Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 80
80 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KYIKMYNDIR/Bíóborgin og Borgarbíó á Akureyri sýna gamanmyndina Holy Man
með Eddie Murphy, Jeff Goldblum og Kelly Preston í aðalhlutverkum.
Heilagur
sölumaður af
guðs náð
Frumsýning
RICKY Hayman (Jeff Gold-
blum) lítur út fyrir að lifa lífi
sem gerir flesta aðra menn
græna af öfund. Hann er háttsettur
starfsmaður hjá sjónvarpsstöð sem
sérhæflr sig í rekstri sjónvarps-
markaðar þar sem allt milli himins
og jarðar er boðið til sölu. Hann býr
í glæsilegri íbúð í Miami, keyrir um á
flottum sportbíl, klæðist klæðskera-
samuðum fötum og á stefnumót við
glæsilegar konur á hverju kvöldi en
þó aldrei þá sömu. Það virðist því allt
leika í lyndi hjá Ricky en það er þó
aðeins á yflrborðinu. Ógreiddir
reikningar hlaðast upp hjá honum og
hann er kominn með magasár af allri
streitunni sem fylgir lifnaðarháttum
hans. Síðan virðist allt ætla að
hrynja til grunna þegar nýr eigandi
sjónvarpsstöðvarinnar, McBain-
bridge (Robert Loggia), birtist
skyndilega með fjölmiðlafræðinginn
Kate Neweil (Kelly Preston) til að
takast á við hallann
rekstri sjónvarps-
stöðvarinnar.
Ricky gerir
ljóst að þetta
gæti leitt tfl þess að
hann missi vinnuna og því þarf
hann nauðsynlega að halda á ein-
hvei-ri góðri hugmynd til að hleypa
lífi í söluna í gegnum sjónvarps-
markaðinn. Þá kemur til sögunnar
hinn heilagi G sem er á sífelldu
flakki við að boða andlegan og mjög
svo persónulegan boðskap sinn. Þeg-
ar Ricky hittir G fyrir tilviljun kvikn-
ar á perunni hjá honum og honum
dettur í hug það snjallræði að láta G
fá eigin sjónvarpsþátt og gera sjón-
vapsverslunina þannig að trúarlegri
athöfn.
Hugmyndina að Holy Man á hand-
ritshöfundurinn Tom Schulman sem
gerði handritið að Dead Poets Soci-
ety. Þegar hann hafði lokið við að
fullgera hugmyndina í samvinnu við
RICKY Hayman (Jeff Goldblum) er kominn með magasár af öllu
stressinu sem fylgir lifnaðarháttum hans.
KELLY Preston leikur fjöl-
miðlafræðinginn Kate
framleiðendurna Roger
Birnbaum og Joe Roth var
Eddie Murphy sent fyrstu
ovart að hann
vildi leika í
myndinni. Það sem
hins vegar kom þeim
á óvart var að hann
hafði ekki áhuga á að
leika Ricky í mynd-
inni heldur heilaga
manninn G. Að-
standendur mynd-
aririnar voru ekki
LEIKSTJÓRINN Stephen Harek við tökur á Holy Man.
► HINN heilagi G
(Eddie Murphy)
á að koma
sjónvarpsmarkað-
inum á rétt ról.
lengi að ímynda sér
hann í því hlutverki og
sáu að þar hafði leikarinn
tekið rétta ákvörðun. Það
var svo hugmynd þeirra
Murphys og Birnbaums
að fá Stephen Harek til
að leikstýra myndinni,
en hann hafði slegið í
ign með myndunum
Ir. Holland’s Opus og
01 Dalmatians. Jeff
Joldblum var svo
fenginn til að leika
Ricky og Kelly
Preston til að leika
Kate. Goldblum
hefur leikið í þremur af vinsæl-
ustu myndum allra tíma, en
það eru Jurassic Park,
Independence Day og Jurassic Park:
The Lost World. Meðal annarra
mynda sem hann hefur leikið í eru
The Fly, The Big Chill, Silverado og
Deep Cover. Kelly Preston vakti
fyrst verulega athygli þegar hún lék
í JeiTy Maguire með Tom Cruise ár-
ið 1996, en áður hafði hún m.a. leikið
í Twins með þeim Arnold
Schwarzenegger og Danny DeVito.
