Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Breski Verkamanna- flokkurinn i sárum A Ihaldsmenn kætast og reyna að nýta sér vandræði flokksins til hins ýtrasta Afsögn Peters Mandelsons og fréttir af víðtækum fjárhagslegum stuðningi Geoff- rey Robinsons við Verkamannaflokkinn hafa valdið miklu uppnámi í breskum stjórnmálum. Ihaldsmenn reyna að nýta sér vandræði flokksins til hins ýtrasta en fæstir telja að Mandelson sé á útleið úr breskum stjórnmálum. Er líklegt að hann muni á næstunni einbeita sér að því að efla pólitísk tengsl Þýskalands og Bretlands. Geoffrey Peter Robinson Mandelson BRESKIR íhaldsmenn hafa krafist þess að fram fari opinber rannsókn á fjárhagslegum tengslum kaup- sýslumannsins Geoffreys Robin- sons og þingmanna Verkamanna- flokksins. Robinson, sem gegnt hafði embætti aðstoðarráðherra í fjármálaráðuneytinu, og Peter Mandelson viðskiptaráðherra, sögðu báðir af sér embætti í vik- unni sem leið eftir að upplýst var að Robinson hafði veitt Mandelson tugmilljóna króna lán tii húsnæðis- kaupa. Upplýsingar um fjármál Mand- elsons hafa haldið áfram að birtast undanfama daga og hefur hann m.a. verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki veitt upplýsingar um lánið frá Robinson er hann sótti um almennt húsnæðislán. Þá hefur verið upplýst að Mandelson þáði á síðastliðnu ári flugferð með einka- þotu bandarísku auðkonunnar Lindu Waehner, sem hefur hagn- ast mjög á sölu nærfatnaðar og gallabuxna undir vörumerkinu Calvin KJein. Breskum þingmönnum er skylt að veita upplýsingar um gjafír og önnur hlunnindi er þeir þiggja og kunna að tengjast starfí þeirra. Talsmaður Mandelsons sagði að um ferð í einkaerindum hefði verið að ræða og hefði hún ekki á neinn hátt tengst þingmannastörfum Mandelsons. Wachner væri banda- rískur ríkisborgari og hefði engra hagsmuna að gæta gagnvart breska þinginu. Hún væri einka- vinur Mandelsons og hefði sjálf greitt fyrir ferðina. Það væri fárán- leg siðprýði að reyna að gera hneykslismál úr þessu, sagði tals- maðurinn og taldi að Mandelson hefði á engan hátt verið skylt að greina frá ferðinni. „Guðfadir“ Verkamanna- flokksins íhaldsmenn segja hins vegar að um klárt brot á reglum þingsins sé að ræða og hafa krafíst rannsóknar á öllum embættisgjörðum Mandel- sons sem ráðherra. Ihaldsmenn hafa verið tregir til að ráðast á Verkamannaflokkinn fyrir spill- ingu af ótta við að vopnin kunni að snúast í höndum þeirra, þar sem fjölmörg spillingarmál urðu til að grafa undan vinsældum þeirra á sínum tíma. Atburðarás síðustu daga hefur hins vegar orðið til að stappa í þá stálinu. „Hvar endar þetta,“ sagði Francis Maude, tals- maður íhaldsmanna í fjármálum og Michael Howard, er fer með utan- ríkismál í skuggaráðuneyti þeirra, sagði ljóst að Geoffrey Robinson væri „guðfaðir" nýja Verkamanna- flokksins. Breskir fjölmiðlar hafa síðustu daga haldið því fram að Robinson hafi boðist til að lána að minnsta kosti tveimur öðrum ónafngreind- um ráðhen-um fé til húsnæðis- kaupa í London. Blaðið Sunday Times sagðist hafa heimildir fyrir þessu frá „háttsettum ráðherra" og að markmiðið hafi verið að styrkja stöðu Gordons Browns fjármála- ráðherra í valdabaráttunni innan Verkamannaflokksins. Er því hald- ið fram að Charlie Whelan, tals- maður Browns, hafi verið milli- göngumaður í þessum málum en honum hefur jafnframt verið kennt um að hafa lekið upplýsingum um lántöku Mandelsons í fjölmiðla. Hefur fjármálaráðuneytið vísað fullyrðingum af þessu tagi algjör- lega á bug. Samt sem áður er nú verulegur þrýstingur á Brown að leysa Whel- an frá störfum, en hann var jafn- framt óopinber talsmaður Robin- sons á meðan hann gegndi emb- ætti. Væri það mikið áfall fyrir Brown að reka talsmann sinn, sem talinn er hafa reynst honum mjög vel. Whelan