Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sam- keppni um viðskipta- áætlanir NÝSKÖPUNARSJÓÐUR at- vinnulífsins, Morgunblaðið, Við- skiptaháskólinn í Reykjavík og ráðgjarfafyrirtækið KPMG hafa tekið höndum saman um að gangast fyrir samkeppni um við- skiptaáætlanir. Samkeppnin verður kynnt á næstu dögum. Markmið fyrirtækjanna fjög- urra með verkefninu er að stuðla að nýsköpun og frumkvæði í þjóðfélaginu með því að hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að gera grein fyrir liugmyndum sín- um í vandaðri viðskiptaáætlun. Vonast þau til að samkeppnin hafi í för með sér aukna grósku í íslensku atvinnulífi. Þátttakendur hafa tvo mánuði frá upphafsdegi til að ljúka við viðskiptaáætlun sína og fá marg- háttaða ráðgjöf og stuðning á tímabilinu. Öháðir sérfræðingar munu síðan dæma um innsendar áætlanir. Verðlaun eru í boði fyr- ir sigurvegarana, en aðalsigur- vegarinn fær auk einnar milljón- ar króna í reiðufé ráðgjöf hjá KPMG í eitt ár eftir að keppni Iýkur. I tilkynningu segir: Morgunblaðið/Ásdís FULLTRÚAR þeirra sem standa fyrir samkeppninni. Frá vinstri: Ólafur Nilsson frá KPMG, Hallgrímur Geirs- son, framkvæmdastjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Viðskiptahá- skólans, Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs, og G. Ágúst Pétursson verkefnisstjóri. „KPMG er eitt af stærstu og virt- ustu ráðgjafarfyrirtækjum í heimi og rekur stórt og öflugt fyrirtæki hér á landi.“ Verð- launafé er alls tvær milljónir króna; 500 þúsund krónur verða veittar fyrir annað sæti í sam- keppninni og þriðju til sjöundu verðlaun eru 100 þúsund krónur. f tilkynningu frá aðstandendum samkeppninnar segir að vel unnin viðskiptaáætlun sé mikilvæg for- senda fyrir því að fyrirtæki með álitlegar hugmyndir nái árangri. „Ferlið sjálft við að semja áætlun- ina er afar mikilvægt í sjálfu sér. Hinu er heldur ekki að leyna, að ef vel er að verki staðið aukast líkurnar á aðkomu fjárfesta eða lánastofnana.“ Þátttakendur í samkeppninni geta verið fyrirtæki og einstak- lingar sem vilja nýta sér tækifær- ið og fá úr því skorið hversu raunhæfar hugmyndir þeirra þykja. Þeir, sem þegar hafa stofnað fyrirtæki um hugmyndir sínar, skulu láta fylgja staðfest gögn frá opinberum aðilum um stofndag fyrirtækisins, markmið þess og aðstandendur. Þátttaka í samkeppninni er ókeypis. Hvatamaðurinn fékk níu ára dóm í Kaupmannahöfn, burðarstúlkan átta ár Peð í tafli um dauða og peninga Chike sendi íslenska stúlku í ferð eftir eiturlyfjum, sem hún hlaut átta ára dóm fyrir. Chike hlaut níu ára dóm. Sigrún Davíðsdóttir heyrði af sögu hans. „KAUPMENN dauðans" eru þeir oft kallaðir, sem á kaldrifjaðan hátt skipuleggja sölu eiturlyfja. Afleið- ingar nákaldrar kaupmennsku eru ekki aðeins líf og dauði í skugga eiturlyfja, heldur einnig að ungt fólk í blóma lífsins geldur mörg ár af lífi sínu fyrir að hafa ljáð kaldrifjuðum gylliboðum eyra. Einn af þessum kaupmönnum er Chike Charles Ibeneme eða James Andrew Butcher eða önnur vega- bréfsnöfn hans. Chike eins og hann kallaðist hér, var á fóstudaginn dæmdur í níu ára fangelsi í Eystri landsrétti í Kaup- mannahöfn fyrir að hafa tvívegis sent Valdísi Ósk Hauksdóttur í ferðii’ til Suður-Ameríku, þar sem hún sótti samtals fjögur kiló af kókaíni. Hún var handtekin í febrú- ar 1996 eftir tollskoðun á Kastrup á heimleið frá Úrúgvæ og hlaut ári síðar dóm upp á átta ár fyrir að hafa flutt eitrið og reynt að fá vin- konu sína til að gera slíkt hið sama. Daníel, félagi Chikes, átti að sækja hana þar og var einnig handtekinn. Hin kaklrifjaða heimsmynd „Það er eðlilegt að hann fái níu ár, því hann hefur á kaldrifjaðan hátt notað sér ungar stúlkur," segir Line, fyrrum kærasta Chike. Sömu niðurstöðu komst