Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
AÐSENPAR GREINAR
Opið bréf til Egils
Eðvarðssonar
FORNKUNNINGI
Egill.
Sjónvarpsleikrit
þitt, Dómsdagur, sem
sýnt var í Ríkissjón-
varpinu á annan dag
jóla, gekk svo fram af
mér að ég finn mig
knúinn til að senda þér
þessar línur.
Af einhverjum hvöt-
um velur þú þér það
hlutverk að beita öfl-
ugasta miðli nútímans
til að svívirða minn-
ingu látinna heiðurs-
hjóna, sem þú nafn-
greinir og birtir
myndir af, með því að
slá fram órökstuddum fullyrðing-
um um að húsfreyjan hafi verið
morðingi og að húsbóndinn hafi
verið drykkfelldur flagari, sem
reynir að fá aðra til að bera ljúg-
vitni fyrir rétti, en er sjálfur svo
kófdrukkinn að hann getur ekki
borið vitni.
Mér finnst með hreinum ólíkind-
um að Ríkisútvarpið skuli velja
annan dag jóla til sýningar á þess-
ari afurð þinni og að Menningar-
sjóður útvarpsstöðva skuli hafa
veitt þér styi'k til þessarar iðju
þinnar.
Er það hugsanlegt að sú stað-
Mér fínnst lítið fara
fyrir því að siðferðileg
lögmál séu látin ríkja,
segir Davíð Sch. Thor-
steinsson, þegar fjallað
er um nafngreinda ein-
staklinga, kjarna al-
þekktrar sorgarsögu
er snúið á hvolf frá því
sem best er vitað.
reynd að sjálfur Einar Benedikt-
son tengdist málinu hafi liðkað fyr-
ir styrkveitingu til þín og að þú
hafir þess vegna kosið að fjalla um
þá sorgaratburði, sem áttu sér stað
á Svalþarði fyrir rúmri öld?
Má ég spyrja hvers vegna þú
lýstir ekki Einar Benediktsson
morðingjann?
Það er ekkert fjarstæðukennd-
ara en að lýsa húsfreyjuna morð-
ingjann og þú gefur jú sífellt í skyn
að Sólborg heitin hafi fylgt Einari
alla tíð og þú lætur hann varðveita
dagbók sína um Sólborgarmálið
sér við hjartastað allt fram í and-
látið.
Þú hefðir kannski getað fengið
meiri styrk, ef þú hefðir haft þann
háttinn á.
Eg þykist sjá að þú hefur lesið
þátt Tómasar Guðmundsssonar
skálds í bókinni Undir hauststjörn-
um um Sólborgu, þar sem þú notar
hluta af skrifum hans sem uppi-
stöðu í það, sem satt er í leikriti
þínu.
Það sem Tómas skrifaði um
prestshjónin virðist hinsvegar hafa
farið fram hjá þér og því tel ég rétt
að birta hér hluta af
því, sem hann skrifaði
um þau:
„Um þessar mundh-
sat að Svalbarði í Þistil-
fh'ði sr. Ólafur Peter-
sen, hinn gáfaðasti
ágætismaður. Hann
hafði útskrifast úr
prestaskólanum árið
1887, aðeins tuttugu og
tveggja ára gamall, og
vígðist tveim árum
seinna. Hann var skóla-
bróðir Einars Bene-
diktssonar úr Latínu-
skólanum og hafði
þeim orðið vel til vina.
Kvæntur var hann
Astríði, dóttur Stefáns prófasts
Stephensens í Vatnsfirði, og voru
þau hjón rómuð íyrir prúðmennsku
og góðvild, en prestskapur sr. Ólafs
var skemmri en vonir stóðu til, því
að hann andaðist árið 1898, aðeins
32 ára gamall.“
Þegar Tómas lýsir réttarhöldun-
um, sem stóðu aðeins einn dag,
segir hann:
„Það er presturinn sjálfur, sem
er meðal síðustu vitnanna í þessu
þinghaldi og framburður hans hef-
ur einnig á sér allan blæ varúðar
og nærgætni.“
Dæmi hver fyrir sig hvorum er
betur treystandi Tómasi eða þér,
en með hæfilegri virðingu fýrir þér
tek ég persónulega meira mark á
því, sem Tómas skrifaði en því sem
þú lætur frá þér fara.
