Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 15
FRETTIR
Hitaveita Suðurnesja byggir raforkuver í Svartsengi án þess að hafa virkjunarleyfí
Engar viðræður hafa
farið fram í hálft ár
Iðnaðarráðuneytið telur samning milli
Hitaveitu Suðurnesja og Landsvirkjunar
vera forsendu fyrir því að HS fái virkjun-
arleyfi vegna 30 MW virkjunar í Svarts-
engi. Engar viðræður hafa farið fram
milli HS og Landsvirkjunar í hálft ár.
Egill Ólafsson skoðaði hvers vegna
HS hefur ekki fengið virkjunarleyfí.
EKKI hefur verið haldinn fundur í
hálft ár milli Hitaveitu Suðurnesja
og Landsvirkjunar um gerð sam-
rekstrarsamnings vegna raforkusölu
frá HS. Að mati iðnaðarráðherra er
samkomulag um slíkan samning for-
senda fyrir því að iðnaðarráðuneytið
veiti HS virkjunarleyfl. Fái fyrir-
tækið ekki leyfið getur það ekki sett
orkuverið, sem verður fullbyggt í
september á næsta ári, í gang til að
framleiða rafmagn á eigin sölusvæði.
I ár eru liðin 20 ár síðan Hitaveita
Suðurnesja hóf rafmagnsfram-
leiðslu. Fyrirtækið framleiðir í dag
rafmagn með 10 gufuhverflum og er
ástimplað afl 16,4 MW. Fyrir þrem-
ur árum óskaði fyrirtækið eftir virkj-
unarheimild fyrir 25 MW virkjun til
iðnaðarráðherra. Jafnframt hófst
undirbúningur að framkvæmdum við
vh-kjunina. I fyrra var gengið frá
samningi við Fuji í Japan um kaup á
30 MW hverfli. Hann er nú á leið til
landsins, en fyrirhugað er að koma
honum fyrir áður en stöðvarhúsinu
verður lokað. Bygging þess er komin
vel á veg.
Þarf ekki að afla
lagaheimildar
HS ítrekaði beiðni sína um virkj-
unarheimild 28. febrúar í fyrra og
sótti jafnframt um leyfi fyrh' 30 MW
virkjun. Þessari beiðni hefur enn
ekki verið svarað efnislega. Ymsiegt
hefur orðið til að tefja afgreiðslu
málsins. Eitt af því er spurningin um
hvort fara þyrfti fram umhverfismat
á virkjuninni. I árslok 1996 úr-
skurðaði umhverfisráðuneytið að
virkjunin þyrfti að fara í umhverfis-
mat. Stjórnendur HS mótmæltu
þessu og bentu á að ekki hefði farið
fram umhverfismat vegna stækkun-
ar Nesjavallavh'kjunar og í Svarts-
engi væri verið að stækka virkjunina
með hliðstæðum hætti. í október í
fyrra féllst umhverfisráðherra á
þetta sjónarmið og úrskurðaði að
virkjunin þyrfti ekki að fara í um-
hverfismat.
Forsenda fyrir virkjanaleyfi er
umsögn frá Orkustofnun. Stofnunin
skilaði jákvæðri umsögn um virkjun-
ina 14. ágúst sl. HS skilaði inn at-
hugasemdum til Orkustofnunar í
október þar sem gefnar voru skýr-
ingar á nokkrum atriðum í sambandi
við virkjunina. í umsögn Orkustofn-
unai' kemur fram að vii'kjanaáform
HS rúmist innan þeirrar heimildar
sem ákveðin er í orkulögum frá 1981,
en þar segir að iðnaðarráðherra hafi
heimild til að gefa út virkjunarleyfi
vegna allt að 50 MW jarðvarmaveitu.
Það er því mat stjórnenda HS að
iðnaðarráðherra þurfi ekki að leita
eftir lagaheimild ft'á Alþingi til að
gefa út virkjunarleyfi til HS.
Samningur við Landsvirkjun
forsenda leyfisveitingar?