dómarinn að. Þau Chike voru saman í tæpa tvo mánuði á þeim tíma sem Chike sendi íslensku stúlkuna til Suður- Ameríku, en Line sleit sambandinu því hún hafði grun um að Chike hefði óhreint mjöl í pokahorninu. Bæði Line og Sophie, kona á fimm- tugsaldri, sem kynntist Chike um þetta leyti, báru vitni í máli hans. Ókunnugur áhorfandi í réttar- salnum við Bredgade á fóstudags- morgun sá ungan blökkumann sitja á milli verjanda síns, Thomas Ror- dam, sem er víðfrægur fyrir að taka að sér erfið mál og stúlku, réttartúlks, sem túlkar á ensku. Chike kom líklega til Danmerkur 1994 og talar ekki dönsku. Blökku- maðurinn Chike er hávaxinn og myndarlegur með greindarlegan svip, stutt hár og svört spangar- gleraugu, íklæddur bláum galla- buxum og -skyrtu undir grá- mynstraðri stórri peysu. A kaffihúsi í miðbænum líktist hann bandarískum háskólamanni. Á sakabekk líkist hann heldur ekki kaupmanni dauðans - en hvernig ættu þeir annars að líta út öðruvísi en eitthvað allt annað en þeir eru? Viðmót þeirra gerir þeim auðvelt að ná tökum á fólki, einkum ungum stúlkum, og nota þær sem peð í tafli um dauða og peninga. „Ég var hrifin af honum. Hann var sætur, kurteis og mér leið vel í návist hans. Hann er þægilegur í umgengni og hlýr,“ segir Line, há- vaxin, ljóshærð og glæsileg stúlka, sem vinnur á leikskóla. Þau hittust á skemmtistað í desember 1995 og Chike flutti til Line. Hann sagðist stunda viðskipti, en þó Line væri í vinnunni og fylgdist ekki með hon- um fór hana fljótlega að gruna að ekki væri allt með felldu. Chike spurði hana hvort hún vildi skreppa fyrir sig smáferð til Suður-Ameríku til að sækja pen- inga. Hún átti að fá ríflega upphæð fyrir að sækja heldur meiri upp- hæð. Line spurði af hverju hann opnaði ekki bankareikning og léti yfirfæra peningana. Nei, það hent- aði ekki. Til peningasendinga not- aði hann annars hraðsendingar- þjónustu. Chike lét hvergi skrá sig, hvorki í bankanum né hjá farsíma- fyrirtækjum, en notaði farsíma skráða á ýmsar vinkonur sínar. Síðasta skiptið sem Line hitti Chi- ke var 10. febrúar 1996. Þá var Val- dís Ósk í fylgd hans. „Við skemmtum okkur hið besta saman, hlógum mikið og töluðum um afrísk stjómmál,“ segir Sophie, grannvaxin og hress kona á fimm- tugsaldri, með örstutt, rautt hár. Hún er kennari, þekkir vel til í Af- ríku og umgengst Afríkubúa. Sophie bjó í Árósum, en kynntist Chike á dansklúbbi í Höfn í gegn- um sameiginlegan kunningja. „Hann bað um nafnið mitt og síma- númer, en mér datt ekki í hugað ég ætti eftir að sjá hann aftur,“ segir Sophie. Heimshomaflakkari með vegabréf til skiptanna í febrúar 1996 hringdi Chike, sagðist vera í vandræðum og vildi vera í Árósum um hríð. Hvort hann mætti gista hjá Sophie í viku? Það var velkomið, en vikumar urðu fimm. Seinna fékk Sophie að vita að Chike hringdi í hana daginn eft; ir að stúlkan frá íslandi var tekin. í Árósum hafði hann hægt um sig, horfði mikið á myndbönd - mafíu- myndir eru uppáhald hans. Eftir á áttaði Sophie sig á að Chike var að leita sér að nýju landi. Heimilisfangabók hans var full af nöfnum kvenna um allan heim. „Tímann í Árósum notaði hann til að skrifa bréf til þeirra, líklega til að undirbúa að hann gæti komið í heimsókn. Bréfin sendi hann án nafns sendanda," segir Sophie. Hann kom með farsíma, sem síðan var lokað, auðvitað skráður á stúlku. Þá fékk hann síma Sophie lánaðan. Einn góðan veðurdag var gestur- inn horfinn, tók með sér myndavél Sophie, skildi eftir farsímareikning upp á tæpar 80 þúsund íslenskar krónur, en borgaði henni síðar rúm 20 þúsund. Einnig áttaði hún sig á að hann hafði nælt sér í aukalykil að íbúðinni. Til að fá myndavélina bætta af tryggingunum varð hún að kæra stuldinn til lögreglu. Hún hafði þá