsteinsdóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefúr hér hinn siðsta blund. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Stella mín. Nú er hún komin kveðjustundin sem bíður okkar allra, að okkar jarðnesku vist ljúki. Við erum ekki öll sátt við það þegar kallið kemur, stundum allt of fljótt. En þar sem ég tel að þú hafir heldur viljað lifa lífinu lifandi þá er ég sátt. Enda varst þú sönn hetja eins og hún dóttir mín sagði, og það eru orð að sönnu. Þú barðist hetjulega við illvígan sjúkdóm sem allt of marga okkur tengda hefur lagt að velli. Ég veit að þú hefðir heldur kos- ið að lifa til vors, en það vantar sjálfsagt fólk núna hjá Guði, sem er fært um að fága og fegra, eða dekorera eins og þú sagðir. Það var allt fallegt í kringum þig, bæði innan dyra og utan. Þú varst ein- stök hvað það snertir að öllum leið vel í návist þinni og þú mildaðir ekki fyrir þér að halda fjölmenn matarboð, enda lék allt í höndun- um á þér. Þið Maggi frændi minn áttuð fallegt heimili sem öllum var opið. Þar var gott að koma og verður áfram. Ég á ykkur svo margt að þakka að mig brestur orð. Hjá ykkur átti ég heimili í rúm tvö ár og var ætíð tekið sem einu af ykk- ar börnum. Með okkur tókst vin- átta sem aldrei bar skugga á. Þú reyndist mér vel bæði í gleði og sorg. Þið voruð líka svo miklir vin- ir mömmu og pabba, enda voru þau mamma og Maggi alin upp saman og ákaflega nátengd. Það voru farnar ferðir, innan lands og utan, og þegar ferðast var innan lands sögðu sumir að þið væruð undir seglum. Öll gamlárskvöldin sem við áttum með ykkur úti á © ÚTFARARÞJÓNUSTAN Stofnað 1990 EHF. Persónuleg þjónusta Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjórí G UNNARSDOTTIR + Guðrún (Stella) Gunnarsdóttir fæddist í Reykjavík 20. ágúst 1921. Hún lést á heimili sínu á Seltjamarnesi 11. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Ólafsson, f. 24. 8. 1890, d. 24.2. 1980, og Asa Kristín Jó- hannesdóttir, f. 18.6. . 1896, d. 23.10. 1942. Systkini Guðrúnar eru: Áslaug, f. 25.8. 1916, d. 23.2. 1917, Jóhannes, f. 25.8. 1917, d. 25.7. 1982, Ólafur, f. 19.7. 1920, d. 10.11. 1921, Sólveig, f. 10.9. 1923, Ása, f. 13.11. 1926, d. 31.5. 1990, Kristín, f. 15.6. 1932, d. 9.12. 1932, Hrafnhildur, f. 17.11. 1935, Gunnar, f. 17.2. 1938, Ólafur, f. 4.2. 1942. Hinn 16. júlí 1955 giftist Guð- rún Margeiri Sigurðssyni, skip- stjóra, f. 7.6. 1922, frá ísafirði. Foreldrar hans voru Sigurður Kristóbert Sigurðsson, f. 5.4. 1888, d. 18.4. 1970, og Friðgerður ^ Ingibjörg Friðriksdóttir, f. 29.4. 1893, d. 16.11. 1966. Böm Guðrúnar og Margeirs eru: 1) Sig- urður Ingi, f. 18.1. 1954, kvæntur Dóm Hafsteinsdóttur. Böm þeirra em Haf- steinn Gunnar, f. 24.9. 1978, Margeir Gunnar, f. 29.5. 1982, og Stefán Gunnar, f. 22.6. 1993. 2) Magn- ús, f. 8.11. 1956, kvæntur Jenný Ólafsdóttur. Börn þeirra em Ólafur Haukur, f. 4.12.1982, Guðrún, f. 1.4. 1989, og Hrafn- hildur Bára, f. 30.9. 1995. 3) Brynja, f. 2.12. 1960, gift Guðjóni Davíð Jónssyni. Böm þeirra era Gerður, f. 17.12. 1984, Geirþrúð- ur Ása, f. 16.3. 1987, Ólöf Kristín, f. 16.3. 1987, d. sama dag og Birta, f. 16.4. 1992, d. sama dag. 4) Ása Kristín, f. 1.3. 1964, gift Emi Stefáni Jónssyni og þeirra sonur er Jón Örn, f. 17.11. 