Finnur Ingólfsson iðnað-
aiTáðheiTa sagði í utandagskrárum-
ræðu um þetta mái á Alþingi í síð-
ustu viku, að gera þyrfti samrekstr-
arsamning milli HS og Landsvirkj-
unar áður en hann gæti gefið út
virkjunarleyfi. Júlíus Jónsson, for-
stjóri HS, segist ekki kannast við að
þetta sé forsenda fyi'h' ieyfisveit-
ingu. Hann hefur sent iðnað-
arráðherra bréf þar sem óskað er
eftir upplýsingum um hvar sé að
finna ákvæði um að slíkur samning-
ur sé forsenda fyrir leyfisveitingu.
Viðræður um gerð samrekstrai'-
samnings milli HS og Landsvirkjun-
ai' hafa staðið í alllangan tíma, en
talsvert ber á milli aðila. Síðasti
formlegi viðræðufundurinn var hald-
inn snemma í júní í sumar. Júlíus
segir að talsmenn Landsvirkjunar
hafi borið fyrir sig að þeir væru að
bíða efth' að heyra frá Norðuráli um
áform eigenda fyrirtækisins um
stækkun álversins.
Landsvirkjun tekur Sultartanga-
virkjun í gagnið í október nk., en
virkjunin er 120 MW að stærð. Það
er því ljóst að það verður ekki skort-
ur á rafmagni næsta haust þegar
virkjun HS í Svartsengi verður tekin
í notkun. Við þessar aðstæður er
þess tæplega að vænta að Lands-
virkjun hafi mikinn áhuga á að gera
samning við HS um raforkusölu.
Má ekki setja í gang
HS kaupir í dag 14-15 MW af
Landsvh'kjun til sölu á orkusölu-
svæði sínu. Virkjunin í Svartsengi
gerir HS kleift að hætta þessum
orkukaupum, en fyi'irtækið getur
einnig selt um 15 MW inn á kerfi
Landsvii'kjunar. Fái HS ekki virkj-
unarleyfi má fyrirtækið ekki setja
orkuverið í gang. Það getur því ekki
einu sinni framleitt þessi 14-15 MW
sem það kaupir af Landsvirkjun í
dag. Möguleikar fyrirtækisins til að
nýta þá miklu fjárfestingu sem fyi'ir-
tækið stendur í ræðst því alfarið af
því hvort iðnaðairáðherra veiti fyi'ir-
tækinu virkjunarleyfí, en ráðheira
vísar hins vegar á viðræður HS og
Landsvirkjunar um gerð samrekstr-
arsamnings, sem mjög lítið virðist
gerast í.
Pólitísk stefnumörkun
Akvörðun um virkjunarleyfi til HS
tengist almennt ákvörðunum um
skipulag raforkumála, en undanfarin
ár hefur mikið verið rætt um að auka
samkeppni á raforkumarkaði.
Stjórnvöld hafa enn ekki tekið
pólitískar ákvarðanir í því máli, en
iðnaðarráðherra mun eftir áramót
leggja fram frumvarp um samkeppni
í raforkuframleiðslu. Það má færa
rök fyrir því að eðlilegt sé að Alþingi
taki pólitíska ákvörðun um skipulag
raforkumála áður en HS fær virkj-
unarleyfi því fái fyrirtækið virkjun-
arleyfi hlýtur í því að felast sú stefn-
umörkun að opna eigi fyrir sam-
keppni í raforkuframleiðslu. Þess
ber þó að geta að ekki er langt síðan
iðnaðarráðherra veitti Reykjavíkur-
borg virkjunarleyfi vegna byggingar
60 MW virkjunar á Nesjavöllum.
Iðnaðarráðherra getur auk þess ekki
dregið í það óendanlega að svara
beiðni HS. Stjórnsýslulög setja hon-
um þar ákveðnar skorður.
Nýlega tók HS upp samstarf við
Hafnai-fjarðarbæ, Garðabæ,
Bessastaðahrepp og Kópavogsbæ
um samvinnu á sviði orkumála, þ.e.
um raforkuframleiðslu og jafnvel um
söiu á vatni til húshitunar. Það er því
ljóst að HS mun ekki eiga í vandræð-
um með að finna kaupendur að raf-
magninu frá Svartsengi. Búast má
Morgunblaðið/Þorkell
FRAMKVÆMDIR við orkuverið í Svartsengi eru komnar vel á veg, en
áformað er að þeim ljúki í september nk.
við að komist raforkuviðskipti á milli
þessai'a aðila verði fljótlega farið að
huga að frekari raforkuframleiðslu.
