Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 59 Dagvistarvandinn í Reykjavík Bergur Steinunn Felixson Hjartardóttir NOKKUR blaðaskrif hafa orðið að undanfórnu um dagvistarmál í Reykjavík - stöðu biðlista í leik- skólum, skort á leikskólaplássum og einnig stöðu mála hjá dagmæðr- um, sem anna heldur ekki eftir- spurn. Við starfsmenn á skrifstofu Dagvistar barna verðum ríkulega vör við vonbrigði og vandræði for- eldra, sem hafa ekki fengið úthlut- að plássi að hausti og fá enga við- unandi lausn að þeirra mati. Vænt- ingar foreldra um þjónustu fyrir börn sín eru langt umfram það sem þjónustu-kerfi Dagvistar barna og dagmæðra ræður við og verður nú gerð tilraun til að upplýsa þau mál betur. Lög um leikskóla frá árinu 1994 setja miklar skyldur á sveitar- félög og eru í raun af þeirri gerð lagasetninga sem segir frá því hvað löggjafinn telur æskilegt að gert sé, en engum sem til þekkir dettur í hug að hægt sé að ná markmiðum þeirra í öllum smáatriðum. En við reynum og sveitarfélögin hafa staðið sig vonum framar í að upp- fylla a.m.k. að hluta metnaðar- fyllstu lög um menntun og uppeldi ungi-a barna sem okkur er kunnugt um að séu nokkurs staðar við lýði. Staðan í Reykjavík Á meðfylgjandi súluriti, sem sýnir vistun eins til fimm ára barna sést hver staðan er í Reykjavík. I heildina eru rúm 70% barnanna í leikskóla, langflest í 70 leikskólum sem borgin á og rekur, en 447 börn eru í einkareknum leikskólum sem borgarsjóður styrkir. Ekki hefur Væntingar foreldra um þjónustu við börn sín, segja þau Bergur Felixson og Steinunn Hjartardóttir í fyrri grein sinni, eru langt umfram það sem þjón- ustukerfi Dagvistar barna og dagmæðra ræður við. reynst unnt að vista öll börnin þann tíma daglega sem foreldrar óska eftir og á það einkum við um tveggja ára böm. Hjá dagmæðrum, þar sem pláss eru niðurgreidd, eru 11,7% barn- anna og eru því 82% allra barna á þessum aldri ýmist í leikskólum eða hjá dagmæðrum, flest allan daginn. Böm yngri en eins árs era ekki talin með í þessu dæmi, þótt lög um leikskóla setji engin neðri aldursmörk. Á síðustu tuttugu ár- um hefur börnum á leikskólaaldri (0-6 ára) í Reykjavík fjölgað um 24%. Á sama tíma hafa dvalar- stundir barna í leikskólum Reykja- víkur þrefaldast og fjöldi barna í leikskólum rúmlega tvöfaldast. Dvalarstundum hefur fjölgað mest vegna mikillar aukningar á fram- boði heilsdagsplássa á síðustu ár- um. Heilsdagspláss vora 1.339 árið 1993 en hefur nú fjölgað í 3.245 pláss. Meðfylgjandi línurit sýnir hlutfallslega fjölgun dvalarstunda (rúm 48%) frá árinu 1993 og þar er einnig sýnd hlutfallsleg hækkun rekstrarkostnaðar á sama tímabili miðað við fast verðlag. Fjölgun barna hefur ekki orðið eins mikil hjá dagmæðram á þessu tímabili. Flest ár hafa þau verið 900 til 1.000. Árið 1989 vora þau t.d. 925, í fyrra 955, en í ár hefur átt sér stað umtalsverð fjölgun barna og era þau nú yfir 1.100 talsins. En starf- andi dagmæðrum hefur því miður fækkað á sama tímabili og þar með hefur meðalfjöldi barna hjá hverri dagmóður aukist veralega eða sem svarar 1-2 börnum. Hvers vegna lengjast biðlistar? Þá kemur stóra spurningin: Hvers vegna hafa biðlistarnir ekki styst við alla þessa aukningu á piássum og dvalarstundum? Henni er fljótsvarað - eftir- spurnin hefur aukist. Ástæður mikillar eftirspurnar er útivinna beggja foreldra, sem er nauðsynleg til framfærslu í því samfélagi sem við lifum í. Einnig hefur foreldram í námi fjölgað og væntingar for- eldra hafa stóraukist í kjölfar um- ræðunnar og þeirra hræringa sem gengið hafa yfir íslenkst þjóðfélag undanfarin ár og era ósmáar. Mamma er ekki lengur heima á daginn og reyndar er amma flogin út líka. Það verður að viðurkennast að áætlanir embættis- og stjórnmála- manna um þessa þróun hafa verið varkárari en raunveraleikinn. Mönnum er nokkur vorkunn því kannanir meðal foreldra, sem vora spurðir um óskir um leikskóla (1994 og 1997), sýndu minni þörf en raun varð á. Gætir þar kannske einhverrar ósk- hyggju af þeirra hálfu um að vera meira með litlum bömum sínum en þeir í raun geta vegna náms og