Morgunblaðið - 17.01.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.01.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 13. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Ómar Á skíðagöngu í Heiðmörkinni Lík 42 albanskra íbúa Kosovo fínnast Lögreglan sökuð um fjöldaaftökur Bebus-hæð. Reuters. Lausmál leik- föng bönnuð í njósnastöðinni FURBY virðist sakleysislegnr og ber þess ekki merki að vera njósnari, minnir helst á Ioðdýr eða uglu. Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna telur þó þetta vinsæla leik- fang geta stofnað öryggi þjóðarinnar í hættu og hefur bannað það í höfuðstöðvum sínum, stærstu njósnastöð landsins. Þar er einkum unnið úr símahlerunum og gögnum sem nást með tölvunjósnum. Furby er með upptökubúnað og tölvukubb sem gerir honum kleift að endurtaka það sem hann heyrir. Yfirmenn öryggisstofnun- arinnar óttast að starfsmeim hennar taki loðdýrið með sér heim og það taki upp á því að Ijóstra upp nýjustu upplýsingum stofnun- arimiar, t.a.m. um Saddam Hussein íraksfor- seta. Þeir hafa því sent öllu starfsfólkinu í höfuðstöðvunum skilaboð um að blátt bann bafi verið lagt við Furby og öðrum leikföng- um sem lílqa eftir hljóðum sem þau nema. Reykingafólkið vinni lengur REYKINGAMÖNNUM, sem starfa hjá sveit- arfélaginu Thurroek í Essex í Englandi, hef- ur verið skipað að bæta við tveimur vinnu- stundum á viku til að vinna upp þann tíma, sem fer í reykingarnar. Sveitarstjómin í Thurrock hefur bannað 4.000 starfsmönnum sinum, þ.e.a.s þeim sem em við skrifstofu- og stjómunarstörf, að reykja innandyra í vinnunni og svokölluðum reykherbergjum hefur verið lokað. Reyk- ingamenn mega þó bregða sér út fyrir tvisvar sinnum á dag í 15 mínútur en þá verða þeir Iika að vinna í 39,5 klukkustundir í viku í stað hinna venjulegu 37 stunda. Verð- ur þeim gert að undirrita samning þess efnis. Talsmaður sveitarstjórnarinnar sagði, að hún byðist til að hjálpa þeim sem vildu hætta að reykja, en bannið nær ekki til þeirra, sem em í alls konar útivinnu. í stríði við svín BÆNDUR í suðausturhluta Frakklands hafa lýst yfir stríði á hendur blendingi af alisvíni og villigelti, sem étur allt sem hann kemst í, fjölgar sér óheyrilega og hrellir stundum þorpsbúa þegar þeir hætta sér út úr húsum sínum. Blendingurinn kom fyrst fram fyrir tíu ár- um og dýmnum hefur fjölgað svo ört að bændurair hafa stofnað sérstök samtök með það að markmiði að útrýma þeim. Þeir segja að blendingurinn hafi valdið þeim miklum búsifjuin með því að éta uppskeru þeirra. Blendingurinn varð til þegar bændur gáfust upp á því að ala villigelti, sem þóttu árásargjamir og óviðráðanlegir. Þeir leiddu því aligyltu undir villigölt og ræktuðu við- ráðanlegra dýr, sem er alæta og mjög líkt villisvínum á bragðið. Villisvín ala af sér eitt eða tvö afkvæmi á ári en blendingurinn allt að sextán. ALBANSKIR íbúar Kosovo sögðust í gær hafa fundið lík 42 manna af albönskum upp- runa í suðurhluta héraðsins þar sem hörð átök blossuðu upp í fyrradag milli serbneskra hersveita og skæruliða í Frelsis- her Kosovo (KLA), sem berst fyrir sjálf- stæði héraðsins. fbúar á svæðinu sögðust hafa fundið lfk 42 manna á aldrinum 12-74 ára. William Walker, yfirmaður eftirlitsmanna Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu (ÖSE), sagði að svo virtist sem fólkið hefði verið tekið af lífí. „Þetta er með því hryllilegasta sem ég hef séð og hef ég þó séð margt skelfilegt." Handteknir á heimilum sínum 22 líkanna fundust á hæð nálægt þorpinu Racak, um 25 km sunnan við Pristina, höfuð- stað héraðsins. Líkunum hafði verið raðað í skurð og fórnarlömbin voru öll karlmenn á aldrinum 18 til 65 ára. Enginn þeirra var í búningi Frelsishers Kosovo og flestir þeirra voru með skotsár á höfði eða hnakka. Sami Syla, íbúi Racak, sagði að faðir sinn og tveir bræður væru á meðal hinna látnu. Lögreglumenn hefðu handtekið þá ásamt fleiri mönnum í þorpinu á fimmtudagskvöld. „Þeir voru handteknir á heimilum sínum og þeim var sagt að farið yrði með þá til Uros- evac [bæjar í grennd við þorpið],“ sagði Syla. „Seinna voru þeir þó færðir upp á Bebus- hæð og teknir af lífi.“ Eftirlitsmenn ÖSE voru á staðnum og einn þeiri’a sagði að svo virtist sem mennirn- ir hefðu verið skotnir þegar þeir hefðu reynt að flýja. Serbneskar her- og lögreglusveitir vora fluttar á svæðið í fyrradag og börðust þá við skæruliða KLA. Fjölmiðlamiðstöð Serba í Pristina sagði að a.m.k. 15 skæruliðar hefðu fallið í átökunum en stærsta dagblað Kosovo- Albana hafði eftir foringja KLA á svæðinu að aðeins einn skæruliði hefði beðið bana og þrír særst. Tveir eftirlitsmenn ÖSE særðust í vesturhluta héraðsins á fóstudag þegar óþekktir menn hófu skothríð á bll þeirra. Varað við hrinu hermdarverka á N-Irlandi Belfast. The Daily Telegraph. NORÐUR-írski lögreglustjórinn Ronnie Flannagan sagði í fyrrakvöld að klofnings- hópur úr IRA, Irska lýðveldishemum, væri að undirbúa hrinu hermdarverka á Norður- Irlandi. Flannagan sagði að enginn vafi léki á því að mikil hætta stafaði af hópnum, sem nefnist „Framhalds-IRA“ og er með bæki- stöðvar við landamærin að Irlandi. Hópur- inn hygðist láta til sín taka á fleiri svæðum og ráðgerði ýmis hermdarverk, hugsanlega sprengjutilræði. Irska lögreglan finnur vopn við landamærin Lögreglustjórinn kveðst ennfremur sannfærður um að hópurinn hafi hafíð sam- starf við félaga í öðrum klofningshópi úr Irska lýðveldishemum, ;,Hinum sanna IRA“, og í Þjóðfrelsisher Irlands (INLA), sem var stofnaður árið 1975 og er vinstri- sinnaðri en IRA. Irska lögreglan fann þrjár stórar vél- byssur, sem geta grandað flugvélum, skammt frá landamærunum að Norður-ír- landi á fóstudag. Talið er að vopnin hafi verið í eigu IRA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.