Morgunblaðið - 29.12.1998, Side 1
295. TBL. 86. ARG.
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
PRENTSMIÐJA MORGUNBLADSINS
Kosovo-hérað
Yopna-
hléi talið
borgið
Pristína í Serbíu. Rcuters.
ALÞJÓÐLEGIR eftirlitsmenn
kváðust í gær telja að tekist hefði
að tryggja áframhald vopnahlés í
norðurhluta Kosovo-héraðs, þar
sem átök hafa broti ulltrúi eftirlits-
mannanna, sagði að viðræður
1 hefðu verið haldnar á sunnudag við
yfirmenn öryggislögreglu Serba og
albanskra uppreisnarmanna á
svæðinu. A annan tug manna hefur
fallið í átökum síðan á fimmtudag.
Grunnet sagði að í gær hefði verið
tíðindalaust á átakasvæðunum.
Hörðustu átök síðan í október
íbúar af albönsku bergi brotnir
eru í miklum meirihluta í Kosovo. og
berst uppreisnarher þeiira, KLA,
fyrir sjálfstæði héraðsins. Átökin
undanfarna daga voru þau hörð-
ustu síðan vopnahlé komst á í októ-
ber, er Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, sættist á að draga til
baka fjölda árásarsveita eftir að
Atlantshafsbandalagið, NATO,
hafði hótað loftárásum ella.
Átökin brutust út í nokkrum
smábæjum í grennd við bæinn
Poudujevo, sem er um 30 km norð-
ur af Pristina, höfuðstað Kosovo.
Giunnet sagði átökin ekki hafa
breiðst út. Um 2.000 manns féllu í
óöldinni er stóð í héraðinu í átta
mánuði áður en vopnahléið komst á
í október, og um 250 þúsund manns
hröktust frá heimilum sínum er ör-
yggissveitum var beitt gegn að-
skilnaðarsinnum.
Reuters
Samið um
kjördag
ÞINGMENN í ísrael sögðu í gær
að stærstu flokkar landsins,
Likud og Verkamannaflokkurinn,
hefðu náð samkomulagi um að
efnt yrði til þing- og forsætisráð-
herrakosninga í landinu 17. maí.
Fái enginn meirihluta atkvæða í
forsætisráðherrakosningunum
verður kosið á milli tveggja efstu
frambjóðendanna 1. júnf. Laga-
nefnd þingsins þarf að staðfesta
samkomulagið og gert er ráð fyr-
ir því að hún geri það í dag.
Hægrimaðurinn Benjamin Beg-
in tilkynnti í gær að hann hygðist
segja sig úr Likud-flokknum og
bjóða sig fram gegn Benjamin
Netanyahu forsætisráðherra.
Fréttaskýrendur telja ólíklegt að
Begin beri sigurorð af Netan-
yahu.
ísraeli, sem er enn of ungur til
að kjósa, gengur hér framhjá
kosningaspjöldum sem stuðnings-
menn Begins hengdu upp í Jer-
úsalem.
■ Begin í framboð/26
Irakar skjóta á banda-
rískar herflugvélar
Staðhæfingum um að herþotu hafi verið grandað vísað á bug
Bagdad, Washington. Reuters.
ÍRAKAR sögðu í gær að bandarískar herflugvélar hefðu átt frumkvæðið
í vopnaviðskiptum er urðu yfir norðurhluta Iraks í gær. Hefðu flug-
mennirnir skotið á loftvarnarstöð Iraka í norðurhluta landsins og hafi
verið svarað með gagnárás.
Óveður kostar sigl-
ingakappa lífið
Sydney. Reuters.
FJÓRIR fórust og tveggja var
saknað í gær eftir að keppendur í
einni sögufrægustu siglinga-
keppni Astralíu lentu í ofviðri á
leiðinni frá borginni Sydney á
norðausturströndinni til borgar-
innar Hobart á eynni Tasmaníu
suður af landinu.
Tveir skipreika þátttakendur í
keppninni voru hífðir í gær lif-
andi um borð í þyrlu ástralska
sjóhersins, en of seint reyndist að
bjarga þremur félögum þeirra.
Þeir höfðu kastast útbyrðis úr
björgnnarbátnum fyrr um daginn.
í gærkvöldi hafði verið stað-
festur dauði þriggja þátttakenda í
keppninni og sá fjórði var talinn
af, rúmum sólarhring eftir að
honum skolaði frá borði í stórsjó.
Á sunnudag skall ofviðri á þátt-
takendum í hinni 630 sjómflna
löngu siglingakeppni frá Sydney
til Hobart og breytti þessari róm-
uðu kappsiglingu í miskunnar-
lausa baráttu keppenda um að
komast lífs af.
I gærkvöldi voru aðeins 46 af
115 keppnisbátum eftir. Sex
áhafnir höfðu neyðzt til að yfir-
gefa báta sína en áhafnir annarra
dregið sig út úr keppuinni og leit-
að skjóls í næstu höfnum.