Aðrar myndir sem hún hefur leikið í
eru m.a. Nothing to Lose, Addicted
to Love og Mischief. Næsta mynd
hennar er Frost þai' sem hún leikur
á móti Michael Keaton og eftir ára-
mótin byrjar hún að vinna við gerð
myndarinnar The Shipping News, en
í henni mun hún leika á móti John
Travolta.
Úrslit í leikritasamkeppni Hádegisleikhússins
Leikrit og
súpa dagsins
AÐ LOKINNI hátíðarsýningu
á Rommí í fyrrakvöld voru til-
kynnt úrslit í leikritasamkeppni
sem efnt var til þegar Iðnó var
opnað á ný síðastliðið vor.
Verðlaunaverkin þrjú verða öll
sýnd í Hádegisleikhúsi Iðnó
sem hleypt verður af stokkun-
um innan skamms.
Gífurleg þátttaka var í sam-
keppninni, en alls bárust 56
leikrit eftir 42 höfunda í keppn-
ina og urðu úrslit sem hér seg-
ir:
í fyrsta sæti var Leitum að
ungri stúlku eftir Ki-istján
Þórð Hrafnsson. Kristján er bók-
menntafræðingur að mennt og hefur
sent frá sér þrjár ljóðabækur. Krist-
ján fær að launum 100.000 krónur,
helgarferð til London og úrval rit-
verka Halldórs Laxness. í öðru sæti
var Þúsund eyja sósa eftir Hallgrím
Helgason. HaUgiímur hefur sent frá
sér tvær skáldsögur og eina ljóða-
bók. Hann fær að launum 50.000
ki'ónur og úrval ritverka Halldórs
Laxness. Sameiginlegm' vinur eftir
Bjarna Bjarnason var í þriðja sæti.
Bjarni hefur sent frá sér tvær skáld-
sögur. Hann fær að launum 50.000
krónur og úrval ritverka Halldórs
Laxness.
Dómnefnd skipuðu þau Halldóra
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MAGNUS Geir klappar vinningshöfunum lof í lófa, en næst hon-
um stendur Kristján Þórður Hrafnsson, Hallgrímur Helgason og
lengst til hægri er Bjarni Bjarnason.
GUÐRÚNU Ásmundsdóttur og Erlingi Gfsla-
syni voru færðir blómvendir í tilefni 30. sýn-
ingar leikritsins Rommý.
Geirharðsdóttir leikkona, Snæbjörn
Arngrímsson, bókaútgefandi hjá
Bjarti og Magnús Geir Þórðarson,
leikhússtjóri Iðnó, en hann var for-
maður dómnefndar.
Hádegisleikhús Iðnó er nýjung í
starfsemi hússins og stendur til að
hleypa því af stokkunum í byrjun
febrúar nk. Þá snæða gestir léttan
hádegisverð meðan þeh' njóta stuttr-
ar leiksýningar. „Við hugsum leik-
húsið sem skemmtilega viðbót við
leikhúsflóruna,“ segir Magnús Geir
Þórðarson leikhússtjóri Iðnó. „Leik-
húsin eru full hér flest kvöld og okk-
ur langar til að færa út kvíarnar með
því að taka upp sýningar í hádeginu
á virkum dögum. Fólk sem vinnur
hér í nágrenninu getur keypt
sér léttan rétt og horft á leik-
sýningu á meðan, nært andann
um leið og holdið. Leikritin eru
20-30 mínútur að lengd og fólk á að
geta notið sýningar og matar í sínu
hádegisverðarhléi."
Magnús segir að þetta sé í fyrsta
skipti sem hádegisleikhús verður að
veruleika á Islandi. „Það var reynd-
ar sýning fyrir nokkrum árum,
Tígrisdýr í Kongó, sem var flutt í há-
deginu. En það var með allt öðrum
hætti, því sýningin var í fullri lengd
og ekkert um það að ræða að fólk
gæti skotist úr vinnu til að sjá sýn-
inguna. En við höfum hugsað okkur
að sýna á hverjum degi svo fólk geti
gengið út frá því sem vísu að hægt sé
að fá þessa upplyftingu í hádeginu."
Magnús Geir segir að hádegis-
verðarleikhús hafi notið mikilla vin-
sælda í London, Stokkhólmi og víðar
erlendis. „Ég skoðaði hádegisleikhús
í London og það var mjög gaman að
fylgjast með leikhúsi sem var stað-
sett inni í miðju bankakerfinu. Tíu
mínútum áður en sýningin hófst
streymdu að menn í jakkafötum,
horfðu á sýninguna á meðan þeir
renndu niður samloku. Það var
ákveðinn sjarmi yfír þessari
stemmningu," segir Magnús Geir.
