Morgunblaðið - 20.12.1998, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 20.12.1998, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 43> fylgjast með því hvað börnin þín og Margeir eru búin að hugsa vel um þig í veikindum þínum. Þú uppskerð alla þá ást og umhyggju sem þú hefur sýnt bömunum þín- um þar. Alltaf varstu til taks þegar eitthvað stóð til og mættir alltaf með eina köku. „Æ, ég skellti í eina áður en ég fór.“ A mánudög- um komu bömin þín og fjölskyldur þeirra alltaf í fiskibollur, fiskrönd og spagetti. Þetta er siður sem all- ai* fjölskyldur ættu að hafa. Elsku Stella takk fyrir alla um- huggjuna sem þú gafst okkur, hún var engu minni en til þinna eigin barna. Við það getum við huggað okkur núna. Við biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur Margeir, Sigga, Magga, Brynju, Ásu og fjöl- skyldur ykkar. Ykkar Kristín, Sigurður og Herdís. Guðrún Gunnarsdóttir, eða Stella frænka, eins og hún er jafn- an kölluð á mínu heimili, hefur kvatt þennan heim eftir löng og erfið veikindi sem hún, sjálfri sér lík, hefur gengið í gegnum án þess að láta nokkurn bilbug á sér finna. Eiginmaður Stellu, Margeir Sig- urðsson skipstjóri, hefur staðið við hlið hennar og annast hana af natni eftir að veikindin ágerðust með hjálp barna og tengdabama. Okloir langar að minnast Stellu í örfáum orðum og votta henni með því virðingu okkar og þakklæti. Stella var dugnaðarforkur og mikið hörkutól í þeim skilningi að í hennar huga var ekki til neitt sem hét sérhlífni, sjálfsvorkunn eða uppgjöf. í minningunni verður Stella alltaf sú sem gekk til allra verka af myndarskap og dugnaði, krafti og seiglu. A þessum eiginleikum hefúr hún eflaust þurft að halda þegar Mar- geir var í millilandasiglingum og hún ein með börnin fjögur lang- tímum saman. Samband hennar við þau var mjög náið, enda bar hún hag barna sinna og fjöl- skyldna þeirra mjög fyrir brjósti. En hún lét sér annt um fleiri, því það var helst hjá Stellu sem stór- fjölskyldan safnaðist saman hvort sem var í sláturveislur, jólaboð eða af öðm tilefni. Og hjá Stellu var veisla veisla í orðsins fyllstu merk- ingu því þar var veitt ríkulega af góðum mat og hjartahlýju og séð til þess að hver og einn hefði nóg af öllu. Nú, þegar Stella er öll, er gott að verða þess áskynja að bömin okkar minnast stundanna á heimili hennar og Margeirs, þegar mest af skylduliðinu var þar sam- ankomið, og munu eflaust, þegar fram líða stundir, tengja minning- una um Stellu við samvemstundir stórfjölskyldunnar. Slíkar minn- ingar em dýrmætar og fyrir þær á Stella þakkir skilið. Til er lítil saga um ungan mann sem var 16 ára gamall að vinna óþrifalega vinnu sem hafnarverka- maður, feiminn og uppburðarlítill innan um veraldarvanari félaga. Þá er það dag nokkurn að fram á hafnarbakkann ekur glæsikerra mikil. Undir stýri situr fín frá og mönnum er það ráðgáta hvaða er- indi hún eigi niður á höfn. Þar var þá Stella komin að bjóða þessum unga frænda sínum heim í hádeg- ismat. Sagan lýsir Stellu vel og at- vikið er ógleymanlegt frændanum. Það var alltaf gott að hitta Stellu og heyra í henni og finna einlægan áhuga hennar á öllu sem okkur varðaði, hún var alltaf hress og jákvæð, aldrei heyrðist vol né víl á þeim bæ. Fyiir þremur og hálfu ári kom Stella um langan veg til að vera með okkur á þeirri stóru stund þegar elsta dóttir okkar fermdist. Við erum henni ævinlega þakklát íýrir þá hugulsemi og fyrir ómet- anlega hjálp og ráðleggingar við undirbúinig veislunnar, sem hefði verið mun snautlegri, hefðum við ekki notið aðstoðar Stellu. Ég og fjölskylda mín vottum Margeiri og fjölskyldu innilega samúð og biðjum þeim guðs bless- unar og styrks í sorginni. Jóhanna Gísladóttir. Laugardaginn 12. des. er hringt í mig og er það Bára mágkona mín að segja mér að Guðrán mamma hans Magga hafi dáið kvöldið áður. Kynni okkar Stellu eins og hún var kölluð urðu þannig að ég var í Vinnuskóla Reykjavíkur unglingur og var hún verkstjóri yfir mér í Hljómskálagarðinum. Einn daginn varð ég veik og vildi ekki fara heim en hún vildi að ég gerði það. Hún sá að ég var lasin. Ég mætti eftir tvo daga aftur.'