Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sigurður Haf- þór Sigurðsson var fæddur í Hafn- arfirði 9. maí 1955. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 15. desember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Sigurður Lúðvík Ólafsson smiður, f. 26.9. 1914, d. 17.3. 1993, og Guðný Jóna Jónsdóttir hús- móðir, f. 31.1. 1919, d. 3.3. 1983. Systkini Hafþórs eru: Sigríð- ur Margrét, f. 12.8. 1941, Guð- rún, f. 17.7. 1942, Jón Þór, f. 15.9. 1943, Guðný Rut, f. 8.10. 1945, Líndís Lilja, f. 29.11. 1946, Sigurþór Lúðvík, f. 21.4. 1948, Elías, f. 28.2. 1950, d. 7.9. 1974, Sólrún, f. 7.6. 1951, Ásrún, f. 14.1. 1954, og Guðmundur, f. 31.7. 1956. Hinn 17. desember 1977 kvæntist Hafþór Guðrúnu Ólöfu Sigurðardóttur, f. á Þingeyri við Dýrafjörð 24. júlí 1956 en ólst upp í Reykjavík. Börn þeirra eru Eva Björg, f. 27. maí 1978, nemandi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, og Þröstur Þór, f. 3. ágúst 1988, nem- andi í Bfldudals- skóla. Hafþór ólst upp í Kópavogi. Hann vann ýmis störf í Reykjavík, en Iengst hjá Eimskipafélagi ísiands. Guðrún og Hafþór hófu hjúskap sinn í Reykjavík 1977 og bjuggu þar, þar til þau fluttu til Bfldudals 1981 og hafa þau átt heima þar síðan. Á Bfldudal vann hann ýmis störf, m.a. var hann á sjó, vann hjá Fiskvinnsl- unni sem bflstjóri, og síðustu ár- in hjá Trostan ehf. Utför Hafþórs fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. man hvað þú varst stoltur. Hún vai- ekki lengi ein um athyglina vegna þess að nokkrum ái-um seinna fædd- ist Þröstur og þið áttuð ykkar góðu stundir saman. Eg á eftir að minnast þeirra stunda sem við áttum saman þegar þið komuð í heimsókn til okk- ar þar sem þú færðir okkur fréttir af lífínu og tilverunni á Bfldudal. Eg kveð þig, elsku Hafþór, með söknuði. Elsku Gunna, Eva Björg og Þröstur, ég bið guð að styðja ykkur í sorginni því hún er mikil á þessari stundu. Sólrún systir. Elsku frændi. Þú varst alltaf svo góður maður svo langt sem ég man. Þú munt lifa áfram í hjörtum okkar sem hress og glaður maður. Þótt ég hafi ekki kynnst þér mikið persónu- lega, þá veit ég í gegnum móður mína og föður minn hvernig persóna þú varst. En í þau skipti sem ég hitti þig, þá fann ég alltaf hve góður mað- ur þú varst. Þú tókst alltaf utan um mig og sýndir kærleik þinn. Þegar ég mun hugsa til þín mun ég hugsa um ættarmótið sem við hittumst á sl. sumar. Þetta var mjög skemmtilegt ættarmót sem ég mun alltaf minnast. Eg vil ijúka þessari minningu með litlu ljóði eða hugsun- um sem ég skrifaði kvöldið eftir að þú fórst frá okkur: SIGURÐUR HAFÞÓR SIGURÐSSON Hinn 15. desember vorum við dóttir mín að þrífa fyrir jólin heima hjá okkur í Svíþjóð og komnar í jóla- skap. Samhliða því vorum við að búa okkur til heimferðar til íslands þai- sem ætlunin var að halda jólin hátíð- leg með börnum, barnabömum og ættingjum. Þá var hringt í okkur og okkur færðar þær fréttir að Hafþór bróðir hefði dáið fyrr um daginn. Ég greip það ekki alveg strax og sú hugsun flaug í gegnum hugann að það gæti ekki verið satt því hann hefði alltaf verið svo hraustur. Því miður er það víst satt að stutt sé milli Iífs og dauða og milli sorgai- og gleði. Við ætluðum að deila gleði en ekki sorg með