Þú reynir að forða þér frá því að
þurfa að standa ábyrgur orða
þinna og gjörða með því að skrifa,
eftir að hafa þakkað þeim sem
styrktu þig til verksins, að:
„Mynd þessi geymir að nokkru
leyti vísan til raunverulegra at-
burða.
Verkið í heild er þó fyrst og
fremst skáldverk þar sem skáld-
skaparlögmál eru látin ríkja.“
Mér finnst satt að segja lítið fara
fyrir því að siðferðileg lögmál séu
látin ríkja þegar fjallað er um nafn-
greinda einstaklinga, kjarna al-
þekktrar sorgarsögu er snúið á
hvolf frá því sem best er vitað,
sjálfsmorði breytt í morð og sóma-
kona, sem margir núlifandi menn
höfðu persónuleg kynni af, er gerð
að morðingja.
Það er skoðun mín að það sé
ekki á færi annarra en smekkvísra
afburðamanna að nota alþekkta at-
burði sem stofn í nýjar sögur þar
sem bætt er við eigin hugleiðing-
um, enda breyta slíkir höfundar oft
bæði nöfnum og málsatvikum, því
ella er augljóslega hætta á að fólk
geti ekki gert sér grein fyrir hvað
er sannleikur og hvað er skáld-
skapur.
Eg tel ekki að vísan til „skáld-
skaparlögmála“ réttlæti róg og níð
um nokkurt fólk, hvað þá látið
fólk, sem á þess ekki kost að bera
hönd fyrir höfuð sér, enda ætla ég
að afsakanir þínar um „skáldskap-
arlögmál" muni ekki vega þungt,
þegar þú kemur fyrir þann dóm,
sem æðri er dómstólum þessa
lands.
Höfundur er verkefnisstjóri.
Davíð Sch.
Thorsteinsson
Til viöskiptavina Búnaðarbankans
Útibú Búnaöarbankans verða lokuð
mánudaginn 4. janúar 1999.
Upplýsingar um víxla sem falla í eindaga um
jól og áramót liggja frammi í útibúum.
® BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF
VILTU KOMA ÞER
Æ Æ
UPP ODYRRI
m n
VINNUAÐSTOÐU?
. , V' ýr ^ *v :
/ !;i2
754.216 kr. óhvsk. HyUNDAI ATOS
Rekstrarleigusamningur Fjármögnunarleiga
Engin útborgun Útborgun 188.554 Ur.
22.31 lkr. á mánuði 12.129 kr. á mánuði
799.196 kr. ánvsK. HyUNDAI ACCENT
Rekstrarleigusamningur Fjármögnunarleiga
Engin útborgun Útborgun 199.799 kr.
23.752 kr. ámánuði 12.827 kr. ámánuði
ánVSK. s? ■ i§ • ’ v„v HyUNDAI H-1 stuttur |
Rekstrarleigusamningur Fjármögnunarleiga
Engin útborgun Útborgun 312.450 kr.
36. 140 kr. á mánuði 19.797 kr. ámánuði
Rekstrarleiga er miSuð er við 24 mánuði og 20.000 km akstur á ári. Fjármögnunarleiga er miðuð við 60 mánuði og 25% útborgun, greiðslur eru án vsk. Vsk leggst ofan á leigugreiðslur en viðkomandi fær hann endurgreiddan ef hann er með skattskyldan rekstur. Allt verð er án vsk.
ATVINNUBILAR
FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Ármúli 13
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
HYunoni
6 0 T T FÓIK