1993. Utför Guðrúnar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánu- daginn 21. desember, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. * Jólahátíðin nálgast, sólin fer brátt að hækka á lofti. Að baki er erfið sjúkdómslega Stellu tengda- móður minnar. Að kvöldi föstu- dagsins 11. desember fékk hún hægt og friðsælt andlát á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar. Hún Guðrún Gunnarsdóttir eða Stella eins og hún var jafnan köll- uð var mikil stólpakona. Hún var einstök húsmóðir og bar heimili íhennar glöggt vitni einstökum myndarskap hennar. Hún var afar smekkleg og fáir stóðu henni á sporði þegar matargerðariistin var annars vegar, enda sótti Stella í smiðju Dana og stundaði nám í Húsmæðraskólanum í Sorö. Stella var vart af barnsaldri þegar á herðar hennar voru lagðar talsverðar skyldur og ábyrgð. Móðir hennar, Asa Kristín Jó- hannesdóttir, lést langt um aldur fram og faðir hennar, Gunnar Ólafsson, stóð einn uppi með barnahópinn. Börnin vora sjö og Gunnar framfleytti hópnum með sjósókn, en það kom í hlut elstu systurinnar, Stellu, að- halda utan ^úm heimilið. Stella giftist árið 1955 Margeiri Sigurðssyni skipstjóra, ættuðum frá Hnífsdal. Þau eignuðust fjögur mannvænleg böm. Fjölskyldan bjó lengst af í Sólheimunum en fluttist árið 1968 á Barðaströnd 7 á Sel- tjarnamesi. Stella var einstaklega félagslynd og ættrækin og tók ævinlega vel og fallega á móti gestum. Það kom í hennar hlut, eins og annarra sjó- mannskvenna, að annast heimilið og bamauppeldið að miklu leyti og því var vinnustaður hennar lengst af heimilið. En þegar börnin vora flogin úr hreiðrinu fór hún út á vinnumarkaðinn og vann lengst af við umönnunarstörf á Hrafnistu í Reykjavík. Það átti vel við hana, hún kynntist mörgu skemmtilegu fólki og naut sín vel. Ferðalög bæði innan lands og utan vora líf og yndi Stellu og eignuðust þau hjónin góða vini á ferðalögum sínum. Oft lá leiðin til Flórída og þá gjarnan með sama hópnum. Akureyri átti líka ein- stakan sess í hjarta hennar og nú á seinni áram var a.m.k. vikudvöl í Furalundi fastur liður í prógramminu. Sumarbústaðaferð- ir með systkinum hennar vora líka með hennar bestu stundum. Það er hætt við að jólarjúpan bragðist svolítið öðravísi þessi jól- in. Við á Fossagötunni munum öll sakna ömmu Stellu. Við biðjum góðan Guð að styrkja og styðja afa Nesi, en þá var Maggi reyndar oft- ast úti á sjó. Minningarnar hrann- ast upp. Ég þakka þér, Stella mín, alla hlýjuna og væntumþykjuna sem þú hefur sýnt okkur, fyrir Nonna bróður sem þú varst alltaf svo góð við, mömmu og pabba, sem bíður eftir að fá að spila fyrir ykkur sem burt erað farin, og svo ætlið þið að fá ykkur snúning. Ég veit að vel verður tekið á móti þér. Elsku Stella, við sjáumst þótt síðar verði, þín Bára. Núna hefur þú verið kölluð frá okkur, elsku Stella. Ég þekki tvær hetjur, þig og afa minn, hann afa Lalla, og ég veit að amma Dana var hetja líka en ég hafði aldrei tækifæri til að kynnast henni. En ég fékk að kynnast þér, Stella mín. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til Margeirs og ömmu Stellu. Þú varst okkur systkinun- um sem amma og tókst alltaf svo vel á móti okkur. Það var svo hlý- legt hjá þér, og ég man þegar Lóa var hjá þér hvað allt var ömmulegt við þig, þú gafst svo mikið af þér og ég veit að þú átt eftir að vaka yfir okkur öllum. Daníela Jóna. Með þessum línum vil ég kveðja Guðrúnu Gunnarsdóttur (Stellu). Vinátta okkar Stellu, eins og hún ávallt var kölluð, hefur staðið í hartnær fimmtíu ár, svo af mörgu er að taka þegar ég minnist henn- ar nú með nokkram fátæklegum orðum. Ungar konur voram við saman í „saumaklúbb“ eins og al- gengt var með konur á þessum ár- um. Ávallt var það okkur öllum til- hlökkunarefni að hittast og