Endalok „Churchills“
Frægasta fleyið sem áhöfn
neyddist til að yfirgefa var „Winst-
on Churchill", 15,5 m löng segl-
skúta smíðuð 1942 og nefnd í höf-
uð brezka forsætisráðherrans þá-
verandi. Keppt var á bátnum í
fyrstu Sydney-Hobart-kappsigling-
unni árið 1945, sem fór fram strax
eftir sigur bandamanna í síðari
heimsstyijöld, og síðan í 16 keppn-
um til viðbótar. Átjánda keppnin,
meira en hálfri öld eftir fiumraun-
ina, reyndist sú siðasta. Níu manna
áhöfnin fór í óveðrinu á sunnudag
f tvo gúmbáta, en það voru þeir
sem fundust í gær. í þeim bátnum
sem flórir voru í björguðust allir
en þremur af fimm hafði skolað út-
byrðis úr hinum.
Keppninni lauk í morgun, að
áströlskum tíma, og bar áhöfn
bandarísku skútunnar Sayonara
sigur úr býtum.
Reuters
JIM Rogers, einn áhafnarmeð-
lima „Winston Churchill", kem-
ur út úr björgunarþyrlu í gær.
Bretar og Bandaríkjamenn segja
ábyrgðina alfarið íraka, sem hafi
byrjað skothríð á flugvélarnar, er
voru í eftirlitsflugi yfir Norður-írak,
og hafi flugmennirnir brugðist hár-
rétt við og varist.
Samkvæmt upplýsingum frá
Bagdad féllu fjórir írakar og sjö
særðust þegar vélarnar skutu flug-
skeytum á loftvarnarstöðina. Hin op-
inbera fréttastofa Iraks, INA, hafði í
gærkvöldi eftir talsmanni íraska
hersins að íraskar loftvarnasveitir
hefðu „líklega" skotið niður vest-
ræna herþotu og stæði yfir leit að
braki vélarinnar og flugmanninum.
Fulltrúar bæði bandarískra og
breskra hermálayfírvalda sögðu hins
vegar að engra flugvéla væri saknað,
allar hefðu snúið heilar til bæki-
stöðva sinna í gær.
Talsmenn íraska hersins segja
flugvélarnar hafi nálgast lofvarnar-
stöðina í gærmorgun en að þær hafi
snúið við eftir að íraskir hermenn
skutu á þær. Flugvélarnar hafi snúið
aftur rétt eftir hádegi og gert árás á
loftvarnarstöðina með fyrrgreindum
afleiðingum. írakar segja ennfremur
að vélarnar hafi lagt aftur á flótta
þegar skotið var til baka úr loftvarn-
arstöðinni.
„Pislavættisdauði“
„Þessi ofbeldisfullu ódæðisverk
vesturveldanna leiddu til píslarvætt-
isdauða hugrakki-a hermanna okk-
ar,“ var einnig haft eftii- talsmanni
iraska hersins.
Starfsmaður bandaríska hersins,
staðsettur í Tyrklandi, sagði flugvél-
arnar hafa verið á eftirlitsflugi yfir
flugbannsvæðinu yfir norðurhluta
íraks, sem Vesturveldin hafa gætt
síðan 1991, og á að hindra árásir
íraka á kúrdíska minnihlutann í
Tyrklandi.
Hafi flugmennirnir séð þrem
íröskum flugskeytum skotið að sér
. Bresk eldsneytisbirgðaflugvél hafi
veitt bandan'sku vélunum lið, en
breska vélin hafi ekki tekið beinan
þátt í átökunum.
Irakar segjast einnig hafa skotið að
herflugvélum bandamanna á laugar-
dag, og segja að þá hafi þær byrjað
loftárás. Þessar fregnii- hafa ekki
fengist staðfestai- af hernaðaryfir-
völdum í Bandaríkjunum og Bret-
landi.
Varaforseti Iraks, Taha Yassin
Ramadan, segir irösk stjórnvöld
neita að viðurkenna flugbannsvæðið
og telja það eingöngu þjóna þeim til-
gangi að meina íraska flughemum
aðgang að eigin lofthelgi allt frá
átökunum 1991.
Ramadan sagði fréttastofu
Reutevs að íraskar loftvarnarstöðvar
myndu gera allt sem í þeirra valdi
stæði til að mæta „ofbeldisverkum"
vesturveldanna og útilokaði þar með
ekki frekari árásir á flugvélar.
„Viðeigandi" aðgerðir
Bretar og Bandaríkjamenn telja
Iraka bera fulla ábyrgð á atburðun-
um í gær og segjast munu svara
hverri árás, er þeir kunni að gera,
með gagnárás.
Á fréttamannafundi í Washington
sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti
að Bandaríkjamenn myndu standa
við alþjóðasamninga og halda áfram
eftirlitsfluginu yfir norður- og suður-
hluta Iraks.
„Hermenn okkar hafa allan rétt til
sjálfsvamar ef ráðist er á þá. Aðgerðir
þeirra voru viðeigandi og réttai’ eftii’
skothríð Iraka," sagði Clinton.