Morgunblaðið - 20.12.1998, Síða 49

Morgunblaðið - 20.12.1998, Síða 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ Misskilningur leiðréttur Rjúpan og Skotveiðifélag íslands Frá Sigmari B. Haukssyni: í MORGUNBLAÐINU 16. þessa mánaðar eru birt undir liðnum „Bréf til blaðsins" tvö bréf sem beint og óbeint eru skilaboð til undirritaðs. Meginástæðan fyi'ir því að ég svara þessum bréfum er sú að í þeim báðum gætir misskiln- ings sem nauðsynlegt er að leið- rétta. Annað lesendabréfið er skrifað af Elsu Pétursdóttur og ber fyi’irsögnina „Rjúpan“. I bréfinu segir meðal annars: „Rannsóknir Náttúrufærðistofnunar hafa bent til þess að ofveiði sé stunduð á Suð- vestur- og Vesturlandi. Þegar 70% af rjúpnastofninum þar eru drepin, nær hann sér ekki upp aftur af sjálfsdáðum." Þessi fullyrðing er ekki rétt. Engar marktækar, vís- indalegar sannanir liggja fyrir um það að rjúpan sé ofveidd á Suðvest- ur- og Vesturlandi. Því síður að 70% allra rjúpna á þessu svæði falli fyrir hendi skotveiðimanna. Hins vegar voru 70% þeirra rjúpna sem radíósendir var settur á skotin. Þessar rjúpur héldu til í næsta nágrenni Reykjavíkur, Úlfarsfelli, hluta Esju og Mos- fellsheiði. Skotveiðifélag Islands er útivistar- og náttúruverndarfé- lag. Við teljum að náttúruvernd felist ekki í algjörri friðun náttúr- unnar heldur hófsamlegri nýtingu hennar. Þess má geta að nær allar rjúpnarannsóknir sem stundaðar eru hér á landi eru kostaðar af fé sem kemur úr vösum íslenskra skotveiðimanna, eða úr svokölluð- um veiðikortasjóði. Hitt bréfið ber fyrirsögnina „Op- ið bréf til formanns Skotveiðifélags Islands". Höfundur þessa bréfs er Kjartan Ingi Lorange, félagsmað- ur í Skotvís. Ég ætla ekki að fjalla um innihald bréfs Kjartans á þess- um vettvangi. Það verður gert síð- ar og á öðrum stað. I bréfi sínu segir Kjartan meðal annars: og þar að auki ertu búinn að brjóta gegn reglum Skotvís, þar sem seg- ir að meðal annars sé hlutverk Skotvís það að gæta hagsmuna skotveiðimanna, og það er ekki gott mál þegar formaðurinn sjálfur er farinn að tala gegn félögum sín- um í fjölmiðlum." Svo mörg vora þau orð. Kjartan er með þessum orðum að væna mig um að ég sé að brjóta reglur þess/élags sem ég er formaður fyrir. Ég vísa þessum ásökunum algjörlega á bug, þau era fjarstæða. Hagsmunir íslenskra skotveiði- manna felast fyrst og fremst í því að þeir dýrastofnar sem veitt er úr séu sterkir. Nú bendir ýmislegt til þess að veiðiálagið á grágæsastofn- inum sé heldur mikið. Þá telja vís- indamenn við Náttúrufræðistofnun að rjúpan sé ofveidd í næsta ná- grenni Reykjavíkur. Það er afar brýnt að skotveiðimenn bregðist rétt við þessum aðvöranum vís- indamanna. Ég tel mér íyrst og fremst skylt að gæta hagsmuna þeirra þúsunda skotveiðimanna sem stunda veiðar sér tU ánægju í tómstundum sínum fremur en þeh'ra sem telja sig vera atvinnu- veiðimenn, stunda skotveiðar sem atvinnu. Það skal þó tekið fram að vitaskuld er það alls ekki óeðlilegt að veiðimenn, sem eiga einhverja fugla sem þeir þurfa sjálfir eklá að nota, selji þá sé það innan hóflegra marka. Kjarni málsins er sá að við, sem stundum veiðar í tómstundum okkar, viljum geta gert það áfram um ókomin ár. Sé þörf á að grípa til einhverra verndaraðgerða vegna of mikils veiðiálags er það mín persónulega skoðun að fyrsta aðgerðin ætti að vera að draga úr veiðum atvinnu- manna, fremur en til dæmis að stytta eða takmarka veiðitímann. Fyrir lesendur Morgunblaðsins sem ekki era félagar í Skotvís skal á það bent að Kjartan Ingi Lor- ange hefur haft ágæt tækifæri til að viðra skoðanir atvinnuveiði- manna innan félagsins. Hann skrif- aði grein í seinasta blað félagsins, Skotvís - fagrit um skotveiðar og útivist, þar sem hann skýrði ítar- lega sjónarmið atvinnuveiðimanna. Þá verður í mars næstkomandi rabbfundur á vegum Skotvís um atvinnuveiðar og sölu á villibráð. SIGMAR B. HAUKSSON, formaðui' Skotveiðifélags íslands. Vorum að taka upp fallega gjafavöru ■ 'A J - Kirkjutorgi 4, s. 551 KIRKJUHVI^M*' 4, s. 551 2dlBP* Allt að 150 númera minni Þar af 50 með nafni Bllkkljós Valhnappur Tímamæling samtaia Getur geymt útfarandi númer íslenskar leiðbeiningar íslenskar merkingar Jélatilböð A vegg eða borð TDD-2000 WM Allt að 150 númera minni st9r- Þar af 50 með nafni Blikkljós Valhnappur Tímamæling samtala Getur geymt útfarandi númer 23 skammvalsminni Hátalari Íslenskar leiðbeiningar slenskar merkingar Jélotilbfeð vegg eða borð TDD-1000 30 númera minni Blikkljós Valhnappur 3 skammvalsminni íslenskar leiðbeiningar ísienskar merkingar Á vegg eða borð stgr. 0DD-H003 30 númera mínni Blikkljós Valhnappur jslenskar leiðbeiningar ísienskar merkingar [ Á vegg eða borð stgr. TM afgreiðslu 15.1Z98 EETill stgr. TJÍ afgrMslu 16.12.96 Siöumúla 37 108 Reykjavik S. 588-2800 Fax 588-2801 SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1998 49 - Náttsloppar og silkináttfatnaður til jólagjafa Opið frá kl. 10-22 alla daga til jóla Ti'skuverslun « Kringlunni 8-12»Sími 5533300 skiða laugwegi25 Sini5518805 tpor!i@mmedajs við Umferðarmiðstöðina SÍMAR 551 9800 0G 551 3072

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.