hefur orð á sér fyrir að vera opinskár og harðskeyttur en hann er fyrrum kommúnisti, sem hefur starfað náið með Brown um margra ára skeið. Hann átti í fyrstu gott samstarf við Mandel- son en leiðir þeirra skildu er þeir Blair og Brown tókust á um leið- togaembættið í flokknum. Töldu Whelan og fleiri aðstoðarmenn Browns að Mandelson hefði reynt að leika tveimur skjöldum í þeim slag. Whelan nýtur töluverðra vin- sælda meðal breskra fréttamanna og meðal vina hans er Poul Routledge, pólitískur fréttastjóri á The Mirror, sem undanfarið hefur unnið að bók um Peter Mandelson. Mun hafa verið ætlunin að greina frá láni Robinsons til Mandelsons í þeirri bók. Einungis fimm mann- eskjur vissu af láninu og telja „vin- ir“ Mandelsons, er rætt hafa við fjölmiðla, ljóst að Whelan hafi frétt af því og komið upplýsingum áleið- is til Routledges. Þessu neitar Whelan og bendir á að jafnvel þótt hann hefði vitað af láninu hefði ver- ið ljóst að þær upplýsingar kæmu góðvini hans Robinson jafnilla og Mandelson. Hættu við birtingu Til stóð að kaflar úr bók Routledge yrðu birtir í Sunday Times en þeim samning hefur verið rift eftir atburði síðustu daga, þar sem að þær upplýsingar er mesta athygli áttu að vekja eru þegar komnar í ljós. Mun Mirror birta kaflana þess í stað. I Times er greint frá orðrómi um að óvildar- maður Routledges í blaðaheimin- um hafi tekist að verða sér úti um eintak af handritinu og greint frá upplýsingum um lán Mandelsons til að eyðileggja fyrir sölu bókar- innar. Þá var greint frá því um helgina að Robinson hefði óbeint fjármagn- að skrifstofu Gordons Browns í að- draganda síðustu kosninga. Brown naut ekki persónulega góðs af stuðningi Robinsons, en pening- arnir, sem greiddir voru í gegnum bankareikning Verkamannaflokks- ins, voru notaðir til að fjölga starfs- fólki og hækka laun lykilstarfs- manna. Brown fór á þessum tíma með fjármál í skuggaráðuneyti flokksins. Ekki er talið ólíklegt að afsögn Mandelsons og Robinsons verði til að ýta undir innanflokksátök í Verkamannaflokknum og að fleiri kunni hugsanlega að liggja í valn- um þegar yfir lýkur. Margir þing- menn eru sagðir gruna að Robin- son hafi ákveðið að ná sér niðri á þeim sem hann taldi vinna gegn sér innan stjómarinnar og einnig vísa margir til meintrar valdabar- áttu milli Blairs og Browns. Mand- elson hefur hins vegar vísað á bug kenningum um átök á milli hans og Browns og haft var eftir talsmanni hans að hann hefði hvorki áhuga á að bola Whelan úr starfi né að koma fram „hefndum“ gagnvart fjármálaráðherranum. „Vinir“ Mandelsons eru hins vegar ómyrkari í máli og segja for- sætisráðherrann hafa misst nán- asta ráðgjafa sinn vegna togstreitu í kringum leiðtogakjörið 1994 og þeirrar staðreyndar að Charlie Whelan hafi ekki orðið talsmaður forsætisráðherra, þar sem að Brown beið lægri hlut. Svo virðist þó sem persónulegt samband þeirra Browns og Mandelsons hafi ekki beðið hnekki. Þeir voru eitt sinn nánir vinir og er Brown sagð- ur hafa hringt fimm sinnum í Mandelson áður en hann sagði af sér og aðstoðað hann við að semja afsagnarbréf sitt. Tony Blair gagnrýndur Blair hefur einnig sætt gagnrýni fyrir meðhöndlun sína á málinu og saka íhaldsmenn hann um að hafa beðið í viku með aðgerðir eftir að hann frétti af máli Mandelsons. í viðtali um helgina, því fyrsta sem hann veitti um þessi mál, sagði for- sætisráðherrann að hann hefði verið með hugann við árásirnar á Irak og hefði því látið mál Mandel- sons sitja á hakanum um nokkurra daga skeið. Það væri ekki jafnal- varlegt og ef breskir flugmenn hefðu látist í átökum. Michael Howard sakaði hins vegar Blair um að hafa beðið með kröfu um af- sögn þar til að ljóst var að tilraunir Mandelsons til að hvítþvo sig hefðu mistekist. „Blair gerði það sama og