Þegar ég fékk út- borgað fékk ég fullt umslag. Ég fór til hennar og segi: Ég á ekki að fá svona mikið. „Jú, þú varst veik,“ sagði hún. Undrun mín var mikil og ég þakklát. Hef ég alltaf borið hlýjan hug til hennar. Alltaf heilsaði hún mér þegar við hittumst og þegar hún var á labbinu, fyi-st með einn lítinn dreng, Sigurð Inga, og svo var kominn annar drengur, Magnús, stoppaði hún oft og talaði við mig á labbinu á Laugaveginum, og labb- aði ég með henni ef ég var að fara í sömu átt og hún og í Sólheimunum hittumst við þegar ég var að fara í heimsókn til bróður míns og fjöl- skyldu þar. Svo fluttist ég til Keflavíkur og sá ég hana ekki í nokkur ár. En svo skemmtilega vildi til að sonur hennar Magnús, sem er matreiðslumaður á Hrafnistu í Laugarási, og Jenný elsta bróður- dóttir mín fóru að vera saman. Og fórum við að hittast í afmælum hjá Ólafi og Báru, foreldrum Jennýjar. Ekki hafði Stella mín breyst, alltaf sama hlýjan frá henni. Hún var búin að eignast stóra fjölskyldu og Margeir maðurinn hennar sjómað- ur í löngum siglingatúrum og hef- ur hún þurft að halda utanum stóra hópinn í fjarverum hans. Og góð var hún við móður mína. Þeg- ar Jenný og Magnús giftu sig var matarboð efth' kaffiveisluna heima há Stellu og Margeiri og var hún látin mæta með yngsta son minn sem hún var að passa fyrir mig því ég fór á sjómannaball á Sögu, ekki að tala um annað en stráksi kæmi með ömmu Jensínu. Nú eru ungu hjónin búin að eignast þrjú börn. Alltaf voru Stella amma og Margeir afi tilbúin að passa. En nú vantar Stellu ömmu en við geymum hana í hjört- um okkar. Ég þakka henni fyrir tryggðina við mig og mína. Ég, móðir mín og fjölskylda sendum eiginmanni hennar, böm- um, tengdabömum, bamabörnum og öllum hennar ástvinum innileg- ar samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau. Megi kærleikurinn varpa ljósi á góðar minningar um góða konu yfir jólahátíðina og alltaf. Blessuð sé minning hennar. Jóhanna Auður. RANNVEIG VALDIMARSDÓTTIR Guðmundína Rannveig Valdi- marsdóttir fæddist á Suðureyri við Súg- andafjörð 10. mars 1919. Hún lést á Sjúkrahúsi Isafjarð- ar 19. nóvember síð- astliðinn og fór útfor hennar fram frá ísa- fjarðarkirkju 28. nóvember. Er ég frétti lát Rannveigar, frænku minnar, leit- aði hugurinn heim í Súgandafjörð til bernskuáranna, frændfólks og vina. Systurnar Svava, Milla og Veiga, sem allar eru horfnar héð- an, eiga bjartan sess í huga mér. Hláturinn skær og dillandi, góð- vild og glettni var þeirra aðals- merki. Þær voru ljúfar og hjartahlýjar þessar hálfsystur föður míns, dætur Guðránar og Valdimars afa. Nú þegar Veiga hefur kvatt okkur rifjast upp fyrir mér æskuminningar tengdar henni og hversu vænt mér þótti um þessa frænku mína. Eitt atvik er sem greypt í huga mér og eins og það hafi gerst í gær, þótt ég hafi ekki verið eldri en fimm, sex ára, þegar það gerð- ist. Þetta var áður en bílar sáust á götum Suðureyrar og á með- an hestar voru aðal- samgöngutækið. Veiga var þá hjá okkur á Kvíanesi, þar sem við heyjuðum fyrir kúnum okkar tveim og hestum sem lengst af voru Elding og folinn hennar sem aldrei var kallaður annað en „Folinn“. Veiga þurfti einu sinni að fara út á Suð- ureyri