fjölskyldu okkar um þessi jól. En enginn ræður för sinni því miður. Það er erfítt að horfa á eftir ein- hverjum hvort sem það eru foreldr- ar, systkini, ættingjar eða vinir. Sér- staklega ef viðkomandi er ungur og á allt lífið framundan, eins og ég hélt að bróðir minn hefði átt. Einhvers staðar er sagt að þeir sem guðirnir elska deyi ungir. Nú þegar ég minnist bróður míns kemur upp í huga mér hvað hann var alltaf hress og glaður. Hann var orð- heppinn og hafði ætíð svör á reiðum höndum ef svo bar við, einnig var hann mikill frásagnamaður. Hann átti marga góða vini og var vel tekið hvar sem hann kom. Hafþór var góð- ur fjölskyldufaðir og mjög skyldu- rækinn við sína nánustu. Hann hafði það að atvinnu að keyra bíl hjá físk- vinnslufyrirtæki á Bfldudal. Oft þurfti hann að keyra til Reykjavíkur vegna vinnu sinnar og leit þá oftast við hjá elstu systur okkar Sigríði sem hafði mikla ánægju af þeim heimsóknum. Einnig leit hann oft við hjá yngsta bróður okkar Guðmundi, en þeir bræður voru miklir vinir. Þegar ég hugsa um þessa tvo af bræðrum mínum rifjast upp fyrir mér hvað þeir voru samrýndir þegar þeir voru litlir. Ef annar þeirra veiktist þá vék hinn ekki frá honum, svo sterk voru bræðraböndin. Hafþór hafði verið í Reykjavík vegna vinnu sinnar en var kominn heim til Bíldudals til að halda jólin hátíðleg með fjölskyldu sinni. Hann rétt náði að heilsa þeim áður en kall- ið kom. Nú er hann bróðir minn horfinn frá okkur úr þessu lífi, því einhverjir hafa þurft á honum að halda hinum megin við móðuna. Ég veit að foreldrar okkar og bróðir, sem lést aðeins 24 ára að aldri, hafa tekið vel á móti honum. Elsku Gunna mágkona, Eva og Þröstur, við Skúli vottum ykkur okk- ar dýpstu samúð á þessari erfiðu stundu. Guð gefi ykkur styrk í sorg- inni. Ég kveð þig nú, elsku bróðir. Guðrún Sigurðardóttir. Það er erfitt fyrír mig að horfast í augu við þá staðreynd að þú sért far- inn frá okkur, elsku Hafþór. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann um liðna tíð frá því að þú varst að alast upp í stórum systkina- hópi í Kópavoginum. Það voru mörg prakkarastrikin þar enda voruð þið Gummi bróðir ekki kallaðir Knoll og Tot fyrir ekki neitt. Þið voruð svo samrýndir og alltaf tilbúnir að verja hvor annan ef eitthvað bjátaði á. Það er mér minnisstætt hvað þú varst hændur að Þóru frænku. Hún var varla sest niður í eldhúsinu hjá mömmu þegar þú varst sestur í fangið á henni og þar sastu sem fast- ast. Þetta voru yndislegir tímar og ég er þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þeirra með þér og systkinum okkar. Svo leið tíminn og þú kynnist Gunnu. Þið kaupið ykkar fystu íbúð og ekki löngu seinna fæðist auga- steinninn þinn, hún Eva Björg. Ég Þegar maður veit ekki af því, þá gerist það sem maður á ekki von á. Dauðinn er ófyrirséður. Maður veit ekki hvenær maður á von á hon- um. Þegar hann kemur, þá veit maður að þetta átti að gerast því að, dauðinn er ófyrirséður eins og örlögin og kemur þegar maður veit ekki af. Gunna, Eva og Þröstur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiðu stundum og megi Guð styrkja ykkur og styðja. Ég kveð þig, elsku frændi minn. María Ósk Skúladóttir Elsku Siggi. Okkur langar að þakka fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, þær eru okkur ómetan- legar. En við höfðum búist við að samverustundimar yrðu miklu fleiri, STEFÁN EINARSSON + St,efán Einars- son fæddist, í Odda á Mýrum í Austur-Skaftafells- sýslu 14. júní 1905. Hann lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 19. desember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru lijónin Ingunn Jónsdóttir og Einar Þorvarðar- son, ábúendur á Odda. Tveggja ára fluttist hann með foreldrum sínum að Brunnhól á Mýrum. Systkini hans voru Guðný, Sig- urjón, Þorbjörg, Sigurborg og Guðleif sem ein er á lífi. Einnig átti hann fósturbróður, Guðjón R. Sigurðsson, sem er látinn. 12. júlí 1930 kvæntist Stefán Lovísu Jónsdóttur frá Flatey á Ég get ekki látið hjá líða að minn- ast Stebba föðurbróður míns með nokkrum orðum. En hann var ævin- lega kallaður Stebbi af þeim er til þekktu. Fyrsta minning mín um hann er frá 1925 en þá fluttu foreldr- ar mínir að Kambseli í Álftafirði með tvö börn sín Einar og Siggu. En ég var skilinn eftir hjá afa og ömmu. Þessi minning er sú að Stebbi fór til kinda og reiddi mig á hnakknefinu fyrir framan sig. Þetta hefur sjálf- sagt verið þegar foreldrar mínir voru að fara í burtu og eitthvað hef- ur þurft að gera til að hafa ofan af fyrir mér. Ósköp eru nú minningarn- ar gloppóttar frá þessum fyrstu ár- um. Ég mun ekki hafa verið á Brunnhól þá nema eitt ár en þá var skipt og Einar látinn í staðinn fyrir Mýrum, f. 1. ágúst 1905. Þau eignuðust, tvö börn. Þau eru: 1) Svanhildur, f. 15. júlí 1935, maki Guð- mundur Rúnar Magnússon. Þau eiga 5 börn og 7 barnabörn. 2) Rafn, f. 11. júli 1937, maki Guðlaug Guðbergs- dóttir. Stefán og Lovfaa byijuðu biískap á Brunnhól en 1945 flytjast þau að Höfh þar sem þau búa og starfa til 1965 að þau flyfja í Kópa- vog og búa þar þangað tíf þau fara á Hrafhistu í Hafnarílrði 1992. títför Stefáns verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. mig. Svo fluttu foreldrar mínir aftur að Brunnhól 1928 og hófu félagsbú- skap að nokkru leyti með afa og ömmu. Þá var Stebbi byrjaður að rækta jörðina og var þá búinn að gera svokallaða Stebbasléttu upp á Kúabakka. Var það unnið með Lúð- víksverkfærum sem voru saxherfi og rótherfi sem hestum var beitt fyrir. Þetta var svokölluð rótgræðsla og spratt það vel. Stebbi fór á vertíð að mig minnir 1929 og var þá landmað- ur við Björgvin. Kom heim um pásk- ana og færði mér derhúfu, það var mikil hátíð. Stebbi var sérlega lag- hentur og nettur í höndunum. Hann fer að búa með foreldrum sínum eftir að hann gifti sig 1930. Þá var öll hey- vinna saman enn um nokkurn tíma. Hann byggði sér fjárhús, hlöðu og sérstaklega núna þegar við erum flutt heim eftir margra ára dvöl erlendis. Erfitt er að vakna á hverjum morgni og vita að þú sért ekki lengur á meðal okkar, þú sem varst alltaf svo hress og kátur. Alltaf með spaugsyrði á vörum og ráðagóður þótt lífsins strit hafi ekki alltaf verið auðvelt. Það vekur okkur óneitanlega til umhugsunai- um hve vegir Guðs eru órannsakanlegir að þú skulir hverfa frá okkur svona ungur. Um leið trú- um við því að Guð búi þér góðan stað í ríki sínu, þar sem við munum öll hittast seinna. Þangað til verður þú ávallt tfl í minningu okkar. Elsku Gunna