starfs. Þá má og nefna að þjónusta sú sem Dagvist barna býður hugnast foreldram mjög vel. I könnun meðal foreldra í sum- ar kom í ljós að nær allir sem tóku þátt í henni töldu bömin hafa mikið gagn af dvöl sinni í leikskól- um og voru mjög öraggir um böm- in þar. Það vakti athygli að ánægja foreldra jókst í takt við aukin við- skipti við leikskólann, hvort sem viðkomandi átti fleiri böm eða dvalartími barnsins hafði lengst. Einnig kom fram nokkuð almenn ánægja með þjónustu dagmæðra hjá þeim sem höfðu notað hana, sérstaklega fyrir yngstu börnin. Hindranir í veginum Nú hefur sem sé komið á daginn að mun meiri eftirspurn er eftir heilsdagsvistun fyrir börn og því gengur ennþá hægar að fullnægja þörfinni fyrir leikskólapláss og biðlistarnir lengjast frekar en hitt. En hvaða ljón era þá í veginum, ef vilji stendur til þess að veita þá þjónustu sem foreldrar óska eftir? Svarið við því er að okkar mati þrí- þætt. I fyrsta lagi fjárhagslegar ástæður, en kostnaður við bygg- ingu og rekstur leikskóla kemur veralega við borgarsjóð. í öðra lagi era ekki nægilega margar dag- mæður til að brúa bilið fyrir for- eldra sem margir hverjir vilja ekki leikskólapláss fyrir 'oörn sín fyrr en eftir 2ja ára aldur. í þriðja lagi verður að nefna til starfsmanna- hald, en erfitt hefur reynst að full- manna leikskólana. Það er staðreynd að nokkuð hef- ur verið hægt á uppbyggingu leik- Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vöruhús sem minni lagera. Aðeins vönduð vara úr gæðastáli á mjög góðu verði. Einnig færðu lyftitæki og trillur hjá okkur. Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma. Lagerlausnir eru okkar sérgrein MECALUX - gæði fyrir gott verð UMBOÐS- OC HEILDVERSLUN mtueá SUNDABORG 1 • SÍMI568-3300 hfj Samanburður á hækkun rekstrarkostnaðar leikskóla og fjölgun dvalarstunda barna Dagvist barna í Reykjavík: Vistun barna á aldrinum 1 -5 ára H Leikskólar borgarinnar E3 Einkareknir leikskólar □ Dagmæður □ Utan dagvistar 1993 1994 1995 1996 1997 Fæðingarár barna * skóla síðustu tvö árin. Eftir könn- un meðal foreldra barna undir tveggja og hálfs árs aldri, sem Dagvist bama lét gera árið 1997, þótti það verjanlegt. Það hefur aukið á vandann að sjúkrahús hafa hætt starfsemi nokkurra leikskóla. Borgin hefur tekið yfir starfsemi tveggja leikskóla frá ríkisspítölum með tilsvarandi kostnaðarauka fyr- ir borgarsjóð. Eins og fram kemur á línuriti hefur kostnaður við rekst- ur leikskóla þó engan veginn aukist í hlutfalli við næstum 50% aukn- ingu á dvalartímum barna á tíma- bilinu 1993 til 1998. Þetta sýnir að vel hefur verið haldið á spilunum í allri fjármálastjómun stofnunar- innar. En þrátt fyrir það hefur kostn- aður við byggingu og rekstur vax- ið mikið á síðustu árum og leggur borgarsjóður 2.318 milljónir króna til Dagvistar barna árið 1999, aðallega í rekstur og bygg- ingu leikskóla. Þar af fer til rekstrar 2.051 milljón króna sem jafngildir 13,6% af rekstrar- gjaldalið borgarsjóðs. Það er hlutverk stjórnmála- mannanna að ákveða forgangsröð- un verkefna og verkefni Dagvistar barna era í samkeppni við önnur ' — fjárfrek og mikilvæg verkefni, svo sem einsetningu grannskóla, og staðreyndin er að sveitarfélög hafa tekið að sér svo viðamikil verkefni, að vandséð er að þau ráði við þau með núverandi tekju- öflun. Og hver vill taka lán og láta komandi kynslóðir borga fyrir neyslu okkar? Bergur er forstöðumaður og Stein- unn þjónuslustjóri Dagvistar buma í Reykjavík. RÉTTARHÁLS 4, REYKJAVÍK Sala — Leiga • Vandað steinhús á tveimur hæðum. • Mikil lofthæð, 5 m á neðri hæð og 9 m á efri hæð, möguleiki á millilofti á efri hæð. • Óvenju stór lóð um 12.200 m2 og gott athafnasvæði. • Háar innkeyrsludyr. • Frábær og stöðugt vaxandi staðsetning. • Auðvelt er að skipta húsnæðinu í einingar. • Grunnflötur hvorrar hæðar er um 2.700 m2. • Afhending í júní/júlí 1999. Byggingaraðili Eykt ehf., Borgartúni 21, Reykjavík. Einkasöluaðili Sími 533 4040 Fax 588 8366 Armúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali. < 5L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.