og bauð mér með sér þar sem hún vissi hversu gaman mér þótti að fara á bak. Eins og flestir krakkar sem alast upp með hest- um var ég þá þegar orðinn nokk- uð seigur að sitja hest. Tilhlökkun mín var mikil þegar hún setti mig á bak á Eldingu sem var gæðagripur og uppáhald allra. Allt gekk eins og í sögu út að Laugum, þar sem við áðum fyrir ofan sundlaugina eins og siður var. Þaðan er um fimm kíló- metra spotti út á Suðureyri. Þegar við vorum lögð af stað aftur hljóp kapp í klárana og áður en ég vissi af voru þeir komnir á stökk. En þá fór gamanið að grána, því að þótt ég ætti auðvelt með að sitja brokk, var ég of léttur og lítill til þess að tolla í hnakknum á harða stökki. Hossaðist ég fyrr en varði fram á makka, þar sem ég greip dauðahaldi í faxið um leið og ég rann undir háls Eldingar og hékk þar í kút, skelfingu lostinn og fann fætur hennar lemjast í mig. Fannst mér ekkert annað bíða mín en kremjast undir hófum hennar. Þá gerðist undrið. Hestarnir hægðu á sér og urðu snar stopp. Veiga frænka hafði þá, þegar hún sá hvað verða vildi, stokkið fram og niður á milli hestanna og keyrt þá niður með föstu hálstaki þar til þeir stönsuðu. Þarna stóð hún skellihlæjandi og tók mig í fangið alsæl yfir því að ég var heill á húfi og skeytti ekki hót um það að hún var blóð- risa á báðum fótum og marin eftir hófa hestanna. Hvílík hetja var þessi unga frænka mín þá í mín- um augum, sem kunni hvorki að hræðast né kveinka sér. Upp frá þeirri stundu leit ég á hana sem lífgjafa minn, því ég hefði hæglega getað hlotið ör- kuml eða bráðan bana, hefði henni ekki tekist að stöðva hest- ana í tæka tíð. Ég hef aldrei get- að gleymt því hvílíkt hugrekki og snarræði hún sýndi þá. Þótt leiðir okkar hafi ekki legið oft saman frá þessu sumri á Kvía- nesi, hafa endurfundh- ætíð verið kærleiksríkir og um langa tíð höf- um við sent hvort öðru jólakort með fréttum um hagi hvort ann- ars. Ég kveð nú þessa kæru frænku mína með hjartans þakklæti fyrir góðu gömlu dagana. Valdimar Örnólfssón. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGURLAUG ÞÓRA SOPHUSDÓTTIR, Kirkjulundi 8, Garðabæ, sem lést á hjartadeild Landspitalans þriðju- daginn 15. desember, verður jarðsungin frá Garðakirkju mánudaginn 21. desember kl. 10.30. Blóm og kransar eru afbeðnir, en þeim, sem bent á Hjartavernd. Björn Helgi Guðmundsson, Emelía Björnsdóttir, Jóhann Einarsson, Margrét S. Björnsdóttir, Baldvin Jónsson, Sophus J. Björnsson, Brynja Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur sambýlismaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, PÁLLBJÖRNSSON, Blikahólum 10, sem lést á Landspítalanum laugardaginn 12. desember sl., verður jarðsunginn frá Hafnar- fjarðarkirkju þriðjudaginn-22. desember kl. 13.30. Elísabet Kristjánsdóttir, Gunnhildur Arndís Pálsdóttir, Victor O'Callaghan, Inga Jóna Pálsdóttir, María Rán Pálsdóttir, Sólrún Edda Pálsdóttir, Gunnhildur Ingibjörg Gestsdóttir og barnabörn. ¥ ii t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SVEINN HEIÐBERG AÐALSTEINSSON, Torfufelli 29, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morg- un, mánudaginn 21. desember kl. 10.30. Guðbjörg Fanney Guðlaugsdóttir, Aðalsteinn Guðlaugur Sveinsson, Hreinn Smári Sveinsson, Guðmunda Helgadóttir, Lilja Rós Sveinsdóttir, Reynir Kristjánsson og barnabörn. ÓLAFS S. LÁRUSSONAR og GERÐAR HULDU LÁRUSDÓTTUR. Þökkum af alhug öllum þeim andlát og útför systkinanna, sem sýndu okkur samúð Stefán Jónasson, Guðrún Ólafsdóttir, Lárus Þorvaldsson, Óli Svavar Ólafsson, Guðrún Stefánsdóttir, Hafþór Ólafsson, Gerður Stefánsdóttir, tengdabörn og barnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.