spjalla saman. Minna varð úr sauma- skapnum. Állar gerðum við þessar sam- verastundir að veislum, hver á sinn máta. Stella var þar alltaf fremst í flokki og ef einhver forfallaðist, var hún ávallt boðin og búin til að hlaupa í skarðið. Heimili hennar var til íyrirmyndar og ekki má þá gleyma garðinum hennar, enda hlaut hún bæði viðurkenningu og hrós fyrir hann. Um langt árabil bjó Stella í næsta nágrenni við mig. Varð það til þess að við hittumst oftar en hinar vinkonurnar, sem margar bjuggu á landsbyggðinni. Stella var sjómannskona og var því mikið ein með bömin sín fjög- ur. Hún hagaði heimilishaldi sínu þannig, að eins og nú þegar líður að jólum, skipulagði hún hátíðina með manni sínum og börnum, áður en hann fór á sjóinn og svo þegar hann kom næst heim, þá vora aft- ur jól á þeirra heimili. 1 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, simi 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Stella og Margeir áttu gott heim- ili með bömunum sínum. Hún lifði það að sjá þau öll eignast sitt heim- ili og bamabömin vora henni og þeim Margeiri miklir gleðigjafar. Stella fékk ekki að lifa jólahátíð- ina, en hún fékk að dvelja síðustu stundimar á heimili sínu, umvafin kærleika fjölskyldu sinnar, það var henni mikils virði. Sameiginlega takast þau nú á við sorgina við missi elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu. Ég þakka Stellu minni sam- fylgdina og bið ástvinum hennar og henni látinni Guðs blessunar. Dóra Bergþórsdóttir. Elsku besta Stella. Okkur systk- inin langar til að minnast þín með nokkram fátæklegum orðum, því ekki verður hægt að lýsa því hér hvers virði þú varst okkur. Okkur ftnnst við vera að kveðja móður okkar því við höfum verið heima- alningar eða „skítalabbar" hjá þér í meira en 30 ár frá því að við flutt- um á Barðaströndina. Fjölskyldur okkar hafa verið óaðskiljanlegar síðan. Við bömin þín höfum öll orð- ið vinir þótt aldurinn sé misjafn. Þið erað partur af okkar fjölskyldu og við partur af ykkur. Það vora ekki afmæhsboð, jóla- eða fjöl- skylduboð sem Heddý fylgdi ekki með í. Það var alltaf sjálfsagt að bæta einu bami við og Heddý var svo lánsöm að vera það bam. Það er svo margs að minnast. Fyrst koma upp í hugann allar gjafimar sem þú skreyttir svo fal- lega. Fyrir jólin var borðstofuborð- ið fullt af pökkum handa sjómönn- um sem vora að heiman um jólin. Á haustin kom Gunna og þá var tekið slátur, bakaðar kleinur og flatbrauð. Þá fengum við bömin að vera með og snúa. Ekki var hægt að líta inn til þín nema að þú fylltir borðið af kræs- ingum og þér fannst við aldrei borða nóg. Það var ekki fyrir löngu, þegai’ þú varst orðin mjög veik, að Heddý ætlaði að koma í kaffi með Ara og eilítið með kaffinu. Nei, þú varst auðvitað búin að baka vöfflur. Það var ekki bara á daginn sem kveikt var á eldavélinni heldur líka á nóttunni. Þegar unga fólkið kom af böllum stóðst þú við eldavélina og spældir egg og beikon handa okkur. Ef það var kveikt í eldhús- inu á 7 þá leit maður inn og fékk að borða og þú fékkst auðvitað að heyra allar sögumar. En núna í miðjum jólamánuðin- um ertu farin frá okkur. Þetta var þinn uppáhaldstími. 1. desember varstu alltaf búin að skreyta allt hjá þér, en í ár komu Ása og Brynja og sáu til þess að allt væri skreytt hjá þér á réttum tíma. Það hefur verið aðdáunarvert að Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: 1 sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útranninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.