systir, Eva Björg og Þröstur Þór. Megi minning Sigga verða ykkur ljós og styrkur í fram- tíðinni. Guð styrki ykkur í sorg ykk- ar. Margrét, Þorleifur, Jónas Ingi, Jóhann Þórir og Birgitta Bjarney Guðmunda. Látinn er vinur og samstarfsmað- ur, aðeins 44 ára að aldri. Haffi, eins og hann var jafnan kallaður, varð bráðkvaddur á heimili sínu á Bfldudal hinn 14. þessa mánaðai-. Við kvödd- umst úti á flugvelli fyrr um daginn, hann ætlaði heim í nokkra daga og koma suður aftur fyrfl- jólin. Það var létt yfir Haffa, hann hafði þegið boð bróður síns og farið á litlu jólin með samstarfsfólki hans á laugardags- kvöldið, og hafði átt góða stund með bróður sem hann dáðist mjög að, sak- ir dugnaðar og velgengni með sinn rekstur. Haffi átti fjölda systkina, og stóran hóp vina sem sakna hans sárt. Þess hef ég orðið var þessa dökku daga frá andláti hans. Við kynntumst í byrjun árs 1995, þegar ég hóf rekst- ur á Bíldudal. Fljótlega „átti“ ég Haffa, hann varð fljótlega trúnaðar- vinur, og á milli okkai’ ríkti ávallt sér- stakt samband. Það gekk á ýmsu í rekstrinum, hann varð oft að tala máli fyiirtækisins og vinnuveitandans og oftar en ekki hafði hann fengið þetta eða hitt út á „andlitið" eins og sagt er. Hann var alla tíð sannur vinur. Haffi var léttur á fæti og léttur í lund. Hann skipti sjaldan skapi, og þessa síðustu daga hef ég verið að reyna að muna eitthvert það atvik þar sem slest hefði uppá vinskapinn, en mér er það fyrirmunað. Öllu var hesthús í Flugunni. Þessi hús voru vel byggð eins og hans var von og vísa. Hann var sérlega laginn verk- maður, honum beit svo vel að grasið stóð í ljáförum hans. Eitt var það sem ég legg mikið upp úr og það er hve annt hann lét sér um bróðurbörn sín enda var hann áreiðanlega mjög barngóður. Hann fylgdist vel með öllu sem við systkinin tókum okkur fyrfl- hendur og spurði oft um börn okkar. Stebbi vann síðast hjá Stáliðjunni, byrjaði þar 67 ára og vann þar í um 20 ár. Hann þótti þar sem annars- staðar góður starfskraftur. Stebbi var stálminnugur og haf- sjór af fróðleik. Hann las mikið, sér- staklega á seinni árum og átti gott bókasafn. Hann hafði mjög gaman af að ferðast um landið, tók vel eftir því sem fyi’ir augu bar og mundi vel og hafði gaman af að segja frá því. Að endingu vil ég svo þakka fyrir ánægjulegar stundir sem við áttum er við hjónin heimsóttum þau bæði á Höfn, í Kópavog og síðast á Hrafn- istu. Við sendum eftirlifandi eigin- konu og afkomendum hans samúðar- kveðjur og biðjum þeim blessunar Benedikt Siguijónsson. Elsku afi, nú ertu farinn frá okk- ur. Þú kvaddir okkur rétt fyrir jóla- hátíðina; hátíð ljóss og friðar, sem minnir mig á að þú hvflir í friði og að ljós þitt mun að eilífu skína í minn- ingunum sem ég á um þig, elsku afi minn. Það er alltaf erfitt þegar kallið kemur, enda þótt ég vissi að hverju stefndi og að þú þráðir hvíldina. Kveðjustundir reynast mér alltaf erfíðar. Það er mikill söknuður sem kemur fram og hugurinn leitar í hin- ar mörgu minningar sem ég á; yndis- legar minningar um góðan afa. Það var alltaf gaman að heimsækja þig og Lúllu ömmu í Vogatunguna. Ég á ófáar minningar um það er ég kom ein í heimsókn til ykkar. Mér leið alltaf vel hjá ykkur og það var óneit- tekið