Þegar Magnús er spurður út frá
hverju hafí verið gengið við val verð-
launaverkanna segir hann að dóm-
nefndin hafi nú mest farið efth' því
hvað þeim fannst skemmtilegast og
áhugaverðast. „En þetta var að
mörgu leyti erfitt val. Verkin voru
mjög misjöfn og mörg mjög góð. Það
er ekkert ósennilegt að fleiri leikrit
en þau þrjú efstu rati hér á svið í
framtíðinni."
MYNPBÖNP
Sígild
sælustund
við skjáinn
Ljósaskipti
(Twilight)
Glafpainynil
★★★
Framleiðsla: Arlene Donovan og
Scott Rudin. Leikstjórn: Robert Bent-
on. Handrit: Robert Benton og Ric-
hard Russo. Tónlist: Elmar Bern-
stein. Aðalhlutverk: Paul Newman,
Susan Sarandon, Gene Hackman og
James Garner. 91 mín. Bandarísk.
ClC-myndbönd, desember 1998.
Bönnuð innan 12 ára.
FRÁBÆR glæpasaga eftir for-
skrift hreinnar Hollywood-klassík-
ur. Hæg og nánast þunglyndisleg
bygging þar sem
leikur stórstjarna
fær að njóta sin við
túlkun nostursam-
lega skrifaðra per-
sóna í sígildri
glæpasögu. Film
noir-hefðin ér aug-
ljós fyrirmynd
„Ljósaskipta" með
öllu sem skilgreinir
slíkar myndir: einkaspæjurum, treg-
um löggum, sögumanni, skuggalegri
borg að næturþeli, morðum, svikum
og síðast en ekki síst, fögru háska-
kvendi. En hetjurnar eru gamlar,
rétt eins og kvikmyndirnar sem not-
aðar em sem fýrirmyndir og sjálf
borg draumanna, Hollywood, er við-
eigandi sögusvið. Það er e.t.v. galli
hversu óhvikult myndin vísar í hefð-
ina, því hún setur henni dálítið stirð
takmörk og auðvelt er að reikna út
niðurstöðu glæpasögunnar. Hins-
vegar eru „Ljósaskipti" margslung-
in og úthugsuð kveðja til síðustu
gullaldar draumasmiðjunnar. Aug-
ljóst er að valinn fagmaður er í
hverju rúmi, hvort sem skoðaðar
eru tæknilegar hliðar, handrit, leik-
stjórn og leikur eða hlustað á
dramatíska kvikmyndatónlistina.
Guðmundur Ásgeirsson
Bjálfí í háska
Maðurinn sem vissi of lítið
(The Man Who Knew too Little)
Gainaiiin.ynil
★★
Framleiðsla: Arnon Milkan, Michael
Nathanson og Mark Tarlov. Leik-
sljórn: Jon Amiel. Handrit: Robert
Farrar og Howard Franklin. Kvik-
myndataka: Robert Stevens. Tónlist:
Christofer Young. Aðalhlutverk: Bill
Murray, Joanne Whalley og Peter
Gallager. 90 mín. Bandarísk. Warner-
myndir, nóvember 1998. Öllum leyfð.
ÞETTA er kunnugleg kvikmynd
um fávita sem flækist inn í hættu-
legan heim njósna og glæpa þar sem
hann spjarar sig
með glans fyrir
einskæran klaufa-
skap og yfirgengi-
lega heppni. Bleika
pai'dus-serían er
rót kvikmyndateg-
undarinnar og íyr-
irmynd þessarar að
miklu og augljósu
leyti. Eins vísar
myndin stíft í sjónvarpsseríur á borð
við „Smart spæjara", m.a. með
löngu byrjunaratriði í stíl sjöunda
áratugarins.
Myndin er hin þokkalegasta af-
þreying þegar best lætur, en rennur
á köflum út í vandræðalegan vitleys-
isgang, enda erfítt að halda utan um
svo farsakenndan söguþráð. Það er
án efa mikill vandi að búa til sam-
ræmda heild úr sögu sem tilheyrir
hvoru tveggja, venjulegu hversdags-
lífl og ævintýralegum fáránleika,
enda reynir myndin verulega á trú-
girni áhorfandans. Leikurinn er í
lagi þótt Bill Murray hafi oft verið
fyndnari og með góðum vilja má
skemmta sér yfir þvælunni.
Guðmundur Ásgeirsson