Þess má geta að þegar hefur verið
gerð samþykkt í stjórn HS um að
hafinn verði undirbúningur að raf-
orkuframleiðslu á Reykjanesi. Þarna
er því verið að takast á um mikla
hagsmuni, sem ekki aðeins varða
Suðurnesjamenn og íbúa í stóru
sveitarfélögunum í nágrenni Reykja-
víkui', heldur varðar þetta einnig
hagsmuni Landsvirkjunar og orku-
fyrirtækja Reykvíkinga.
Athuga-
semd
frá Agli
Eðvarðssyni
MORGUNBLADINU hefur
borist eftirfarandi athugasemd
frá Agli Eðvarðssyni:
„Undirritaður vill að gefnu
tilefni taka fram að kvikmynd-
in Dómsdagur, sem sýnd var í
sjónvarpinu annan dag jóla, er
skáldverk. Kvikmyndin bygg-
ist að nokkru leyti á atburðum
sem áttu sér stað á prestssetr-
inu Svalbarði í Þistilfirði seint
á síðustu öld, en hugleiðingar
persóna myndarinnar um að
atburðir hafi þar gerst á annan
veg en hingað til hefur verið
haldið fram era eingöngu
höfundar.
Þrátt fyrir að skýrt hafi ver-
ið tekið fram í allri kynningu á
verkinu að um skáldverk væri
að ræða virðist það hafa farið
framhjá mörgum og er þetta
því hér með ítrekað, eða eins
og segir í lok myndarinnar:
„...mynd þessi geymir að
nokkru leyti vísan til raun-
verulegi’a atburða. Verkið í
heild er þó fyrst og fremst
skáldverk þar sem skáldskap-
arlögmál eru látin ríkja.“
Egill Eðvarðsson
HUGSAR ÞU UM AVÖXTUN
TIL FRAMTÍÐAR?
Spáð er, að Asíulöndin taki forystu í heiminum á nœstu öld.
Misstu ekki cif glœsilegu ferðatilboði til Austurlanda, meðan verðið er lágt.
MALASIA - THAILAND - BALI
Árið 1998 eru hundruð farþega búnir að njóta fyrirgreiðslu okkar
í rómaðar Austurlandaferðir á kynningarverði, sem svarar til
100-200% ávöxtun peninganna.
ÞETTA SAMA VERÐ GETUR ÞIJ TRYGGT ÞÉR MEÐ ÞVÍ AÐ
STAÐFESTA PÖNTUN ÞÍNA FYRIR 1999 Á KYNNINGARVERÐI
ÞESSA ÁRS FYRIR ÁRAMÓT. Verðið hlýtur að hækka á næstunni.
Bókunarstaða 23. des.:
17. jan. uppselt, biðlisti
31. jan. 4 sæti
14. feb. 2 sæti
28. feb. 8 sæti
14. mars laus sæti
25. mars, páskar, Malasía, Balí
11 d., aðeins 10 sæti
28. mars, páskar, Thailand, 2 v.,
aðeins 8 sæti
11. apríl 10 sæti - Thailand, 2 v.
25. apríl laus sæti - Thailand
9. maí laus sæti - Thailand/Bali
16. maí UPPSELT
30. maí laus sæti - Thailand/Bali
Vetrarmánuðir eru fegursti tími ársins í
Austurlöndum. blómskrúð, þurrt og hæfi-
lega heitt. Thailand er sannkölluð gullkista
ferðamanns og enn geturðu tryggt þér frá-
bæra ferð með flugi, flutningum, gistingu á
völdum hótelum með stórum morgunverði
og fararstjóm fyrir að meðaltali aðeins
kr. 6.700 á dag með fluginu inniföldu.
TRYGGÐU ÞÉR SUMAR-
SÆLU UM HÁVETUR í
HEILLANDI ÆVINTÝRA-
HEIMIAUSTURLANDA.
FERÐASKRIFSTOFAN
H
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17, 4. hæð, 101
netfang: prima@ heimsklubbur.
Reykiavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
r.is, neimasíða: hppt://www.heimsklubbur.is