með jafnaðargeði, ekki til frekja eða tilætlunarsemi í garð ann- arra. Hann féll vel að „nýjum“ starfsfélögum hverju sinni sem sakna hans sárt. Þegar jólahátíðin, hátíð Ijóss og gleði, stendur sem hæst er vinur minn kvaddur hinstu kveðju. Mitt í gleðinni ríkir djúp sorg. Dvelur hug- urinn hjá fjölskyldu Haffa sem hon- um þótti svo óendanlega vænt um. Hún Gunna hans og krakkarnir voru honum nánast allt, fyrir þau vildi hann allt gera, og gerði svo sannar- lega, þess hef ég orðið áskynja í gegnum árin. Honum voru aldraðir tengdaforeldrar sínfl- einkar kærir, hjá þeim gisti hann á „suðurferðum“, og veit ég að þau sakna hans sem þeirra sonur væri. Að leiðarlokum þakka ég tryggð- ina og vináttuna og bið ég þann sem öllu ræður að blessa fjölskyldu Haffa og vaka yfir henni um ókomin ár. Það er bjart yfir minningu Haffa og bið ég Guð að geyma hann. Eiríkur Böðvarsson. Þriðjudaginn 15. des. sl. barst okkur sú harmafregn að Haffi, kær vinur og nágranni, hefði orðið bráð- kvaddur á heimili sínu. Við kveðjum hann með sárum söknuði og megi hann hvfla í Guðs friði. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka, Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem.) Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur sendum við ykkur, elsku Guðrún, Eva, Þröstur og aðrir ástvinir sem eiga um sárt að binda. Guð styrki ykkur og styðji í þessari miklu sorg. Ingveldur Lilja og Reynir, Ragnheiður og Jón, Elínborg og Páll. anlega gaman að vita að þú lumaðir oft á brjóstsykri eða Malta- súkkúlaði. Sunnudagar voru lengi vel hátíðis- dagar í mínum huga, því þá komum við öll fjölskyldan í heimsókn til ykk- ar og horfðum á sjónvarpið með ykk- ur. Þetta var áður en mamma og pabbi eignuðust sjónvarp. Það var virkilega gaman, þegar þú, amma og Rafn ferðuðust með okkur um land- ið. Þú fræddir okkur um svo margt og naust þess svo að skoða landið og vera úti í náttúrunni. Afi var alltaf áhugasamur um það sem ég hafði fyrir stafni, t.d. fylgdist hann náið með árangri mínum í íþróttum. Mér þótti alltaf vænt um þegar hann kom á Fífuhvammsvöll- inn og fylgdist með mér keppa. Bókmenntir voru mikið áhugaefni afa. Það var gaman hvað hann fylgd- ist vel með útgafu nýrra bóka og alltaf tókst honum að nálgast þær bækur sem hann langaði að eignast. Á meðan afi og amma bjuggu í Vogatungu var hann mjög heilsu- hraustur, sem sést vel á því að hann vann fram á níræðisaldur. Vinnan gaf honum mikið og hann naut þess að geta stundað sína vinnu, þó ekki væri nema hluta úr degi. Það erum margar minningar um afa, sem leita á hugann. Það sem er efst í huga eru minningar um já- kvæðan, ánægðan og yndislegan afa. Ég mun ætíð vera þakklát fyrfl- að hafa átt þig sem afa, og mun varð- veita minninguna um þig. Einnig met eg mikils þær fáu stundir sem ég, Ásgeir, Ein'kur Rúnar og Þór- hildur Ki-istín höfum átt með afa og ömmu síðastliðin ár. Elsku Lúlla amma, mamma og pabbi, Rafn og Guðlaug, og fjöl- skyldur. Þó fjai’lægðin sé mikil á milli okkar, þá er hugur okkar hjá ykkur. Við hugsum hlýlega til ykkai- allra um leið og við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur á þessum erf- iðu tímum. Hrönn og fjölskylda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.