venjulega, hann beið eftir því að sjá hvemig vindar blæsu,“ sagði Howard. Flest bendir þó til að Blair vilji áfram nýta krafta Mandelson. Eftir að hann sagði af sér embætti á Þorláks- messu hélt hann til Chequers, sveitabú- staðar breska for- sætisráðherrans, og snæddi kvöld- verð með Tony og Cherie Blair. Gisti hann á Chequers um nóttina og er þetta talið til marks um áframhaldandi vináttutengsl Mandelsons og Blairs þrátt fyrir allt sem á undan hafði gengið. Greindu bresk blöð frá því í gær að forsætisráðherrann hefði beðið Mandelson um að hjálpa stjórninni áfram við að byggja upp sterkari pólitísk tengsl við Þýskaland. Fyiir tæpum tveimur mánuðum var sett- ur upp bresk-þýskur vinnuhópur til að vinna að stefnumótun á sviði efnahags-, velferðar- og Evrópu- mála. Var Mandelson í forystu Breta í hópnum og mun vilji Blairs standa til að hann gegni því starfi áfram. Þá er Mandelson sagður hafa lýst áhuga á því að vera í forystu- hlutverkinu í baráttunni fyrir aðild Bretlands að hinum peningalega samruna Evrópusambandsríkj- anna. Hann hefur einnig verið nefndur sem hugsanlegur fram- bjóðandi Verkamannaflokksins er kosið verður um embætti borgar- stjóra London í fyrsta skipti en er ekki sagður hafa áhuga á því. Reuters Lengstir lokkar LU SENG sýnir hár sitt í bænum Chiang Mai í Norður-Taílandi. Bandarísk samtök er hafa auga með undrum veraldarinnar og mannlífsins hafa nýverið lýst því yfir að hár Lus, sem er 77 ára, sé það iengsta I heimi. Páfi þakk- ar Castro JÓHANNES Páll páfi hefur sent Fidel Castro, forseta Kúbu, skeyti til að þakka hon- um fyrir að gera jóladag- inn að opin- berum frídegi að nýju efth’ að hafa lagt jólafríið niður fyrir tæpum 30 árum. Páfi fór í heimsókn til Kúbu í jan- úar og samskipti kommúnista- stjórnarinnar og kaþólsku kirkjunnar í landinu hafa farið batnandi á síðustu árum. Sómalar flýja til Eþíópíu UM 10.000 Sómalar hafa flúið til Eþíópíu síðustu daga vegna þurrka og matvælaskorts í suðurhluta Sómalíu. Starfs- menn hjálparstofnana sögðu að fólkið hefði flúið á eyði- merkursvæði í austurhluta Eþíópíu þar sem skortur er á matvælum og hvöttu stjórn- völd í Sómalíu til að gera strax ráðstafanir til þess að afstýra hungursneyð í suðurhluta landsins. Talið er að 750.000 Sómalar eigi á hættu að verða hungurmorða og stjórn Eþíóp- íu segir að hálf milljón íbúa austurhluta Eþíópíu sé í hættu vegna matvælaskorts. Fangelsun frestað YFIRVÖLD í íran hafa ákveð- ið að fresta því að fangelsa borgarstjórann í Teheran, Gholamhossein Karbaschi, sem hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir spill- ingu. Borgarstjórinn var í fyrstu dæmdur í fimm ára fangelsi en áfrýjunardómstóll mildaði fangelsisdóminn á jóla- dag. Sú ákvörðun yfirvalda að fresta afplánuninni þykir benda til þess að málinu verði vísað til hæstaréttar írans. Fylgismenn Mohammads Khatamis, forseta Irans, lýsa málaferlunum gegn borgar- stjóranum sem tilraun af hálfu íhaldssamra klerka til að grafa undan stjórn umbótasinna. Ný eldflaug tekin í notkun ÍGOR Sergej, varnarmálaráð- herra Rússlands, heimsótti rússneska herstöð á sunnudag til að taka nýja gerð af kjarn- orkueldflaugum, Topol-M, formlega í notkun. Litið er á Topol-eldflaugarnar sem meg- instoð rússneska kjarnorku- heraflans á næstu öld. Tvær Topol-flaugar hafa þegar verið notaðar í tilraunaskyni og gert er ráð fyrir að tíu til viðbótar verði teknar í notkun á næsta ári og allt að 40 á ári hverju frá árinu 2000. Bondevik íhugaði afsögn KJELL Magne Bondevik, for- sætisráðherra Noregs, íhugaði að segja af sér skömmu áður en hann fékk veikindaleyfi í haust vegna þunglyndis. Þetta kemur fram f viðtali við Bondevik sem norska dagblað- ið Aftenposten birti á sunnu- dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.