passamynd af honum, sem hún hafði nælt sér í og undraðist hvað lögreglan hafði ríkan áhuga á málinu. Síðar fékk hún að vita að hann hefði farið til Amsterdam. Þeir stóru nást sjaldan Slóð Chikes er óljós. Þær Line og Sophie halda að hann sé undir fertugt, sjálfur segist hann fæddur 1964. Falsað, breskt vegabréf gerði honum kleift að ferðast óhindrað innan Evrópu. Hann sagði Sophie að hann væri fæddur í Bretlandi, ætti breskan föður, en foreldrar hans skilið þegar hann var tveggja ára og móðirin þá flutt heim til Ní- geríu. Þetta fannst Sophie ósenni- legt því á þessum árum var hung- ursneyð þar. Við kærustuna sagð- ist hann vera frá Jamaíka, sem hann dáðist mjög að og dansaði reggae. Þegar hún undraðist að hann væri alltaf með Nígeríumönn- um og talaði mál þeirra sagði hann að á Jamaíka væri töluð nígerísk mállýska. Það stóð aldrei á skýr- ingunum hjá Chike. Hann virðist hafa búið um allan heim, í Suður- Ameríku, Afríku og yíða í Evrópu. I máli Valdísar Óskar var ljóst að einhver hafði sent hana. Þótt sérgrein kaupmanna eins og Chi- kes sé að láta engin sýnileg tengsl vera milli sín og burðardýranna var Chike á endanum tekinn í Amster- dam. Hann var dæmdur á vísbend- ingum og yfirgnæfandi h'kum. Áþreifanlegar sannanir lágu ekki fyi-ir. Auk Valdísar Óskar og Daní- els sitja tveir aðrir í fangelsi í Hollandi eftir sendiferðir fyrir Chi- ke, þau Elisabeth, þýskumælandi kærasta hans og eiturlyfjaneytandi og Basil, æskuvinur hans. Line og Sophie eru sammála um að þótt Chike sé dæmdur sem hvatamaðurinn, þá séu aðrir stærri fiskar að baki honum. „En hann myndi aldrei segja frá þeim, því þeir sjá um að hann líði ekki skort í fangelsinu, greiða til fjölskyldu hans og honum eftirlaun þegar hann sleppur út.“ Tveir rannsókn- arlögreglumenn, sem voru við dómsuppkvaðninguna kinka kolli við þessi orð. Það er einmitt þessi samheldni, sem gerir það að verk- um að það er svo erfitt að klófesta þá stóru. A ► l-64 Að gefast aldrei upp ►Jón Ivar Rafnsson, þrítugur Akui-eyringur, slasaðist illa fyrii- rúmum áratug. /10 Hinir skeggjuðu á valdastól á Kúbu ► Stjórn Kúbu hélt upp á það í byrjun árs að 40 ár eru liðin frá falli einræðisherrans Batista. /12 Baráttufólkið í bakhúsinu ► Elín Ebba Ásmundsdóttir og Jon Kjell Seljeseth hafa tekist á við byggingaryfirvöld. /20 Gæðin mikilvægari en stærðin ► í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Ragnar Pálsson hjá Samverki á Hellu. /30 ► l-24 Kennarafjölskyldan ►Dætur kennaranna Sigríðar Jónsdóttur og Ásgeirs Guðmunds- sonar eru kennarai', svo og systk- ini og systkinabörn og faðir Ás- geirs var skólastjóri. /1&2-4 „Orðstlr deyr aldrei“ ► Ferðast til York og fleiri sögu- staða í Bretlandi sem snerta forn- sögur íslendinga. /8 Ævintýraleg kvikmyndagerð ► Kvikmyndaframleiðandinn Helgi Felixson stjórnar nú hverj- um ævintýraleiðangrinum á fætui' öðrum. /16 FERÐALÖG ► l-4 Samspil náttúru og nútímahönnunar ► Nýr baðstaður við Bláa lónið í úfnu apalhrauni. /2 Wengen í Sviss ► Miðpunktur skíðaíþróttarinnar einu sinni á ári. /4 D BÍLAR ► l-4 Mesta furðusmíð en mistækur í notkun ► GLK sportjeppi Jim Rogers prófaður. /3 Reynsluakstur ► Lipur og hagstæður Peugeot 206. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► l-24 Viðhorf endurskoð- enda til skattsins ►Afstaða endurskoðenda til emb- ættis ríkisskattsjóra er almennt jákvæð. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir l/WS/bak Brids 50 Leiðari 32 Stjörnuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54 Skoðun 34 Utv/sjónv. 52,62 Minningar 38 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 14b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 22b ídag 50 INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.